Tíminn - 21.12.1962, Blaðsíða 9
ANDRÉS KRISTJÁNSSON SKRIFAR UIVI
Islenzkar liósmæður
ÍSLENZKAR LJÓSMÆÐUR
Æviþættir og endurminningar
sem séra Sveinn Víkingur
hefur búi® til prentunar.
Kvöldvökuútgáfan.
f formála fyrir þessari bók seg-
ir séra Sveinn Víkingur: „Þáttur
Ijósmæðranna í íslenzkri menn-
ingu og sögu er mikilsverðari en
flestir gera sér ljóst, enda lítið
verið um hann ritað af sagnfræð-
ingum. En til þess að gefa nokkra
hugmynd um starf þessarar stétt-
ar og starfsskilyrði á s.l. hundrað
árum, er þessi bók gefin út. Henni
er hvorki ætlað að vera Ijósmæða-
tal eða Ijósmæðrasaga. Hún er að-
eins þættir úr lífi og starfi ein-
stakra ljósmæðra, sem margir eru
skráðir af þeim sjálfum. Hún á að
bregða upp sönnum myndum af
starfi, erfiðleikum og fórnfýsi
ljósmæðranna á þessu tímabili,
jafnframt því, sem hún leyfir les
endum að skyggnast ofurlítið inn
á sveitaheimilin eins og þau voru
og sjá ögn af þeirri erfiðu lífsbar
áttu, sem þar var háð."
Þessi formálsorð gefa rétta
mynd af efni þessarar bókar. Séra
Björn Ó. Bjömsson hefur um
skeið safnað þáttum um ljósmæð-
ur og Kvöldvökuútgáfan hefur
keypt safn hans og er þessi bók
upphaf að útgáfu þess með all-
miklum viðaukum og breytingum.
í bókinni eru 26 þættir um jafn-
margar Ijósmæður, allar af eldri
kynslóðinni og flestar fallnar í val
en aðrar komnar svo til elli, að
þær eru hættar störfum.
Framan við hvern þátt er smá-
letursgrein, þar sem greint er frá
Svelnn Víklngur
æviatriðum í fáum dráttum, en
síðan hefst lífssagan. Eins og fyrr
segir eru sumir þáttanna ritaðir
af Ijósmæðrunum sjálfum, en
fleiri þó af öðrum og eru höfund
ar margir hverjir kunnir fyrir rit
störf.
Frásagnir Ævars Kvaran
Ævar Kvaran:
FÓLK OG FORLÖG
Bókaútgáfan Skuiggsjá.
Þættir Ævars Kvarans í ríkisút-
varpinu um ævintýraleg örlög og
sögufræga viðburði, hafa orðið
afar vinsælir og sýnt, að hann
kann ágæt tök á því að setja slíkt
efni á svið. Bækur þær, sem Ævar
hefur sett saman af svipuðum
þáttum hafa verið hinn bezti les-
kostur. Hið sama má segja um
þessa bók. Ævar fer það víða, bæði
í tíma og rúmi. Hann grípur niður
í garði sögufrægs fólks. Stundum
þýðir hann skemmtilega grein, en
oftar tekur hann saman þátt úr
viðamiklum heimildum. Þetta
verður ekki sundurlaust hrafl, held
ur persónulegur frásagnarblær
Ævars á hverju og einu. Hann
kann að hlaða vegg sinn, stefna að
vissu lokamarki, hámarki sögu
sinnar. Hann lýsir sjaldan úr fjar-
lægð, heldur fer með lesandann á
vettvang atburða. Málið er þrótt-
mikið og niðþungt, oft hlaðið
eftirvæntingu og dimmum seið
þess skapafljóts, sem undir renn-
ur.
í þessari bók lýsir Ævar því, er
Kleópatra birtist Sesari og skyggn
ist inn fyrir tjöld fleiri forngarpa,
bregður upp svipmynd af Voltaire
og nýrri smámynd af Jörundi
hundadagakóngi og segir sögu
Ævar Kvaran
merkilegrar tignarkonu í Eng-
landi. Þannig rekur hann spotta
og spotta af þræði þeim, sem ör-
lögin hafa mönnum spunnið. Hann
segir frá könnuðum og langferða-
mönnum, gimsteinaþjófum og vís-
indamönnum. Efni sitt segist höf-
undur hafa sótt í margvíslegar
heimildir, bækur og tímarit. Hann
varar menn við því að líta á þætti
þessa sem fræðimennsku. Eigi að
síður auka þeir drjúgum skilning
á sögulegum viðburðum og mönn-
um og vekja umfram allt forvitni,
sem leitt getur til meiri lestrar.
— En bókin er spennandi skemmti
lestur. — AK
Fáir höfðu fyrr á árum betri að
stöðu til þess að kynnast lífskjör-
um fólks en ljósmæðumar, sem
fóru inn á heimilin á örlagastund
um og dvöldust þar lengur eða
skemur, kynntust mannlífinu þar
eins náið og aðkomumanni er
unnt og veittu þar brýna hjálp.
