Tíminn - 19.09.1963, Blaðsíða 5
RITSTJORI: HALLUR SIMONARSON
Myndin hér til hægri var tekin s.l. laugardag. ÞaS eru glaSir
Víkingspiltar, sem eru aS veita viStöku íslandsbikar, eftir
aS hafa sigraS Akranes í Orsiitaleik. — Nú getur svo fariS,
aS þessir sömu piltar verði aS leika nýjan úrslitaieik, en Akur.
nesingar hafa kært leikinn.
• ÓVENJULEGUR KÆRUFARALDUR
• FÉLÖGIN KÆRA LEIKI Á VÍXL
• LÍNUVERÐIR í BRENNIPUNKTI
• KNATTSPYRNUFORUSTA í VANDA
Yerða öBB knattspyrnumót yngri
f lokkanna í sumar dæmd ógild?
Allar líkur eru fyrir, a3 stórfellt vandræðamál sé í upp-
siglingu varðandi nær öll knaffspyrnumót, sem háð hafa
verið í yngri aldursflokkunum á þessu sumri. Hér er um að
ræða svonefnt „kærubrjálæði" sem gripið hefur um sig meðal
ýmissa forustumanna knattspyrnufélaganna og er keðjuverk-
andi og siglir sannarlega hraðbyri í ógæfuátt. — Kveður nú
svo rammt að þessum kærufaraldri, að svo getur jafnvel far-
ið, að öll knattspyrnumót í yngri flokkunum verði dæmd
égifd. Með þessu væri tugir ungra pilta sviptir ánægju af
unnum sigrum — af íslandsmeistaratiflum og öðrutn titlum,
sem þeir hafa unnið í heiðarlegum leik og drengilegri bar-
áttu. Með þessu biði einnig knattspyrnuforustan stórkostleg-
an álitshnekki, svo og knattspyrnuíþróttin öll.
í sumar hafa borizt allmiargar
kærur til Knattspyrnudómstóls
Knattspyrnuráðs Reykjavíkur varð
andi leiki í yngri aldursflokkum
eins og skýrt hefur verið frá áð-
ur í blaðinu, og er kært yfir vönt-
un á Iínuvörðum, en samkvæmt
Iagiabókstaf, ber að skipa línuverði
Úrslit í 1. deild knattspyrnunn-
ar á mánudag urðu þessi:
Aston Villa - — Tottenham 2—1
Blackburn — Chelsea 2—2
Blackpool — Manch. Utd. 1—0
Liverpool — Wolves 6—0
Á þriðjudag vann Nottm. For-
est West Ham. 3—1. — Manch.
Utd.- er efst í deildinni me5 12
stig; Nottm. Forest hefur 11, en
Tottenham 10 og leikið einum
leik minna.
í gærkvöldi urðu úrslit þessi
í 1. deildinni ensku:
Bolton — Ipswich 6—0
Fulham — Burnley 2—1
Stoke — Sheff. U. 0—2
WBA — Birmingham 3—1
í 2. deildinni urðu úrslit þessi:
Plymouth — Preston 0—2
Portsmouth — Leeds 1—1
Southamton — Newcastle 2—0
Manch. City — Swindon 0—0
Sunderland — Scunthorpe 1—0
í Evrópubikarkeppninni í knatt
spyrnu í gær léku Everton og
Inter, Milan. Leikurinn var háður
á Goodison Park, leikvelIi Ever-
ton í Liverpool. Áhorfendur voru
yfir 70 þúsund og greiddu 50 þús.
pund í aðgangseyri. Úrslit urðu
þau, að jafntefli varð 0—0.
á alla leiki. Þessum lagabókstaf,
hefur ekki verið hlýtt frá upphafi
og Iínuverðir hafa ekki verið á
leikjum í yngri flokkum, enda full
komlega Ijóst, að ekki er liægt
að halda framkvæmd móta, ef
fylgja ætti þessu.
Mikil ólga er út af þessurn kær-
um og ein þeú-ra orsakar það, að
í yngsta aldursflokknum, 5. flokki,
þarf að leilca úrslitaleik í íslands-
móti að nýju. Þar vann KR sigur
og var íormaður KSÍ búinn að af-
lienda sigurvegurum íslandsbikar-
inn. Það eru því ekki broshýrir
KR-drengir þesaa dagana, sem
þurfa kannski að sjá eftir bikar,
sem var þeirra eign þetta árið.
En eftírþankarnir eru samt geig
vænlegastir. Fari þessi úrslitaleik-
ur fi'am að nýju, er vel hugsanlegt,
að KR kæri alla leiki, sem félagið
hefur tapað í yngri flokkunum á
þessu sumri — og þá vegna vönt-
unar á línuvörðum — en sam-
kvæmt knattspyrnulögunum er
hægt að túlka kærufrest sem 6
mánuði. — Þetta myndi hiafa í
tör með sér, að flest mótin myndu
verða ógild. Hitt er og, að fleiri
felög myndu grípa til svipaðra ráð
r.tafana og þarf auðvitað ekki að
fara um það mörgum orðum, hve
óskapiegar afleiðingar það hefði
í för með sér — og hve mikill
álitshnekkir'það væri fyrir knatt-
spyrnuíþióltina í lieild.
