Tíminn - 29.10.1963, Side 14

Tíminn - 29.10.1963, Side 14
ÞRIÐJA RIKID WILLIAM L. SHIRER •kyæmt tilmælum þeirra, eða að minnsta kosti með samþykki þeirra. Svörin voru í öllum tilfellum neikvæð . . . Satt er það, að ég gat ekki látið spyrjast fyrir um þetta hjá nokkrum ríkjanna og 1 K’óðanna, sem nefnd eru, vegna þess að þau sjálf — eins og t. d. Sýrland — eru ekiki nú sem stend- ur sjálfstæð ríki, heldur hernum- in og þar af leiðandi hafa hermála fulltrúar lýðræðisríkjanna svipt i þau rétti þeirra. Burtséð frá þessu hafa samt öll ríki á landamærum Þýzkalands fengið enn meira bindandi stað- festingar . . . heldur en Roosevelt fór fram á í hinu undarlega skeyti •hans til mín . . . Ég verð að beina athygli Roose- vel'ts að einni eða tveimur skekkj- um í sögunni. Hann minntist t. d. á írland og bað um yfirlýsingu um, að Þýzkaland mundi ekki gera árás á írland. Nú hef ég rétt í þessu lesið ræðu eftir De Valera, hinn írska Taoiseach (Hitler gætti 1 þess vel, að nota keltneska orðið yfir forsætisráðherra), þar sem j hann andstætt skoðun Roosevelts j ásakar Þýzkaland ekki um að sækja að írlandi, heldur sakar hann England um stöðugar árás- ir á írl'and .... Á sama hátt virðist sú staðreynd i hafa farið fram hjá Roosevelt, að 1 Palestína er nú sem stendur her- numin, ekki af þýzkum hersveit- um heldur enskum, og að frelsi þess lands er takimarkað með hinni ruddalegustu valdbeitingu. Samt, sagði Hitler, var hann reiðubúinn „að gefa hverju því ríki, sem hann nefndi, staðfest- ingu, sams konar þeirri, sem Roose velt óskaði eftir“. En meira en það! Augu hans ljómuðu. — Ég vil ekki láta þetta tæki- færi hjá líða, án þess að gefa fyrst af öllu forseta Bandaríkj- anna staðfestingu varðandi þau lönd, sem myndu eftir allt saman verða til þess að vekja mestan ótta hans, nefnilega Bandaríkin sjálf og önnur ríki í Ameríku. Ég lýsi því hér með yfir í ein- lægni, að allar þær fullyrðingar, sem verið hafa á kreiki um fyrir- hugaða árás Þjóðverja eða innrás í amerískt land, eru ekkert annað en . vitleysa og ósannindi, fyrir utan það, að slíkar fullyrðingar, hvað við kemur hernaðarmögu- leikum, geta ekki átt annars stað- ar upptök sín en í ímyndun manna. Þingheimur öskraði af hlátri. Hitler stökk ekki bros, og hélt áfram að vera fullkomlega alvar- legur á svipinn. Og þá kom niðurlagið — það snjallasta, sem hann nokkru sinni lét hljóma í eyrum Þjóðverja. Herra Roosevelt! Ég skil full- komlega, að stærð þjóðar yðar og hin miklu auðæfi hennar gera það að verkum, að þér finnið til ábyrgðar vegna sögu alls heims- ins og vegna sögu allra þjóða. Ég, herra minn, er niður kominn í miklu minna og hógværara um- hverfi . . . Ég tók eitt sinn að mér stjórn ríkis, sem við blasti ekkert nema eyðileggingin, þakkað sé trausti þess á loforðum annarra landa heims og illri stjórn lýðræðis- stjórnarinnar . . . ég hef ráðið nið urlögum ringulreiðarinnar í Þýzkalandi, komið aftur á röð og reglu og aukið feikilega fram- leiðsluna . . . bætt umferðina, lát- ið byggja mikla vegi og grafa skurði, komið af stað risastórum nýjum verksmiðjum og á sama tíma reynt að bæta menntun og menningu þjóðar okkar. Mér hefur tekizt að finna enn einu sinni atvinnu fyrir allar þær sjö milljónir atvinnulausra, sem í landinu voru . . Ég hef ekki aðeins sameinað þýzku þjóðina stjórnmálalega, heldur hef ég einnig búið hana vopnum á ný. Ég hef einnig reynt að eyðileggja síðu fyrir síðu sáttmálann, sem í sínum fjögur hundruð og fjörutíu greinum hefur að innihalda sví- virðilegustu kúgun, sem