Tíminn - 06.01.1963, Qupperneq 16
I
4. tbl. 47. árg.
Sunnudagur 6. janúar 1963
83 þús. bindi í
Borgarbókasafni
H.F.—Reykjavík, 5. ian. 1963.
Starfsemi Borgarbókasafnslns í
Reykjavík fer ae vaxandi, og hefur
bókakostur þess aukizt um 5—6000
bindi á árinu. Áætlað er a5 hetldar
tala bókakostar sé um 83.000, en
ekki er aiveg búið að ganga frá
ársuppgjöri.
Fastir áskrifendur er nú um
tæp 7000, og er tala útlánaðra
bóka á árinu 216,000. Áskrifenda-
talan er nokkurn veginn jöfn ár
frá ári, en þó er hún aðeins lægri
í ár, þar sem útibú safnsins í
Efstasundi var lagt niður á miðju
ári.
Starfandi eru nú við safnið
átta deildir, aðaldeildin í Þing-
holtsstræti, þrjú útibú, fjórar
barnalesstofur og ein skipadeild.
Þegar er farið að gerast heldur
þröngt um safnið | húsakynnun-
um í Þingholtsstræti, enda hafa
þau aldrei verið vel til bókasafns-
rekstrar fallin. í ráði er að byggja
nýtt aðalbókasafn á öðrum stað í
bænum, frekar en að byggja við
safnið í Þingholtsstræti.
Útibúin þrjú eru við Hofsvalla-
götu, Hólmgarð og Sólheima., Sól-
Vestfjaröa-
kirkjur f á
góöar gjafir
Krjúl-Bolungarvik, 5. jan.
Við messugerð hér á jóla
dag skýrði sóknarprestur-
inn, Þorbergur Kristjánsson
frá ýmsum gjöfum, sern
Hólskirkju í Bolungarvík
hafa borizt að undanförnu,
en árlega berast kirkjunni
margar góðar gjafir. Má í
því sambandi nefna, ag and-
vir'ði pípuorgels, er fyrir
fáum árum var sett upp í
kirkjunni, fékkst að lang-
mestu leyti með frjálsum
framlögum.
Meðal gjafa, er nú vpr frá
greint, var fagur kirkjuleg-
ur gripuk, biblíupúlt, er
kvenfélagið Brautin hafði
gefið kirkjunni í jólagjöf.
Kii'kjan eignaðist fyrir
nokkrum árum ljósprentað
eintak af Guðbrandarbiblíu
og hefur þessi kjörgripur
islenzkrar bókagerðar nú
fengið ramma við hæfi, sem
hið nýja púlt er.
Það er gjört af Ríkharð'i
Jónssynj myndhöggvara og
ber snilld hans augljóst
vitni. Efniviðurinn er ljós
eik og er gripurinn útskor-
inn ritningarorðum og
kirkjulegum táknmyndum.
Um leið og sóknarprestur
ínn pakkaði þessa gjöf
r ' amhald á 3. síðu.
heimaútibúið var opnað í gær og
tekur við af útibúinu, sem var í
Efstasundi, Sólheimaútibúið er nú
eini húsakostur safnsins, sem
fullnægir öllum kröfum um starf-
semi bókasafns, og á án efa eftir
að nljóta mikilla vinsælda í hinu
fjölmenna heimahverfi, en íbúar
þess eru um 1200.
Barnalesstofurnar fjórar eru í
Framhald á 3. síðu.
Tveir ungir menn hafa tektð vlð
bifreiðum þeim, sem Kaupfélag
Skaftfellinga notaði áður til
flutninga austur, meðal annars
nýr Bedford-bifreið, sem byggt
hefur verið yfir í Bílasmiðjunni
Bifreið þessi tekur 38 far-
þega og er mjög rúmgóð og
vegna þröngra brúa er aðeins
hægt að fara á henni til Víkur,
þar verður að skipta um bfl. í
fyrstu ferð bifreiðarinnar aust.
ur kom í Ijós, að hún komst ekki
yfir brúna á Jökulsá á Sólheima-
sandi, þar eð pústrúrið stóð ör-
lítið út fyrir bifreiðina. Var það
tekð til ráðs, að saga af rörnu
í Skógum undir Eyjafjöllum og
tók Lars Björk þessa mynd af
„a’thöfninnl".
Ný stjórn krefst meiri
sjálfstjórnar Færeyinga
JK-Reykjavík, 5. janúar
Ný stjórn hefur verið mynd-
uð í Færeyjum og standa að
henni fjórir flokkar skilnaðar-
sinna. Nýja landstjórnin hef-
ur lagt fram stefnuskrá sína,
en (aar eru róttækar kröfur
um aukna sjálfstjórn Færey-
inga.
Er blaðið hafði í dag samband
við Knút Wang, ritstjóra Dagblaðs
ins og þingmann Fólkaflokksins,
sagði hann, að þetta væri merk-
asti viðburður á Færeyjum síðan
1. apríl 1958, þegar núverandi
stjómarskipan komst á.
