Tíminn - 01.03.1963, Page 1
benzin eaa diesel
HÉKLA
LUMA
^A,
ER UOSGJAFlþ
BÓKAMARKAÐUR var cpnaður í gær í Listamannaskálanum. Þar voru á boðstólum rúmlega 2000 bókatitlar.
Fyrsta daginn var þar þegar margt um manninn og áhuginn skein úr hverjum drætti bókaskoðendanna.
(Ljóstn.: TÍMINN-GE).
ENN EITT BÍLSLYS í SKRIÐUNUM
STEYPTIST
í GLJUFRSÐ
ES-Egilsstöðum og
KS-EskifirSi, 28. febrúar.
í DAG varð bflslys f Skriðunum
í Fagradal, svo aS segja á sama
staS og banaslysin urSu fyrr f vet.
ur. Sams konar blfreið, Austin-
Gipsy, fór þar út af veginum og
steyptist niður í gljúfrið. Aðeins
einrt maður var í bifeiðinni og gat
hann fleygt sé út, áður en bifreiðin
fór fram af gljúfurbarminum.
Rétt eftir hádegið I dag var
Árni Þórhallsson frá Kirkjubóli
í Norðfirði á leið upp skrið-
umar í bifreið sinni, sem er af
Austin-Gipsy gerð. Er hann var
kominn nokkru upp fyrir þann
stað er banaslysin urð'u í vetur fór
bifreið hans út af veginum, rann
mður melinn og steyptist síðan
fram af gljúfurbarminum. Árna
tókst á síðustu stundu að kasta
sér út úr bifreiðinni og komst
hann af eigin rammleik upp á veg-
inn aftur. Þá bar þar að bifreið,
er flutti hann niður á Firði.
Engin skýring hefur fengizt á
þessu óhappi. Vegurinn þarna er
breiður og alauður og Árni hefur
meirapróf og er talinn mjög gæt-
inn og góður bílstjóri.
SLASAÐIST
KS-Eskifirði, 28. febrúar.
ÞAÐ SLYS varð í dag, er
Guðmar Ragnarsson frá
Sandi í Hjaitastaðaþinghá var
að taka myndir fyrir TÍM-
ANN af flakl bifreiðarinnar
er fór út af veginum í Skrið-
unum, að steinn féll í höfuð
hans. Slasaðist Guðmar tals-
vert á höfði og var þegar
fluttur að Egilsstöðum, þar
Framh. á bls. 15.
10 JATA SPRUTTSOtU
í VESTMANNAEYJUM
NÝMÆLI í LAGAFRUMVARPI
TK-Reykjavík, 28. febrúar.
I FRUMVARPI til laga um kirkju-
garða er nú er til meðferðar á Al-
þingi eru mörg nýmæli, er ætla má,
að öllum mun ekki falla í geð, enda
hér í mörgum tilvikum um viðkvæm
tilfinningamál að ræða.
Þetta frumvarp er orðið all
velkt. Upphaflega samið af nefnd,
sem skipuð var 1955. Hefur frum-
varpið oft komið fyrir þingið en
ekki fengið afgreiðslu. í þessum
meðförum hefur það orðið fyrir
allmiklUm breytingum. 1962 sam-
þykkti Kirkjuþing frumvarpið og
var það í þriðja sinn, er Kirkju-
þing sendi frumvarpið frá sér. Er ^
það nú flutt af menntamálanefnd j
efri deildar að beiðni Bjarna Bene !
diktssonar, dóms- og kirkjum.ráð-
herra. Er frumvarpið var til 2.
umr. i efri deild í dag gerði Sig- 1
urvin Einarsson við það nokkrar
athugasemdir og benti á atriði,
sem hann áliti að lagfæra þyrfti
og endurskoða.
Þau atriði, sem hann taldi var-
hugaverð voru m. a. þessi:
Að heimila að tvígrafa í sömu
gröf. Að banna heimagrafreiti. —
Taka upp sérstákt gjald, legkaup,
fyrir þá, sem eru í öðrum trúfé-
Framh. á bls. 15.
SK-Vestmannaeyjum, 28. febr.
Tíu manns hér hafa við lög-
reglurannsókn, játað á sig
leynivínsölu. Hafa þeir mest-
megnis selt vín frá Áfengis-
og tóbaksverzlun ríkisins, en
einn þeirra hefur þó selt nokk
uð af „landa".
Undanfarið hefur verið tals-
vert mikið um leynivínsölu í Vest-
mannaeyjum og hefur lögreglan
unnið að því undanfarnar vikur
að upplýsa þetta mál. Hafa undan
farið farið fram yfirheyrzlur og
vitnaleiðslur í þessu máli og hafa
þær verið allumfangsmiklar.
Hafa nú 10 mans játað á sig
leynivínsölu. Magn það, er þeir
hafa játað að hafa selt. er nokk-
uð mismunandi. Yfirleitt hafa þeir
selt brennivínsflöskuna' á 350—
400 krónur. Þá hefur og einn af
þessum tíu viðurkennt að hafa
selt 9 flöskur af „landa“ og var
verðið á honum líkt. Ekki hafði
sá sjálfur bruggað, heldur keypt
af öðrum manni. Hafa bruggtæki
hans nú verið gerð upptæk. Brugg
arinn mun ekki hafa selt fram-
leiðslu sína öðrum en þessum eina
manni, svo sannað sé. •
Grunur leikur á, að vínsalarnir
Framh. á bls. 15.
Flokksþingi
Framsóknar-
manna frestað
VEGNA ánflúenzunnar er flokksþingi Framsóknarmanna, sem
auglýst var, að hefjist 7. marz n. k„ frestað fram yfir páska.
Ákvörðun um þetta var tekin á fundi framkvæmdastjórnar
flokksins í gær. Samkomudagur þingsiins verður auglýstur
mjög fljótlega.
IÐJUFUNDURINN í GÆRKVELDI SJÁ BLS. 9