Tíminn - 03.02.1963, Síða 2
INGÓLFUR DAVÍÐSSON
GRÓÐUR OG GARÐAR:
Hvernig kemur
blómunum saman?
OKKUR gengur misjafnlega
að lynda vig annað fólk.
Suma gengur okkur strax vel
að blanda geði við, en kunnum
e. t. v. ekkj a-lmennilega við
aðra, jafnvel þótt þeir séu hin-
um engu síðri að mannkostum.
Dýrum kemur líka misjafnlega
saman eins og allir vita, en hitt
kemur kannski meira á óvart,
ag jurtategundir „semdi“ einn-
ig næsta misjafnlega. Þó eru
þess mörg dæmi. Séu t. d. tóm- *
atjurtir gróðursettar í húsi þar
sem ilmskúfar (Levkoj) vaxa
í, þá þola þær sambýlið ekki
lengi. Ilmur ilmskúfanna getur
jafnvel drepið tómatjurt á
skömmum tíma. Afskorin blóm
eiga líka misvel saman. Ef
gleym-mér-ei og hvítasunnu-
lilja eru settar saman í vasa,
líður ekki á löngu þar til ilm
efni hvítasunnuliljunnar gera
út af við gleym-mér-eina. Ekki
er heldur hentugt að hafa rós-
ir og resedu saman í blóm-
vendi. Resedurnar deyja fljót-
lega en sigur rósanna er dýr-
keyptur, þvi þær fölna líka
fyrir tímann. Rósir og resedur
eitra vatnið hvor fyrir annarri.
„Rósaeitrið" er bara fljótvirk-
ara. Dalalilja (Liljekanval) er
hættuleg ýmsum jurtum. Hún
getur líka verig vafasöm, t. d.
er hættulegt að drekka vatnið,
sem dalaliljur hafa staðið í. —
Hafa orðið slys af því erlendis.
Okkur þykir ilmur dalaliljanna
indæll, en ilmefnin eru sumum
jurtum banvæn. Fáar jurtir
vaxa fast hjá dalaliljum úti i
náttúrunni. Flestir dást að hin-
um fögru nellikum bg fáir eru
þeir, sem ekki eta epli með
beztu lyst allt frá dögum Ad-
ams og Evu. En ekki er hollt
ag hafa epli og nellikur saman
inni í stofu því að þá hanga
og fölna nellikurnar fljótlega.
Orsökin er sú að epli, bananar
o. fl. þroskaðir ávextir gefa
frá sér lofttegundina Etylen,
sem orsakar skjóta visnun ým-
issa afskorínna blóma og jafn-
vel blóma pottjurta, ef ávext-
irnir standa lengi í stofunni.
T. d. alparós og Eupkarbía fara
þá líka að fella blöðin. En auð-
vitað er skaðlaust ag hafa epli
stutta stund innj í stofu.
Óhentugt er að verzla með
blóm og ávexti í sömu búð. — *
Samt er hægt að nota Etylen-
efni ávaxtanna á vissan hátt,
t. d. til að flýta fyrir því að
brum sýrenugreina (disarunni)
eða kastaníugreinar springi út,
með því að hafa greinarnar í
sama herbergi og þroskuð epli
í sólarhring. Eplailmurinn get-
ur skemmt spírur ýmissa fræja,
eða jafnvel hindrað spírunina.
Goðaliljur (kjasitur) hafa svip-
uð áhrif. Þroskuð epli tefja
spírun kartaflna. Tilraun var
gcrg og voru 25 kg. af matar-
kartöflum geymd í sama her-
bergi og 5 kg. af eplum í janú-
ar—júní. Spírun varð sáralít-
il samkvæmt þessari amerísku
tilraun. En „böggull fylgir
skammrifi“. Það kemur væmið
sætatoragð í kartöflurnar og
moldarbragð kemur í eplin. E.
t. v. er unnt að notfæra sér að-
ferðina á útsæðiskartöflur? —
Nellikur o. fl. blóm þola illa
loftleysi, útgufunarefni frá
þeim sjálfum geta þá verkað á
þær sem eitur. Þarf jafnan að
vera loftgott á jurtunum. —
Þroskuð epli flýta þroskun hálf
þroskaðra epla í geymslu. Sama
er að segja um banana. Fyrir
nokkrum árum átti að konia
skip með banana til Gautaborg
ar. Skipið kom, en ekki ban-
anarnir. Þeir höfðu verig látn-
ir grænir í lestina að venju og
áttu að þroskast hæfilega á
leiðinnj frá Vestunheimi. En
dálítið af þroskuðum banönum
hafði hlæðzt með um borð og
það nægði til að afþroska og
eyðileggja alla hina á leiðinni
— svo varpa varg þeim í sjó-
inn.
Margt er undarlegt í náttúr-
unnar riki.
Ingólfur Davíðsson. i
Rafveita Hafnarfjaröar
óskar að ráða
I í n u m a n n.
Ums&Liarfrestur til 20. febrúar n.k.
