Tíminn - 11.04.1963, Blaðsíða 19

Tíminn - 11.04.1963, Blaðsíða 19
 mm. : y : : : H ■; l^fUI PM ° / , W& ■ I * ' I : 's< : JWSKti. /' s v '/Mjv' ' , . s ■ ■ ■ - gassás^a ■ VV; ; f/"'' f f mí-M W&ÍM i^íý&ííí# ffeKME*.UM Xu.\Vc<wr \ V-OAx^^oXS <1. sVr*x oA Vo**kv««. \^0<nw\X Q«\ ac^ ^Ad . * \Ci \oiv VHavwví — Nú, um tómstundastarfið hjá nemendunum er það helzt ag segja, að þau ná furðuleg- um árangri, t.d. í leiklist. Gestir koma í heimsókn og fræða, eitt og annað fleira skeður. Annars er bezt, segir Ólafur H. Krist- jánsson, skólastjóri að lokum, — að þið \>rentið upp úr skóla blaðinu, sem nemendur gefa út, þar er félagsstarfinu lýst. ÚR SKÓLALÍFINU Félagslíf ‘hefur verig með svipuðum hætti í vetur og und- arfarna vetur hér í skólanum. Ýmislegt hefur verið gert sér til gamans og afþreyingar, og ætla ég nú að skýra frá því helzta. Á hverju laugardagskvöldi eru haldnar kvöldvökur á veg- um nemenda. Það helzta, sem haft er til skemmtunar er: Söngur, upplestur, leikþættár og ýmiss konar képpni^ milli bekkja og einstaklinga. Á eftir þessum kvöldvökum eru svo haldnir dansleikir. Þar leikur hljómsveit Reykjaskóla fyrir dansi. Hljómsveitarstjóri er Þórir Steingrímsson, og með honum í hljómsveitinni eru: Gunnar Kvaran, Anne Mary Pálmadóttir og söngvararnir Friðrik Pálsson og Sigríður Brynjúlfsdóttir. Þessir dansleik- ir eru oft fjörugir og á hljóm- sveitin mikinn þátt í því. Hljóm sveitin fór um eina helgi aust- ur í Ásbyrgi og spilaði þar fyrir dansi. Var henni tekig mjög vel af samkomugestum. Málfundir hafa verið haldnir innan ungmennafélagsins tvisv- ar í vetur og verða vonandi fleiri Áhugi fyrir mælskulist hefur verið nokkuð góður og þátttaka mikil í umræðunum. Margt ber á góma í ræðuhöldum þssum og umræður oft ákafar og heit- ar Skákáhugi er mikill í skólan um í vetur. Skákfélag var stofn ag hér í haust, og hefur það reglubundnar æfingar tvisvar í viku. Fyrú jólin kom hingað einn ágætur húnvetnskur skák maður, Jónas Halldórsson, og tefldi fjöltefli. Einmitt þannig heimsóknir hafa hvað mest á- hrif á skákáhugann til hins betra Guðmundur G. Hagalin, rit- höfundur, heimsótti skólann fyrir nokkru. Skemmti hann hér í skólanum tvö kvöld með upplestri, bæði úr sínum eigin verkum og annarra. Voru allir sammála um, að betri heimsókn hefði vart verið hægt að fá. Stefán Jónsson, námsstjóri, kom líka hingað í heimsókn eftir jólin. Hann skemmti okk ur eina kvöldstund og sagði okkur margt fróðlegt og skemmtilegt. Núna nýlega kom hingað í skólann Björg Björnsdóttir, söngkennari, í því skyni, að kenna okkur nemendum söng. Þetta er mjög þarfleg kennsla og skemmtileg tilbreytni, því nú ómar söngur um skólann dag hvern. Einn góður gestur er þá ó- talinn. Það er Eiríkur Eiríks- son, leikstjóri. Hann hefur stjórnag og æft leikrit það og þann upplestur, sem á skemmt uninni er. Einnig hefur hann komið í kennslustundir í bekkj uum og veitt tilsögn í framsögn og upplestri. Fleira mætti telja, sem skeð- ur hér í skólanum, en að þessu sinni mun þetta verða látið nægja. H.S. íþróttirnar eiga miklum vinsæld um að fagna í Reykjaskóla. Magn ús Ólafsson, íþróttakennari þarf svo sannarlega ekki að kvarta undan áhugaieysinu. — Þarna læra menn undirstöðuatrlðl og tækni við hinar ýmsu íþróttir; prúðmennska og drenglyndi sltur í öndvegi. — Á myndunum hér sjáum við Ingimund Ingimundar son yfir ránni. Glæsilegt stökk — tækni og stíll. — Hinar mynd irnar eru teknar á kappleik milli bekkja. 1 og 2 bekkur mynduðu úrvalslið gegn 3. bekk. Áhorfend ur voru fjölmargir og létu hug sinn óspart í Ijós. Þrjár sundkonur í Reykjaskóla. Þær heita, talið frá vinstri: Ragn hildur Karlsdóttir frá Laugar. bakka; Jónína Þórarinsdóttir frá Tálknafirði og Hjördfs Ingvars- dóttir frá Hafnarfirði. — Stúik. utnar stungu sér í laugina eftir strangan kappleik í handknatt- leik. íþróttir og hveravatn stællr Reykskælinga. [í M I N N, mlðvikudagurinn 10. apríl 1963 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.