Tíminn - 29.10.1963, Blaðsíða 13
STÆRSTA ÚRVAL HÚSGAGNA
í SKEIFUNNI VELJIÐ
ÞÉR GLÆSILEG OG
STÍLHREIN HÚSGÖGN:
BA6ST0FUMÚS6Ö6N ' 7
SVEFNHERBER6ISHUS6Ö6N
B0RÐST0FUHUS6Ö6N
í HerraherbergitS, — í Dyngju hús-
mótSurinnar — í Skálann — I Telpna-
herbergitJ — I DrengjaherbergitJ —
og BarnaherbergitS.
Flestar tegundir áklætSis, atJ velja úr
KJÖRGARÐI
SKEIFA N
S\m 169T5
JAFNTEFLI
Framhald af 5 síðu.
mjög illa, og það voru hálfgerS
„draumamörk“, sem Reynir Ólafs
son skoraði með lágskotum. í fyrri
hálfleik skoraði Karl mest fyrir
KR, en Gunnlaugur fyrir ÍR. —
í hálfleik var 5 : 5. í síðari hálf-
leik komst KR yfir, mest tvö
mörk, 8:6. En ÍR jafnaði og
komst yfir 9 : 8. Reynir jafnaði —
og bætti svo 10. markinu við. Gylfi
jafnaði fyrir ÍR og það var tals-
verð spenna síðustu mínútuna.
Rétt áður en dómarinn flautaði af,
skoraði Karl Jóhannsson sigur-
markið fyrir KR.
E.t.v. hefði jafntefli verið sann-
gjörn úrslit í þessum leik — en
smáheppni var á bandi KR-inga
að þessu sinni og því fór sem fór.
KR-ingar nýttu völlinn vel í þess-
um leik, en sá hængur var á, að
grip ';oru flaustursleg. Það brá
oft fynr línuspili, þrátt fyrir, að
aðallínumaður liðsins, Sigurður
Óskarsson, lék ekki með. Heppni
KR í þessum leik var hve mörg
af lágskotum Reynis Ólafssonar
komust í gegn. Sæmilegur mark-
vörður hefði varið þau flest. Ann
ars var Karl Jóhannsson bezti mað
ur KR í þessurn leik og átti hann
einn öðrum fremur mestan þátt
í sigrinum. — Mörk KR skoruðu
Reynir 5, Karl 4, og Guðlaugur 2.
í ÍR-liðið vantaði Hermann
Samúelsson og hafði það sitt að
segja. Þeir héldu uppi liðinu bræð
urnir Gunnlaugur og Gylfi og skor
uðu flest mörkin. Það hlýtur að
vera slæmt fyrir ÍR-liðið að hafa
markvörð, sem getur brugðizt svo
gersamlega, eins og Jón i mark-
inu gerði í þetta skipti. — Mörk
ÍR skoruðu Gunnlaugur 5, Gylfi 4
og Gunnar 1.
Dómari í þessum leik var Björn
Kristjánsson, en Sveinn Kristjáns
son í leik KR og Víkings.
VEXTIR
(Framhald af 2 síðu)
fiskiðnaði á vegum S.Í.S., haldinn
23.—24. október 1963, beinir ein-
dregnum tilmælum til Alþingis,
að í framhaldi af verkstjóranám-
skeiðum þeim, sem þegar hefur
verið komið á fót, verði stofnað-
ur sérstakur verkstjóraskóli, sem
m. a. veiti sérfræðslu í hinum ein-
stöku atvinnugreinum, svo sem
fiskiðnaði.
víðavangur
Rá$ undir rifi hverfu
Það verður að trúa því, sem
leikstjórinn segir, að gengis-
fellingarleiknum sé lokið um
sinn. Að tjaldið sé fallið. -En
afleiðingar þess, sem skeð hef-
ur, segja til sín. Það leynir sér
a. m. k. ekki á stjórnarblöð-
unum, sem liingað berast að
sunnan, að þeim sýnist eitthvað
vera að, og það meira en lítið.
Forsætisráðherra, sem enn sit-
ur á sínum stól, þótt annar
hafi tekið við formennskunni
í flokki hans, er drjúgur og
dularf’ullur í viðtali við dag-
blaðið Vísi nýlega. Hann gefur
í skyn, að hann liafi ráð undir
rifi hverju. Það hafði hann líka
á gamlárskvöid fyrir fjórum
árum. Annar ráðherra talar um
nýjar ráðstafanir í „fjármál-
um og launamálum“. Bjarni
Benediktsson sagði á Varðar-
fundinum, að nú vrði að „stinga
við fótum“ ng að „við gerum
okkur Ijósa þá miklu skýldu,
sem á okkar herðum hvílir".
Einhverjir kunna nú kannski
að vera vantrúaðir á að svo sé
eftir játningu hahs sjálfs um
„!eikinn“. En þeir, sem meiri-
hlutann fengu í vor, htjóta að
draga týaldið upp á ný.“
Dagur.
VETRARÁÆTLUN
Framhald af 8. síðu.
á þriðjudögum, miðvikudögum,
fimmtudögum, föstudögum og
laugardögum.
Til Vestmannaeyja verða ferðir
alla daga.
Til ísafjarðar verða ferðir mánu-
daga, þriðjudaga, miðvikudaga,
föstudaga og laugardaga.
Til Egilsstaða verður flogið
mánudaga, þriðjudaga, fimmtu-
daga og láugaixiaga.
