Tíminn - 27.01.1963, Síða 1
TOTALIA
t'eiknlvélarl
_____01*6 A Mlchelsen
mHTgm klapparslíg 25*7
srml 20560
23. tbl. — Sunnudagur 27. janúar 1963 — 47. árg.
Faríð að draga úr frosthörkunum í Evrópu
MB-Reykjavík, 26. jan.
Eitthvað virðist nú loks vera
ag draga úr hinum miklu frost-
hörkum í Evrópu, samkvæmt
upplýsingum veðurstofunnar, a.
m. k. norðan til í álfunni. Nú
er kominn 3—7 stiga hiti á Bret
Landseyjum, í París er 5 stiga
frost og hitinn í Frakklandi er
frá —7 stigum til +5 stig, í Dan
mörku er 1 til 2 stiga hiti, í Nor-
egi og Sviþjóð er hitinn frá —5
stig og upp í frostmark og rétt
ofan við frostmark í Hollandi,
Belgíu, Luxemburg og Norður-
Þýzkalandi. í Mið-Evrópu og
Suður-Frakklandi er ástandið
enn svipað og það var.
Blaðið spurðist fyrir um það
hjá Jónasi Jakobssyni, veður-
fræðingi, hverjar hefðu verið or-
sakir hinnar miklu frosthörku
í Evrópu undanfarið. Hann kvað
mikið háþrýstisvæði að undan-
förnu hafa verið hér við land og
fyrir vesturströnd Evrópu, eins
og flestir landsmenn mundu
vita.
Þetta hefði valdið þrálátri
norðan- og norðaustanátt í Vest-
ur-Evrópu. Væri norðaustanátt
in sýnu verri, því að þeir vind
ar kæmu alla leið austan af slétt
um Síberíu og Norður-Rússlands.
Þar eð vindar gengju sólarsinn-
is um háþrýstisvæðin, hefði ein-
mitt norðaustanáttin verið þrá-
lát í Vestur-Evrópu nú að und-
anförnu. Þá væri einnig kominn
talsverður snjór í þessum lönd
um og vegna einangrunar hans
væri hitaleiðsla úr jarðveg-
inum upp í andrúmsloftið mjög
lítil, og því myndu hlýindin
koma hægt.
DREGIÐ A HVOLFI TIL HAFNAR
Ar SÆNSKA strandferðaskipinu THUNTANK hvolfdi núna á fimmtudaginn I Norðursjónum af ókunnum or-
sökum. Hollenzkir dráttarbátar komu til aðstoðar og drógu Thuntank á hvolfi til hafnar í Rotterdam. Það
er dráttarbáturinn Gele Zee, sem dregur strandferðas klpið, en Walrus styður við valt skipið. Vonir standa
til, að hægt verði að snúa Thuntank við í Rotterdam og grea við það án mikils kostnaðar, því skipið er ekk!
mikið skemmt. — (UPI).
9 dauðaslys
é janúarm.
BÓ—Reykjavík, 26. jan.
Á þeim fáu dögum, sem
liðnir eru af þessu ári, hafa
níu manns látizt af slysförum
og er það óvenju mikið mann-
fall á svo skömmum tíma.
Fyrsta dauðaslysið varð á nýj-
ársdag, er Hreinn Ágústsson, mað
ur um þrítugt, drukknaði á Reyð-
arfirði. Annað varð á Austurlandi,
aðfaranótt 7. janúar, er sextug
kona frá Egilsstöðum, Halldóra
Einarsdóttir, lézt í bílslysi á Fagra
dal og tveim dögum síðar lézt bróð
ir hennar, Vigfús, af völdum sama
atburðar. Hann var 62 ára gamall,
búsettur á Neskaupstað. Aðfara-
nótt tólfta dag mánaðarins lézt
Kristján Valdimarsson í brunan-
nm á Akranesi Hann var tæplega
þrítugur. Þann sautjánda lézt
Þorsteinn Ingimundarson, 18 ára
piltur frá Siglufirði, á Landakots-
spítalanum af völdum eiturs, sem
hann hafði sopið í misgripum, og
daginn eftir lézt Snæbjörn Aðils
af völdum eitrunarinnar um borð
i togaranum Röðli. Snæbjörn var
22 ára að aldri. Þriðjudaginn, þann
22., várð sex ára gömul telpa, Lára
Ólafsdóttir, fyrir bifreið í Hafnar-
firði og beið þegar bana. Tveim
dögum síðar, eða í fyrradag gerð-
ust s;vo slysin, er Magnús Einars-
son óg Hildur Ólafsdóttir fórust
hér í nágrenni Reykjávíkur.
Meiri hluti þessa fólks dó í
blóma lífsins. Meðalaldur þess er
aðeins 29 ár.
RONTGENSJONVARP
í LANDSSPÍTALANN
—Reykjavík, 26. jan. jg tekin til notkunar í þágu i ast hingað til lands í þeirri I
Sjónvarpstæknin hefur ver- jlækninganna og er nú að ber-| mynd. ;
Landspítalinn hefur fengið
I sjónvarpstæki, tengt röngten !
myndatæki, þannig að myndavél
in þráðsendir myndina í sjónvarps j
;ækið, er má staðsetja jafnt utan
sem innan stofunnar, þar sem
myndataka fer fram. Þetta kemur
í stag venjulegrar myndatöku eða
skyggningar, og er ætlunin að nota
þennan búnað á skurðstofu við
neglingar jog viðgerðir á beinbrot-
um.
Myndavélin er sett á svokallað-
an skyggnimagnara, en það tæki
sparar röntgennotkunina niður í
1/10 þess magns, sem til þarf án
magnara. Magnaranum og mynda-
vélinni er komið fyrir á velti-
armi, sem hægt er að færa yfir
uridir og kringum skurðarborðið
Slikt veltitæki hefur verið í notk-
un á sjúkrahúsinu á Akureyri og
skyggnimagnarar hafa þegar verið
teknir í notkun í nokkrum sjúkra-
liúsum.
Sjónvarpsbúnaður og myndatæki
I andsspítalans er nýkomig til
landsins og verður tekið í notkun
Framhald á 15. síðu.
KB-Reykjavík, 26. jan.
ÞAÐ HEFUR komlS greini-
lega i ljós, aS sú ákvörSun
skattayflrvaldanna aS herSa
eftirlit meS því, aS framtölum
sé skilaS í tæka tíS, og vera
sparari meS undanþágur en
áSur, hefur í för meS sér erf
iðleika fyrir marga, og hefur
verlS vikiS aS því áSur hér
I blaSinu.
Einkum kemur þetta nið-
ur á einstaklingum, sem
þurfa að láta telja fram fyr-
ir sig. Tíminn hefur átt tal
við nokkra endurskoðendur
um þetta, og ber þeim yfir-
leitt saman um, að þeir geti
annað fyrirtækjum nokkurn
veginn, enda hafa skattayf-
irvöldin komig nokkuð til
móts við {lá með þau, en að
margir hafi dregið við sig
bein launaframtöl og jafn-
vel hætt þeim með öllu
Aðrir segjast halda sínum
föstu viðskiptavinum áfram
en bæta engu við sig. Anna
þeir þessu með aukinni
vinnu. jafnframt Iwí. sem
t amhald á 15 siðu.