Tíminn - 03.02.1963, Side 16
- - - • v.v x \ i
Kanada-deila
um atómvopn
NTB Ottawa, 2. febr.
John Diefenbaker forsætisráSh.
Kanada gekk i dag á fund lands-
stjórans í Kanada, og var álitið, að
M*nn myndi við þetta tækifærl
leggja fram lausnarbeiðni sína. Svo
var þó ekki.
Mikil deila hefur risið upp á
kanadíska þinginu um kjarnorku
mál Kanada. Sagt er, að Kanada-
stjórn vilji ekki láta flytja kjarn-
oína sína til Kanada, heldur verði,
þeir geymdir í Bandaríkjunum,;
nema til styrjaldar komi.
I
Diefenbaker réðist hart á
Bandarikjastjóm fyrir nokkrum
dögum vegna yfirlýsingar hennar
um kjamorkumál Kanada. Kvað
hann vera um afskipti af innan-
ííkismálum að ræða. Ambassador
Bandaríkjanna í Kanada hefur ver
ið kallaður heim til þess að ræða
málið við stjórn sína, og í gær
sagði Dean Rusk utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, að stjórn hans
harmaði þau áhrif, sem yfirlýs-
íngin hefði haft, en stjórnin hefði
orðið að skýra frá afstöð'ú sinni til
málanna. í yfirlýsingunni sagði m.
"a. að vopnm sem Kanadamenn
hafa fengið frá Bandaríkjunum,
yrði ekki eins öflug, ef eldflaug-
arnar væru ekki búnar kjarnorku-
sprengjum.
BRAUZTINN OG HRINGDI
FYRIR12 ÞÚS. KRÓNUR
Esbjerg, fimmtudag.
Fjórtán ára gamall drengur,
sem þjáist af óhamingjusamri ást
til jafnöldru sinnar, danskrar
stúlku, sem um þessar mundir
dvelst í Kanada, hefur tvisvar
sinnum hringt til hennar þvert
yfir Atlantshafið á kostnaö bygg
ingafélags nokkurs í Esbjerg. —
Félaginu hefur nú borlzt síma-
reikningur, sem hljóðar hvorkl
meira né minna en upp á 1896
danskar krónur.
Upp komst um þessj fjár-
freku ástamál, þegar Bygginga-
félaginu barst símareikningur,
sem hljóðaði upp á nær því
2000 danskar krónur eða um
12000 ísl. krónur.
Félagið lagði málið' fyrir lög-
regluna, sém hóf rannsókn þeg
ar í stað. Eftir nokkra leit fann
lögreglan dreng nokkurn, sem
hefur ekkj áður staðið í neinu
sambandi við byggingafélagið.
Viðurkenndi hann þegar í stað,
að hann hefði hringt til
Kanada.
Drengurinn kvaðst hafa
kynnzt stúlkunni, á meðan hún
og foreldrar hennar bjuggu enn
í Esbjerg, og hefði hann ekki
getað gleymt henni. Þegar hann
uppgötvaði síðar, að sími var
á byggingasvæði félagsins, datt
honum í hug, að hann gæti
hringt til stúlkunnar. Varð það
úr, að hann hringdi tvisvar,
fyrst um miðjan dag, og í síð-
ara sinnið um kvöld, og biðlaði
til hennar.
Þegar lögreglan hafði hend-
ur í hárj hins óhamingjusama
biðils viðurkenndi hann, að
hann hefði einnig hringt einu
sinni frá einkaheimili, en engin
kvörtun liggur fyrir frá heim-
ili þessu enn sem komið er.
Ekki er vitað, hver á að
greiða reikninginn, en til að
byrja með mun það lenda á
byggingafélaginu. Drengnum
hefur verið komið fyrir á upp-
eldisheimili.
