Tíminn - 29.10.1963, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.10.1963, Blaðsíða 5
eiTSTJÓQ! HALLUR SIMONARSON i Ólafur FriSriksson skorar hér fyrir Víking í leiknum gegn Þrófti, Axel fylgist me8. JafntefH og sigur hjá ÞýzkaLförum Alf-Reykjavík, 28. október. KR-ingar, nýkomnir heim frá Vestur-Þýzkalandi úr erfiðri keppnisför, tóku fyrstu sporin í Reykjavíkurmeistaramótinu í hand knattleik á laugardagskvöldið og mættu þá Víkingum. Leiknum ÚRSLIT í leikjum í meistara- flokki karla á Reykjavíkurmót- inu í handknattleik um síð- ustu helgi: KR—VÍKINGUR 11:11 VALUR—ÍR 8:9 FRAM—ÞRÓTTUR 18:9 FRAM—ÁRMANN 18:9 ÞRÓTTUR—VÍKINGUR 8:7 KR—ÍR 11:10 STAÐAN ER ÞÁ ÞESSI: Fram 3 3 0 0 48:25 6 ÍR 3 2 ft ' «o*20 4 KR 2 1 1 0 22:21 3 Valur 2 10 1 25:17 2 Þróttur 3 1 0 2 25:42 2 Víkingur 3 0 1 2 25:31 1 Ármann 2 0 0 2 10:24 0 Fyrir utan leiki í mcistarafl. karla, fóru þessir leikir fram um helgina: f 3. fl. karla: ÍR—KR 7:6. Víkingur—ÍR 6:5. Þróttur_KR 9:7. f 2. fl. karla: Fram—KR 8:4. j ÍR—Ármann 11:5. Valur—Vík- [ ingur 9:7. f 1. flokki karla: Fram—ÍR S 12:6. Vík. (a)—Vík (b) 8:6. í 2. fl. kvenna: Fram—Vík- ingur 5:2. Ármann—Valur 6:4. lyktaði með jafntefli 11:11, og voru KR-ingar þó nær sigri. Heinz Steinman átti upplagt tækifæri á síðustu sekúndunum til að skora tólfta mark KR, fékk knöttinn sendan inn á línu, þar sem hann stóð einn og óvaldaður, en steig klaufalega á línuna — og þar með var draumurinn búinn. Á sunnudagskvöld mættu KR- ingar svo ÍR og sigruðu með einu marki, 11:10. Það var hinn snjalli leikmaður Karl Jóhannsson, sem tryggði KR sigurinn með þrumu- skoti rétt fyrir leikslok. Það bar mikið á ónákvæmni í leik KR og ÍR, slæm grip og feil- sendingar. Að mörgu leyti lók KR jákvæðar og KR-ingar kunnu vel að nýta allan völlinn. Það hjálp- aði KR, að Jón í ÍR-markinu varði FramhalO á 13 sí3u. !8H 1§L orou sigur ÍR RÉTT marði sigur yfir hinu unga Valsliði á laugardagskvöld og vann með einu marki, 9:8. Valur hafði mikla möguleika til að ná jafntefli í leiknum, en hamingju- dísirnar léku ekki beint við stór- skyttu Vals, Berg Guðnason, síð- ustu mínúturnar, en á þeim glataði bann tveimur upplögðum tækifær- um, sem hefðu fært Val a. m. k. annað stigið. f fyrra skiptið brenndi Bergu- af vítakasti og al- veg undir lokin. skaut liann fram hjá í dauðafæri. Hvað um það. þótt svona illa t.ækist hiá Val í þetta skipti, sýndi liðið hvað í því býr og væntanlega verður vegur þess stór í II deilda- keopninni næsta ár. ÍR hafði yfir í hálfleik 8:5 og það er því athyglisvert. að ÍR ingar skora aðeins eitt mark i sið cramhaici á 13. siðu I Þróttur sigraði hægfara Víkinga Þórður Asgeirsson tryggði Þrótti stgur á síðustu sekúndu leiksins með vel framkvæmdu vítakasti Alf-Reykjavík, 28. október. AF SEX lcikjum í meistara- flokki karla í Reykjavíkurmótinu í handknattleik um helgina, komu úrslitin í leik Þróttar og Víkings á sunnudagskvöldið mest á óvart, en gersamlega óæfðum Þrótturum tókst að bera sigurorð af þunglama legu Víkingsliði, sem minnti oft á hægfara skip. Lokatölur urðu 8:7. Reyndar var leikurinn jafn frá fyrstu mínútu til hinnar síðustu og þegar u. þ. b. 10 sekúndur voru til leiksloka, var staðan jöfn 7:7. Síð- ustu sekúndurnar voru mjög af- drifaríkar fyrir Víkinga. Þeir höfðu jafntefli alla vega í vasan- um, þegar þeir á þessum síðustu sekúndum léku með knöttinn fyr- ir utan vörn Þróttar. En ótímabært skot var reynt og Guðmundur, markvörður Þróttar, sendi knött- inn eldsnöggt fram til Axels Ax- elssonar, sem óð upp óvaldaður. Brynjar í Víkingsmarkinu hindr- aði Axel gróflega og dómarinn, Stefán Gunnarsson, dæmdi óhjá- kvæmilega vítakast. Það mátti ekki á tæpara standa, því um leið gaf