Fyrir þetta eru ljósmæðraþætt-
irnir gleggstu heimildirnar, sem
nú er unnt að fá um inntak þess
lífs, sem fólkið lifði á íslandi á
liðinni öld. Margt hefur verið
um það líf ritað, og þegar menn
segja sjálfir frá, er trúleik vart
treystandi oft og einatt. Þess
vegna eru geymdar myndir þessa
lífs bæði sundurleitar og margvís-
legar og örðugt að greina hvað
rétt er.
í þessum Ijósmæðraþáttum finn-
um við líka margt, sem eykur á
skilning um liðinn tíma. En við
kynnumst líka merkilegu fólki og
starfi, sem er engu öðru líkt. Hér
er sagt frá fórnfýsi, sem er dýpri
og sannari en flest annað, sem við
höfum kynnzt af því tagi. Við
kynnumst íslenzkum hetjum í
raun, og hér er sögð i allri hóg-
værð mörg hetjusaga íslenzks
hversdagslífs — gildismeiri en ýms
ar þær, sem gylltar hafa verið
lofi í hámæli og bókum.
í samræmi við efnið er búning-
ur bókarinnar látlaus og stíl-
hreinn. Sögu og lífsstarfi íslenzku
ljósmæðranna er vert að halda á
lofti, og sú saga er hollur lestur
og góður, því að oftast er það sig-
ursaga. . —AK.
Ályktanir aðal-
fundar Bændafél.
Fljdtsdalshéraðs
Bændafélag Fljótsdalshéraðs
hélt aðalfund sinn 3. þ.m. Fund-
urinn var vel sóttur enda er ágætt
umferðar um Héraðið.
Stjórn félagsins var endurkjör-
in, en hana skipa Sveinn Jónsson
bóndi á Egilsstöðum formaður,
Björn Kristjánsson bóndi Grófar-
seli og Páli Sigbjörnsson, ráðu-
nautur, Égilsstaðakauptúni.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa tók fundurinn til umræðu
ýmis hagsmunamál bænda á fé-
lagssvæXnu. Nokkrar úlyktaniir
voru samþykktar á fundinum. —
Helztar þeirra voru þær tvær, sem
fara hér á eftir:
1. Um verðlagsmál
Fundur Bændafélags Fljótsdals-
héraðs haldinn 'að Egilsstöðum 3.
des. 1962 gerir eftirfarandi álykt-
anir um verðlagsmál:
1. Fundurinn fagnar aðgerðum
fcúnaðarsambanda landsins í þá átt
að fá
breytt.
vörum, án tiilits til þarfa landbún-
aðarins.
2. Fundurinn átelur afstöðu full
trúa Stéttarsambands bænda og
Framleiðsluráðs í sexmannanefnd
á s.l. hausti, við samninga um verð
lagsgrundvöll fyrir landbúnaðar-
vörur, sem í tveimur meginatrið-
um braut gjörsamlega í bága við
samþykktir síðasta aðalfundar
Stéttarsambands bænda.
a. Aðalfundur stéttarsambands-
ins fól stjórn sinni afdráttarlaust
að semja ekki um afslátt á þeim
verðlagsgrundvelli, sem fulltrúar
neytenda settu upp haustið 1961
og töldu þá vel rökstuddan. Eng-
inn hefur heidur reynt að vefengja
hann með rökum. Þrátt fyrir það
semja þeir nú um nálægt 12%
óhagstæðarj verðlagsgrundvöll fyr
ir bændur án þess að færa nokk-
uö fram þeirri breyttu afstöðu
sinni til stuðnings.
b. Að minnsta kosti þrír síðustu
aðalfundir stéttarsambandsins hafa
Framleiðsluráðslögunum samþykkt að fela Framleiðsluráði
Þakkar hann stjórnum hækka verðlag á sauðfjárafurð-
búnaðarsambanda Suður-Þing. og
um til samræmis við
aðrar bú-
Austurlands forgöngu í þeirri bar vörur. En almennt er nú viður-
áttu. kennt, að ínjög hafi verið hallað
Skorar fundurinn á nefnd þá, a sauðfjárbændur í verðlagsgrund
sem starfar á vegum Búnaðar-
þings og Stéttarsambands bænda,
?ð þessum málum að vinna að
þeim í sama anda og beita sér
eindregið fyrir að fá numið úr
lögunum gerðardómsákvæðið og
hlutdeild neytenda í sexmanna-
tiefndinni ásamt fleiri lagfæring-
um. En fulltrúar neytendasam-
takanna hafa sýnt og sannað, að
þeir telja hlutverk sitt það eitt að
þvinga niður verð á landbúnaðar-
UOMIOGANGAN
ISIfNZKS MAIS
Ólafur Jóh. Sigurðsson:
SPÓI
Bókaútgáfa
Menningarsjóðs.