T1L HAFNAR AD RÆDA12 MIUIR
NTB-Þórshöfn, 2. febrúar
Á þriðjudaginn kemur hcldur
þriggja manna nefnd frá Færeyj-
um til Danmerkur til þess að ræða
2 stig á vísitöluna
Kauplagsnefnd hefur reiknar vísi
tölu framfærslukostnaðar í byrj-
un desembermánaðar 1063, og
HAFNARFJÖRÐUR
FUF í Hafnarfirði lieldur al-
mennan flokksfund í Góðtemplara
húsinu sunnudaginn 3. febrúar kl.
4 síSd. Rætt verður um bæjar-
mál og kosnir fulltrúar á flokks-
þing Framsóknarflokksins.
— Stjórnin.
við dönsku stjórnina um fiskveiði-
takmörkin við Færeyjar. Formað-
ur nefndarinnar er Haakon Djur
huus.
Viðræð'ur þessar fara fram sam-
kvæmt beiðni dönsku stjórnarinn-
ar, en að undanförnu hafa lands-
stjórnin í Færeyjum og danska
stjórnin átt í bréfaskiptum um
málið, að sögn Djurhuus.
Landsstjórnin hefur haldið fast
við ákvörðun lögþingsins um að
fiskveiðitakmörkin skulu vera tólf
sjómílur.
reyndist hú nvera 128 stig eða
tveimur stigum hætti en í dps-
emberbyrjun 1962, mánuði á und-
an. Matvörur hafa hækkað um eitt
stig, hiti, rafmagn og þvilíkt um
eitt stig, fatnaður og álnavara um
tvö stig, og ýmis vdrá ög þjöhhSta
um fimm stig. Húsnæði hefur
hækkað um eitt stig og greiðslur
ti lopinberr aaðila um eitt stig.
Gdður janúarafli
Bolungavíkurbáta
Krjúl-Bolungarvík, 2. febrúar.
Veðrið var hér heldur milt síð-
asta mánuð og gæftir voru í góðu
meðallagi. Afli bátanna hér var
643.6 lestir í mánuðinum. Mest-
an afla hafð'i Einar Hálfdáns,
162.7 lestir i 22 róðrum, þá kemur
Hugrún með 142,5 lestir í 22 róðr-
um, næstir eru Þorlákur með 139,2
lestir í 20 róðrum og Heiðrún
hcfur aflað 122,2 lestir í 21 róðri.
Þá róa héðan einnig tvcir smærri
bátar; Guðrún hefur aflað 38,6
iestir í 13 róðrum, en varð svo að
hætta vegna vélarbilunar og
Hrímnir hefur aflað 38,5 lestir í
17 róðnxm. Mestan afla í róðri
hafði Þorlákur, 18,2 tonn.
STJÖRNARKJÖR
í N0KKRUM
VERKALÝDC
FÉLÖGUM
KB-Reykjavík, 2. febru...
Stjórnarkjör hefur að undan-
förnu farið fram í nokkrum verka-
lýðsfélögum.
í Þróttj á Siglufirði varð stjórn-
in sjálfkjörin. Formaður er þar
nú Óskar Garibaldason, en Gunn-
ar Jóhannsson, sem verið hefur
formaður félagsins um langan ald-
ur baðst undan endurkjöri.
Sjálfkjörið varð einnig í sjó-
mannafélaginu Jötni í Vestmanna-
eyjum. Formaður er Sigurður Stef
ánsson. Vélstjórafélag Vestmanna-
eyja hélt einnig aðalfund nýlega,
og var Sigurður Sigurjónsson kjör
inn þar formaður.
EVIargir brunar
og árekstrar
ED-Akureyri. 2. febr.
í janúarmánuði var slökkviHðið
á Akureyri kallað út 12 sinnum.
Mestar skemmdir urðu í bruna
í Aðalstræti 28 og í geymslu-
skúr ÚA. Mun þefta algert met
í útköllum hér.
í mánuðinum lentu 50 bílar í
áfekstrum hér í bæ, að því er-lög-
reglan veit. Þetta eru óvenju marg
ir árekstrar og ískyggilega margir,
þótt akfæri hafi yfirleitt verið
gott. Engin slys hafa orðið á fólki,
en tjón á bifreiðum hefur eðli-
lega orðið mikið.