þjóðir eða mannlegar verur hafa nokkru sinni orðið að sætta sig við. Ég hef aflað ríkinu aftur land- svæða, sem stolið var frá okkur árið 1919, Eg þef ie^tiiáffú^ $ iim'taí ðí--, ... infi 'in -H'ij heimalands míns milljónir Þjóð- verja, sem slitnir voru frá okkur og lifðu við þjáningar . . og, herra Roosevelt, án þess að út- hella nokkru blóði og án þess að láta hörmungar styrjaldarinnar leggjast á þjóð mína, og þá um leið einnig á aðrar þjóðir . . Þér, herra Roosevelt, hafið miklu auðveldara hlutverki að gegna í samanburði við þetta. Þér urðuð forseti Bandaríkjanna árið 1933, þegar ég varð kanslari rík- isins. Frá því fyrsta urðuð þér æðsti maður stærsta og auðugasta ríkis í heiminum . . Skilyrðin eru slík í landi yðar, að þér hafið tíma til þess að beina athyglinni að alheimsvandamálum , Um- hugsunarefni yðar og tillögur ná yfir miklu stærra svæði en mínar, af því að minn heimur, herra Roosevelt, þar sem forlögin hafa sett mig niður, og ég er því skyld- ugur að vinna, er því miður miklu smærri, enda þótt mér sé hann meira virði en nokkuð annað, því að hann takmarkast við mína eig- in þjóð! Ég trúi því samt sem áður, að á þennan hátt verði ég til mests gagns fyrir það, sem við erum all- ir að hugsa um, þ. e. a. s. réttlætið, velmegun, framfarir og frið alls samfélagsins. Þessi ræða var mesta meistara- verk Hitlers, framkvæmt á hinum afvegaleiddu og hálfblindu Þjóð- verjum. En þegar ferðazt var um Evrópu næstu daga á eftir, var auðvelt að sjá, að þessi ræða, ólíkt því sem var um margar af fyrri ræðum Hitlers, var þess ekki leng ur megnug að blekkja fólkið eða stjórnirnar í öðrum löndum. Þær gátu séð í gegnum svikavefinn, ólíkt því, sem var um Þjóðverjana sjálfa, og þær gerðu sér ljóst, að foríniginn; þrátt fjrrir alla, hans málsnilld, og fyrir háSið um Roosevelt, hafði ekki fyllilega svar að grundvallarspurningum forset- ans: Væri hann hættur við allar árásir? Myndi hann ráðast á Pól- land? Það átti svo að fara, að þetta var síðasta mikla opinbera ræða Hitlers haldin á friðartímum. Þessi fyrrverandi austurríski flakk ari hafði komizt eins langt í þess- um heimi og hægt var á málsnilld sinni Upp frá þessu átti hann eft- ir að reyna að reisa sér minnis- varða í sögunni sem stríðsmaður. Hitler svaraði ekki opinberlega svari Póllands, því að nú fór hann til fjallaseturs síns í Berchtesgad- en til þess að dveljast þar um sum arið, en pólska svarið barst hon- um 5. mai í ræðu Beck ofursta til þingsins og í opinberri skýrslu, sem Þýzkalandi barst sama dag. Yfirlýsing Pólverja og ræða Becks voru virðulegt, sáttfúst, en um leið ákveðið svar — Ljóst er (stóð þar), að samn ingaviðræður þar sem eitt ríki leggur fram kröfur og annað ríki er neytt til þess að ganga að þeim óbreyttum, eru engar samn- ingaviðræður. íhlutun Rússa í ræðu sinni í þinginu 28. apríl hafði Hitler sleppt að ráðast á Sovétríkin, eins og venja hans var. Ekki var minnzt einu orði á Rúss- land. Beck ofursti hafði í svari sínu drepið á „ýmislegt annað, sem minnzt hafði verið á“ hjá Þýzkalandi, „og sem ekki var ver ið að ræða um“ og áskildi sér þann rétt „að taka það til athug- unar síðar, ef nauðsyn krefði“', en hér var auðsjáanlega verið að tala um fyrri tilraunir Þjóðverja til þess að fá Pólland til þess að ganga í sambandið gegn kommún- En sársaukinn var of mikill, meðvitundarleýsið tók hvað eftir annað af honum ráðin. Hann ör- magnaðist. Sótthiti og óráð báru vilja hans ofurliði. Enn þá gat hann þó hugsað. Hann gat meira að segja hugsað um ástandið með kaldri