Tíminn - 18.01.1963, Side 13
herbergja
íbú5 óskast
Óskum eftir að faka á leigu 3—4 herbergia íbúð
í borginni — sem fyrst.
Barnlaust. — Góðri umgengni heitið.
Upplýsingar í síma 18300 frá kl. 2—5.
PHILCO
A Subsidiay of Ford Motor Company
KÆLISKÁPAR
Höfum fyrirliggjandi
margar stærðir af
Philco kæliskápum
Allt frá 4,5
cub.ft. til 12,2
cub.ft.
sitgífenev »21 n
i
Sendum í póstkröfu um allt land.
Útsölustaðir í Reykjavík:
JOHNSON Í KAÁBER HA
Sætúni 8 — Sími 24000
MGicsnusm
Hafnarstræti 1 — Sími 20455
Skrifstofufólk
Opinber stofnun óskar að fjölga við sig starfs-
fólki til starfa, strax eða sem allra fyrst.
Umsóknir sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 23. þ.m.
merktar: „Framtíðarstarf“.
Bændur á rekajörðum
Óska að kaupa netakúlur og plastbelgi.
Sigurgeir Sigurdórsson,
Hrísateig 14, sími 34576
Sókmenntir
Framhald af 9. síðu.
Hér lætur málfariS ekki mikið
jfir sér, en svo sjálfsagður virðist
íslenzkur búningur þessa kvæðis,
a.ð maður hiyti að álíta það frum-
kveðið á íslenzku væri ekki ann-
að vitað. Og getur þýðing orðið
betri en svo?
En að sjálfsögðu geta þó lausnir
Jóns Helgasonar orkað tvímælis.
„Ja, hvar skal nú mjöllin frá liðn-
, um vetri?“ þýðir hann-margfrægt
viðlag úr kvæði Villons um konur
liðinna alda, og fellur mér það
að vísu æ betur því oftar sem ég
heyri það fyrir mér, en óneitan-
lega virðist hugsun frumtextans
einfaldari. („Mais ou sont les
neiges d’antan?“) í kvæði Mari-
anne von Willemers til austan-
vindsins stendur í síðustu vísu
„ástarglæðing snytrir sefa“. Hér
gerði ég svo vel og skildi ekki
sögnina; Blöndal segir: snytra:
sætte Skik paa; pynte. Er það ris-
há hugsun að ástarglæðing „punti
iipp á“ sefann? Og kvæði hennar
til vestanvindsins lýkur svo:
endursýn hans ein mér sýsli
yndisbót í hjartagrunni.
Eg játa það blygðunarlítið að mér
er ekki tiltækur frumtexti þess-
ara kvæða; en án samanburðar
freistast maður að álykta að þess-
ar hendingar séu líklegri til að
hrjóta úr penna prófessors Jóns
Helgasonar eða Hofrat Johann
Wolfgang von Goethes en ungrar,
elskandi konu — þó aldrei nema
hún hafi verið mjög svo andlega
sinnuð.
Því er ekki að leyna að á stöku
stað víðar í bókinni freistast mað-
ur að setja spurningarmerki í
spássíu af svipuðum ástæðum og
hér; þ. e. maður lítur á kvæðin
sem frumkveðin og finnst þau
bresta innri rökvísi, eða verða ó-
eðlileg misfella í búningi. En
þessir staðir eru að vísu fáir og
eru með sinum hætti einnig til
vitnis um aðferð Jóns Helgason-
:af;|í íslwiakun hans þar;, sem lagzt
’er ■ eftir'-hinu • eirifaldasta, göfug-
asta tungutaki getur brugðið fyrir
hamlandi bókmálshnökrum. Þessir
hnökrar eru hin einu þýðingar-
för sem ég fann á þessum kvæðum.
Ó. J.
2. síðan
það, sem mest áhrif hefur, er
að þeir, sem lengur ■ hafa búið
í landinu, hafa borðað miklu
meiri sykur en hinir, og meðal
þeirra eru hjartasjúkdómar
miklu algengari. Þannig hafa
þeir fengið fleiri kaloriur með
fitunni en hinir, og hugsanlegt
er, að í þessu liggi einmitt leynd
ardómur æðákölkunarinnar.
EFNASKIPTI
Þetta hefur verið á dagskrá
í sambandi við fleiri sjúkdóma
m.a. sykursýki. Fólk heldur að
sykursýkin sé veiki, sem þegar
hafi verið fullrannsökuð, en svo
er ekki. Eðli hennar hefur veriði
þekkt í meira en mannsaldur,
og núna er það einnig vitað, að
fituhlutfall þessara sjúklinga hef
ur oft raskazt, sem í sumum til-
fellum hefur haft æðakölkun í
för með sér. Það getur verið
mikið samband milli alls konar
sjúkdóma, þó að það sé óþekkt
enn þá.
MEÐAL VIÐ BLÓÐTÖPPUM
Það er álitið, að eitthvað fari
stöðugt forgörðum í mannslik-
amanum, smáæðar rifni, og
þannig myndist daglega litlir
blóðtappar, sem leysist upp af
sérstöku eggjahvítukljúfandi
efni, þannig að enginn verði var
við þá. Það er þetta sama efni,
sem reynt er að eyða stærri og
hættulegri blóðtöppum með. —
Hvort hægt verður að ráða nið
urlögum hjartablóðtappanna
með því, er enn ókannað.
