Tíminn - 19.12.1962, Side 6
s
M
U
R
S
T
■■
O
Ð
R
S
T
■ ■
o
Ð
KOMIN í VERZLANIR
Heildsölubirgðir:
ÞÓRHALLUR SIGURJÓNSSON
Þingholtsstræti 11
Sími 18450
Jólatré með rótum
Falleg og góð jólatré, sem ekki fella barrið.
GRÓÐRARSTÖÐIN Bústaðablett 23
(á móti raðhúsunum).
í GÆR var síðasti fundur neðri deildar fyrir jól. Kvaddi forseti
þingdeildarmenn og þakkaði Lúðvík Jósepsson fyrir hönd þing-
manna.
•fc FRUMVARP um að framlengja bráðabirgðaákvæði um að hluti
s'tofnlánadeildar af útflutningsskatti skuli á árinu 1963 renna áfram
til greiðslu vátrygginganðgjalda fiskiskipaflotans var samþykkt
gegnum 3. umr. í neðri deild í gær.
•fa -fc NOKKRAR umræður urðu um frumvarpið um framlengingu á
gjaldinu til bændahaliarinnar í efri deild. Jón Þorsteinsson og
Alfreð Gíslason lögðust gegn samþykkt frumvarpsins. Frumvarpið
var afgreitt gegnum 2. og 3, umr. í gær sem lög frá Alþingi.
* if FORSÆTISRÁÐHERRA hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar
um frestun á fundum Alþjngis. Er lagt til að Alþingi verði frestað
frá 20. des. n. k. til 29. jan. 1963.
í Balbó-kamp 7 eru
mjög erfiöar aðstæður
í Balbó-karnp 7, beint fyrir neð-
an Laugarásbíó hafa miklir erfið-
leikar barið að dyrum. Heimilis-
faðirinn slasaðist 17. nóvember við
vinnu sína, með þeim hætti, að
miðstöðvarofn datt á fót hans og
fóturinn brotnaði um hnéð, og hef
ur hann legið rúmfastur í gipsi
síðan. Eflaust verða 2 mánuðir
þangað til hann hefur von um að
verða vinnufær. Húsnæði fjöl-
skyldunnar er braggaskúr frá síð-
asta stríði. Flatarmálið alls um
50 fermetrar, 3 smáherbergi, lítið
eldhús og miðstöð, ekkert bað.
Gluggar ónýtir, þakið lekt og
kynda verður nótt og dag, svo að
ekki frjósi inni á nóttunni.
í þessu húsnæði býr 9 manna
fjölskylda, sjö börn frá fermingu
niður í 6 mánaða.
Þetta eru erfiðar ástæður, fyrir-
vinnan forfallast og ekkert viku-
kaup til þess að kaupa daglegar
nauðsynjar. Vitanlega fá þessi
hjón barnalífeyri, en það er lítið
meira en fyrir olíunni til þess að
halda kofaskriflinu heitu. Þannig
er nú ástandið í okkar þjóðfélagi,
margir hafa fín hús og mikla pen
inga, en víða er mikil fátækt og
allsleysi, svo að ekkert má út af
bera. Þessi hjón hafa nú sótt um
eina af íbúðum borgarinnar, sem
verið er að úthluta við Álftamýri,
að áeggjan minni, eflaust eiga
þau kost á henni, en útborgunín
er kr. 98.000.00 og engir peningar
Bifreíðaleiga
Land-Rover
Volkswagen
án ökumanns
LHIa bifreiðaleigan M
é tro £íini>í: A uauBlJuIri { "bii
eru til. Á gamlárskvöld er skotið
hér flugeldum fyrir 2 milljónir,
að minnsta kosti. Ef borgarbúar
drægju 5% úr þessari árangurs-
lausu skothríð, væri komið í út-
borgun f íbúð fyrir þessa allslausu
fjölskyldu. Svo ekki sé talað um,
ef líka væri dregið úr áfengis-
kaupum.
Vetrarhjálpin hefur sent þess-
ari fjölskyldu úttekt fyrir kr. 500
og forstjóri Esso lét fylla olíu-
geyminn til upphitunar á húsinu.
Það eru margir, sem betur fer,
sem eru aflögufærir, enda þörfin
víða mikil fyrir aðstoð.
Reykvíkingar myndu setjast
ánægðari að jólaborðfnu, ef þeir
minntust áður fjölskyldunnar að
Balbó-kamp 7, eða annarra, sem
búa við álíka aðstæður.