FULLTRÚAR
Fundur verður í fulltrúaráði
Framsóknarfélaganna í Reykjavík
niánudaginn 4. febrúar kl. 8:30 í
Tjarnargötu 26. Áríðandi fundar-
efni. Varamenn eru boðnir á fund
inn. — Stjórnin.
Frumsýndu 1. febrúar
ED-Akureyri, 2. febrúar
I gærkvöldi var frumsýndur hér
menntaskólaleikurinn. Er hann að
þessu sinni þýddur og heitir Brúð-
kaupsnótt og Botulismi. Leikstjóri
er Sævar Helgason, ungur Mýrdæl-
ingur, sem lokið hefur námj í leik-
skóla Þjóðleikhússins. Leiknum
var forkunnarvel tekið.
Innan skamms hefjast svo sýn-
ingar hjá Leikfélagi Akureyrar á
Tehúsi ágústsmánans. Leikstjóri
VANTAR 50 JÁRNSMIDI
KB-Reykjavík, 2. febrúar
Vélsmiðjan Héðinn auglýsti
í hádegisútvarpinu í dag eft-
ir fimmtíu járniðnaðarmönn-
um til vinnu í vélsmiðjunni.
í tilefni þessarar auglýsingar
sneri Tíminn sér til Gísla Guð-
laugssonar yfirverkstjóra í
Héðni.
Gísla sagðist svo frá, að skortur
væri mikill á mannafla í vélsmiðj-
unni. Þá myndi vanta talsvert á
fimmta lug manna ef vel ætti að
vera. Þetta stafar af því, að verk-
eíni eru mikil fyrir hendi, einkum
í sambandi við síldariðnaðinn. í
fyrra annaðist vélsmiðjan uppbygg
íngu verksmiðja á Austurlandi, í
haust hefur röðin verið komin að
verksmiðjunum við Faxaflóa og
er ekkert lát á nýjum verkefnum,
aðsóknin harðnar heldur, ef eitt-
hvað er. Verksmiðjan þarf þess
vegna að bæta við sig mönnum og
það miklu fleiri en til ag fylla í
þau skörð, sem alltaf myndast
öðru hverju.
Gísli kvað nokkra erfiðleika vera
a því að ná í menn. Margir eru
óundnir í öðru, ekkj sízt fagmenn.
Ef fást ekki menn núna, þýðir
þag aukna næturvinnu og meira
erfiði hjá þeim of fáu mönnum,
þar verður Ragnhildur Steingríms
dóttir.
aYranes
Framsóknarfélag Akraness held
ur skemmtisamkomu í félagsheim-
iiinu, Sunnubraut 21, n.k. sunnu-
dag kl. 8,30 Spiluð verður frain-
sóknarvist og sýndar kvikmyndir.
Aðgöngumiðasala við innganginn.
Öllum heimill aðgangur.
KLÚBBFUNDI
FRESTAÐ -
Klúbbfundinum, sem verr. átti
á mánudaginn 4. febrúar, ér frest-
að til mánudagsins 11. febrúar.
Framsóknarvist
Spilug verður Framsóknarvist í
Tjarnargötu 16, miðvikudaglnn 6.
febrúar kl. 8,30. Aðgöngumlða er
hægt að panta í símum 15564 og
12942. Góð verðlaun. — Stjórnin.
BING0
Framsóknarfélögin í Reykjavík halda Bingó í Glaumbæ sunnudaginn 3. febrúar
kl. 8,30. Fjöldi góðra vinninga er á þessum vinsælu Bingó-skemmtunum, þ. á. m.
frjálst val af húsgögnum í Húsgagnaverzlun Austurbæjar eða fatnaði úr
Markaðnum að verðqildi kr. 10.000,00. Spilaðar verða tólf umferðir. Síðast var
haldið Bingó i Glaumbæ fyrir hálfum mánuði og var þá húsfyllir. Aðgöngumiðs
er hægt að panta í símum 15564 og 12942 eða í Tjarnargötu 26. Dansað til kl. 1
BING0