Tíminn - 28.11.1963, Qupperneq 5
■ ÆSKUNNAR
ÚTGEFANDI: SAMBAND UNGRA FRAMSÓKNARMANN A
Ritstjóri: Elías Snæland Jónsson.
Sambandsráð
keiiur saman
Sambandsráð Sambands
ungra Framsóknarmanna kem-
nr saman nú um mánaðamótin
og stendur fundur í 2 daga. Um
60 fulltrúar frá öllu landinu
munu sitja fundinn, auk stjórn-
ar SUF og fuMtaúum frá kjör-
dæmissamböndum ungra Fram-
sóknarmanna. Sambandsráð er
sá aðili, sem æðsta vald hefur í
málefnum ungra Framsóknar-
ir-ma á milli sambandsþinga
SUF.
Núverandi sambandsráð kem
ur saman á merkum tímamót-
uni í sögu SUF. Aldarfjorðung
ur er liðinn síðan stofnþing
þess vair haldið að Laugarvatni
að frumkvæði FUF í Reykja-
vík. Stóð þing það í 4 daga og
sátu það 104 fulltrúar auk
margra gesta. Var þetta þing
hið glæsilegasta.
En þótt gott sé að líta tfl
baka og dást að liðnum afrek-
um, þá er þó alltaf meira um
vert að horfa fram á við og
móta framsýna og ákveðna
stefnu til lausnar hinum ýmsu
vandamálum. Eitt af megin-
viðfangsefnum þessa sambands
ráðsfundar verður skipulags-
mál samtaka ungra Framsókn-
armanna. Er þar ýmissa um-
bóta þörf.
StjómmálaJeg samtök ungra
manna og kvenna hafa vissu-
lega miklu starfi að gegna. Þau
eiga að búa ungu kynslóðina
sem bezt undir skyldur hins al-
menna borgara í -lýðræðisþjóð-
félagi — að taka þátt í stjórn
landsins — og auka þekkingu
hans á þjóðfélagsmálum. En
jafnframt er það skylda sam-
taka ungra manna í dag,_ að
gera hinni ungu kynslóð ljóst,
hversu háð við erum öðrum
löndum heims, hversu þýðing-
armikil alþjóðleg samvinna er.
f dægurbaráttunni hér heima
þurfa ungir Framsóknarmenn
að vetra árvakrir og hugdjarfir,
en þó umfram allt duglegir og
ákveðnir. Og þó að 25 ár séu
liðin, þá getum við enn þá tek-
ið undir orð Eysteins Jónsson-
ar, þáverandi fjármálaráðherra,
er hann flutti í lok ræðu sinn-
ar á stofnþingi SUF árið 1938:
„Við Framsóknarmenn höld-
um því ekki íram, að við eig-
um neinn töfrasprota, og að
allt, sem aflaga fer og erfitt
reynist, geti lagazt af hans
völdum án fyrirhafnar.
Við höldum aftur á móti hinu
fram, að meginúrræði þau, sem
við bendum á, séu duglegum
mönnum samboðin og hafi ver-
ið reynd undir erfiðum kring-
umstæðum með góðum árangri.
Við viljum að veitt sé að-
stoð til þess að dugandi fólk
geti bjargazt af dugnaði sínum,
en ekki gæla við þann hugs-
unarhátt, að rétt sé að heimta
allt af öðrum en ekkert af sjálf-
um sér.
Þetta getum við sagt hik-
laust, án þess að vera með
nokkrum rétti tortryggðir um
það að misnota þessar róksemd-
ir á sama hátt og íhaldsflokkar
liafa þrásinnis geirt, af því að
meginstefna Framsóknarflokks-
ins hefur verið og er við það
miðuð að vernda þá, sem þann-
ig vilja starfa, frá því að tapa
arðinum af vinnu sinni ti!l
þeirra, sem ekki vilja aðhyll-
ast þessa meginreglu“. EL—JO
Á MYNDINNl aS ofan eru fulltrúar FUF-félaganna á stofnþingi SUFNA á Laugum 30.—31. ágúst, ásamt Eyjólfi Eystein'ssynl, erlndreka SUF.