Sem hetur fer, hefur ekkert
verið gerr i þessa áttina enn þá,
þ. e að le'ta að leikjum langt
aftur i rímann til að kæra, en því
miður er þetta nær en margur
hyggur
• FORSAGAN
Forsaga þessa ,,kærubrjálæðis“
er ekki margra vikna gömul, en
má rekja aftur til leiks milli Knatt
spyrnufélagsins Fram og fþrótta-
bandalags Keflavikur í 2. aldurs-
flokki, sem fram fór í síðasta mán-
uði. Leiaurmn var í landsmóti og
sigraði Fram með 1:0.
Leikinn kærðu Keflvíkingar
vegna vöntunar á línuvörðum og
kröfðust þess, að leikurinn yrði
leikinn að nýju. Þess má geta í
þessti'sambandi, að kæra svipaðs
eðlis' - óg þessi hafði þá ekki séð
dagsins Ijór í meira en 6 ár, en
árið 1957 kærði íþróttabandalag
Akraness ieik við KR í landsmóti
2. flokks vegna sama atriðis, en
áður höfðu kærur vegna vöntunar
á línuvörðum ekki verið til. (Hér
má skjóra inn í, að leikur Fram
og Keflavíkur var leikinn aftur á
laugardaginn og vann Keflavík
þá með 1:0 og lendir fyrir bragðið
i úrslitum, sem Fram hefði ann-
ars gert, hefði kæran ekki komið
til).
Sviar Ií.ialtspyrnufélagsins Fram'
við þessari kæru, var að senda
tvær kærur — önnur vegna vönt-
unar á iínuvörðum í 5. aldursflokki
í leik gegn Víkingi — og hln vegna
próflausra línuvarða í leik gegn
Hafnfirðingum í bikarkeppninni.
Þessar kærur voru sendar með
það eitt íyrir augum, að þær yrðu
teknar fyrir á sama tíma og Kefla-
vfkurkæran. og mönnurn mætti
verða ljóst hvílík fásinna það væri
að slíkar kærur næðu fram að
ganga — og hve margar myndu
iylgja í kjölfarið, þótt þær hefðu
við lagaíeg rök að styðjast.
Knattspyrnudómstóll KRR
dæmdi í þessum málum á þann veg
að allir leikirnir skyldu leiknir að
nýju. í 5. flokki léku Fram og
Víkingur aftur og í það skiptið
sigraði Fram, 4:0. Varð það til
þess, að Fram telst réttmætur sig-
urvegari í öðrum riðlinum í þess-
tim aldursflokki og á að mæta
KR í úrslitum. Hins vegar höfðu
KR og Víkingur áður en kæran
var tekin íyrir leikið úrslitaleik
og vann KR, leikinn og var íslands-
bikarinn afhentur KR-piltunum,
eins og áður segir.
• Fylgikvillar — Akranes
kærir úrslifaleik í 4. fl.
Þegar þessi mál höfðu verið af-
greidd, komu fylgikvillamir í ljós.
Forráðamenn knattspyrnufélag-
anna hafa óspart látið í það skína,
að þeir myndu kæra leiki frá því
í sumar. Og kærur eru þegar byrj-
aðar að fcerast. Nú hafa Akurnes-
Framhald ó 15. síðu.
Töpuiu einnig fyrír Svíum
Alf-Reykjavik, 18. sept.
íslenzka unglingalandsliðið tapaði
fyrir Svíum í Evrópukeppni unglinga
í kvöld. Svíar höfðu talsverða yfir-
burði og unnu með 68 : 25. Blaðið
atti símtal við Þorstein Hallgrímsson
í Paris í kvöld, og sagði hann að
íslenzka liðið hefði átt mjög slæman
dag. Margir leikmannanna væru
lítilsháttar meiddir, en hefðu þó leik
ið með. — Svíamir byrjuðu afar vel,
skoruðu 11 : 0. íslenzka liðið minnk
aði bilið í 18 :11, en síðan tóku Sví-
ar góðan sprett og bættu enn 11
stigum við fyrir hálfleik, og í hálf-
leik var staðan 29 : 11.
í síðari hálfleiknum voru íslenzku
leikmennirnir taugaóstyrkir og að
því er virtist þreyttir. Lokatölur
urðu eins og áður segir 68 : 25, Sví-
um í hag. Er við spurðum Þorstein
hver hefði verið beztur i íslenzka
liðinu, svaraði hann aðeins, enginn,
allir voru lélegir.
Frakkland lék við Luxemborg í
gærkvöld og vann með 80 : 25. í
fyrrakvöld vann England Luxemborg
með 54: 49. — íslenzka liðið á frí
annað kvöld, en mætir Englending-
um á föstudaginn.
Unglingalandsliðið í körfuknattleik hefur nú leikið þrjá leikl í Evrópu-
keppnínnl. — Unnlð elnn, en tapað tveimur, síðast í gærkvöldi fyrlr
Svíum. — Myndin að ofan var tekin á síðustu æfingu liðslns fyrir utan-
förina. Bogi Þorsteinsson ræðír við piitana.
T í M I N N , fimmtudaginn 19. september 1963
5