Tíminn - 13.06.1963, Blaðsíða 15

Tíminn - 13.06.1963, Blaðsíða 15
RANNSÓKNARLÖGREGLAN Framhalí af 16. síðu. æða, meðan beðið er eftir lög- .reglustöðinni nýju. Aðalsteinn Guðlaugsson, skrifstofustj. em- bættisins, sagði í viðtali við blaðið í dag, að húsrýmið í Borgsrtúni mundi fullnægja þörfum eins og sakir standa. Umferðardómstóllinn, sem heldur nú til á lögreglustöðinni í Pósthússtræti, flytur einnig inn í Borgartún og skýrslu- safnið, sem nú er ^ejmit í Hcgningarhúsinu. Óskilamun um verður haldið eftir á Frí- kirkjuveginum næstu viku, og geta rnenn þá kannað safnið klukkan 14—18 daglega, en síðan verður haldið uppboð á leifunum. Fáar opinberar stofnanir hafa búið við slík húsþrengsli sem rannsóknarlögregl'an og sakadómaraemb. í bárujárns- hjallinum á Fríkinkjuvegi má reikna 16—17 herbergi og einn dómsal, en í Borgartúni er 41 herbergi og 2 dómsalir talið hæfilegt. HELGI BERGS Franlb si bls. 16. síðu. — Mér er efst í huga þakk- læti fyrir hinn öfluga stuðning til alls þess fjölda fólks, sem af mikilli óeigingirni hefur fórnað tíma og fyrirhöfn til þess >að gera sigur okbar mögu- legan. Oig auðvitað er maður ánægður með að hafa náð þessu tukmarki. — Þú hefur auðviteð þurft mikið að ferðast. — Já, þetta er stórt kjör- dæmi og ég hef heimsótt alla hreppa þess og í síðustu vik- unni voru níu sameiiginlegir framboðsfundir víðs vegar um kjördæmið. Á kjördag var ég svo í Vestmannaeyjum og fór um nóttina með báti til Þor- lákshafnar. — Og frúin? — Ég er auðvitað mjög á- nægð líka, bæði með árangur- inn oig að vera búin að fá Helga heim aftur. HUS M.R. F'ramhald af 16. síðu. ins hefur ekki verið fáanlegur til þess að selja það, en fyrir liggur eignarnámsheimild, og mun henni að líkindum verða beitt, þeg ar eignin hefur verið mietin í samræmi við lóðirnar, sem þegar hafa verið keyptar. Húsið, sem byrjað verður á mun liggja með gaflinn að Bókhlöðu- stígnum og verður á lóðunum nr. 9 og 11. Verður það tvær hæðir og kjalilari. Á neðri hæðinni verða þrjár skólastofur en á efri hæð-‘ inni fjórar stofur. í húsinu verða stofur fyrir ýmsar sérgreinar svo sem efna- og eðlisfræði, og auk þess stofur fyrir tungumál og sögu. í tungumálastofunum á að koma fyrir segulbandstækjum, þar sem nemendur lesa inn á bönd og geta síðan hlustað á lestur sinn og fengið aðstoð og leiðbeiningar við að bæta framburðinn. í sögustof- unum á að vera aðstaða til kvik- myndasýninga í sambandi við sögu kennsluna. Ekki hefur enn verið ákveðið, hver mun sjá um byggingafranu kvæmdirnar fyrir skólann. í fyrra hafði Jón Bergsveinsson húsa- smíðameistari tekið að sér að byggja smáhýsi þau, sem setja átti upp í Olíuportinu, og hefur hann lagt frani tilboð í bygginga- íramkvæmdir þær, sem framund- an eru. Verður tilboðið tekið fyr ir í Bygginganefnd skólans á morg un. Kristinn Ármannsson rektor skýrði blaðinu frá því í dag, að búast mætti við, að nálægt eitt þúsund nemendur yrði í skólan- um næsta ár, en