Tíminn - 04.12.1962, Blaðsíða 5

Tíminn - 04.12.1962, Blaðsíða 5
 IÞROTTIR - ■— . - ■ ■ msmv$ RITSTJORI HALLUR SIMONARSON NAIIMUR SIGUR IR-INGA GEGN UNGUM KR-INGUM Um síðustu helgi hélt Reykja víkurmótið í körfuknattleik áfram að Hálogalandi. Leikn- h' voru tveir leikir í meistara- flokki karla, en auk þess fóru fram nokkrir leikir í yngri flokkunum. Úrslit hafa feng- izt í einum flokki á mótinu — í 1. flokki, — en þar varð Ár- mann Reykjavíkurmeistari. Á laugardaginn mættust í meist araflokki Ármann og KFR. Fyrir- fram hafði verið búizt við jöfn- um leik, en svo varð ekki. KFR hafði yfirburði allan leikinn og sigraði með 62 stigum gegn 28. Á sunnudaginn hélt mótið svo áfram, þá léku í meistaraflokki ÍR og KR. Leikurinn var mjög jafn og spennandi og endaði með sigri ÍR 49—44. Árangur KR-inga í leiknum er mjög góður, þegar þess er gætt, að lið þeirra er nær eingöngu skipað drengjum úr 2. aldursflokki, en í liði ÍR eru sjö landsliðsmenn. Á sunnudaginn fór einnig fram leikur í 1. flokki, milli Ármanns og ÍR. Ekki var þátttaka frá fleiri félögum í þessum flokki, þannig að um hreinan úrslitaleik var að ræða. Ármann sigraði með 46 stig um gegn 29. Leikurinn var frek- ar illa leikinn — sérstaklega sf hálfu ÍR-inga, sem virtust með öllu æfingarlausir. Beztir í liði Ár manns voru þeir Árni Samúelsson, Hörður Kristinsson — báðir kunm ir handknattleiksmenn með meist araflokki Ármanns — og Jón Þór Hannesson, en þeir skoruðu flest stigin. Ágætan leik í liði ÍR sýndi Ingi Gunnarsson, en hann skoraði 16 stig. Ðómarar í leiknum voru þeir Halldór Sigurðsson og Helgi Ágústsson og dæmdu heldur illa. Úrslit leikja j yngri flokkunum um helgina urðu þessir: I 3. flokki vann ÍR KR með 38:20 og í 4. fl. vann Ármann b-lið ÍR 14:12. Þá voru nokkrir leikir leiknir í íþróttahúsi Háskólans á sunnudag inn. í 4. flokki vann ÍR KFR 31:6 og Ármann vann KR 12:4 og í 2. flokki vann ÍR KR með 64:19. KFR—Ármann 62:28. Það fór víðsfjarri, að leikurinn yrði jafn, eins og búizt hafði verið við. Yfirburðir KFR voru miklir og sýndi liðið nú betri og allt ann an leik en gegn KR á dögunum. Leikurinn var jafn fyrstu mínút- urnar en síðan fór smám saman að síga á ógæfuhliðina fyrir Ármann. Lokatölur urðu 62:28 KFR í vil — og er það mjög stór sigur. Langbeztir í liði KFR voru þeir Einar Matthíasson og Ólafur Thor- lacius, en ágætan varnarleik sýndi Sigurður Helgason. Lið Ármanns var allt sundurlaust og lélegt og er langt síðan það hefur leikið jafn illa. Skástur var Guðmundur Ólafsson, en hann skoraði 10 stig. Lítið bar á landsliðsmönnum liðs- ins — og skoraði Birgir Birgis t. d. aðeins tvö stig, sem er óvana- legt. i ÍR—KR 49:44. Þessi leikur undirstrikar ræki- lega, að við erum að eignast nýtt stórveldi í körfuknattleiksíþrótt- inni. KR-liðið hefur svo sannar- ® ® B i ® finíar.vr Tvisýmr leikir á badmintonmóti S.l. laugardag lauk haust- móti Badmintonfélags Reykja víkur, sem fram fór í íþrótta- húsi Vals. Helgina þar áður lauk hins vegar keppni í ■ kvennaflokkum og fyrir byrj- endur. í karlaflokki var keppnin nokk- uj skemmtileg — og úrslitaleik- irnir sérlega spennandi. Sigurveg- arar urðu þeir Lárus Guðmunds- son og Karl Maack, en þeir léku úrslitaleikina gegn þeim Garðari Alfonssyni og Óskari Guðmunds- syni, bróður Lárusar, og unnu þá 15—13 í báðum lotum. Um for- gjafakeppni var að ræð'a í karla- flokki, en hún virtist lítil áhrif hafa. Hulda Guðmundsdóttir og Rann veig Magnúsdóttir sigraðu í kvennaflokki, en í byrjendaflokki1 sigruðu þeir Trausti Eyjólfsson og Bjarni Ásgeirsson. Mótið fór hið bezta fram og var þatttaka mjög góð. Eftir mótið var haldið' hóf í félagsheimili Raf- veitunnar við Elliðaár, og sigur- vegurunum afhent verðlaun. EI'NAR BOLLASON, til vinstrl, bezti leikmaður KR, reynir að hindra ÍR ing í að skora. (Ljósm.: Sveinn Þormóðsson). lega komið á óvart í mótinu. Fyrsta leiknum tapar liðið naum- lega fyrir Ármanni — mest fyrir litla keppnisreynslu, annan leik- inn við KFR vinnur liðið með yf- irburðum og nú síðast tapar liðið, sem mestmegnis er skipa drengj um úr 2. aldursflokki, fyrir ÍR, sem hefur sjö landsliðsmenn — og aðeins fimm stig skilja á milli. Leikurinn var allan tímann jafn og hörkuspennandi. KR tók for- ustuna í byrjun, en ÍR fylgdi fast á eftir. Rétt fyrir hálfleik tókst ÍR að jafna og komst tveimur stigum yfir. Staðan í hálfleik var 20—18. í\ seinni hálfleiknum hélt ÍR yfirleitt forustu, en KR tókst þrívegis að jafna. Eftir miðjan seinni hálfleikinn áttu ÍR-ingar góðan leikkafla og komust átta stigum yfir 41:33. Lokasprettur KR-inga var sér lega góður, en liðið var samt sem áður mjög óheppið með körfu- skot. Leiknum lauk með sigri |R 49:44. ÍR-liðið átti heldur slakan leik og vera má, að það hafi ekki reilcn að með mikilli mótstöðu. Beztir voru Þorsteinn Hallgrímsson og Helgi Jóhannsson, sem skoruðu 14 stig hvor. f liði KR var Einar Bollason, sem áður, traustasti maður — hann sýndi ágætan varnarleik, en var fremur óheppinn með körfu- skot. Annars sýndu mjög góðan leik Guttormur Ólafsson og Kol- beinn Pálsson. Dómarar í leiknum voru Guð- jón Magnússon og Björn Arnórs- son. — guj. í.. ................ ................... ...... ...... .. . Lárus GuSmundsson og Karl Maack — sigurvegarar í tvíliðaleik. Oipelbílarnir í happdrættinu Guðjón. „Ég er víst búinn að selja virðast njóta mikilla vinsælda, eina 200 og hef ekkert þurft fyr- ENDA ERU MIÐARNIR ÓDÝRIR, ir því að hafa“. Svipað þessu hafa KOSTA AÐEINS 25 KRÓNUR. í tnargir sölumenn talað, sem haft gærdag hrjngdu tveiT umboðs- hafa samband við skrifstofuna. menn, Guðjó,n Friðgeirsson á Fá- skrúðsfirði og Sigurður Þorsteins Umboðsmcnn eru beðnir að son, Heiði í Biskupstungum, og hafa samband við skrifstofuna og báðu um fleiri miða. „Þessir mið-' taka meira af miðum til sölu. — ar eru úrvalssöluvara, renna út Sameiniað átak trygigir góða út- eins og heitar lummur", sagði I komu. T I M I N N, þrið’judagur 4. desember 1962. —

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.