tímavörðurinn merki um að leiktíma væri lokið. En úrslitin voru ekki ráðin, það átti eftir að framkvæma hið þýð- ingarmikla vítakast. Og vítakasts- sérfræðingi Þróttar, Þórði Ásgeirs syni, brást ekki bogalistin. Hann skoraði örugglega framhjá Brynj- ari og eins marks sigur Þróttar, 8:7, var innsiglaður. Það má deila um, hvort sigur Þróttar var verðskuldaður, en Þróttur átti fyllilega inni jafntefli. í þessum leik var Víkingsliðið mjög þunglamalegt og það er al- veg greinilegt, að liðið er óravegu frá því, sem það var í fyrra. Það bætir ekki úr skák, að Brynjar, markvörður hefur átt slæma daga, og líklega getur hann ekki fyllt skarð Helga Guðmundssonar. í leiknum í fyrrakvöld, hafði Víkingur forustu nær allan tímann, en munurinn var aldrei meira en eitt til tvö mörk og í hálfleik hafði Víkingur yfir, 5:4. Víkingur komst í 7:5 og sennilega hefði sigur verið tryggður, hefði Pétri Bjarnasyni tekizt að skora úr vítakasti, sem Víkingur fékk, en skotið geigaði. Eftirleikurinn var Þróttar. Jón Sigurjónsson skoraði sjötta mark Þróttar og Þórður það sjöunda. Vítakastið réði svo úr- slitum. Lið Þróttar er æfingarlaust, en í þessum leik barðist það. Þórður, Axel og Haukur voru beztu menn liðsins, að ógleymdum Guðmundi Gústavssyni í markinu. Mörkin skoruðu, Þórður 4 (3 víti), Axel 2, og Haukur og Jón 1 hvor. Mörk Víkings skoruðu Rósmund ur 2, Pétur, Þórarinn, Sigurður Ó., Ólafur og Sigurður H. 1 hver. FRAM HEFUR TEKIÐ FOR- USTU i RViKURMðTINU Alf-Reykjavík, 28. október. FRAM sigldi hægt og örugg- lega í efsta sæti á Reykjavík- urmótinu í handknattleik um helgina, hvorki Þróttur né Ár- mann reyndust torfærir þrösk Jón FriSsteinsson, hlnn snaggaralegi línumaður Fram, er hér kominn inn á línu og skorar. uldar. Fram vann Þrótt á laugardagskvöld með 18:9 og Ármann með sömu tölu á sunnudagskvöld. A3 vinna með níu marka mun í 2x15 mínútna leik, sýnir mikla yfir- burði og það er deginum Ijós- ara, að Framliðið er að kom- ast í æfingu. Það var beðið með talsverðri eftirvæntingu eftir leik Fram og Ármanns á sunnudagskvöld, þrátt fyrir hina háðulegu útreið, sem Ármann fékk hjá ÍR, helgina áð- ur. En aftur brugðust Ármenn- ingar öllum vonum. í tvær mín- útur veittu þeir Fram verðuga mótspyrnu og skoruðu tvö fyrstu mörkin í leiknum, fyrst Árni og síðan Lúðvík. En svo fór Fram- vélin í gang — og það svo um munaði. Áður en langt um leið, var staðan 5:2 fyrir Fram og í hálfleik var 7:3. Yfirburðir Fram héldu áfram í síðari hálfleiknum. Um miðjan hálfleikinn höfðu þeir Ingólfur, Karl Ben. og Hilmar bætt stöðuna stórkostlega og staðan var 14:4! Ármannsliðið var þá gjörsamlega niðurbrotið — og vörnin stóð ráða- laus gagnvart hinu taktiska línu- spili Fram og stórskotum Ingólfs. Og enn bætti Fram stöðuna, Ágúst Þór með tveimur mörkum, þá i Tómas og Karl, 18:6, tólf marka munur. Síðustu mínúturnar var kæruleysi á dagskrá hjá Fram og Hörður og Hans löguðu stöðuna fyrir Ármann í 18:9. Mörkin fyrir Fram í þessum leik skoruðu Karl Ben. og Ágúst 4 hvor, Ingólfur og Sigurður E. 3 hvor, Hilmar, og Jón F. og Tóm- as 1 hvorv Fyrir Ármann skoruðu Hörður 5, Árni 2, og Lúðvík og Hans 1 hvor. Dómari í leiknum var Daníel Benjamínsson og dæmdi nokkuð vel. Enska knatt spyrnan Úrslit í ensku knattspyrnunni á laugardag: 1. deild: Arsenal—Nottm. Forest 4—2 Birmingham—Wolves 2—2 Bolton—Blackpool 1—1 Burnley—Sheff. Utd. 1—2 Everton—Tottenham 1—0 Fulham—Chelsea 0—1 Ipswich—Liverpool 1—2 Leicester—Blackburn 4—3 Manch.Utd.—West Ham 0—1 Sheff. Wed.—Aston Villa 1—0 W.B.A.—Stoke City 2—3 Sheff. Utd. er nú efst með Framhald é 13. sIBu. T f M I N N, þriðjudaginn 29. október 1963. 5

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.