í ár voru þeii á níunda hundrað. Vegna þessar- ar fjölgunar er augljóst, að skól- inn verður að hafa áfram á leigu húsið Þrúðvang við Laufásveg, sem er í sigu Framkvæmdabank ans, og skólinn tók á leigu síðast liðið haust, Ekki er enn vitað, hvenær byrj- að verður á byggingaframkvæmd um nýs Menntaskólahúss í Hamra hlíð, en þar var eitt sinn búið að úthluta skólanum lóð, og eitthvað byrjað á grunni að nýju skólahúsi. KYNÞÁTTAÓEIRÐIR Framhald af bls. 3. eftír að hann hafði verið við fyrir lestra í háskólanum, að sér finnd ist, að skólafélagarnir hefðu tek- ið honum eins og hverjum öðrum félaga og mætti skólastjórn Ala- bamaháskóla vera öðrum mennta- stofnunum til. fyrirmyndat. - Bæði republikanar og demókrat- ar hörmuðu í dag og fordæmdu dráp blökkumannaforingjans, Edg ar Evers, en ein rödd meðal stjórn máilamanna sfear sig þó úr þessum hóp. Það var rödd Allan Ellender, öldungadeildanþingmanns, sem hæddist að frumvarpi Kennedys um bætt réttindi blökkumanna og réðist á afstöðu Kennedys til kyn- þáttamálanna. Skömmu eftir að fréttir bárust aí morði Evers, gaf Kennedy, Bandaríkjaforseti út yfirlýsingu, þar sem hann lýsir harrni sínum vegna atburðarins og sagðist hann mundu gera allt, sem í hans valdi stæði til þess að hafa hendur í hári tilræðismannsins. HANS PETERSEN H.F. Sími 2-03-13 Bankastræti 4. Fundir í Akureyrardeilunni KH-Reykjavík, 12. júní. Þrjú vei'kalýðsfélög á Akureyri hafa boðað verkfall frá 16. þ.m., og verzlunar- og skrifstofufólk á Akureyri hefur boðað vinnustöðv un frá 20 þ.m., hafi ekki náðzt KJÖRBÚÐ Á HELLISSANDI NÝLEGA opnaði Kaupfélaig Hellissands kjörbúð i ný upp- byggðu húsi á Hellissandi. Fyrifr áiri keypti kaupfélagið gamalt verzlunarhús, Clausens verzlun, sem er miðsvæðis í þorp inu. Húsinu var siðan breytt eft- ir teikninigum og fyrinsögn Teikni stofu SÍS í nýtízkulegt verzlunar- hús. Húsið var að mestu leyti endur- byggt og inmréttuð kjönbúð, sem fullnægir öllum þeim kröfum, &em gerðar eru um slíkar verzlanir. Jafnhliða sölu á landbúnaðaraf- urðum mun kaupfélagið opna mjólkursölu í sama húsi, og hefur aflað sér til þess hinna fullkomn- ustu tækja. Einar Guðbjartsson, sem verið hefur kaupfélagsstjóri, siðasta ár- ið, er nú að láta af störfum, en við rekstri félagsins tekur Ásgeir Hjálmar Sigurðsson, sem undan farin ár hefur verið aðalbókari Kaupfélags Dýrfirðinga á Þing- eyri. HOFUNUM BJARGAÐ Framhald af bls. 3. trúinn í UNESCO-nefndinni, sem undirbýr björgun hofanna, sem lýsti yfir þessum fjárstuðningi Bandaríkjanna við þetta mikla og vandasama verk, sem mun hefjast innan tíðar. gamkvæmt tillögu, sem Svíar lógðu fram í undirbúningsnefndr inni, mun kostaður við björgun hofanna áætlaður 36 milljónir dollara. Arabíska sambandslýðveldið hef ur fallizt á tillögur Svíanna í öll- um aðalatriðum, og verður björg- un hofanna framkvæmd sam- kvæmt þeirri áætlun. Önnur til- laga kom fram frá Frökkum, en þótti ekki eins hagkvæm. Sam- kvæmt til.