Tíminn - 22.02.1963, Side 16
»**•
Föstudagur 22. febrúar 1963
45. tbl. 47. árg.
#«*■* r t *■ 1
GOÐURAFLI
NETABATA
HRINGBORÐS-
RÁÐSTEFNA
F.U.F. í Reykjavík hefur ákveð-
;ð að efna til hringborðsráðstefnu
r.iiðvikudaginn 27. þ.m. að Tjarn-
argötu 26, kl. 20:30 um grund-
vallarstefnu Framsóknarflokksins.
Þcir, sem hafa áhuga á þátttöku
eiu beðnir að tilkynna það í síma
15564 að Tjarnargötu 26, þar sem
þeir geta jaínframt fengið öll gögn
varðandi ráðstefnuna.
MB-Reykjavík, 21. febrúar.
Nokkrir netabátar héðan úr
Reykjavík fengu allgóðan afla í
gær. Skagfirðingur kom inn með
17 lestir og Hafþór og Leifur
Eiriksson með 9 lestir hvor. Þess
má geta, að I fyrradag fékk Skag-
firðingur 18 lestir og 15 daginn
þar áður. Aflinn í þorskanót varð'
ekki eins góður og stundum fyrr,
þó kom Hugrún inn með 11 tonn.
Aðeins fjórir bátar stunda enn
jínuveiðar héðan frá Reykjavík,
enda aflinn cregur og jafnvel loðn
an virðist ekki freista sjávarbú-
anna hið minnsta í ár.
Á Reykjavíkurflugvelli í gaer: Söngkonan Irmgard Seefried heilsar manni sinum, fiðluleikaranum Wolfgang
Schneiderhan. T.h. eru Fritz og Helga Weisshappel. (Ljósmynd: TÍMI'NN—GE).
Einn frægasti fíðiarínn kominn
GB—Reykjavík, 21. febrúar.
Einn af frægustu fiðluleikurum
heims, Wolfgang Schneiderhan,
kom hingað í dag með Gullfaxa,
miliilandaflugvél Flugfélags íslands
frá Kaupmannahöfn.
Iíann leikur fiðlukonsert eftir
Mozart n.k. föstudagskvöld með
Sinfóníuhljóm'sveit íslands i Há-
skólabíói, og þar syngur líka eigin-
kona fiðluleikarans, söngkonan
Irmgard Seefried, sem kom hing-
að f fyrradag og hélt söngljóða-
kvöld í Háskólabióinu í gærkvöldi.
12 milljóna verðmæti á
4 dögum f rá Raufarhöfn
JH—Raufarhöfn, 21. febrúar.
Hér hafa verið miklar skipakom-
ur, það sem af er þessari viku. Sex
sklp hafa flutt héðan útflutnings-
verðmæti, sem nema yfir 12 milj.
króna samtals.
Á sunnudaginn kom Goðafoss
hingað og sótti síðustu síldartunn-
urnar frá sumarvertíðinni, 1250
tunnur, sem eru að útflutningsverð
mæti 1,2 milljónir króna. Stapa-
fell kom sama dag og tók 200
lestir af síldarlýsi fyrir 700 þús-
und krónur. Henrika Tekla lestaði
á mánudaginn 690 lestir síldar-
mjöls til Englands fyrir 3,725-
000 króna. f morgun lestaði Dís-
arfell 20 lestir af gærum’fyrir 600
þúsund krónur. Reykjafoss lestaði
í dag 680 lestir síldarmjöls fyrir
3,5 milljónir króna og 55 lestir af
skreið fyrir 1,850,000 króna.
í dag lestaði líka Jökulfellið 25
Framh. á bls. 15.
Söngkonan heilsaði manni sín-
um á flugvellinum, og aðrir sem
voru þar mættir til að taka á
móti honum, voru Fritz Weiss-
happel, framkvæmdastjóri Sin-
fóníuhljómsveitarinnar og Helga
kona hans, Júlíus Schopka aðal-
ræðismaður Austurrikis og Kari
Rovold sendiráðunautur Sam-
bandslýðveldis Þýzkalands.
Schneiderhan sagði fréttamannj
Tímans, að runnin væri upp lang-
þráð stund, að heimsækja fsland
á ný. Honum væri það ætið í
minni, er hann kom hingaö, þeg-
ar hann var aöeins tólf ára, það
var árið 1927 og þá lialdið marga
lónlcika, alltaf fyrir fullu húsi
og við forkunnar viðtökur. Hann
hefði fengið að fara á hestbak
nokkrum sinnum, fengið að gjöf
íslenzkan fána og Biblíuna á ís-
lenzku, sem hann kvaðst alltaf
Framhald á 15. síðu.
Listí lýðræðissinnaðra vinstri mannn
Tómas Sigurjónssort
Ingbjörg TryggvadóttÞ
/ilh'álmut 'tjálmarssor
Ingibjörg Jónsdóttir
Lýðræðissinnaðir vinstri menn | við stjórnarkjörið, sem fer fram
í Iðju hafa nú í fyrsta skipti boðið ' 2. og 3 marz. Mikill áhugi hefur
iram sjálfstæðan lista í félaginu I ríkt fyrir þessu framboði, og er
gleðiefni, að lýðræðissinnaðir i cr aö geta þess, að þrír listar verða
vinstri menn hafa sameinazt gegn boönir fram j félaginu, listi lýð-
stvinnurekendavaldinu í Iðju. Rétt I ræðissinnaðra vinstri manna, listi
Hannes H. Jónsson
kommúnista og listi núverandi
stjórnar Iðju. Listi lýðræðissinn-
Framhald á 15. síðu.