Alþýðublaðið - 24.12.1944, Blaðsíða 24

Alþýðublaðið - 24.12.1944, Blaðsíða 24
24 JÓLABLAÐ ALÞÝÐUBLAÐSINS ............................... sem alkunn eru, og vermenn í Dritvík höfðu til að reyna GLEÐILEG J Ó L ! Geir Konráðsson, Laugaveg 12. GLEÐILEG JÓL! H. £. RAFMAGN. GLEÐILEG JÓL! Verzlunin Höfði ih. f. Gleðileg jóll Þorsteinsbúð. GLEÐILEG JÓL! V. Thorsteinsson & Co. GLEÐILEG JÖL! Sölufélag garðyrkjumanna. GLEÐILEG JÓL ! á krafta sína. Steinarnir eru fjórir: Amlóði, 23 kg, Hálf- drættingur, 49 kg, Hálfsterkur, 140 kg, og Fullsterkur 155 'kg. — Amlóði er nú brotinn í tvo hluta. Allir eru steinar þessir brimsorfnir hnullungar og illt mjög að festa á þeim tök. Steinana skyldi hefja á bergstall, tæp- l!ega mjaðmiaháan, að því er sagt var, en eigi er stallur þessi svo hár nú, má vera, að sandur og möl hafi að honum bori'zt. — Enginn taldist skipgengur í Dritvík, sem ekki kom Hálfdrætting á stall, og má raunar segja, að það sé lítil þrekraun. Þorvaldur Thoroddsen segir um Hálfsterk, að hann ,,gátu einstöku sterkir menn' tekið upp, en Fullsterk fáir eða engir.“ — Djúpalónssandur dregur nafn sitt af stöðuvatni litlu, er Djúpalón heit’ir, en er jafnan í daglegu tali kallað Lón. Það var vatnsból vermanna áður fyrr, en vatns- laust er á þessum slóðum, eftir að komið er út fyrir Dagverðará. Hár malarkambur er milli þess og sjávar, en að öðru leyti liggja hraunklettar að því að á allar hliðar. Yfirborð vatnsins tekur breytingum með sjávar- föllum, en þó er vatnið ósalt. Sú var trú manna fyrr- um, að vatn þetta væri botnlaust. Var það haft til marks, að maður hefði kafað þar og komið upp í sjónum fyrir framan. Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson könn- uðu, hvað hæft væri í þessu. Komust þeir að raun um, að vatnið væri dýpst 15 fet og alls stáðar öruggur botn! Út í Dritvík er yfir annan hraunhrygg að fara en vegarlengd skömm. Dritvík var um langan aldur ei-n helzta verstöð landsins, svo sem alkunna er, og forðabúr heilla landshluta. Vermenn sóttu þangað úr fjarlæg- um héruðum og þangað sóttu menn skreið víðs vegar að af landinu. Útræði úr Dritvík lagðist niður um miðja síðustu öld, en í byrjun aldarinnar gengu þaðan 80 skip. í byrjun 18. aldar voru þar 12 búðir, en á ver- tíðinni fjölgaði fólki stórlega, því að þangað sótti fjöldi skipa til róðra. Segir um það á þessa leið í jarðabók Árna Magnússonar: „Inntökuskip ganga seinni vertíð á vor frá Góu til Hallvarðsmessu, stundum lengur, stundum skemur og er þeirra tala óviss, 30, 40, 50 til 60. Liggur fólk af þeim við tjöld og undir seglum, en nýtur aðeins vatns og tilkeyptrar þjónustu og soðningar hjá búðarfólki. Tekur heimabóndi (þ. e. bóndinn á Hóla- hólum) til undirgiftar fyrir hvert skip áskildar 10 álnir og ekki framar. Lending er í skárra lagi og oft bezta vertíð, þá annars staðar-ganga stórviðri af norðurátt." Nú er auðn í Dritvík. Engu skipi er framar hrundið þar á flot. Skinnklæddir sægarpar sjást ekki lengur í fjörunni. Búðirnar eru fallnar og sér þeirra aðeins ó- glöggar rnenjar. Eigi eru þar framar háðar bænda- giímur og engir reyna afl sitt á hinum nafnkunnu steinatökum. — En götutroðningarnir í hraunhellun- um fyrir ofan víkina rninna enn á þá tíma, þegar hver skreiðarlestin eftir aðra lagði upp úr Dritvík með björg í bú manna í fjarlægum landshlutum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.