Alþýðublaðið - 19.12.1948, Blaðsíða 9
ILaugardagur 18. des. 1948.
ALÞfÐUBLAÐiÐ
o
Benedikt Sveinbjarnarson Gröndal er með'al af-
kastamesía rithöíunda vorra að fornu og nýju,
og’ sennilega fjölhaefastur þeirra allra. Eigi mun
auðfundinn maður, hvort heldur er leitað innan
Iandsins eða utan, sem fengizt hefur við fleiri
greinar hókmennta, vísinda og lista. Hann orkti
kvæði allra tegunda: ættjarðarljóð, eggjanakvæði,
. ádeilukvæði, ástaljóð, gamankvæði í ótal tiíbrigð-
um, drykkjukvæði, ferðaljóð, heimspekileg- kvæði,
náttúruiýsingar, erfiíjóð, grafskriftir og hvers
kyns íækifæriskvæði, söguljóð, Ijóðabréf og rím-
ur. — Hann samdi skáldsögur, smásögur, ferða-
sögur, riddarasögur og leikrit. Iíennslubækur
samdi harni um margvísleg efni, dýrafræði, steir.a
og jarðfræði, landafræði og efnafræði. — Eftir
hann liggja fjölmargar ritgerðir og blaðagreinar
um flest niilíi himins og jarðar: bókmenntir,
myndllst, leiklist, goðafræði og aðra fornfræði.
menningarsögu, heimspeki, nátíúrufræði, stjórn-
mál erlend og innlend, skólamál, Vesturheims-
ferðir o. m. ^fl. Hann hefur ritað ævisögu sína,
haldið dagbók og skjalfest minnisgreinar og „hug-
dettur“ um alla skapaða hluti, samið fjölda
skemmtilegra sendibréfa og tekið saman vísinda-
lega orðabók yfir skáldamálið forna, Iykil að
hinni frægu orðabók föður síns. Loks er að geta
teikninga hans, skrautritana og málverka, en í
|>ví öllu liggur geysimikil vinna. Höfuðverk hans
á því sviði eru myndir af íslenzkum dýrum, einlc-
um fuglum og sjávardýrum, mörg hundruð að
tölu.
Ráðgert er, að verk hans öll, sem prentuð eru,
verði fjögur síór bindi. Fyrsta bindið, sem nú er
komið, eru kvæðin, kvæðaþýðingar, Örvar-Odds
drápa, Ragnarökkur og kvæðaskýringar. Bindið
er 584 bls. þéttprentað í stóru þroti og kostar 60
krónur í kápu.
Langskemmtiléga&ta stráka-
hókin í mörg ár.
Kostar 20 krónur.
Helgafell
6erizt kaupendur að Alþýðublaði
00 og 4906