SUF á Norðausturlandi
var stofnsett í sumar
Félög ungra Framsóknarmanna
á Norðausturlandi hafa stofnað
með sér kjördæmissamband —
Samband ungra Framsóknarmanna
á Norðausturlandi, og er það fyrsta
kjördæmissamband ungra Fram-
sóknarmanna í landinu. Stofnend-
ur sambandsins voru: FUF á Ak-
ureyri, FUF í Eyjafjarðarsýslu,
k'UF í S-Þing., vestan Ljósavatns-
s íarðs, FUF í S-Þing., austan Ljósa
vatnsskarðs FUF á Húsavík, FUF
í N-Þing., ,’estan Axarfjarðarheið-
ar og FUF við Þistilfjörð. Með-
lirnir eru á 7. hundrað og voru
íulltrúar á stofnþinginu 32 að tölu.
4 þessara félaga eru nýstofnuð, og
hafa sýnt mikinn áhuga í störfum
sinum.
Stofnþingið var haldið föstudag-
inn 30. ágúst að Laugum í Suður-
Þingeyjasýslu. Eyjólfur Eysteins-
son, erind’.eki SUF, setti þingið
fyrir hönd undirbúningsnefndar
og nefndi sem 1. forseta þingsins
Jón Illugason, Bjargi. Aðrir starfs
írenn þingsins voru 1. varafors.
S'gurður Jóhannesson, Akureyri,
2. varafors., sr. Ingimar Ingimars-
son, Sauðanesi, og þrír ritarar: Ein
ar Njálsson, Húsavík, Indriði Ket-
ilsson, Fjaili, og Gunnlaugur Sig-
valdason, Þórshöfn.
Að loknu nefndakjöri flutti Karl
Kristjánsson, alþingismaður ræðu.
Oskaði hann samtökunum allra
heilla og kvað sér mikla ártægju
að taka til máls á þessu stofnþingi.
Flutti hann Eyjólfi Eysteinssyni
sérstakar þakkir fyrir hans ágæta
undirbúningsstarf að stofnun þess
ara samtaka, en hann hefur manna
mest unnið að því.
Karl sagði, að markmið þessa
sapibands vggri, að efla Fram§ókn-:
aiflokkinn og að hvetja ungt 'fólk
ttl sjálfstæðrar hugsunar; og að
standa þéttar saman um rétt sinn
og málefni. Benti hann á ýmis
íramtíðarmál, sem úr þyrfti að
bæta, t. d. kjördæmamálið.
— Með því að gerast félagar í
FUF hafið þið lagt gullpening
ykkar í réttan stofnsjóð, og vonast
ég til, að hann skili góðum arði er
stundir líða — sagði hann að lok-
um
Gísli Guðmundsson, alþm., flutti
nokkur hvatningarorð og sagðist
enga betri ósk eiga til handa þess-
t'm samtökum, en þá, að takast
mætti að halda við og efla hina
dreifðu byggð landsins.
Jóii A. Ólafsson, varaformaður
SUF, flutti ávarp og kvað sér
mikla ánægju að sitja þetta þing
fyrsta kjördæmissambands ungra
Fxamsóknarmanna. Kvað hann
fara vel á því, að slíkt samband
væri fyrst stofnað í þessu héraði.
þar sem rætur samvinnuhreyfing-
arinnar og ungmennafélaganna
hefðu verið.
Þingið liófst að nýju daginn eft-
ir og skiluðu nefndir þá álitum
sínum, sem síðan voru samþykkt
citir nokkrar umræður.
Krlstján Helgi Sveinsson, Akureyri,
formaður SUF á Norðausturlandi.