Rafveita Hafnarfjarðar
Bíll til SÖIll
Höfum til sölu GMC trukk með spili og gálga.
Varahlutir geta fylgt.
Nánari upplýsingar á skrifstofu vorri.
LANDNÁM RÍKISINS
Hafnarstræti 6 — Stmi 18200
FALLEGIR KJÚLAR
FALLEGAR KAPUR
Verið velkomnar
í hið smekklega úrval, sem
Guðrúnarbúð hefur á boð-
stólum, bætast nú við í dag,
nýjar
svlssneskar ullarkápur
og Ijómandi fallegir kjólar
Ef þér viljið vera smekk-
lega klasddar, þá lítið inn í
á Kiapparstíg 27
Vi
’W*
FLUGSÝN HEFUR
SUMARFERBIR
MB—Reykjavík, 2. febr.
Flugsýn h.f. hefur ákveðið að
byrja nú þegar flugferðir með
svipuðu sniði og í fyrrasumar. —
Eins og kunnugt er, er þetta ó-
reglubundið flug, þar eð fyrir-
tækig hefur ekki leyfi til þess að
auglýsa áætlunarflug.
Grótti á Vatneyri
í standsetningu
SJ—Patreksfirði, 2. febr.
Endurbætur eru hafnar hér á
karfamjölsverksmiðjunni, sem
Þorbjörn Áskelsson hefur nú
keypt. Er verið að hreinsa til og
lagfæra og mun ætlunin að stand
setja verksmiðjuna í vor, þannig
að hún geti tekið á móti síld til
vinnslu.
Auglýsinga-
sími Tímans
er 19523
VlÐAVANGUR
f s.'ðasta tölublaði Dags á Ak-
ureyri seigir svo í ritstjór.nar-
grein:
„Nú á ég tvo hundrað
kalla“
„ENGINN sér það utan dyra
á Ólafi Thors, að hann sé at-
kvæðalaus í ríkisstjórninni, en
þetta er einmitt sagt a'ð hann
sé, samkvæmt stjóranrmyndu,n
arsiamningnum — og fyrir-
myndin livergi aðfengin, af því
að þetta kvað vera ejnsdæmi í
veraldarsöguimii um forsætis-
rá'ðherra.
Játningin
En hvað um það. Ólafur
Thors flutti þjóðtnni áramóta-
ávarp sl. giamlárskvöld og þótt
hann neyddist til að játa, að
dýrtíð og vei'ðbólga hefði orðið
stjórniinni ofjarl enn sem kom
i'ð væri oig mundu vera almenin-
ingi til Jiokkurra óþæginda, þá
bar hann sig að öðru leyti borg-
inmannlega.
Frá landnámstíð
EINS OG Dagur hefur síður
bent á, gat liann þess m.a., að
í tíð núverandi ríkisstjórnar
heffii sparifé þjóðarinnar í
bönkum og sparisjó'ðum nærri
því tvöfaldazt, að krónutölu.
Aukningin næmi því „nærri
því jafnhárri npphæð og þjóð-
in hafffli murlað saman allt frá
landnámstíð“ og þar til „við-
reisnarstjórnin“ hófst lianda.
Hann siagði, að spariféð væri
„hiið ytra tákn um mátt þjóðar-
in,nar til að fást við ný verk-
efni.“
Rýrnun krónunnar
Skilja nrátti af þessum oiJð-
um hans að þarna væri líka
hið ytra og augsýnilega tákn
um mátt ríkisstjórnarinnar og
afrek. Nú standa þannig sakir,
að gengi ís'lenzku krónunnar
gagnvart Bandaríkjadollar,
sem er viðmiðunargjaldmjðill,
hefur lækkað um nálega samia
hlutfall og innstæður sparifjár-
ins hafa aukizt á þcssu tímabili
og allur crlendur gjaldmiðill
hækkað að sama skapi. Kaup-
máttur krónunnar innian lands
hcfur rýrnað stórkostlega.
Kyrrstaóa
SPARIFJÁRINNSTÆÐURN-
AR, sem ráðherrann gumaffli
af, eru þvi í heildinni svipafflar
að verðmæti og sparifjárinn-
stæðurnar voru þegar ríkis-
stjórnin fór af stað. í þessum
efnum liefur orðið hvimleiið
kyrrstaffla, þótt ótrúlegt sé,
þrátt fyrir hin miiklu góðæri
náttúrunnar í aflabrögðum.
Afrek ríkisstjórnarinnar í
þessum efnum eru sams konar
og stráksins, sem klippti eitt
hundrað krónu seðilinn í
tvennt, hampaffli helmingunum
og sagffli: „Nú á ég tvo hundr-
að kalla“,
Eins fór forsætisráðherrann
að. Slíku tákni veifaffli hann
fyrir hönd ríkisstjórnarinnar
frarnan í þjóðina á gamlárs-
kvöld. □
anuwmoaaBB
hreyfilhitari
með hitðstilli
Smiðjubúðin
við Háteigsveg.
Sími 10033
2
T IIVI I N N, sunnudagur 3. fcbrúar 1963.