ögum sænsku nefndar- mannanna, mun björguninni verða hagað þannig, að hofin verða rifin I sundur í viðráðanleg stykki, sem síða-n eru flutt á annan stað í heilu lagi, en hofin síðan reist á nýjan leik. Tal'smenn 34 landa hjá UN- ECO hafa lýst því yfir fyrir hönd þjóða sinna, að þær muni fúsar til að leggja að mörkum til þessa verks upphæð, sem svar- ar til 7.7 milljóna dollara. Ara'bíska sambandslýóveldið mun leggja til 11,5 milljónir doll- ara, og hefur stjórn þess lýst því yfir, að verksamningar verði þeg- ar í stað undirritaðir, þegar upp- hæðin er komin upp í 20,5 millj- ónir dollara. ÖXLAR með fólks- og vörubílahjól- um. Vagnbeizli og beizlis- grindur fyrir heyvagna og kerrur. Notaðar felgut og ísoðin bíladekk til sölu hjá Kristjáni Júlíussyni. Vest- urgötu 22, Reykjavík — sími 22724. Sendi i póst kröfu.: samkomulag um kaup og kjör fyrir þann tíma. Ekki varð samkomulag um hérað'ssáttase-mjara á Akur- eyri, og eru því fulltrúar deilu- aðila komnir til Reykjgvíkur til viðræðna við sáttasemjara ríkisins, Torfa Hjartarson. Aðalkröfur fé laganna eru: 20% kauphækkun og 44 stunda vinnuvika. Fundur deilu aðila með sáttasemjara hófst kl. 4 í dag, og stóð enn yfir síð'ast er fréttist í kvöld. Braut stöðvunar- skyfdu BÓ-Reykjavík, 12 júní. UM KLUKKAN eitt í nótt varð liarkalegur árekstur á mótum Laufásvegar og Njai'ðargötu. — Moskovitz-bíll var þar á leið norð' ur Laufásveginn, en VW-bíll á leið austur Njarðargötu var, að því cr virðist, ekið viðstöð'ulaust 'inn á gatnamóffan, án þess að sinna stöðvunarskyldu. Þar lenti Moskovitzbíllinn á hægri hli® hins með þeim afleið'ingum, að öku- maður Moskovitz-bílsins féll út og sat eftir á götunni, en bæði far- artækin runnu stjórnlaus á ská í norðausturhornið á gatnamótufi- um og lentu þar á steinvegg. Fólk úr bílum þessum var flutt á slysavarðstofuna, og fullorðin kona, Ólöf Kristjánsdótth’, Höfða borg 3, sem var í VW-bílnum, ligg ur nú á Landakotsspítala. LIK JONS FDNDIÐ LÍKIÐ, sem fannst úti fyrir Sels- vör var af Jóni Björnssyni, Blöndu hlíð 12, sem livarf, ásamt Birni Braga aðfaranótt 15. fyrra mánað- ar. Þar með er staðfestur grunur um afdrif þeirra félaga, en haldið var, að þeir hefðu farið út á trilHiu. JÖFNUÐUR MEÐ 5 Framhald af bls. 3. Sannleikurinn er hins vegar sá, a3 5 upphótarsæti hefði þurft til viðbótar eða samtals 16 uppbótarsæti, en ekki 28 cins og Mbl. hafði haldið fram. — Mbl. leiðréttir þetta reyndar í dag, en þó þannig, að það' gefur í skyn, að á þriðjudag liafi það ekki sagt, að 17 upp- bótarsæti hafi vantað til vi'ff- fcótar við þau 11, sem úthlutað var, heldur, að það hafl sagt, að uppbótarsætin hafi þurft að' vera samtals 17. Reynir Mbl. þannig að draga úr lyginni. Ilitt stendur óhagg- að, sem stóð í Tímanuni í dag, að samkvæmt þeirri reglu, sem höfð var til grundvallar af nú- verandi stjórnarflokkum og kommum, er kjördæmasktpun- inni var breytt, þá hefur Frani- sóknarflokkurinn lang mest