Tíminn - 22.02.1963, Blaðsíða 15
Ræða ijörns
Framhald af 6. síðu.
laust oft dregið úr kröfum þeirra,
sem með þessi mál hafa farið, að
kaupgeta fólks hefur verig tak-
mörkuð. Breyting hefur orðið á
iþessu nú. Ekki vegna viðreisnar-
ráðstafana heldur af því, að meira
aflamagn hefur borizt á land en
dæmi eru til áður og atvinna því
stóraukizt. Bændur hafa algerlega
farði á mis við þessar auknu tekj-
ur. Það er óeðlilegt, ósanngjarnt
og óviturlegt, að sú atvinnustétt,
sem fæðir þjóðina að mestu leyti,
búi við miklu lakari atvinnutekjur
en aðrir. Afleiðing af slíku getur
aðeins orðið sú, að menn hætta að
vinna við þá atvinnugrein. Vitan-
lega getur þetta breytzt. Síldin
horfið frá landinu og atvinnutekj-
ur minnkað. Þá er eðlilegt að
bændur taki sinn þátt í erfiðleik-
um sem af því leiða. Ég geri ekki
ráð fyrir, þó einihver leiðrétting
fáist á verðlagsgrundvellinum, að
bændur fái fulla vexti af því fé
sem bundig er í búunum, cða fulla
greiðslu fyrir vinnu barna og
konu við framleiðsluna. Vera má,
að það sé heldur eigi það versta.
Bóndinn hefur atvinnuöryggi, ef
hann á bú og jörð og faann nýtur
þess frelsis sem þag veitir. Fyrir
börnin er sú umhugsun og á-
reynsla, sem sveitastörfin veita
mikils virði. Hitt er neikvæðara
og lakara, ef bændur hafa það á
tilfinningunni, að allt sem þeir
gera til að auka tækni og vinnu-
afköst verði þeim til engra nytja.
Vð slfk skilyrði getur engin at-
vinnugrein tekið eðblegum fram-
förum.
Það er á valdi stjórnarflokk-
anna, þvort umbætur verða gerð-
ar á afurðasölulögunum á þessu
þingi. Ég dreg eigi í efa, að ýms-
ir þeirra faafi vilja til að svo
megi verða. Er vel að það hugar-
far komi í Ijós áður en kosið er í
sumar. Verði faitt ofan á, að gera
engar breytingar til bóta á nefnd-
um lögum, ber nauðsyn til að
breyta þeim þannig, að þau séu
ekki brotin. Til þess þarf að setja
ákvæði í þau um að bændur skuli
hafa 20—30% lægri atvinnutekj-
ur en aðrir þjóðfélagsþegnar og
þær megi eigi aukast, hversu mik-
ið sem þeir strita og afkasta. Það
kæmi sér vel fyrir stjórn Stéttar-
sambandsins að hafa slík lagafyr-
irmæli með sér á næsta aðalfund
og mjög hentugt fyrir viðskipta-
málaráðfaerrann að láta þau fylgja
með í silfurfatinu, næst þegar
hann réttir það að bændum kúfað
af kjarabótum.
Frægur fiðlari
Framhald af 16. sfðu.
geyma, og fleiri gjafir hefði faann
haft heim með sér héðan. Hann
kvaðst hafa horft með eftirvænt-
ingu út um gluggana, þegar Gull-
faxi lækkaði flugið yfir Reykja-
vík, og mikið hefði hann furðað
sig á þeim breytta svip, sem
borgin hefði fengið síðan hann
dvaldist hér í tvær vikur fyrir 36
árum. Það mundi áreiðlanlega
taka hann tíma að rata í Reykja-
vík á ný.
Frúin, Irmgard Seefried, sagði,
að þau hjónin brynnu í skinninu
eftir að eyða hér nokkrum dögum
fyrir tónleikana og skoða sjálft
landið utan við borgina. Gjarnan
hefðu þau viljað, að dæturnar
þeirra tvær hefðu getað verið með
þeim £ þessari ferð. En þær yrðu
að stunda skólann sinn í Vín afi
kappi, vonandi ættu þær eftir að
heimsækja ísland einhvern tíma.