STJÓRNARKJÖR
Síðan var gengið til kjörs stjórn
ar og varastjórnar. Stjórnin skipti
þannig með sér störfum:
Kristján Helgi Sveinsson, Akur-
eyri, formaður, Ingimar Ingimars
scn, Sauðanesi, varaform., Indriði
Ketilsson, Ytra-Fjalli, ritari, Einar
Njálsson, Húsavík, gjaldkeri,
Kiistján Jónsson, Dalvík, vararit-
aii, Þórarinn Þórarinsson, Vogum,
varagjaldkeri, Ragnar Jónsson,
Fjósatungu, meðstjórnandi.
f varastjórn voru kjörnir:
Jón Illugason, Bjargi, Sigtrygg
ur Þorláksson, Svalbarði, Haukur
Árnason, Akureyri, Ólöf Þórsdótt-
ir, Bakka.
GLÆSILEG SAMKOMA
Að loknum þingstörfum var efnt
til samkomu fyrir Framsóknar
röenn í héraðinu og fleiri, að til-
hlutan hins nýstofnaða sambands
< g SUF, Landssambandsins. Var
það í alla rtaði vel heppnuð sam-
toma — komu um 800 gestir.
Ræður fluttu á samkomunni Ey-
steinn Jónsson, formaður, Fram-
soknarflokksins, Jón A. Ólafsson,
varaformaður SUF, Karl Kristjáns
son, alþm. og Hjörtur Eldjárn,
bóndi, Tjörn. Tóku samkomugest-
ir vel ræðum þeirra og skemmtu
sér með afbrigðum.
i*ramsóknarflokkurinn og
sósíalistar Norðurlanda
KOSNINGASIGUR Framsóknar
manna í síðustu kosningum vakti
athygli margra, ekki sízt vegna
þrss, hversu mjög fylgi hans jókst
í bæjunum. Sýna þau úrslit mjög
greinilega, að launþegar gera sér
f víðtækari mæli grein fyrir því,
að Framsók narf 1 okkurinn er sá
flokkur á íslandi í dag, sem bezt
er trúandi fyrir hagsmunum hinna
efnaminni i þjóðfélaginu, bænda
verka- og iðnaðarmanna og hinn-
ar sívaxandi stéttar skrif
stofufólks. Framsóknarflokkurinn
hefur breytzt úr hreinum bænda-
flokk í frjálslyndan og framfara-
sinnaðan bænda- og launþegaflokk,
og er án efa heilbrigðasta afl ís-
lenzkra stjórnmála í dag.
Þessi þróun er ekkert einsdæmi.
Flokkar vinstri sinnaðra manna
hafa verið og eru í stöðugum vexti
i flestum lcndum Vestur-Evrópu í
dag. Bezt iientar okkur þó að hafa
samanburð við hin Norðurlöndin,
einlcum Noieg, Danmörk og Sví-
þjóð, enda um Rkar þjóðir að ræða.
■Jafnaðarmenn fara með völd á
.\ crðurlöndum, annaðhvort einir,
eða með stuðningi einhvers annars
vmstrisinnaðs flokks. í röðum jafn
aðarmanna þar má finna verka-
og iðnaðarmenn, skrifstofu- og
menntamenn og bændur. Stjórn-
málastefna þeirra mótast af frjáls-
lyndri framfarastefnu, og öruggri,
víðsýnni skipulagningu, með hag
hinna mörgu fyrir brjósti. Hefur
sú stefna orðið þeim traust til fylg-
is.
Við hér á íslandi höfum þá
te.rðulegu, stjórnmálalegu sam-
suðu, að /lokkur örgustu íhalds-
manna, Sjálfstæðisflokkurinn, og
hinn svokallaði flokkur verkalýðs-
ins, Alþýðutlokkurinn, eru saman
í ríkisstjóvn. Slíkt myndi ekki
þckkjast á hinum Norðurlöndun-
um, einfaldlega af því, að skoðan-
íir íhaldsmanna og sósíalista á
hinum ýmsu þjóðmálum eru svo
gjörólíkar. að þeir gætu ekk; unn-
ið saman.
Stjórnmálasamstarf íhalds og
krata á íslandi á því einfalc!,ega
rót sína að rekja til þess, að Al-
þýðuflokkurinn hefur horfið r'rá
tyrri stefnuskrá sinni, sósíalism-
anum, og tileinkað sér hina örg-
Framhald á 15. siðu.
T f M I N N, 'immtudaginn 28. nóvember 1963
S