Tíminn - 19.12.1962, Page 14

Tíminn - 19.12.1962, Page 14
falskur virðuleiki. Hið síðar- nefnda var honum framandi; har.n hataði það hjá öðrfum, — og meðal þeirra, sem hann urn- gekkst, var meira en nág af því. Þegar hann var kominn á leið- arenda og heyrði kunnuglega rödd stúlkunnar segja: „Hal]ó“ í dyrasímann dálí'tið hásri röddu cg svaraði sjálfur með orðinu „Rebekka!“ eins og uppreisnar- maður, rann skyndilega upp fyrir honum, hve hlægilegt þetta var. Kann heyrði lágt suð; og dyrnar opnuðust. Hann fór upp í lyftunni. Hann varð fyrir miklum von- brigðum. Ljóshærð brúða, — það var allt og surnt! Hann kallaði hana ungfrú Rosemarie, svo að henni skildist, að hann væri ekki kominn í sömu erindagerðum og allir hinir, og þetta smávægilega herbragð gerði hana jafnóörugg- ara og hún var; þegar hún kynnt- ist Hartog íyrst. Hún vissi, hver hann var. Ein af þeim fáu bókum, sem hún átti, var „Hver er hver í Þýzkalandi?“, sem Bruster hafði ráðlagt henni að kaupa. „Þú skalt ekki reyna við neinn, sem ekki er í þeirri bók“, hafði hann sagt við hana. „Það er ekki víst, að allir, sem þar er getið, séu neinir stórlaxar, en þar eru samt sem áður allir aðalkarlarnir." Og hún vissi, að Wallnitz var enginn smákall! Hvaða erindi gat hann átt, úr því að hann ætlaði ekki að tfænga hjá henni? Hún fann til tortryggni, sem gerði hana órólega og óör- ugga. WaUnitz gat ekki talað við hana, eins og hann hafði hugsað sér. Hún hafði víst ekki sérlega mikla kímnigáfu. Hann gat ekkert annað gert en gengið hreint til verks og spurt hana beint um það, sem hann vildi fá að vita. „í fyrrakvöld kom til þín náungi frá Hamborg, — stór, dökkhærður með ör á kinninni. Manstu eftir honum?“ „Notaði hann aðgangso'rðið?" „Já.“ Rosemarie gekk að skrifborðinu sínu, opnaði eina skúffuna og tók upp spjaldskrána. Spjöldin með viðskiptavinunum frá Mallenwurf & Erkelenz voru með bláum rönd- um. Hún þurfti ekki lengi að leita. „Er það Kroog, sem þú átt við?“ ■spurði hún. „Já“, sagði Wallnitz. „Hvað var hann lengi hérna?“ „Frá tíu mínútur yfir ellefu til hálfeitt eftir miðnætti“, las Rose- marie af spjaldinu. „Aha!“ sagði Wallnitz og reyndi að dylja undrun sína yfir hinu ná- kvæma svari hennar. „Sem sagt nokkuð lengi?“ „Já,“ sagCi Rosemarie. „Og hvenær settirðu bandið í gang?“ „Undir eins“, sagði Rosemarie. „Og hve lengi hafðirðu það í gangi?“ 47 „Allan tímann", sagði hún. „Humm“, sagði hann. ,,Má ég sjá bandið?" „Það er búið að taka það,“ sagði Rosemarie. „Eg á við tækið, en ekki spól- una.“ „Það fær enginn að fara þar inn“, 'Sagði Rorsemarie. „Jú, ég“, sagði hann. „Veiztu, hvar það er?“ „Nei, það fær enginn að fara þangað inn,“ sagði Rosemarie. „Herra Schmitt . . . “ „Heyrðu mig nú! Eg er einmitt kominn hingað á hans vegum.“ Hún leit á hann. Hann brosti, en það breytti engu. „Hefurðu einhver skilríki upp á það?“ sagði Rosemarie. Hann var farinn að hafa gaman af henni. „Láttu nú ekki svona, ungfrú Rosemarie,“ sagði hann. „Bg hef engin skilyrði, að minnsía kosti ekki eins og þú átt við. Þú veizt vel, hver ég er. Við töluðum þó alltaf í símann.