Til Hornafjarðar föstudaga.
Til Sauðárkróks þriðjudaga og
föstudaga.
Til Húsavíkur miðvikudaga og
laugardaga.
Til Þórshafnar og Kópaskers
verður flogið fimmtudaga og til
Fagurhólsmýrar föstudaga.
í öllum flugferðum til og frá
Kópaskeri, Þórshöfn, og Húsavík'
er komið við á Akureyri og enn
fremur er þriðjudagsferð til og
frá Egilsstöðum um Akureyri.
MILLILANDAFLUG.
Samkvæmt vetraráætlun milli-
landaflugs Flugfélags íslands, sem'
hefst sem fyrr segir um næstu ■
mánaðamót, verða fjórar ferðir í
viku til Bretlands og fjórar ferðir
til Kaupmannahafnar.
Til Noregs verður flogið einu
sinni í viku.
Ferðir til einstakra viðkomu-
staða erlcndis samkvæmt vetrar-
áætlun verða sem hér segir:
Til Glasgow og Kaupmanna-
hafnar verður flogið á mánudög-
um, miðvikudögum og laugardög-
um. Til Bergen, Osló og Kaup-
mannahafnar á föstudögum og til
London á föstudögum. Til Reykja-
víkur eru svo áætlunarferðir dag-
inn eftir brottför héðan að heiman
nema frá London, en þaðan kemur
flugvélin samdægurs.
Sú breyting kemur nú til fram-
kvæmda, að ferðir um Noreg
færast yfir á föstudaga og laugar-
daga í stað laugardaga og sunnu-
daga undanfarin ár.
Flugfélag íslands hefir gefið út
prentaða vetraráætlun millilanda-
og innanlandsflugs á vetri kom-
andi.
KNATTSPYRNAN
21 stig, en síðan koma Manch.
Utd., Tottenham, Everton, Liv-
erpool og Arsenal með 19 stig.
2. deild:
Charlton—Cardiff 5—2
Derby—IVIanch. City 1—3
Grimsby—Norwich 3—1
Huddersfield—Bury 2—1
Leyton 0.—Portsmouth 3—6
Middlesbro—Sunderland 2—0
Newcastle—Northampton 2—3
Plymouth—Swindon 2—4
Preston—Scunthorpc 1—0
Southampton—Leeds 1—4
Swansea—Rotherham 4—2
í 2. deild eru Leeds, Swind-
on og Sunderland efst með 23
stig. Á laugardaginn var háð-
ur á Skotlandi úrslitaleikurinn
í bikarkeppni deildaliða. Rang-
ers sigraði Morton með 5:0. Á
föstudaginn vann St. Mirren Th.
Lanark í deildakeppninni með
1:0.
ÍfíFÓttlF
ari hálfleik gegn tveimur Vals. —
Mörkin fyrir ÍR skoruðu Hermann
3 Gunnlaugur Gylfi og Þórður 2
hver.
Fyrir Val skoruðu, Bergur 3,
Sigurður D. 2, Sigurður G., Örn og
Jón C. 1 hver.
Dómari í leiknum var Hannes
Þ Sigurðsson og dæmdi heldur
illa Það kom t. d. fyrir í fyrri
hálfleik, að Kristmann hjá Val
hafði skorað.eftir gegnumbrot, en
Gunnar hjá ÍR hindraði hann gróf
lega. Hannes rak Gunnar út af í
2 mínútur, sem og var rétt, en
hins vegar láðist honum að dæma
mark — eða vítakast á ÍR. Hvert
eitt mark hefur jú mikla þýðingu!
VELTAN EYKST
Framhalc ai bls. 3.
umbob happdrættisins í Reykja-
vík hafa opið alla virka daga, eins
og verzlanir. Bæklingur um þess-
ar breytingar mun liggja frammi
í öllum umboðunum.
Mjög vinsælt er núna, að margir
einstaklingar Kaupi saman raðir
af miðum og skipta þá með sér
kostnaðinum og ágóðanum. M. a.
er vitað um fjóra, sem keypt hafa
100 heilmiða og síðan um áramót.
hafa þeir grætt 200 þúsund krón-
ur nettó á þessum miðum. Eins og
gefur að skilja er þetta mjög þægi
legt fyrirkomulag.
Með þessu nýja fyrirkomulagi er
unnt að vinna tvær milljónir kr.
í einum drætti og minnst tvö þús-
und krónur. Þegar er búið að
afgreiða helming nýja flokksins til
umboðsmanna, svo útséð er um
það, að hann selst fljótlega upp.
Brýn nauðsyn er á sem mestu
fé til starfsemi háskólans og má
t d. geta þess, að síðan árið 1940
hefur enginn kennslubygging ver-
ið reist í sambandi við hann, og
er það hræðileg staðreynd með til-
liti til þess, hve starfsemi hans
fer ört vaxandi. Það er ekki ein-
ungis hér, sem húsnæðisþörf há-
skólans eykst svo gífurlega, það
gildir það sama um öll Norður-
löndin t. d., en munurinn er bara
sá, að þar er bætt við eftir þörf-
um. íslenzka þjóðin ætti að gera
sér ljóst, hve hættulegur hlutur
það er, að sníða menningarlegum
og vísindalegum framförum of
þröngan stakk, en það stendur
vonandi til bóta.
T í M I N N, þriðjudaginn 29. október 1963.
13