Margar barnabækur hafa komið
út fyrir þessi jól. Flestar eru þýdd
ar og er þar misjafn sauður í
mörgu fé. Einnig eru allmargar
íslenzkar, og sá fengur hefur oft
verið rýrari. Satt að segja komu
allmargar mjög sæmilegar íslenzk
ar bamabækur út fyrir þessi jól.
Það er lítið skrifað um barna-
bækur fyrir jólin, og er það í
raun og veru illa farið. En ekki
verður öllu sinnt í einu, þegar sá
háttur er á bókaútgáfu að hrista
hana svo að segja alla fram úr
erminni á nokkrum dögum og fólk
kaupir síðan framleiðsluna í íra-
fári fyrir jólin.
Kunningi minn í hópi rithöfunda
— maður sem ég met mikils —
hringdi til mín og spurði hvort ég
hefði lesið SPÓA. Ég hváði, og
auðvitað hafði é,g ekki lesið Spóa.
Það skaltu gera, sagði hann. Að
mínu viti er þetta einstök barna-
bók vegna málfegurðar, og það
er til skammar að geta ekki um
það, þegar einhverju er svona vel
af sér vikið.
Ég lét mér ábendinguna að kenn
ingu verða og las Spóa og komst
að raun um, að kunningi minn
hafði lög að mæla. Þessi stutta
en frábæra barnasaga er slíkur
feginsfengur, að manni hlýnar um
hjartarætur. Mál hennar er einfalt
og tigið í senn. Orðaforðinn er
mikill, og notkun talshátta og
málshátta af listfengni og skiln-
ingi. Það væri ástæða til að rita
langt mál um kosti og fegurð þsss
arar barnabókar, en um það er
ekki að ræða að sinni. Hitt tel
ég mér skylt að benda á, að vegna
fegurðar málsins er hún óvenju-
legur þroskalestur hverju skyn-
góðu barni, og að efni er hún fög-
ur náttúrulýsing. — í bókinni eru
ágætar teikningar eftir Helgu
Sveinbjörnsdóttur. Ólafur Jóhann
Sigurðsson ritaði fyrr á árum góð
ar barnabækur. Þessi tekur þó
mjög fram hinum fyrri. Vegna
málsins er hún ljómandi gim
steinn. — AK..
velli búvara. Þrátt fyrir einróma
samþykki stéttarsambandsfulltrúa
á þessari ályktun, hefur Fram-
feiðsluráð þverskallazt enn við
þessum fyrirmælum.
Fundurinn telur þessi vinnu-
brögð ólýðræðisleg, og þau feli f
sér lítilsvirðingu á samþykktum
aðalfunda stéttarsambandsins, sem
á þó að fara með æðsta vald í þess-
um málum.
2. Um rafmagnsmál
Fundur Bændafélags Fljótsdals-
héraðs haldinn 3. des. 1962 gerir
svofellda ályktun um rafmagns-
mál.
1. Fundurinn harmar þá kyrr-
stöðu og þær vanefndir í raforku-
málum Austurlands miðað við fyr
irheit í 10 ára áætluninni, sem nú
er senn úti. En nálægt helmingur
háspennulína og tengilína frá Laxá
— hvort tveggja í 10 ára áætlun-
inni — er enn óframkvæmt. Þó
kauptúnin á Austurlandi hafi nú
fengið rafmagn, þá er það að hin-
um þeim óheppilegu leiðum, með
byggingu margra dieselstöðva.
Hins vegar hafa sveitirnar að
mestum hluta verið hafðar út urrd
an. Af 25 sveitum í Múlasýslum
hafa þrjár verið rafvæddar, hin-
ar hafa ekki rafmagn ag frátöld-
um nokkrum einkastöðvum. Láta
mun nærri að 450—500 bæir í
Múlasýslum séu rafmagnslausir.
Svipað mun þetta vera í Norður-
Þingeyjarsýslu og ‘ Austur-Skafta-
fellssýslu og víðar. Misræmið og
eðstöðumunur fólksins til atvinnu-
rekstrar og lífsþæginda, sem við
þessa þróun raforkumálanna hef-
ur skapazt milli sveitafólks annars
vegar og kaupstaðarfólks hins veg-
ar styður hroðum skrefum að því
að sveitabyggðirnar eyðast.
Fundurinn gerir enn á ný þær
kröfur, að haldið verði áfram
dreifingu raforku um byggðir
Austurlands írá þeim orkuverum,
sem þegar eru til. Enn fremur
ítrekar fundurinn kröfu sína um
að hraða beri lokaáætlun um raf
væðingu landsins og leggur á það
Frarahald á 13. síðu
T f M I N N, föstudagurinn 21. des. 1962. —
í ' * I
r -
9