Tíminn - 19.12.1962, Side 1
BÖKUNARVÖRUR
HEILDSÖLUBIRGÐIR
SKIPHOLT HF SÍMI23/3/
TOTALIA
(•eiknivélar
/gj Ot»6 A Michelsen
klapparslfg 25-7
sfmi 20580
FIMM MANNA FJÖLSKYLDA BORIN ÚT
FOR OG BEBÐ ATEKTA
BÓ-Reykjavík, 18. des.
Þorsteinn Löve, kona hans
og þrjú ung börn voru borin
út í dag. Búslóð þeirra var
flutt í geymslu, og hjónin fóru
me8 börnin á framfærsluskrif
stofuna í Pósthússtræti, þar
sem húsnæðismáladeild
Reykjavíkurborgar er til stað-
ar, og settust þar, en þeim
var þá ekki kunnugt um neitt
húsnæði, sem þau gætu flutt í.
TI'L VINSTRI: Saumavélin borin út í Álfheimum 36. Burðarmaðurinn se tur hana fyrir andlitið til að hann þekkist ekki. Til hægri: Þorsteinn
gengur út með yngsta barnið á handleggnum og leiðir hin tvö. (Ljósm : TÍMINN-RE)
BSRB HEFUR RAÐAD í
NÝIA LAUNAFLOKKA
JK-Reykjavík, 18. desember.
Eins og kunnugt er sam-
þykktu starfsmenn ríkis og
bæja tillögu að nýjum launa-
stiga á þingi bandalags þeirra
í haust. Nú hefur kjararáð
BSRB raðað starfsmönnum og
embættismönnum hins opin-
bera niður í þessa 31 launa-
flokka. Þessi niðurröðun hef-
ur ásamt iaunastiganum ver-
ið afhent samninganefnd rík-
isstjórnarinnar sem samnings
grundvöllur BSRB í viðræðun-
um um breytt kjör opinberra
starfsmanna.
Samkvæmt röðuninni eru af-
greitfslumenn í 3. og 7. flokki, þar
sem byrjunarlaun eru 5621 króna
og 6963 krónur á mánuði, en loka-
laun 7346 krónur og 9100 krónur.
Vélritarar eru í 5., 8., og 10 flokki
með byrjunarlaunin 6256 kr., 7346
kr. og 8176 kr., en lokalaun 8176
kr., 9600 kr. og 10.685 kr. á mán-
uði. Bókarar eru í 9. og 12. flokki
með minnst 7750 kr., en mest
11.893 kr. Slökkvilið'smenn eru í
11. flokki með 8626 kr. — 11.273
kr., en tollverðir og lögregluþjón-
ar eru í 12. flokki með loftskeyta-
mönnum með 9100 kr. — 11.893 kr.
Almennir fulltrúar eru í 13. og 15.
flokki með minnst 9600 kr., og
! Framhald á 15. síðu.
Þar með hafði það gerzt, sem
blaðið skýrði frá að vofði yfir
þessari fjölskyldu, á sunnudaginn.
Eins og tekið var fram, er Erla
Norðkvist, kona Þorsteins, komin
sex mánuði á leið að fjórða barn-
inu. Erla veiktist um helgina og
Þorsteinn leitaði læknis og hafði
hún fótavist í dag.
Fjölskyldan kom á skrifstofuna
klukkan 3. Blaðið spurði eftir
skrifstofustjóranum klukkan 4,
en hann var ekki viðlátinn. Starfs
maður svaraði, að fjölskyldan
væri þar og kvaðst hafa séð eitt
barnið sofnað á bekk. Fréttamað
ur blaðsins kom á skrifstofuna
fyrir klukkan 5, en hjónin voru
þá inni hjá skrifstofustjóranum.
Næstyngsta barnið svaf á stólum
frammi í afgreiðslunni og elzti
drengurinn var þar að teikna á
blað. Hjónin komu frá skrifstofu-
stjórarium um klukkan 5 og sagði
Þorsteinn, að þau mundu fá
tveggja herbergja ibúð á morgun.
Sjálfur mundi hann verða í Kópa
vogi í nótt, en konan hafði fengið
inni hjá systur sinni með börnin
Skrifstofustjórinn, Sveinn Ragn
arsson, skýrði síðan frá, að hann
hefði verið búinn að tryggja fjöl-
skyldunni næturstað í Herkastal-
Framh. á 15. síðu
Portúgal samþykkir að S. Þ.
sendi nefnd til Angola
NTB-New York, 18. des.
ALLSHERJARÞING Samein
uðu þjóðanna samþykkti í dag
tillögu, þar sem þess er farið
á leit viS Öryggisráðið, að það
láti grípa til nauðsynlegra ráð-
stafana, þ. á. m. refslaðgerða
gegn Portúgal, til þess að fá það
til þess að láta af nýlenduveld-
inu í Angola og fá það til að
veita Angola sjálfstæði hið
bráðasta. Tillagan var sam-
þykkt með 57 atkvæðum, 14
voru á móti, en 18 sátu hjá.
Auk þess var 21 fulltrúi fjar-
verandi.
Tillagan er borin fram af
Alsír, Arabíska sambandslýð-
veldinu, Madagaskar, Mali,
Sýriu, Tanganyika, Tunis og
Júgóslavíu.
Aðeins fáeinum mínútum eft
ir að atkvæðagreiðslan hafði
farið fram, samþykkti fulltrúi
Portúgals hjá SÞ, Vasco Garin,
tillögu Bandaríkjanna um að
sendinefnd verði send tll Ang
ola og Mozambique á vegum S
Þ, og fái hún að kynna sér
málin frá fyrstu hendi. Er
þetta í fyrsta sinn, sem fulltrúi
Portúgals samþykkir slíka til-
lögu.
Garin stakk upp á því, að
fulltrúar SÞ færu til beggja
landssvæðanna, og mættu þeir
ferðast um að eigin vild, og
tala við hvern þann mann, sem
þeir óskuðu eftir að hitta.
Garin mótmælti síðan hinni
ósanngjörnu tillögu, sem áður
hafði verið samþykkt, og
bætti við, að yrði gerð tilraun
til þess að framkvæma refsi-
aðgerðirnar þá Ieiddi það til
þess eins að traustið á samtök-
unum myndi rýrna, og að lok-
um myndu þau líða undir lok.