Listi í Iðju
Framhald af 16. síðu.
aðra vinstri manna er skipaður
þessum mönnum:
Formaður Einar Eysteinsson,
Stálumbúðir
Varaformaður Alda Þórðardóttii,
Gefjun
Ritari Jóhann P. Einarsson, Öl-
gerðin.
Gjaldkeri Þórður Guðmundsson,
Skögerðin h.f.
Meðstjórnendur Einar Eiiíksson,
Ofnasmiðjan, Tómas Sigurjónsson,
Framtíðin, Ingibjörg Tryggvadótt-
ir, Últíma.
Varastjórn Vilhjálmur Hjálmars
son, Vefarinn, Ingibjörg Jónsdótt-
ir, Eygló, Hannes H. Jónsson, Ála-
fossi.
Endurskoðandi Sveinn Vigfús-
son O'g Jón Loftsson.
Varaendurskoðandi Karl J. Eiðs-
son, Ölgerðin.
Skothríð her-þotna
Framhald al I siðu
vildi hvorki ræða orðsendinguna
né atburðinn neitt nánar.
Um leið og tilkynnt var um
þetta mál, gaf forsetinn opinber-
lega til kynna, að Sovétríkin hygð-
ust kalla heim mörg þúsund manns
úr herliði sinu á Kúbu, en fréttir
um það bárust fyrr í vikunni. —
Áætla Bandaríkin, að liðsafli Rússa
á Kúbu sé yfir 17 þúsund manns,
og var tekið fram, að stjórn Banda
ríkjanna teldi þessa ákvörðun
Sovétríkjanna, að kalla herliðið
heim, vera skref í áttina að spennu
létti í alþjóðamálum.
Safna til talsföðva
Framhald af 1. síðu.
ins mun nú faafa ritað öllum
deildum félagsins bréf, þar
sem óskað er eftir því, að
afmælisins verði minnzt á
þann hát að fé verði safn-
að til þess að kaupa tal-
stöðvar í allar björgunar-
stöðvar félagsins, en slíkt
gæti orðið að ómetanlegu
liði, eins og allir sjá.
Kvennadeildin hér í Reykja
vík mun verja því fé, sem
inn kemur á sunudaginn
til þessara kaupa og ætti
það ekki að draga úr sölu
merkjanna, né fæla menn
frá kökunum, nema síður
væri.
10 millj. króna
Framhald aí 1. síðu.
hér eru timburbryggjur,
sem eru aðeins miðaðar við
síldarmóttökuna. Aðal-
bryggjan hefur verið sama
sem ónýt, síðan Reykjafoss
lagðist á hana í fárviðrinu
í fyrrahaust
Minni
ir en
BORGFIRÐINGAR
Framsóknarfélag- Borgarfjarðar
og F.U.F. í Borgarfjarðarsýslu
halda almennan fund að Brún í
Bæjarsveit n.k. sunnudag, og hefst
liann kl. 3. Dagskrá: 1. Kosnir
fulltrúar á flokksþing, 2. Rætt um
stjórnmálaviðhorfið. Frummæl-
endur verða alþingismennirnir
Halldór E. Sigubðsson og Skúli
Guðmundsson. Stuðningsfólk
Framsóknarflokksins i Borgar-
fjarðarhéraði er hvatt til að fjöl-
menna á fundinn.
AKRANES
Framsóknarfélag Akraness
heldur fund í félagsheimili sínu
n.k. sunnudagskvöld og hefst
liann kl. 8,30.
DAGSKRÁ:
1 Kosning fulltrúa á flokksþing
2 Rætt um stjórnmálaviðliorfið.
Frummælendur verða alþingis
| mennirnir Halldór E. Sigurðsson
og Skúli Guð'mundsson.