at- kvæð’amagn á bak vlð hvern kjörinn mann í Reykjavík og mun meira atkvæðamagn en Siálfistæðisflokkurmn á bak við kiöma þingmcnn utan Rcykja- víkur. NÝ SÍLDARPLÖN Framhald af 1. síðu. er ek.ki tilbúin til þess að taka á móti sild í bræðslu. Til síldarverksmiðjunnar voru keyptir tveir hvalbátar frá Ilval- stöðinni í Hvalfirði, og nú er unn ið að því að koma gufukötlum úr bátunum fyrir í verksmiðjuhni, þar sem þeir verða notaðir. Þrjár nýjar söltunarstöðvar eru aS rísa upp á Ssyðisfirði. Borigir hf. reka eina stöðina, önnur stöð- in heitir Þór hf., og er hún rekin af Vilhjálmi Jónssyni og fleirum, og þriðja stöðin heitir Neptúnus hf. rekin af Karvel Ögmundssyni og fleirum. Reistur hefur verið í- búðarbraggi "fyrir starfsfólk Nept- únsar, og rúmar hann milli 70 og 80 manns, og er þar bæði svefn rými og matsalur. Fyrsti norski síldarbáturinn kom inn til Seyðisfjarðar í dag. Var hann með slasaðan mann, sem hafði farið með höndina í spilið og misst fingurna. Báturinn hafði ekki fengið síld, en fjórir aðrir síldai'bátar frá Noregi, voru komnir á miðin og fjölmargir aðrir á leiðihni. Tveir bátar fara á síldveiðar frá eyðisfirði að þe-ssu sinni, Gullver, sem lagði af stað í -gærkvöldi og Dalaröstin, sem fer út í dag. FRANSKI TOGARINN Framhald af 16 siön. hættu statt. — í frét’taskeyti frá NTB segir, að froskmönnum og vélsmiðum brezka skipsins hafi tekizt að þétta togarann á tveim- ur klukkustundum svo vel, að hann geti siglt til Frakklands án viðkomu í íslenzkri höfn. Talið er aff áhöfn togarans sé 70—80 manns. EVRÓPURÁÐSFUNDUR FramhalJ aí 16. síðu. Fram að |>essu hefur ekki verið haldinn á Islandi fundur á veg- um Evrópuráðsins af þessu tagi. Birgir Thoi'lacius ráðuneytis- stjóri, sat fund Menningarmála- hefndr Evrópuráðsins af íslands hálfu. Á fundinum var fjallað um ýmis mál, m.. voru ræddar skýrsi- ur um störf þeirra þriggja fasta- riefnda, sem starfa á vegum ráðs- ins. Nefndir þessar fjalla um æðri menntun og vísindastörf, almenna fræðslu og tæknifræðslu og um fræðslustarf utan skóla. (Frá upplýsingadeild ráðsins). EINAR ÁGÚSTSSON Framhald af 16. síðu. að vinna í henni og auðvitaö bezt. þegar endirinn var svona góður. — Og frúin? — Ég er auðviitað ósköp ánægð með það hvort tveggja, að Kosningabaráttan skull vera búin, og það, að endirinn varð svona góður. Það fer aldrei hjá því, að kosningabarátta komi eitthvað niður á heimiilis lífinu, og eins og ég sagði áðan þá er ég ósköp fegin því, að þessu skuli Iokið. Öllum þeim, sem vottuöu samúS sína og hlýju við fráfall og jarð- arför Olgu Þórhallsdóttur frá Höfn í Hornafirði og heiðruðu minningu hennar, þökkum við lnnilega. Vandamenn. Útför föður míns, Þorláks Marteir.ssonar, fyrrum bonda á Veigastöðum, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 14. júní kl. 10,30 árdegis. Athöfninni verður útvarpað. Kristín Þorláksdóttir. TIMINN, fimmtudaginn 13. júní 1963 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.