ró. Hann var að deyja. Það var ekki gott. Deyja í blóma lífsins, án þess að geta látið drauma sína rætast. Drauma sína. Hann hugsaði með eftirsjá um allt, sem hann hafði ætlað að gera í framtíðinni, sem hafði blasað við honum, full af fyrirheitum. Hann hafði ætlað að vinna að mikilvirkum rannsókn- um á sviði læknavísinda, rannsaka orsakir fósturláts og ófrjósemi. Hann hafði ætla'ð að vinna mikið og gott verk. Hann hafði líka ætlað að ferðast, ferðast mikið. Til dæmis hafði hann hugsað sér að ferðast til Nýja-Sjálands. Hann hafði hugs- að sér að eyða heilu sumri á Gaspé skaganum, og hann hafði ætlað að ferðast til Skandinavíu, — ó, hvað hann hafði hlakkað til að fara þangað! Og hann hafði gert miklar áætlanir um veiðiferðir, meira en hann hafði getað leyft sér hér í Idaho, sjóstangaveiði,1 laxveiði í Kanada . . . Og hann hafði dreymt um að búa í húsi með útsýni yfir hafið. Ef til vill hefðu fjöllin í Idaho samt getað komið í staðinn fyrir hafið. Það var sárara en nokkur tannpína að sjá alla þessa drauma í rústum. Þvílík kvöl! Honum var slík raun að liggja þarna og frjósa í hel, án þess að geta nokkra björg sér veitt. að hann hefði getað grátið. Hann byrjaði á ný að berjast um, hrópa og kalla á hjálp. En hann var orð- inn máttfarinn af blóðmissi og taugaáfalli. Kuldinn sljóvgaði | smám saman limi hans og vilja. j En hugsanirnar héldu áfram að j þyrlast um huga hans. Hann hafði ætlað að verða mikill læknir, láta eitthvað reglulega gott af sér leiða í læknavísindum. Hann hafði ekki ætlað að verða „sveitalæknir“, né heldur vinsæll þorpslæknir. Ber- ilo var ekki of lítill staður, en of einangraður. Hann hafði ekki upp á næg tækifæri að bjóða. Lækn- arnir á Berry og Chappell létu sér um of nægja annarra uppgötvan- ir. Berry og Chappell var gott sjúkrahús, en það samrýmdist ekki beinlínis hugsjónum Phils. Hann hafði ætlað sér göfugra hlutverk en að stjana við útslitnar og von- sviknar eiginkonur fjallabænda og verksmiðjukarla. En nú voru allar hans áætlanir orðnar að engu. Hann mundi deyja þarna í þessu litla gili í Klettafjöllum, þrjátíu og þriggja ára gamall, Draumar hans mundu deyja, eins og ungur og hraustur líkami hans. Allt erfiði liðinna ára var orðið að engu. Ef til vill mundi hann ekki finn ast fyrr en með vorinu. Snjórinn mundi hylja lík hans, leggjast of- an á hann, þyngra og þyngra. Þeg ASTIR LÆKNISINS ELIZABETH SEIFERT | ar hann bráðnaði á ný, yrði hann 1 ekki orðinn annað en beinahrúga. j Og Marynelle! Ekkert hljóð ! heyrðist frá henni, engin hreyf- ing. Hún hlaut að vera dáin, því að Phil gat ekki varizt andköfum, | hversu lítið sem hann hreyfði sig. j Marynelle hafði ekki hreyft sig í tímunum saman. Hún hlaut að vera dáin. Og hann, Philip Scoles læknir, hafði myrt hana. Hann hafði þrætt við hana, reitt hana til reiði, og hún hafði ætt burt frá honum út í opinn dauðann Meðvitundarleysið kom til hans og veitti honum líkn. Hann barð- ist ekki lengur gegn því. Hann var þakklátur fyrir að fá nú loks- ins hvíld. ÞRIÐJI KAFLI. Phil kom ekki aftur til meðvit- undar, fyrr en á mánudag. Honum var þegar í stað ljóst, hvar hann var niður kominn. Hann var í her- bergi nr. 617 á Berry og Chappell. I Ilann var aleinn, en hljóðin, sem j bárust til hans utan af ganginum, i létu kunnuglega í eyrum hans. j Sjúkrahúslyktin kitlaði hann nota I lega í vitin. Blómin á gluggasyll- unni sögðu honum sína sögu. Hann hafði legið þarna a. m. k. i svo lengi, að einhverjum hugul- sömum hafði unnizt tími til að senda honum blóm. Hann þreifaði