Stuðningsmenn Framsóknar-
flokksins er livatt til að mæta á
fuiidinum.
Spilað á kristal
(Framhald aí 3. síðu)
nokkurra mánaða náms í hvort
sinn, en bara alltof stutt í senn,
ég kostaði mig sjálf í bæði
skiptin, en námið var dýrt og
ég var að þangað til ég var
orðin blönk, eins og t. d. þið
eruð núna!
— Hvar varstu í útlöndum?
— Fyrrá sinnið hélt ég til
Ítalíu og gekk í tíma hjá Callo
söngkennara í Milano, sem
nokkrir íslendingar hafa lært
hjá. Og í annað sinn sem ég
hélt út fyrir pollinn fór ég til
Miinchen. Þar komst ég að hjá
stórsnjölium kennara, sem Sig-
urður Björnsson var þá að Ijúka
námi hjá, hann er ungur Pól-
verji og heitir Bleszke, líka
snjall söngvari sjálfur. Sigurð-
ur benti mér á hann, hafði val
ið sér faann, þegar fyrri kenn-
ari Sigurðar, sjálfur Gerhard
Hiisch, var farinn til Japans.
Mér líkaði svo vel við Bleszke,
ag ég læt mig helzt dreyma
um að fá að verða einhvern
tíma svo fjáð, að ég geti farið
aftur til Miinchen til dvalar
þar. Þó kæri ég mig ekki að
sinni að fara frá Maríu Mark-
an, hún er slíkur afbragðs kenn
ari. En það er bara hitt, að
máske helmingur söngnáms er
í því fólginn að sækja óperur
og tónleika. Og þótt ég hafi
svo gaman af léttri músík, hef
ég fullan hug á að læra óperu
söng.
— Er skemmtilegt að standa
í kristalbúð?
— Já, já. Það er meira að
segja hægt ag spila á krystal-
inn. Ef mig vantar tón, slæ ég
í þennan vasa, þá er tónninn
kominn, sagði Svala, danglaði
í kristalvasann, og sá rétti tónn
kom.
12 millj. verömæfi.
Framhald af 16. síðu.
lestir af freðfiski, að verðmæti
400 þúsund krónur. Á næstunni er
-svo von á Stapafelli, sem sækir
hingað 2000 lestir síldarlýsis fyrir
7 milljónir króna f tveimur ferð-
um.
Þegar Jökulfellið var að fara út
lír höfninni i dag, tók það niðri á
sandeyri í miðri höfninni. Þar
sat það, þangað til á flóðinu
I TK-Reykjavík, 21. febrúar.
Mánafoss, hið nýja skip Eim-
skipafélags íslands kom til Reykja
víkur í morgun. Hafði félagið boð
inni fyrir blaðamenn í því til-
efni. Skýrði framkvæmdastjórinn,
Óttar Möller svo frá, að skemmdir
þær, sem urðu á skipinu í höfninni
á Akureyri væru mun minni, en
áætlað hefði verig og myndu tafir
af þessum sökum engar eða litlar
verða. Héðan fer skipið vestur og
norður um !and og síðan til Hull.
Mánafoss er smíðað í Hollandi
1959 og er 1400 tonn. Tvær lestar
eru í skipinu búnar hlífðarlúgum
af svonefndri „Von Tell“-gerð. 6
rafmagnsvindur eru í skipinu.
Aðalvél skipsins er Klöckner
Humboldt-Deutz og er 9 strokka,
1000 hestöfl Fullhlaðið fer skipið
12 mílur Hiálparvélar eru 3.
Skipshöfn er 11 manns og vist-
arverur skipsmanna hinar vist-
kgustu. Skipið er búið fullkomn
ustu siglingatækjum og öryggis-
tækjum. Sktpstjóri á Mánafossi er
Eiríkur Ólafsson. 1 stýrimaður
Bernódus Kristjánsson og yfirvél-
stjóri Haukur Lárusson.
