Tíminn - 16.05.1963, Page 5
ÍÞRDTTiR
Nýliöar í
2. deild
Á ÞRIÐJUDAGS-kvöldið sigr-
aði Swindon Shrewsbury með
1:0 og tryggði sá sigur Swind-
on sæti í 2. deild næsta keppn-
istímabil og er það í fyrsta
s' ipti í sögu félagsins, sem
f ~S leikur í þeirri deild. Sig-
urvegari í 3. deild varð North-
ampton, sem einnig leikur í
fyrsta skipti í 2. deild næsta
keppnistímabil.
Saga Swindon hefur verið tals-
vert merkileg undanfarin ár. Fyrir
sex árum var félagið í neðsta
þrepi enskrar knattspyrnu — varð
að sækja um áframhaldandi setu
í 4. deild — og þá tók við liðinu
Bert Head sem framkvæmdastjóri.
Undir stjórn hans hefur all't gjör
breytzt. Liðið komst' fljótt úr 4.
deild og fram.kvæmdastjórinn j
lagði allt sitt traust á unga leik-
menn, sem hann uppgötvaði í
Swindon og nálægum héruðum.
Og þeir hafa ekki brugðizt traust-
inu. Swindon vann stöðugt á og
eftir því, sem árangur liðsins varð
betri, komu stóru fél'ögin til sög-
unnar og vildu kaupa efnilega leik
menn. En Head vildi ekki selja
þá, þótt hann tæki við félaginu
einnig í rúst fjárhagslega. Með
betra liði stórjókst aðsófcnin og
fjárhagsvandræðin eru að mestu
úr sögunni. Head var boðið 30
þúsund pund í Hunt, 25 þúsund í
Woodruff, 17.500 pund í Summer-
by, 10 þúsund í Jackson — sem er
efcíd svo lítið fyrir févana félag.
En framkvæmdastjórinn sagði nei
með þeim árangri, að félag hans
er nú fcomið í 2. derld. Allt eru
þett'a fcornungir leikmenn, sem
Framhald é 15. síðu.
XITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON
fslendingar eiga að varðveita
sitt Norðurlandasundmet
í GÆR hófst um öll Norð-
urlönd sjötta norræna sund-
keppnin. Keppt er um bikar,
sem konungur Sv.íþjóSar, Gust-
af VI. 4dolf, hefur gefið.
Forsen íslands, herra Ásgeiir
Ásgeirsson hefur, vegna þessar-
ar keppni í ár, samið eftirfar-
andi ávarp:
„Eins og áður livet ég alla
íslendinga, sem geta fleytt sér,
eindregið til að taka þátt i
hinni norrænu sundkeppnli,
sem hefst í dag og stendur fram
til 15. september, og alla þá,
sem liafa til þess aldur og
lieilsu, að æfa sig tímanlega og
duglega til þátttöku. Þag er
ekki mikið á sig lagt, að synda
tvö Iiundruð metra.
Vér íslendingar erum eitt af
fámennustu ríkjum lieiims, og
Ávarp forseta íslands í tilefni Norrænu sundkeppninnar
þó við njótum góðs nágrennis
og velvildar, þá er stundum um
það spurt, hvernig svo fámennt
r.íki fái staðizt. Til þess eru
fleiri ástæður en hægt er að
rekja í stuttu máli.
Við höfum varðveitt eigið
mál og sjálfstæða menningu. —
Það er cumdeilanlegt, að fs-
lendingar eru afmörkuð þjóð.
En ekki hefur öllum dugað það
til fullveldis. Saga, bókmenntir
og þingræði eru sterkar stoðir.
En manndómur kynslóðar líð-
andi stundar og framtíðarinn-
ar er meginstyrkur þjóðarinn-
ar. Það styrkir álit hverrar þjóð
ar, að þegnar hennar skari fram
úr, kunni nokkra fþrótt um-
frarn aðra mcnn, afli sér álits
og frama.
Hér skulu ekki raktir aðrir
þættir en sundmenniing þjóðar-
innar. Það vekur athygli, að hér
á norðurhjara, sem svo er
nefndur, búi þjóð í landi, sem
ber hi'ð kalda nafn: ísland, sem
ber af öðrum um almenna
sundkunnáttu og sundiðkanir.
Slíkt sltapar virðingu og vin-
sæhlir. Og þegar um keppni er
að ræða þá er það næstum
þegnskylda að láta það koma í
ljós, ag Íslendíingar séu í þann
veginn að verða alsynd þjóð.
Skilyrðin eru hér og betri en
ókunnugum er Ijóst: hinar heitu
laugar, sem náttúra Iandsins
lætur oss í té. Víða getur sund
ið verið árlöng íþrótt, ein sú
hollasta og öruggasta við vor
náttúruskilyrði. — Vér fslend-
ingar eigum að varðveita vort
Norðurlandasundmet og bæta
það, bæði með aukinni sókn og
vaxandi kunnáttu.
