Alþýðublaðið - 24.12.1944, Blaðsíða 17

Alþýðublaðið - 24.12.1944, Blaðsíða 17
JÓLÁBLÁÐ ÁLÞÝÐUBLAÐSiNS Vaidimar Jóhannsson: Geti|i kringum Jökul FYRIR hálfu öðru ári síðan lögðum við Halldór skatt- stjóri Sigfússon upp í gönguferð .kringum Jökul. Fórum við för þessa um hvítasunnuhelgina og ferðuð- umst á vegum Ferðafélags íslands að Hamraendum í Breiðuvík, en félagið efndi til férðar á Snæfellsjökul um þessa helgi, eins og venja þess er. Úr Breiðuvík fórum við fötgangandi til Ólafsvíkur, kringum Jökul, og vorum tvo daga í þeirri ferð. Frá Reykjavík var farið með Laxfossi og kornið til Borgnarness eftir þriggja klukkustunda og tíu mínútna siglingu. Á bryggjunni biðu bifreiðar þær, sem flytja áttu ferðafól'kið vestur í Breiðuvík. Tóku menn nú að koma sér fyrir í bifreiðunum og vas haldið upp úr Borg- arneskauptúni stundarfjórðungi fyrir klukkan sex. Var síðan haldið viðstöðulaust vestur Mýrar og Snæfells- nes, aðeins áð skamma stund að Vegarnótum og drukk- ið kaffi. Þegar að Búðaós kom, var lágt í sjó og komust bif- reiðarnar viðstöðulaust yfir ósinn. Ekki var komið að Búðum, heldur ekið þar framhjá. — Á blómaskeiði sínu voru Búðir mestur kaupstaður á Snæfellsnesi. Var þangað sigling allmikil og verzlun af hálfu erlendra þjóða, áður en einokunin var sett. Síðar hnignaði Búða- kaupstað verulega en var þó lögbundinn verzlunar- staður allt einokunartímabilið. Var verzlunarumdæmi Búða allt frá Hvítá í Borgarfirði og vestur að Búða- hrauni. Þá var verzlun þar ekki sízt arðvænleg vegna þess, að þangað barst mikill fiskur úr verstöðvum á Snæfellsnesi. Hins vegar þótti þar viðsjál höfn, og mun það nokkuð hafa hamlað siglingum þangað. Bílfær leið frá Búðum til Breiðuvíkur liggur uppi við fjallið, undir Axlahyrnu og framhjá Öxl. En önnur leið liggur til Breiðuvíkur yfir Búðarhraun og rétt hjá Búðakletti. Hann er í miðju hrauninu og sést alllangt að. Hér er reyndar ekki um klett að ræða, þó að svo sé kallað. Búðaklettur er gígur sá, sem Búðahraun er runnið frá, og er ávöl kúla úr rauðum vikri, mjög reglulega löguð. í rönd gígsins er Búðahellir, og liggur dóu á með nafn hans og guðsmóður á vörum sér. Svipur hans vitnar um göfgi og hryggð, og það er sem hann vilji segja: „Ógæfa allra manna er kross minn, því að ég er sannlega guð hinna fátæku og þrautum þyngdu.“ Helgi Sæmundsson íslenzkaði.. hann inn undir rætur Búðakletts. Segir Þorvaldur Thoroddsen hellinn 50 álna langan, um 10 álna breið- an og 4—5 álna háan. Ekki mun þó vera ‘auðgert að komast í botn hellisins, því að hann lækkar mjög, þeg- ar innar dregur. Er sú sögn um hann, að þaðan séu undirgöng allt suður á Reykjanes, en aðrir segja í Surts- helli. Er það haft til marks, að sakamaður flýði í hell- inn og kom upp á Reykjanesi. Var þá gullsandur í skóm hans. En bifreiðar ferðafélagsins fóru hina efri leið, eins og áðúr getur. Urðum við Halldór því af því að skoða Búðahraun, enda höfðum við ekki fyrirhugað að hefja gönguna fyrr en í Breiðuvík. Vegurinn liggur nú upp frá Búðaós, til fjalls og er allmjög á fótinn. Síðan ligg- ur hann undir Axlarhyrnu, sem kennd er við bæinn Öxl. Þar bjó Axlar-Björn, sem alkunnur er enn í dag fyrir illvirki sín. Bærinn Öxl stóð til forna niðri við hraunið, en síðar var bærinn fluttur upp undir fjallið. í hraunjaðrinum er ígultjörn, þar sem Björn faldi lík þeirra manna, er hann myrti. Lengra inn með fjallinu, fyrir miðri Breiðuvík, stendur bærinn Knörr. Hamrar miklir eru þar í fjallinu, Knarrarklettar. Hafa þeir orð- ið mörgum að fjörtjóni, því að slys voru þar alltíð fyrr meir. Menn, sem viUtust á Fróðárheiði, enduðu ósjald- an ævi sína á þann veg, að þeir hröpuðu fyrir Knarr- arkletta. En á heiðinni þótti villugjarnt og var talið ekki einleikið. En nú 'er meira en hálf öld, síðan þar varð mannskaði síðast. — Nokkru immr en Knörr eru Leik- skálavellir. Þar voru Breiðvíkingar að leikum áður fyrr. VIÐ KOMUM að Hamrarendum í Breiðuvík klukk- an hálf ellefu á laugardagskvöldið. Veður var þá all- stirt, hvassviðri og talsvert úrfelli. Hér skildi með okk- ur Halldóri og samferðafólkinu. Það bjóst til náða í tjöldum sínum og ætlaði síðan að ganga á Snæfellsjökul með morgninum. Við höfðum engan viðbúnað hvað næt- urgistingu snerti. Höfðum við ekki viljað taka með okk- ur tjald og hvílupoka, til þess að íþyngja okkur ekki á göngunni, en treystum á, að okkur myndi verða eitt- hvað til með náttstaði. Við tókum því þann kost að kveðja dyra á Hamra- endum og falast eftir næturgistingu. Kom á daginn, að þar var raunar alláskipað fyrir, en þó var okkur léð gisting og beini af mikilld rausn og myndarskap. Sváfu tuttugu og fjórar manneskjur á Hamraendum þessa nótt, en sex fóru þaðan á laugardaginn. Um veturinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.