Tíminn - 11.04.1963, Blaðsíða 7

Tíminn - 11.04.1963, Blaðsíða 7
Séð yfir meginhluta fundarsalsins á aðalfundi MBF að Flúðum í fyrradag. (Ljósm.: Jónas G.). mmM ÍÍI;* >•> Stefán Björnsson, forstjóri Mjóikur- samsölunnar f Reykjavík flytur skýrslu um reksturinn. sjóðs um Egil Thorarensen, hinn látna forystumann samvinnusam- ta‘kanna á Suðurlandi og stjórnar- formann búsins um langa hríð. í fyrra veitti aðalfundur búsins 100 þús. kr. stofnframlag til sjóðsins og kvað Sigurgrímur stjórnina leggja til, að sama upphæð yrði Jón Gíslason, fyrrverandi alþingis- maður f Norður-hjáleigu, einn full trúa á fundinum, flytur ræðu. veitt á þessu ári. Væri nú unnið að samningu reglugerðar fyrir sjóðinn og til ætlazt, að félags- mönnum yrði sent frumvarp að henni á komandi hausti, svo að þeim gæfist tækifæri til athugun- ar, en síðar yrði gengið frá henni | og endanlegri stofnun sjóðsins áí næsta aðalfundi. Var tillaga um | þetta framlag samþykkt einróma. Einnig var samþykkt einróma til-j laga stjórnarinnar um framlag tilj kynbóta- og tilraunabúsins í Laugj ardælum. Að síðustu fóru fram umræður um önnur mál og flutti Pétur Guðmundsson bóndi á Þórustöðum þá tvær tillögur, sem voru sam- þykktar einróma. Voru þær á þessa ! leið: „Aðalfundur Mjólkurbús Flóa- j manna haldinn að Flúðum 9. apríl1 j 1963 krefst þess, að bændur á fé- jlagiSsvæði MBF fái greitt fyrirj j mjólk sína sama verð og þeir bændur fá, sem flytja mjólk sína til Mjólkurstöðvarinnar í Reykja- : ví'k og mjólkurbúsins á Akranesi". j Hin tillagan var á þessa leið: „Aðalfundur Mjólkurbús Flóa- manna telur sjálfsagt og réttmætt, ; að flutningskostnaður á mjólk frá j j heimilum bænda til mjólkurbúanna I j í landinu verði tabnn sem kostn- j j aðarliður við dreifingu og vinnslu! j mjólkur og bændum greitt fullt j grundvallarverð fyrir mjólkina i komna á bíúsapalla". Að síðustu þakkaði varaformað-j ur mjólkurbúsins, Sigurgrímur j ; Jónsson, fulltrúum og fundarmönn | um öðrum góða þátttöku í fund-! j inum og sleit fundi. Eins og fyrr segir var fundur- j þar húsrými nóg fyrir þetta fjöl inn haldinn í hinu stóra og glæsi- j menni og vel fyrir fundarmönn lega félagsheimili að Flúðum. Var i um séð. Konur sveitarinnar önn- Jón GuSbrandsson, dýralæknir, ræS- Ir um efnarannsóknastofu MBF. Konur I Hrunamannahreppi önnuSust miklar og rausnarlegar veitingar á aSalfundinum. Hér sjást þær, sem sáu um framlelSslu og matseld viS eitt langborSanna veizlubúiS. ! uðust miklar og góðar veitinga-r, j sem fram voru reiddar og allir j nutu í boði mjólkurbúsins að I venju. — A-K. ; ,Græna lyftan' á Selfossi Leikfélag Selfoss er að verða fimm ára. Að vísu er það ekki i hár aldur, en Selfoss sem þorp, i hefur heldur ekki af svo ýkja há- um aldri að státa. Með tilliti til þessa má teljast undra mikið þrek virki að hafa starfrækt leikhús áhugamanna i fimm ár. Við sem > fyrir utan stöndum, og njótum ! ávaxtanna, hugsum tíðast lítig út í það hvílíkt firna starf hér ! er unnið af^ tiltölulega fáum, og ; hversu mikla fórnfýsi og félags- | þroska þarf til slíks. Að þessu sinni er það „Græna lyftan“ eftir Avery Hopwood, sem varð fyrir valinu, er fagna skyldi fimm ára starfi og kveðja vetur. Með hlutverkin fóru: Billy og Laura — Ólafur Ólafsson og Elín Arnoldsdóttir. — Jack og Blanny — Axel Magnússon og Erla Jakobsdóttir. — Phillip — Sig. Símon Sigurðsson. — Tessie — Guðrún Erlingsdóttir. — Harri i gan og Pets — Halldór Magnússon i og Gunnar Grans. Þessi gamansami fimmhyrningur — í þrem þáttum — hefur fyrr j komið mér í gott skap, og það gerði hann svo vissulega einnig að þessu sinni. Leikendurnir stóðu sig prýðisvel og samvinnan var með ágætum. Þeir héldu gamninu ó- slitið til enda með hæfilegum und irtón af alvöru, eins og vera ber. Áhorfandinn getur hvílt sig þeg- ar hann hefur hlegið sig máttlaus an, en það getur leikarinn ekki, ef leikurinn á ekki að verða mis- lukkað grín. Hér er erfiði gaman leikarans og snilli. Þessa prófraun stóðust leikarar „Grænu lyftunn- ar“ allir saman með prýði. Það varð enginn þeirra undir lyftunni. — Eg þakka þeim öllum fyrir á- nægjulegt kvöld og óska þeim og leikhússtýrunni Áslaugu Þ. Símon ardóttur, til hamingju með árin þau fimm og það ágæta starf, sem unnið var til þess að gleðja. Marteinn. T f M I N N, fimmtudagurinn 11. apríl 1963 7

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.