Að nýju stjórninni standa Fólka
flokkurinn (6 þingmenn), Þjóð-
veldisflokkurinn (6), Sjálfstjórn-
arflokkurinn (2) og Framfara-
flokkurinn (1). Lögmaður er Haa-
kon Djurhuus úr Fólkaflokknum,
varalögmaður Erlendur Patursson
úr Þjóðveldisflokknum, og aðrir
landstjórnarmenn eru Nils Paul-
sen úr Sjálfstjórnarflokknum og
Iiarsten Hoydal úr Þjóðveldis-
fiokknum.
Knút Wang sagði, að nýja stjórn
in mundi fara varlega i fyrstu, og
leggja aðaláherzluna á að treysta
fjárhag landsins. Hann sagði einn
ig, að stjórnarflokkarnir væiu um
margt ólíkir, þótt þeir hefðu sjálf-
stæðisbaráttuna sameiginlega, og
þyrfti því að sætta mörg sjónar-
mið. Aðalatriðið væri, að stjórn-
arsapivinnan héldist allt kjörtíma-
bilið og sjálfstjórnarflokkamir
sýni fram á, að þeir geti annazt
landsstjórnina.
í stefnuskrá stjórnarinnar er
þess krafizt, að engir alþjóðasamn-
ingar verði gerðir um færeysk
málefni án samþykktar Lögþings-
ins, m. a. rneð tilliti til samninga
Dana við EBE. Þá er krafizt sér-
s!;akra færeyskra borgararéttinda,
vegabréfa og færeysks fána, og að
enginn færeyskur þingmaður sitji
danska þjóðþingið. Stjórnin krefst
tólf niílna fiskveiðilögsögu. — í
rnenntamálum krefst hún þess
að skólar Færeyja verði alfæreysk
ir og kennsiubækur verði á fær-
eysku.
Nýja stjórnin leggur áherzlu á
efnahagslífið og vill sérstaklega
efla fiskiðnað í landinu.
ICECANFL YTUR ÖLL VESTUR-
SÍMTÖL FLUCSTJÓRNAR
NB—Reykjavík, 5. jan.
Undanfarna daga hafa öll símtöl
flugumferðárstjórnarinnar hérlend-
is vestur um haf farið fram í gegn
um hinn nýja sæsíma, lcecan. Jafn-
framt hefur ný stöð komið inn á
talkerflð, er það Prins Christian,
loftskeýtastöð á suðurodda Græn-
lands. Icecan hefur reynzt mjög vel
að sögn Arnórs Hjálmarssonar, yfir
flugumferðarstjóra.
Viðskiptia vestur um haf fóru
áður fram um syðri leiðina svo- j
uefndu, þ. e. eftir Scotice til Bret-
indseyja og þaðan vestur. f fram-
! tíðinni verður alltaf hægt að not-
| ast vig þann síma, ef eitthvað
j skyldi koma fyrir Icecan, og geng
j ur mjög fljót.t að skipta yfir, þann
'g að fimrn mínútum eftir að vart
’erður við bilun á Icecan verður
!<omið samoand á eftir hinum
--:manum.
Á þessu ^iterfi (Scotice-Icecan)
beint samband milli eftirtal-
ma stöðva' Shannon á írlandi.
meg 4 síma. Prestwick með 4
síma. Reykjavíkur, með 3 síma
hægt að bæta þeim fjórða við)
;jnns Christian á Grænlandi, með
’ síma, og Gander á Nýfundna
'ndi með' 3 síma
. , .... Það skal rekið fram, að þessar
TALAÐ I ICECAN á'm_arsson f,U9T'e:Sars:itór! talar ' | talrásir eru einungis milli flugum-
lcecan-símann. Ljósm.: Tíminn,—RE. I ferðastjóranna sjálfra. Þeir geta
þannig haft beint samband sín á
milli og vaiið um, við hvaða um-
ferðastjóra þeir vilja talá, eftir
því um hvað þarf ag ræða.
Eins og fyir segir hefur með
tilkomu Icecan bætzt ný stöð inn
á kerfið. Það er Prins Christian
á Grænlandi. Prince Christian er
loftskeytastöð og þegar loftskeyta-
samband er slæmt við flugvélarn-
ar er gott að geta gripig til þess-
arar stöðvar og látið hana bera
skilaboð á milli
Flugumferðastjórnin hér hefur
Framhald á 3. síðu
Klúbbfundur
KLÚBBFUNDUR Framsóknar
manna verður haldinn í Fé-
lagsheimilinu, Tjarnargötu
16, mánudaginn 7. janúar kl.
8,30 sfðdegis. Alþingismenn
irnir Sigurvin Einarsson og
Þórarinn Þórarinsson flytja
stutt framsöguerindi. Mætið
stundvíslega.