Tíminn - 04.12.1962, Blaðsíða 2
Hvað sem börn Elliabeth Taylor hafa haldlö um Rlchard Burton, þá lífur út fyrlr aö þau þurfl ekkl aö hafa
meiri áhyggjur.
Liz Taylor og Burton
leika saman að nýju
Fyrirsagnir blaðanna eru hætt-
ar að íjalla um rómverska
hneykslið, Richard Burton er snú
inn aftur til konunnar sinnar.
Ástarævintýrið milli Liz Taylor
og mótleikara hennar í Cleopötru
hefur tekið enda. Hefur ævintýri
þeirra kostað eyðileggingu
tveggja hjónabanda? Það er alls
ekki líklegt. Liz er áreiðanlega
frægasta hliðarstökk Burtons, en
hún var ekki það fyrsta og er
ekki það síðasta. Hjónaband
Burtonshjónanna endað'i ekki
með skilnaði og heldur ekki
hjónaband Liz. Þannig er enginn
skaði skeður, eftir því sem kjafta
kerlingarnar segja. Hvað skeð
hefur í Burtonsfjölskyldunni læt
ur Sybil kona Burton ekki uppi,
en henni hefur að minnsta kosti
tekist að bjarga börnunum frá
áhrifum af þessu og sjálf staðið
upprétt eftir. Liz er alltaf talin
hafa áhuga á einhverjum og sam
kvæmt nýjustu flugufregnum,
hefur hún þegar beint athygli
sinni að nýjum karlmanni, ung-
um dreng, sem vinnur í svissnesk
um banka, hvorki frægur nó um-
talaður, að minnsta kosti ekki.
enn. Svo er líka auðugur ilmvatns
framleiðandi með í spilinu, þann-
ig að Liz situr ekki í sorg. Hún
spjallar jafnvel við Sybil í síma,
þær virðast því hugsa með sér,
að þetta sé búið og gert, það
hafi enginn farið illa út úr þessu.
En þeim sést yfir þau, sem raun-
verulega fóru illa út úr þessu
ævintýrí Liz og Burton, það eru
börn Liz.
Þau eru þrjú, Michael tíu ára,
Chris átta ára, Lisa fjögurra ára
og tökubarnið, María, sem til
allrar hamingju, hefur ekki mik-
ið haft að segja enn þá.
Michael og Chris eru synir eig-
jnmanns númer tvö, Michael Wild
ing. Þeir eru mjög ólíkir, þó þeir
séu bræður. Mike er líklega sá,
sem mest hefur liðlð vegna Iifnað
arhátta móður sinnar. Kannski
af því að hann er elztur og man
gleggst eftir þeim þremur mönn-
um, sem hafa búið á heimilinu
sem feður hans. Hann er vel gef-
inn og viðkvæmur. Hann er ekki
beint uppáhald sinna nánustu, en
þeir eru til allrar óhamingju svo
til eingöngu þjónalið. Og það seg-
ir að hann sé skapillur og her-
skár og hann sé óréttlátur gagn-
vart yngri bróður sínum.
Chris er mjög gott barn og
þjónustuliðinu líkar vel við hann,
þar sem hann veldur engum
vandræðum. Hann gerir það sem
honum er sagt að gera. Þegar
eldrj bróðir hans stríðir honum,
tekur hann ekki á móti, heldur
sættir si" við það. Það er eins
og honurá finnist ómögulegt að
sigrast á heiminum og hvers
vegna ætti hann þá að vera að
berjast. Hann þarf á leiðbeining-
um karlmanns að halda og hann
saknar Eddie Fishers mjög mik-
ið.
Liza er töfrandi lítil stúlka.
Hún er líkari Mike Todd en hinni
fallegu móður sinni, en hún 'er
ákaflega aðlaðandi. Allir, jafn-
vel Michael, tilbiðja hana. Hún
átóð næst fósturföður sínum,
Eddie, þar sem hann eyddi mikl-
um tíma með henni, meðan móð-
ir hennar var að vinna. Og Liza,
sem engan annan föður þekkir
en Eddie mátti varla af honum
sjá.
Það er enginn vafi á því, að
Liz finnst vænt um börnin sín,
á sinn sérstaka hátt, en það er
ómögulegt, að hún geri sér Ijóst
þau áhrif, sem lífemi hennar
hefur á þau. Auðvitað getur kona
sem gift hefur verig fjórum sinn-
um og hneykslaði allan heiminn
með fimmta hjónabandi sínu,
ekki verið hin fullkomna móðir.
Hún hefur hingað til ekkert gert
til að gefa börnum sínum örugg-
ara og hamingjusamara lif.
Ef þið munið eftir gömlum
myndum af börnum hennar, þá
er eftirtektarvert, að börnin þrjú
sjást aldrej brosandi. Jafnvel við
brúðkaup þeirra Liz og Eddie
stökk þeim ekki bros. En þegar
þau byrjuðu að kynnast Eddie
og viðurkenna hann sem föður
sinn, byrjuðu myndir af þeim að
líkjast hamingjusömum og bros-
andi börnum.