Hjá'lmtýr Pétursson.
SMPAUTGCRÐ RÍKISIMS
Ms. Hekla
fer aukaferð til Austfjarða 20.
þ.m. Vöramóttaka árdegis í dag
til Fáskrúðsfjarðar, Reyðar-
fjarðar, Eskifjarðar, Norðfjarð
ar og Seyðisfjarðar. Farmiðar
seldir í dag.
Unglingspiltur
13 til 15 ára óskast í sveit
upp úr áramótum.
Upplýsingar í síma
35249
VALVER
LAUGAVEGl 48
Við aðstoðum
yður við að
gleðja börnin.
Avallt úrval
af leikföngum.
VALVER
SÍMl 1 56 92
Sendum heim
og I póstkröfu
um land allt.
SKIPADEILD
Ms. „Jökulfell“ sís
LESTAR I: !
HAMBORG UM 4. JAN.
MALMÖ UM 7. JAN.
AARHUS UM 8. JAN.
SKiPADEILD SÍS
Forðizt jólaösina, verzliö tímanlega.
Ódýrir innískór.
Ódýrar Terrylene-skyrtur.
MUSICA NOVA
FYRSTU tónleikar vetrarins á
vegum Musica Nova voru haldnir
að Hótel Borg þann 12. des. s.l.
Flest verkin sem flutt voru eru
ný — eða nýleg, nema eitt, eftir
Hindemith. Ungur danskur höf-
undur að nafni Jan Maegaard átti
fyrsta verkið á efnisskránni, sem
hann nefnir „Serenata“. Nöfn á
tónverkum, og þá einnig málverk-
um geta stundum verið fráleit og
villandi, þessi „Serenata“ dagsins
í dag er heldur þurrt og fáskrúð-
ugt tónverk, sem a. m. k. við fyrstu
heyrn veitir hlustanda sáralitla á-
nægju. Þeir Einar G. Sveinbjörns-
son fiðla, Einar Vigfússon cello og
Atli Heimir Sveinsson píanó, fluttu
þetta verk mjög vel og samvizku
samlega. Duett fyrir klarinett og
fiðlu eftir Gunnar Berg léku þeir
Gunnar Egilsson og Ingvar Jónas-
son. Höfundur er einnig danskur
og er þetta verk hans svo knappt
að ætla mæ.ti að hans motto væri
að vera stu'.torður, en þó ekki að
sama skapi gagnorður svo að helzt
líkist sparsemi á alla kanta. —
Hörpusóló Jude Mollenhauer
Webster í sónötu eftir P. Hinde-
mith var sem hressandi andblær
alveg frábærlega vel og örugglega
Póstsendum
leikið, enda verkið fallegt, og vel
samið fyrir þetta hljóðfæri.
Leifur Þórarinsson átti þarna
Afstæðu I og II. Ólíkir þættir inn-
an sama ramma. Leifur virðist
kunna fótum sinum forráð og
ekki eftirláta tilviljuninni neitt,
án þess þó að þetta verk snerti
hlustandann djúpt, er maður samt
sáttur við það. Flutningur þeirra
Björns Ólafssonar fiðla, Einars Vig
fússonar celló og Þorkels Sigur-
björnssonar píanó, var afbragðs-
góður og átti sinn þátt í að lífga
þetta verk.
Þrjú sönglög Fjölnis Stefánsson
ar við ljóð Steins Steinarr, Tíminn,
og vatnið, söng Hanna Bjarnadótt-
ir með píanóaðstoð Jórunnar Við-
ar. Lögin eru afar erfið til söngs,
allt að því ósönghæf, með stökk-
um í ferundum og sjöundum. Gerði
söngkonan þeim mjög góð skil,
og er sem rödd hennar hafi vaxið
mikið að styrkleika. Píanoröddin,
sem þessum lögum fylgir, er veiga-
lítil og veikbyggð stoð í þeim
fyrir söngvarann, og spurning
hvort þau væru ekki betur sett
„a cappella“.
Aðsókn að þessum tónleikum
var heldur dræm, og er sem áheyr
endum fari fækkandi, því svo vel
fóru þeir af stað á sínum tíma,
að nær alltaf var þéttsetið hús.
Verkefnaval er alltaf vanda-
samt, hvort heldur um er að
ræða, gamla eða nýja tónlist, og
væri óskandi að meira líf færðist
í þessa starfsemi á komandi ári.
Unnur Arnórsdóttir.
6
T f M I N N, miðvlkudagur 19. desember 1962.