Tíminn - 29.10.1963, Síða 16

Tíminn - 29.10.1963, Síða 16
 FYRSTA PRÍSTVlGSLÁ 1SKALHOLTI KH-Reykjavík, 28. okt. Mynd þessi er frá fyrstu prests- vígslunni í hinni nýju Skálholts- kirkju, er þar fór fram í gær. Sýn- ir hún biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, fyrir altari, en frammi fyrir honum standa hinir nývígðu prestar i höklum, séra Hreinn Hjartarson t.h. og séra Lárus Þ. Guðmunds- son t.v. Sitt hvoru megin við þá standa vígsluvottarnir, séra Guð- mundur Óli Guðmundsson, prestur í Skálholtsprestakalli, séra Gunnar Jóhannesson, prófastur í Árnes- prófastsdæmi, séra Þorgrímur Sig- ursson, pfófastur í Snæfellsnespró- fastsdæmi og séra Magnús Guð- mundsson, fyrrv. prófastur í Snæ- fellsnesprófastsdæmi. Biskupinn yfir íslandi vígði Hrein Hjartarson til Ólafsvíkurprestakalls og Lárus Þ. Guðmundsson að Holti í Ön- undarfirði. Séra Magnús Guð- mundsson iýsti vígslu, og séra Framhald á 15. síðu. nasiaMEwraifTiWMm F—nrrartimBrtaai FÉLL OFAN AF TUIN! BORGARSJÚKRAHÚSSINS BANASLYS Þriðjudagur 29. okt. 1963 234. tbl. 47. árg. KJ-Reykjavík, 28. okt. í hádeginu í dag féll ungur maður ofan af þaki turns Borgar- sjúkrahússins í Fossvogi, sem er í byggingu, og mun hann þegar hafa beðið bana. Eins og fyrr segir átti atburð- ur þessi sér stað í hádeginu í dag, og munu engir sjónarvottar hafa verið að slysi þessu. Turninn á Borgarsjúkrahúsinu er fjórtán hæðir, og lenti maðurinn, sem var um tvítugt, á skyggni sem er yfir vesturdyrum sjúkrahússins. Við rannsókn kom í ljós að maðurinn hafði skilið eftir uppi á þakinu úr, úlpu og aðra muni. Eins og áð- ur segir munu engir sjónarvottar hafa verið að þessu hörmulega slysi, en hinn látni vann ekki, eða var á neinn hátt viðkomandi bygg- ingu sjúkrahússins. AKVEÐIN LAUN STUNDAKENNARA HÆST 123,05 LÆCST 71,45 UM HÁDEGISBILIÐ í gær kom upp eldur í vinnuskúr úti á Grandagarði. Kvlknað! í út frá olíuofni, sem í skúrnum var, og urðu miklar skemmd- Ir. Vinnuskúr þessi var í eigu Byggingariðjunnar, og var þarna vegna byggingar vörugeymslunnar miklu við Rvíkurhöfn. (Ljósm.: Tfminn—GE). KH-Reykjavík, 28. okt. Stundakennarar í skólum landsins hafa ekki verið á- hyggjulausir síðan þeir réðu sig til starfa í vetur, því að enn þá hafa þeir ekki fengið að vita, hver Iaun þeir fá greidd samkvæmt hinum nýja launa- skala kennara. En þeir geta nú dregið andann léttar, því að búið er að ákveða Iaun þeirra, sem þeir væntanlega fá greidd um næstu mánaðamót. Blaðið fékk þær upplýsingar á Fræðslumálaskrifstofunni í dag, að verið væri að ganga frá auglýsingu um laun stunda- kennara og yrði hún væntan- lega tilbúin á morgun. Fá þá stundakennarar laun sín greidd um næstu mánaðamót, eða e.t. v. nokkrum dögum síðar, og fer það eftir því, hve fljótt skýrsluvélarnar geta skilað sínu verki. Laun stundakennara eru á- kveðin 80% af meðallaunum kennara í 25 ár, miðað við laun in í dag, og gildir þessi ákvörð Framhald á 15. sfðu. . KJ-Reykjavik, 28. okt. Á laugardaginn um kl. 15.30 var bifreið ekið útaf rétt vestan við Engidal á Álftanesi. í bílnum voru tvær stúlkur og einn piltur, sem ók. Nánari atvik voru þau, að er bíllinn var kominn vestur fyrir Engidal, missti ökumaður stjórn á bílnum, er hann fór í lausamöl, •sem hentist síðan 30 imetra út fyr- ir veginn. Bifreiðin, sem var af Mercury- Comet-gerð, árg. 1963, var í eigu Bílaleigunnar Bíllinn, og ók hon- um 19 ára piltur. Bróðir piltsins hafði fengið bílinn lánaðan, og lán- að hann svo aftur ti) hans Sam- kvæmt reglum um útlán á bílum, má aðeins sá, sem fær bílinn að Framhald á 15. siðu. Rann í höfnina KJ-Reykjavík, 28. okt. „Snemma í morgun fór bfll í höfnina í Reykjavík. Óttazt var í fyrstu að maður hefði verið í bíln- um, en sá ótti reyndist ástæðuiaus. Myndin hér að ofan sýnir, er bíll- inn var dreginn upp úr höfninni. Bílnum, sem er í eigu Lands- síma íslands af Unimog-gerð. hafði verið lagt á bifreiðastæðið vestan við Hafnarhvol, en ökumaðurinn Framhald á 15. síðu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.