Nú sem stendur býr Liz ásamt
börnunum í lúxusvillu, sem hún
keypti í Sviss, meðal annars fylg-
ir húsinu fullkomið atómbyrgi,
en mjög fáir hafa getað veitt sér
þann munað til þessa. Næsta
mynd er hún mun leika í heitir
„I love Louisa" og leikur Richard
Burton aðalhlutverkið á móti
henni. Fyrir myndina fær Liz
milljón doilara.
■" ' - ' J
Minning:
Friðgerður
Guðmundsdóttir
Hún andaðist að heimili sínu,
Skeggjagötu 19, 6. nóv., eftir langt
og erfitt sjúkdómsstríð. Friðgerð-
ur var fædd í Stúfholti í Holtum,
19. marz 1874. Árið 1908 giftist
hún Ara Arasyni, ættuðum úr
Austur-Skaftafellssýslu, og mjög
bráðlega hófu þau búskap að Kald-
bak á Rangárvöllum . Ari lézt
snemma vors árið 1940, en Frið-
gerður bjó í rúmt ár eftir lát hans.
Þeim varð ekki b.arna auðið, en
ólu upp að öllu eða mestu leyti
þrjá drengi, en hún varð fyrir
þeirri þungu sorg ag sjá á bak
þeim öllum á bezta aldri. Sá
íyrsti lézt um tvítugt, annar, sá
er mest var hjá henni, Þórarinn
Bjarnason, lézt fimm mánuðum á
undan manni hennar, og var hún
þá orðin ein í bænum. Þriðji fóst-
ursonurinn, Guðni Guðmundsson,
var þá farinn til Reykjavíkur og
búinn að stofna sitt eigið heim-
jh. Þetta varð erfiður vetur fyrir
Friðgerði, þótt ekki væri hún
jengi alein. Hún var með afbrigð-
um vel kynnt og nú komu nágrann
ar og vinir til hjálpar. Ná-
búar hennar á Þingskálum og vin-
ir hennar á Lækjarbotnum á Landi
reyndust henni fyrr og síðar
traustir vinir. Friðgerður fluttist
svo til Guðna og hans góðu konu,
Þórönnu Guðjónsdóttur, en enn
i þá einu sinni kvaddi dauðinn dyra,
því ag Guðni andaðist nokkrum
árum síðar á bezta aldri frá konu
og 3 börnum, en Friðgerður hef-
ur dvalizt hjá ekkjunni og henn-
ar börnum síðan, og það held ég
að hafi verið hennar mikla lán
að hafa aldrei þurft að fara frá
þessari góðu fjölskyldu. Frú Þór-
anna, börnin og systir Þórönnu,
Svanhildur, hafa annazt hana af
ólýsanlegri ástúð, blinda og sjúka
og nú í lengri tíma alveg ósjálf-
bjarga. Þegar ég var níu ára, var
ég búin að vera lengi veik á
sjúkrahúsi, læknar ráðlögðu, að
ég færi í sveit til hressingar. Mér
var komið fyrir hjá Friðgerði og
Ara og átti ég að vera mánaðar-
t)ma, en dVölin varð að mörgum
sumrum og einum vetri og ég á
ekki betri ósk nokkru barni en að
dvelja á slíku heimili. Friðgerður
var sérstök við börn, mér hefur
oft dottið í hug að hún hefði orðið
góður barnasálfræðingur, svo vel
skildi hún barnssálina. Hún var
vel greind, minnug og las mikið,
eftir því sem stundir leyfðu. Hún
»ar ákaflega trúrækin, las t.d. oft-
ast húslestur. Hún kunni mikið
af góðum kveðskap og gat vitn-
?ð í ljóð við hvaða tækifæri. sem
var. Henni var einnig gefin sú
náðargjöf ag vera glaðsir.r.a og
bjartsýn i öllum sfnum erfiðleik-:
um, og oít bakkaði hún for.’jón-
innj fyrí* að ri r.<5 eiga heimili hjá
Frareihaíd 5 4. síSu.
Orðsending til útgerðarmanna Að gefnu tilefni viljum við tilkynna að við munum hér eftir, sem áður annast viðhald og varahluta- sölu fyrir kraftblokkirnar og munum við mjög bráðlega afgreiða varahluti beint frá framleið- endum. Vélaverkstæði Sig. Sveinbjörnssonar h.f. Reykjavík Aðalfundur Aðalfundur í Samlagi skreiðarframleiðenda verður haldinn í Sjálfstæðisliúsinu í Reykjavík, fimmtudaginn 6. des. n.k. og hefst kl. 10,30 árd. Dagskrá samkvæmt félagslögum. % Lagabreytingar. Stjórnin
íbúð óskast Sendiráð Bandaríkjanna óskar eftir 3ja til 4ra herb. íbúð við miðbæinn til 2ja ára. Upplýsingar í síma 24083 TiEboð éskasf í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar í Rauðarár- porti fimmtudaginn 6 þ.m kl 1 til 3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag. Sölunefnd varnarliðseigna.
2
T f M I N N. þriði>iil''gr.i' 4. desombev it-cí