Athugasemdir
vegna pressuballs
Blaðinu hafa borizt tvær athuga-
semdir vegna væntanlegs pressu-
balls í nýja salnum á Hótel Sögu.
Er önnur frá Stangaveiðifélagi
Reykjavíkur en hin frá Blaðamanna
félagi íslands.
Athugasemd Stangaveiðifélags-
ins er þannig: „Vegna frásagnar
dagblaðanna um væntanlegt
„pressuball“, skal það tekið fram
og til þess að forðast misskilning,
að fyrsta samkvæmið í hinum
nýju salarkynnum Hótel Sögu,
opnunarkvöld, verður árshátlð
Stangaveiðifélags Reykjavfkur,
föstudaginn 1. marz n.k. — Stjórn
SVFR.“
Athugasemd Blaðamannafélags-
ins er þannig: „f tilefni af þesS-
ari athugasemd S.V.F.R. vill
Blagamannafélag íslands taka
fram, að fyrir hokkru tjáði for-
stjóri Hótels Sögu, Þorvaldur Guð
mundsson, Blaðamannafélaginu,
að pressuballið 2. marz yrði fyrsti
opinberi fagnaðurinn í hinum
nýja sal hótelsins. Hins vegar
muni verða þar tvö lokuð félags-
hóf áður, hóf Búnaðarfélags fs-
lands til heiðurs Steingrími Stein-
þórssyni, fyrrverandi búnaðar-
málastjóra, og árshátíð S.V.F.R.
— Stjórn B.í."
skemmd-
ætlað var
KAUPFÉLAGSSTJÓRASTARF
KaupfélagsstjórastarfiS við Kaupfélag Hellissands,
Hellissandi, er laust til umsóknar.
Umsóknir ásamt meðmælum, upplýsingum um
fyrri störf og kaupkröfum sendist fyrir 15. marz
n.k. til formanns kaupfélagsins, Ársæls Jónssonar,
Hellissandi, eða til Jóns Arnþórssonar, starfs-
mannastjóra Sambands ísl. samvinnufélaga, sem
gefa allar nánari upplýsingar.
Stjórn Kaupfélags Hellissands.
Tilkynníng
frá byggingarfulltrúanum í Raykjavík
Að gefnu tilefni skal tekið fram, að samkvæmt
18. gr. 3. lið Byggingarsamþykktar fyrir Reykja-
vík er bannað að nota járn í steypu með lausu ryði
á, og verða þeir byggingarmeistarar er hugsa sér
að nota slíkt járn, að sjá svo um að allt laust ryð
verði fjarlægt af járninu.
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík
Skátaskemmtunin 1963
verður haldin í Skátaheimilinu:
Laugardag 23/2 kl. 15 e.h. fyrir 16 ára og eldri.
Sunnudag 24/2 kl. 3 e.h. fyrir ylfinga og ljósálfa.
Sunnudag 24/2 kl. 8,30 e.h, fyrir yngri skáta.
Aðgöngumiðar verða seldir í Skátaheimilinu föstu-
daginn 23. febr. kl. 6—8 e.h
NEFNDIN
Utför mannsins míns og föður
Ásgeirs Jónssonar
frá Hjarðarholti,
verður gerð frá Hjarðarholtl laugardaginn 23. febr. n.k. og hefst
kl. 2. — Kveðjuathöfn verður í Akranesklrkju föstudaglnn 22. febr.
kl. 6. — Bílferð verður utfarardaginn að Hjarðarholtl frá Þórðl
Þórðarsyni, Akranesi, og lagt af stað kl. 11,30.
Marta Oddsdóttir
Sigrfður Ásgeirsdóttlr
Björn Guðmundsson
fyrrverandl skólastjóri, Núpi,
verður jarðsunglnn frá Mýrum í Dýraflrði laugardaglnn 23 þ.m
Kveðjuathöfn fer fram frá Núpl sama dag kl. 1 s.d. — Fyrli
hönd aðstandenda
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Björn Guðmundsson
TÍMINN, föstudaginn 22. febrúar 1963 —
15