Tíminn - 09.04.1963, Page 16
Þriðjudagur 9. apríl 1963
84. tbl. 47. árg.
Banaslys um borð
í brezkum togara
MB-Reykjavík,, 8. apríl
Banaslys varð um borð í brezka
togaranum Stella Aquilla á laug-
ardaginn, er skipið var statt miðja
vegu milli Færeyja og íslands á
litleið. Var beðið um aðstoð Slysa-
vamafélags íslands við að reyna
að koma hinum siasaða manni í
land, en áður en það væri unnt
var maðuriun látinn.
Togarinn Stella Aquilla var
staddur á Cl° 48’ norður og 14°
METAFLI
í EYJUM
SK-Vestmapnaeyjum, 8. apríl.
Gærdagurinn var metafladagur
á þessari vertíð, og bárust alls
1340 tonn á land. Hæstur var
Halkion með um 40 tonn, en
margir bátar voru með yfir 30
tonn. Hér skortir alltaf mannskap,
og er því erfitt að gera úr aflan-
um. Hefur stundum orðið að senda
skip til Þorlákshafnar og jafnvel
Grindavíkur. Þetta er orð'in óvenju
iöng aflahrota hér í Eyjum. Hæst-
ur á vertíðinni er Stígandi með
lúm 800 tonn, en skipstjóri á
honum er Helgi Bergvinsson.
Félagsmálaskólinn
Framhaldsfundur um vinnuhag-
ræðingu verður haldinn miðviku-
daginn 10. apríl kl. 20,30. Frum-
mælendur á fundinum verða Hall-
dór E. Sigurðsson, alþingismaður,
og Jónas Guðmundsson, stýrimað-
ur. Sýnd verður kvikmynd. Mætið
stundvíslega.
54’ vesitur, er slysið varð, en sá
staður er mitt á milli Færeyja og
íslands, þannig að 220 mílur eru
til Vestmannaeyja, Hornafjarðar
og Mykiness. Klukkan 17,03 á
laugardaginn barst beiðni til
SVFÍ frá lögreglustjóranum í Þórs
höfn um að ráðstafanir yrðu gerð-
ar til þess að ná í hinn slasaða
mann ef þess væri nokkur kost-
ur, þar eð hann væri mjög illa
slasaður. Maðurinn var vélstjóri
og hafði slasast á höfði niðri í
vélarrúmi. Slysavarnafélagið gerði
allt, sem það gat, tl þess að bjarga
manninum, hafði samband við
Landhelgisgæzluna, Vamarliðið og
björgunarstöðvar í Skotlandi. —
Hérlendis var engin sjóflugvél til-
tæk til að fara til aðstoðar. — Kl.
19,20 svöruðu Varnarliðið og björg-
unarstöðvarnar á Skotlandi. Varn-
arliðið kvaðst enga sjóflugvél hafa
og Skotarnir gátu ekki sent vél
fyrr en á sunnudagsmorguninn. |
Aðeins fimm mínútum síðar komu i
TVEIR AFLAKÓNGAR I SLIPP
skilaboð frá togaranum, þess efn-
is að hjálpar væri ekki lengur i
þörf, þar eð hinn slasaði maður |
væri látinn.
GB-Reykjavík, 8. apríl
Þeir hafa nú unnið til þess
að mega snurfusa sig dálítið
og slappa obbolítið af, þessir
tveir mestu aflabátar Akumes-
inga á árinu sem leið, Höfrung
ur II. og Haraldur.
Við komum að þeim, þar sem
þeir stóðu uppi í Slippnum í
Reykjavík. Undir eins fórum
við að klifra upp í þá margar
margar mannhæðir, en hittum
ekki húsbændur heima. Þeir
voru báðir í landi, hinir afla-
sælu skipstjórar, Ingimundur
á Haraldi og Garðar á Höfrungi
II.
Því var ekki um annað að
gera en reyna að ná tali af
útgerðarmanninum, Sturlaugi
Böðvarssyni, og forvitnast um
erindi bátanna í slipp.
„O, það er nú ekkert alvar-
legt“, svaraði Sturlaugur. Þeir
fara þangag alltaf á 4ra eða
5 mánaða fresti í hreingerningu
og málnmgu, en auk þess er
Haraldur að fá tveggja ára
skoðun á skrúfuöxli."
„En þeir hafa samt veiið á
véiðum nýverið?"