“ „Símann!“ sagði Rosemarie. „Þú vilt kannski sjá vegabréfið mitt?“ sagði hann. „Já, “ svaraði Rosemarie í fullri alvöru. Hann varð mjög undrandi, en tók upp vegabréfið sitt, og lagði það á borðið. Hú nleit á myndlna og fletti því. „Þú ferðast mikið“, sagði hún. „Já“, sagði hann í viðurkenn- ingartón. „Segulbandstækið er frammi I eldhúsi11, sagði hún. „En það er læst inni, og ég hef ekki lykil- inn.“ „Hann hef ég“, sagði Wallnitz. Hann hafði fengið hann hjá Lor- enz. „Sýndu mér nú, hvcr ..." Hún fylgdi honum fram í eld- húsið. Hann opnaði skápinn. Lor- enz var búinn að skipta um spólu. „Hvar seturðu það í gang?" spurði hann. Endrikat sagði mér, að það hefði ekkert meira verið á bandinu. Annaðhvort hefur Rosemarie slökkt á tækinu eða það hefur bilað eitthvað.” „Ertu kannski að hugsa um að gerast rafvirki?“ Einkaritarinn tilkynnti, að Hoff mann, skattsvikasérfræðingur fyr- irtækisins, væri mættur. „Augnabl.ik“, sagði Schmitt. „Eg gæti það vel“, sagði Wall- nitz. „Eg var þrjú ár í Siemens- verksmiðjunum, þegar ég var ung- ur, en í alvöru talað, þá er ég nú búinn að heyra rödd hennar og langar að sjá, hvernig hún lítur út. Hún hefur anzi líflegan mál- róm.“ „Það hef ég alltaf sagt“, svar- aði Schmitt. Wallnitz hafði tvisvar fallið fyr- ir þeirri frestingu að bera afritið saman við talið á bandinu. Af því að hlusta á tónfallið í rödd Rose- marie hafði hann orðið forvitinn um hana. Það hafði vakið áhuga hans, hve hún virtist vera ástríðu- full og tilfinningarík, þegar hún hækkaði og lækkaði röddina til skiptis og hvíslaði orðin, sem allt- af hefur verið talið sjálfSagt, að væru innifalin í verðinu og alltaf eru jafnki.tlandi fyrir hlustir þeirra, sem þeim er beint til, þrátt fyrir falsið og innihalds- leysið. Slíka staði í afritinu merkti frú Endrikat með punktalínum. Af bandinu varð ljóst, að hún sagði ýmsar athugasemdir í sér- stökum tón, sem var að vissu leyti ofur venjulegur; þá hefði hún eins getað verið að skipa manni á þvottaplani að þvo bílinn sinn. Þess vegna skorti afritið mik- ilvæga fyllingu og líf. Wrll- nitz var gæddur talsverðri kímni- gáfu, og hann þóttist geta dregið þá ályktun eftir að hafa hlustað á bandið, að Rosemarie væri það líka. Hann gat ekki ímyndað sér annað ea þessi snöggu blæbrigði frá ástríðufullu hvísli yfir í ó- svikinn viðskiptatón væru henni meðvituð. Hann hélt, að hún beitti þeim í háði og væri að gera grín að þeim, sem lögðu leið sína til hennar. Hann ákva,ð tveggja tíma stefnu mót við hana klukkan sex og ók inn í Frankfurt í góðu skapi og dálítið eftirvæntingarfullur. Það var enn talsverður strákur í hon- um. Hann var eiginlega fullorðinn prakkari, og hann vissi vel, að hann varð að láta strákinn koma í Ijós við svona tækifæri. Hann hafci oft beitt því bragði með góð- um árangri á fundum og ráðstefn- um um viðskiptamál. Persónulegt aðdráttarafl hans var því eigin- lega leikaraskapur og tilgerð a3 nokkru leyti. Það kom í Ijós, ef hann var eitthvað miður sín. En hann hafði eitthvað við sig, hvort sem það stafaði af eintómri til- gerð eða ekki, og snjöll tilgerð er alltaf mun skemmtilegri en 34 — Lotty Grant. — Lotty Grant er eins og allar hinar. „Já, hr. Latimer, nei, hr. Latimer . . en hvað þér eruð sniðugur, hr. Latimer, . . . ó, ég er alveg sammála yður, hr. Lati- mer“, þangað til mig langar hrein lega til að binda fyrir munninn á henni. Hvers vegna segir hún ekki það, sem henni finnst — ef henni finnst þá nokkuð . . . 