um höfuð sér og fann, að það var reifað. Brjóstið var einnig reifað, og hin minnsta hreyfing orsakaði sársauka. En hann var vakandi, og hann var lifandi! Hann hafði báða fætur heila, báðar hendur, og hann hafði meðvitund. Hann mundi halda áfram að lifa! Hann vissi, að hann þurfti ekki annað en kippa í bjöllustrenginn við höfðalagið, og þá mundi hann fá að vita allt, sem hann fýsti. En honum lá ekkert á. Til að byrja með var honum nóg að vita, að hann var á lifi, að honum hafði gefizt nýtt tækifæri til að fram- kvæma allt, sem hann var að hugsa um, þegar hann lá og beið dauða síns í snjónum. Ferðalögin, veiðiferðirnar, húsið, en þó fyrst og fremst starfið! Rannsóknirnar,' uppgötvanirnar. framlag hans til læknavísindanna. i Já, nú skyldi hann lifa lífinu öðru vísi. Hann ætlaði ekki að eyða tímanum til ónýtis, því að nú vissi hann, hve snögglega og miskunnarlaust kallið gat komið. Framvegis skyldu engar sjálfsaf- sakanir komast að, og enginn utan að komandi skyldi fá að hafa áhrif á ákvarðanir hans. Hann varð að slíta sambandi við Mary- nelle, það hlaut einhvern veginn að blessast. Einmitt á þeirri stundu var lík- fylgd Marynelle að leggja af stað frá kirkjunni í átt að kirkjugarð- inum. En það gat Phil ekki vitað. Og hann gat heldur ekki vitað, hvernig við fundum hann á laug- ardagskvöldið. Þegar leitarflokk- ur okkar, vopnaður ljóskerum, fann þau seint um kvöldið, var Phil langt leiddur af blóðmissi og kulda, en Marynelle augljóslega látin fyrir mörgum klukkustund- um. Við bárum þau upp fjallshlíð- ina til veitingahússins. Ég gerði það, sem ég gat fyrir Phil. aðal- iega til að draga úr áhrifum tauga áfallsins Síðan fór ég með hon- um í flugvélinni til bæjarins, þakk látur fyrir. að flugið tók ekki nema tæpa klukkustund, því að Phil þarfnaðist nauðsynlega blóð- gjafar og súrefnis. Sjúkrabíll beið okkar á flugvellinum, og við ókum! sem hraðast til sjúkrahússins —] til sjúkrahússins, sem hann hafði farið að hugsa til með lítilsvirð- ingu meðan hann lá í snjónum og sem hann hugsaði enn til með lítilsvirðingu. þegar hann vakn- aði þennan sólbjarta mánudag, öruggur í hlýju, hvítu sjúkrarúm- inu. Læknir er aldrei góður og þæg- ur sjúklingur, sérstaklega ekki á sínu eigin sjúkrahúsi. Phil var engin undantekning. Hann gaf sínar eigin fyrirskipanir og tók ekkert tillit til annarra. Hvorki læknir, hjúkrunarkona né ganga- stúlka gat gert honum til hæfis, og hann sparaði ekki kvartanirn- ar. Ef Phil hefði sjálfur einhvern tíma þurft að eiga við slíkan sjúkling, hefði hann gefizt upp á honum. Hann hélt því fram í römmustu alvöru, að enginn mað- ur hefði nokkru sinni þjáðst eins mikið og hann. Þær stundir komu, þegar við iðruðumst þess öll, að hann skyldi hafa komizt til með- vitundar, og sum okkar ráðgerðu jafnvel, hvernig hægt væri að þagga niður í honum á auðveldan. hátt. Ef hann hefði þá minnzt á ráða- gerðir sínar um að yfirgefa okk- ur, hefði okkur áreiðanlega öllum litizt ljómandi vel á þá hugmynd. Við vorum í stuttu mál'i alveg dauðþreytt á honum og öllum hans ósanngjörnu kvörtunum. Hann þóttist ekki geta sofið á nóttunni, hélt því fram, að fólk hlypi fram og aftur um ganginn á hörðum skóm í þeim eina til- gangi að halda fyrir honum vöku. Hann heimtaði, að öll vinna á rannsóknarstofunni við hliðina á herberginu hans væri stöðvuð á kvöldin, svo að hann hefði frið til að hlusta á útvarpið. Hann mótmælti harðara en nokkur ann T I M I N N, þriðjudaginn 29. október 1963. 14

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.