Útvarpið
Framhaid af 2. síðu.
kvöld og sannið, hvort Danir eigi
ekki söngvara. — Loks flytur
Minneapoiis-sinfónían undir stjórn
Antal Dorati slavnesku dansana eft
ir Dvorák. Þeir voru fyrst samd-
ir fyrir fjóirhient píanó, en vegna
hinna gífurlegu vinsælda, sem lög-
in hlutu þegar í stað, bað útgefandi
Dvoráks hann um að útsetja þau
einnig fyrir hljómsveit, sem hann
gerði og orti síðar fíeiri, svo að
alls eru dansarnir 16. Þeir eru síð-
an iðulega fluttir á sinfóníutónleik
um víða um heim og vinsældir
þeirra nálgast þær, sem ungversku
dansarnir eftir Brahms hafa fengið.
— Vel á minnzt, það lá við að
gleymdist að geta eins tónverksins
í kvöld, og því sikulum við ekki
missa af: Fúga úr „Tónafórn” eftir
Bach. — G.B.
Víðivangur
itt að gera sér grein fyrir hvað
þessir hópar hættulegra öfga-
man.ua eru stórir, því að þeir
eru í samtökum með öðru
fólki. En menn vita hvar þessa
hópa er að finna — og enn
fremur að þá er ékki að finna í
Framsóknarflokknum.
Minning
(Framhald af 9. síðu.)
var sannur íslendingur og þó
kannske fyrst og fremst Skagfirð
ingur. Hann var hrifinn af fegurð
Skagafjarðar og stoltur af honum.
Héraði sínu unni hann og þó
kanngke mest sinni heimabyggð
— dalnum, þar sem hann átti
heima í meira en meðal manns-
aldur.
Um leið óg ég sendi Hjálmari
þessj fáu kveðjuorð, verður mér
á að minnast Klettafjallaskáldsins
og kvæða hans um Jón frá
Strönd, sem er eitt af hans mörgu
sn’lldarkvæðuim. Þar segir svo í
niðurlagi kvæðisins:
„Sá ég í sveit samstæðinga
aldra erlendis íslendinginn.
Fastan fyrir, frjálsmannslegan,
hóf og hik, hálegg hverjum.
Hremmilegri i herðum, hand-
fastari,
auðvirkari um illkleift, orð-
hvassari,
falslausari á ferðum, fótvissari,
líka Jóns í Ijóðum lít ég núna“.
Þetta getur að mínum dómi svo
að segja orði til orðs verið graf-
skrift um Hjálmar frá Kambi.
Steingrímur Steinþórsson.
OrðsendSng frá Skattstofu
Reykjánesumdæmis
Hafnarfirði
Allir þeir, sem skattstofan hefur krafið skýrslu-
gerðar um laun, hlutafé og arðgreiðslur, eru á-
minntir um að gera skil eigi síðar en 20. janúar
n.k. Frekari frestur verður eigi veittur.Þótt um
engar kaupgreiðslur hafi verið að ræða, er eigi
að síður nauðsynlegt að skila eyðublöðunum aftur.
Frestur til að skila skattframtölum til skattstjóra,
eða umboðsmanna hans, er til 31. janúar n.k. Þeir,
sem atvinnurekstur hafa með höndum, þurfa þó
ekki að hafa skilað framtalsskýrslu fyrr en fyrir
febrúarlok. Með því að frekan framtalsfrestir
verða ekki veittir, nema sérstaklega standi á, er
því hér með beint til allra, sem geta búist við
að verða fjarverandi eða forfallaðir af öðrum á-
stæðum við lok framtalsfrfestsins, að .telja fram
nú þegar.
Þeir aðilar, sem nauðsynlega þurfa á framtals-
fresti að halda, verða að sækja um frest til skatt-
stjóra eða umboðsmanna hans og fá samþykki
fyrir frestinum.
í 47. gr. nr. 70/1962 um tekjuskatt og eignar-
skatt er kveðið svo á að ef framtalsskýrsla berst
eftir að framtalsfrestur er liðinn, skal miða skatt-
matið við raunverulegar tekjur og eign að við-
bættum 25%.
Til 31. janúar veitir skattstofan eða umboðs-
menn skattstjóra, þeim, sem þess þurfa og sjálf-
ir eru ófærir að rita framtalsskýrslu sína, aðstoð
við framtalið. Er þeim tilmælum beint til þeirra,
sem ætla sér að fá framtalsaðstoð, að koma sem
allra fyrst til skattstjóra eða umboðsmanna hans.
Húsbyggjendur og aðrir sem þurfa á launamiðum
og húsbyggingarskýrslum að halda og ekki hafa
borizt slík gögn í hendur, hafi samband nú þegar
við skattstofuna eða viðkomandi umboðsmanns.
Umboðsmenn í hreppum umdæmisins eru hrepp-
stjórar, nema í Misneshrepp, þar er Sigurður
Ólafsson skólastjóri umboðsmaður. Aðrir umboðs-
menn eru sem hér segir:
Keflavík: Bjarni Albertsson, aðsetur Hafnargata 27
Kópavogur: Kristinn Wium, aðsetur Vallargerði 40
Keflavíkurflugvöllur: Guðmundur Gunnlaugsson,
aðsetur ‘Skrifstofa Flugmálastjórnarinnar, Kefla-
víkurflugvelli.
Skattstjórimi í Reykjavík
T í M I N N, föstudagur 18. janúar 1963. —
13
I