7 Frú Latimer gat ekki sagt neitt um hæfileika Lottys til að hugsa. — Ég býst við, að hún sé hrædd við þig, sagði hún sefandi. — Hræ-dd við mig? Hann varð mjög undrandi. — En hvers vegna? Svo hrukkaði hann gremju lega ennið. — Ég þoli ekki stúlk- ur, sem eru hræddar við mig! — Veslings Lotty, andvarpaði frú Latimer. — Þekkir þú þá kven- mann, sem ekki er hræddur við þig, góði minn? — Já, svaraði hann stuttur í spuna. — Ég geri það. Það kom henni nokkuð á óvart, en undarleg hegðun hans upp á siðkastið hafði vakið athygli henn ar. — Þekki ég hana? spurði hún. ALLAR HELZTU MÁLNINGARVÖRUR ávallt fyrirliggjandi Sendum heim. Helgi Magnússon & Co. IHafnarstræti 19 Símar: 13184—17227 — Nei. En forvitni frú Latimer var nú vakin og hún hélt áfram: — Og hvar hittirðu hana? — í Susses, eftirmiðdag einn í marz, þegar var mikil snjókoma. En ég skal segja þér það strax, að hún hafði ólíkt meiri áhuga á hestum heldur en á mér. — Þetta verður meira og meira spennandi og leyndardómsfullt, sagði frú Latimer hrifin. — Segðu mér þó, hvernig hún lítur út. — Mjög hversdagsleg. — Æ, það var leiðinlegt, hvern- ig hár hefur hún? — Skollitað . . . eða ljóst er það víst. — Hræðilegt! — Nei, einhverra hluta vegna klæðir það hana. Hvernig augu? — Dökkblá og björt sem dag- urinn. — Gott, hún virðist hreint-ekki svo hversdagsleg. Hvernig er hún í vexti? — Hún er flöt eins og pönnu- kaka. Móðirin hrópaði upp yfir sig. — Richard . . . ! — Það er alveg satt. — Þá hlýtur hún að vera ótta- leg fuglahræða, og ef ég væri í þínum sporum mundi ég dcki hugsa meira um hana. Góði minn, hún Lotty litla verður þér indælis eiginkona. — Þú meinar, að það yrði nota- legra að klappa henni? Hann sneri sér að henni og horfði herskár á hana, og hún varð að hlæja, þótt hún hefði ætlað að ávíta hann fyrir svona talsmáta. — Þú ert óartardrengur, að hæða hana móður þína svona j ég held, að þú hafir ákveðið að | kvænast Lotty og segir mér frá | fuglahræðunni bara til að erta, mig. | MARY ANN GIBBS: SKALDSAGA ERFINCINN I — Kannski. Hann hrukkaði enn ið. — Fuglahræðan — eins og þú kallar hana, mundi ekki vilja gift- ast mér, ef hún elskaði mig ekki, því að þannig er hún. Lotty mundi gera það, sem pabbi hennar segir henni að gera. Það myndi ekki skipta máli, þótt fuglahræðan væri bláfátæk og ég ætti öll auð- æfi himsins, en það er aftur þungt á metaskálunum í Lottyar augum. Hún veit, að Reddings er eitt af fegurstu sveitasetrum landsins og hún yrði öfunduð sem húsfrú þar. En slíkt og þvílíkt mundi ekki _ hafa áhrif á fugla- hræðuna. HÚN myndi bara spyrja, hvað ég ætti marga hesta og hvernig hesthúsin væru. Og auk þess dettur mér ekki ; hug að biðja hana að giftast mér, því að framkoma