Keppnisreglurnar cru nú hag
stæðari. Sá, sem situr hcima,
getur átt sína sök á ósigri. —
íslcndingar hafa unnið norskan
bikar, og nú er kostur á að
Viinna sænskan bikar, og að
því skulum vér stefna að vinna
jafnmarga sigra og nemur tölu
Norðurlandaþjóðanna. Þó afrek
einstakliaga séu ágæt, þá eru
friðsamlegir sigrar, sem unnir
eru af þjéðinni allri, beztir“.
J
Markhæstir
á Englandi
Markhæstu leikmennirnir á Eng
landi eru nú þessir, og er þá mið
að við leikina s.l. laugardag.
1. deild:
Greaves (Tottenham) 37
Leyne (Sheff. Wed.) 28
Baker (Arsenal) 27
Vernon (Everton) 27
Hunt (Liverpool) 26
Law (Manch. Utd.) 26
Crawford (Ipswich) 25
Harley (Man. City) 25
Keywort'h (Leicester) 24
Leek (Birmingham) 22
Charnley (Blackpool) 22
Young (Everton) 22
Strong (Arsenal) 20
St. John (Liverpool) . 20
Jones (Tottenham) 20
2. deild:
Tambling (Ohelsea)
Allcock (Norwieh)
Peacock (Middlesbro)
Davies (Luton)
O’Brien (Southampton)
Storrie (Leeds)
Clough (Sunderland)
Viollet (Stoke)
Hooper (Cardiff
Hutchinson (Derby)
Mikið um að vera á sund-
stöðum Reyk javíkur I gær
ÞAÐ var mikið um að vera
á öllum sundstöðunum í;
Reykjavík í gærdag — og
kannski engin furða, þar sem
samnorræna sundkeppnin er
gengin í garð í sjötta skipti.
Það var vs og þys á öllum
stöðum og allir kepptust við
að synda 200 metrana, þó
voru unglingar í miklum
meiri hluta.
Um miðjan daginn í gær höfðu
flestir synt í Laugunum, eða rúm
lega 300 manns, en í Sundhöllinni
og Sundlaug Vesturbæjar höfðu
um 150 manns synt. Sá elzti, sem
kunnugt er um, að synti í gær var
Ólafur Blöndal. 74 ára gamall, og
synti hann snemma um morgun-
inn í Laugunum.
Eins og kunnugt er, er keppt
um bikar, sem Svíakonungur hef-
ur gefið tii keppninnar og ættu
möguleikarnir að vera miklir fyr-
ir íslendinga að sigra að þessu
sinni, en útreikningurinn til sig-
urs er miðaður við tvær síð'ustu
keppnir og er þá reiknað út með-
altal og aukningin lögð við það.
í siðustu keppni syntu um 38,000
íslendingar cg ætti að vera hægt
að auka þá tölu.
Ekki hafa borizt neinar fréttir
af þátttöku úti á landi, en fólk er
hvatt til að mæta á sundstaðina
sem fyrst og ljúka við 200 metr-
ana - bíða sem sé ekfci til morguns
með það, sem hægt er að gera í
dag.
Hér er Jens Hjaltested að synda 200
metrana í sundlaug Vesturbæjar. —
Ljósmynd TÍMINN, GE
Saunders (Portsmouth) 22
Bennett (Rotherham) 22
3. deild:
Hudson (Coventry) 30
Ward (Watford) 28
King (Colchester) 27
Bly (Coventry) 27
Clark (Bristol C.) 26
Bedford (Q.P.R.) 26
Rowley (Shrewsbury) 26
Hunt (Swindon) 26
McSeveney (Hull C.) 25
Ashworth (Northampton) 25
Large (Northampton) 25
í kvöld kl. 8,30 fer fram á Mela
vellinum í Reykjavífc bæjarkeppni
milli Reykjavíkur og Akraness.
Frá vali Reykjavíkurúrvalsins var
sagt í blaðinu í gær og munu eag-
in forföll vera í því, nema að Orm
ar Skeggjason getur ekki verið
með og kemur Ragnar Jóhannsson
úr Fram í hans stöðu, en Hans
Guðmundsson, Val, bætist í vara-
mannaliðið. Efcki er vitað hvernig
lið Sfcagamanna er skipað. —■
Búast má við spennandi leik, en
Akranesliðið kemur sterkara til
leiks en oft áður svo snemma á
vori — þrátt fyrir óvænt tap gegn
Keflavík.
Allir að synda 200 metrana. — Ljósmynd TÍMINN, GE
T I M I N N, fimmtudagurinn 16. maí 1963