„Þeir voru á þorski nýlega,
fengu á þriðja hundrað tonn
á þrem vikum, hafa aldrei veitt
svo vel í nót áður. Svo voru
þeir nýbyrjaðir á síld. En af
því að hún stóð svo grunnt, og
erfitt var að koma nótinni við,
var ákveðið að hætta rétt í bili,
nota tækifærið og senda bát-
ana í hreinsun í slipp. En
þegar þeir koma þaðan, halda
þeir aftur á síld. En það er
sömu söguna að segja af erfið-
leikunum með fólkið í landi
hjá okkur og annars staðar. Vig
höfum ekki helming af því
fólki, sem þyrfti til að taka
á móti þeim afla, sem á land
berst. Seinast í gær urðu skip
frá að nverfa með afla sinn.
Fólkið okkar leggur sig allt
fram til að vinna aflann, legg-
ur nótt vig dag," en það er
alveg að lotum komið af
þreytu.“
„Hver var hásetahluturinn á
Haraldi og Höfrungi II. árið
sem^ leið?“
„Á þrem hæstu skipunum
okkar var hann innan við, um
og yfir 300 þúsund krónur.
Höfrungur II. varð hæstur (og
hefði maske náð landsmeti, ef
hann hefði ekki orðið að hætta
vegna bilunar 6. des.) fékk
rúmlega 9 þúsund tonn, Har-
aldur fékk tæp 8 þúsund og
Skírnir um 7 þúsund.“
Á þríðja þús.eínstaklínga
með skotvopn í borginni
BÓ-Reykjavík, 8. apríl
Lög um innflutning skotvopna
og sprengiefna voru sett árið 1936
en frá þeim tíma, eða 9. des. þess
árs til 16. marz 1963, hafa verið
gefin út 3506 s'kotvopnaleyfl
Reykjavík.
Erlingur ■ Pálsson, yfirlögreglu-
þjónn, veitti blaðinu þessar upp-
lýsingar nýlega, er fréttamaður
í ræddi vig hann um þessi mál með
tilliti til þeirra slysa, sem orsak-
ast af meðferð skotvopna og mis-
höndlun á þeim, sem öðru hvoru
á sér stað hérlendis.
Erlingur sagði, að mál þessi
hefðu verið tekin fastaii tökum
en fyrir árig 1936, enda full þörf,
því spellvirki með skotvopnum
hefðu þráfaldlega verið unnin, sér
staklega af unglingum. Engin ald-
urstakmörk höfðu verið sett, þeg-
ar byrjað var að veita skrifleg
byssuleyfi, en tveim árum síðar
var ákveðið, að enginn innan 18
ára mætti bera skotvopn. Nokkru
síðar voru aldurstakmörkin færð
upp í 21 ár, og taldi Erlingur það
hafa reynzt furðuvel hér í lög-
sagnarumdæminu.
Erlingur sagði, að mörgum þætti
lögreglan hér full ströng í þess-
•jm efnum, enda mikil ásókn að fá
leyfin. Skilyrði til leyfisveitingar
eru uppáskrift tveggja sæmilegra
rnanna, hreinlegt sakavottorð, og
svo það, að lögreglan finni ekkert
tortryggilegt í fari umsækjanda.
Ef leyfishafi endurnýjar vopn sitt,
þarf aftur að leggja fram saka-
vottorð. Sagði Erlingur, að menn
fengju ekki leyfi sitt endurnýjað,
ef óregla eða tilraun til misnotk-
unar kæmi í Ijós. Ef um áberandi
brot eða misnotkun skotvopna er
að ræða, fara slík mál til saka-
domaraembættisins og eru af-
greidd þar samkvæmt landslögum,
Framhald á 15. síðu.
f KVÖLD er 60. sýning Leikfélags Reykjavíkur á leikritinu HART í BAK,
eftir JÖKUL JAKOBSSON. Hafa nokkrum sinnum veriS tvær sýningar
á dag, og tvlsvar verið miSnætursýning. Leikurinn hefur alltaf veriS
sýndur fyrlr fullu húsl. Ekkert leikrit hefur veriS sýnt svo oft samfellt
hjá L.R. nema Gullna hliSið. — Þessi mynd var itekin aS lokinni 50. sýn-
ingu leiksins, og á henni eru, tali frá vinstri: GuSmundur Pálsson, Karl
Sigurðsson, Gissur Pálsson Ijósameistari, Gisli Halldórsson (við borðs-
endann), Brynjólfur Jóhannesson, Jóhanna Kristjónsdóttir (kona Jökuls),
Steindór Hjörleifsson, Theódór Halldórsson leiksviðsmaður, Helga Val-
týsdóttir og Hrafnhildur Guðmundsdóttir.
J