hennar er sannarlega of ósvífnisleg og frjálsleg, og þeg ar ég skamma hana, er henni al- veg sama. Hún . . . fjandinn hirði það, hún HLÆR að mér. — Er það satt? Þetta er ótta- legt. Það var grunsamlegur skjálfti í rödd móðurinnar, en þeg ar hann leit á hana til að vita, hvort hún hlægi líka að honum, var andlit hennar grafalvarlegt og hún hélt áfram. — Veiztu hvað, Richard. Mig langar reglulega mikið til að hitta þessa ósvífnu litlu fröken. Hver sá, sem heyrði þig iala svona um hana — og þekkti þig ekki eins vel og ég geri — myndi telja víst, að þú værir ástfanginn af henni. — Það er ég ALLS EKKI! sagði hann einbeittur og strunzaði út úr herberginu. Ástfanginn, hugsaði hann bál- reiður, þegar hann gekk út og gaf skipun um að leggja á hest sinn. Ástfanginn af stelpu, sem hegðaði sér eins og Horatia gerði og hæddi hann feimnislaust. Ungri stúlku, sem var svo frek að ríða fyrir aftan Lotty og systur henn- ar, svo að hún heyrði hvert orð, sem þær sögðu. Ungri stúlku, sem klæddist karlmannsfötum og hegð aði sér ákaflega ósiðlega og sýndi honum Ijóslega, að hún tók hesta frarn yfir hann sjálfan . . . Og samt — í næstu viku var hann kominn til Merpleton i Berkhéraði og reið út við hlið vagns sir Williams, reiðilegur á svip og einblíndi á unga hesta- sveininn, sem sat í eklssætinu við hliðina á Jeremíasi Smallbones Aldrei hafði verið annað eins sumar, hvorki í borginni né úti í sveitinni. Samkvæmslífið blómstr aði. Það voru dansleikir, skógar- ferðir og bátsferðir á fljótinu og flugelda-sýningar um miðnætti og dans undir berum himni. Og ef ekki hefði komið eitt strik í reikn inginn hefði hr. Latimer eflaust haft heppnina með sér að vinna hylli Lottyar. En þetta eina strik var yngsti sonurinn á nágrannasetrinu, fátæk ur kafteinn. Hann var ekki að- eins glæsilegur og viðfelldin mað ur, heldur skipaði hann einnig ákveðinn sess í lffi Lottyar, vegna þess að þau höfðu leikij cér an börn. Hann hafði ekki séð hana síðan hún var fimmtán ára, því að herdeild han-s hafði verið stað sett í írlandi og nú sýndi hann greinilega, að hann var heillaður af henni. Það var mjög óheppilegt fyrir hr. Latimer, að þessi ungi maður hafði slasazt nýverið á fæti í út- reiðartúr, því að hann var ekki aðeins sendur heim til að jafna sig, heldur varð hann að hetju vegna þess í augum ungu stúlkn- anna. Þær þyrptust um hann, þar sem hann lá á legubekk í skugga trjánna og hlustuðu hrifnar á allt, sem hann kunni frá að segja. Það, að lafði Grant reyndi að fullvissa hann urn, að Forrester og Grant- fjölskyldurnar hefðu verið nánir vinir í öll þessi ár og Ágúst væri því aoeins góður vir.ur, gat ekki vísað þeirri tilfinningu hr. Lati- mers á hug, að hann væri van- ræktur. Hvað snerti Horatiu, þá var eng- inn hestasveinn fjörugri og glettn ari en hún, þegar hún lagði á hest hr. Latimers og enginn gat beðið þolinmóðarj en hún, meðan Lotty og systir bennar dönsuðu heilu og hálfu næturnar. Hún klappaði hestunum blíðlega og fylgdist með T f M I N N, miðvikudagur 19. desembcr 1962. 14

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.