Tíminn - 19.01.1964, Qupperneq 3
ÍSPEGU
\MZŒB
Um það leyti, sem Tony
Armstrong, l'jósmyndari, kvænt
ist Margréti Bretaprinsessu,
var mikið rætt um eftirlætis-
ljósmyndafyrirsætu hans, Jac-
qui Chan. Toni hafði sjálfur
uppgötvað hana og sáust þau
mikið saman. Samt þurfti hún
ekki að verða fyrir vonbrigð-
um við hina konunglegu gift-
ingu hans, því að eftir það bár-
ust henni tilboð hvaðanæva að
úr heiminum og talað var um
hana í hverju einasta blaði.
Nú hefur Jacqui þessi gift sig
leikaranum David Salamon, og
þau hafa alveg nýlega eignazt
dóttur. Á myndinni sjást þær
mæðgur.
—o-O-o—
Dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna, Robert Kennedy, gaf
öllum starfsmönnum sínum
gullskyrtuhnappa í jólagjöf, og
um leið gaf hann þeim kurteis
lega í skyn, hve lengi hann
mundi starfa með þeim. Aftan
á hnappana var nefnilega graf
ið frá RFK til o. s. frv. 1961—
1964.
—o-O-o—
KAÐ HEFUR oftsinnis á þessu
■ 'hausti komið fyrir forsæt-
isráðherrann, Sir Alec Douglas
Home, að flugvélin, sem hann
hefur verið farþegi í, hefur
orðið að lenda eftir skamma
hríð, einhvers staðar langt frá
ákvörðunarstað, vegna þokunn-
ar í Bretlandi. Síðast þegar
þetta kom fyrir, var einn far-
þeginn mjög gramur yfir þessu
og spurði forsætisráðherrann,
hvort honum fyndist ekki þessi
eilífa þoka vera þreytandi. Nei,
nei, svaraði Sir Alec rólega, ég
er orðinn vanur henni. Þar að
auki finnst mér hún heimilis-
leg, því að hún minnir mig
mjög á ástandið í stjórnmáiun-
um í dag.
Einkaritari Adenauers, fyrr-
verandi kanslara Vestur-Þýzka
l'ands, hefur nú afhjúpað smá-
leyndarmál. Adenauer, sem nú
er 87 ára gamall, fær enn þá
fjölda af hjónabandstilboðum
og þar sem öll bréf til hins há-
aldraða herra eru flokkuð nið-
Jacky, sem er ungur sjim-
pansi, stendur þarna í dyrun-
um á húsvagninum, sem hann
býr í ásamt eiganda sínum Gui-
ette Landry. Guyette er að-
eins 20 ára gömul, og fyrir
tveimur dögum bjargaði Jacky
lífi hennar með því að gleyma
að loka þessari hurð, sem hann
stendur í. Vegna ýmissa von-
brigða hafði Guietta ákveðið
að fremja sjálfsmorð, og skrúf-
aði frá gasinu ! húsvagninum
sínum, síðan skipaði hún Jacky
að fara út, en hann gleymdi að
loka á eftir sér hurðinni, og það
bjargaði lífi stúlkunnar. Hús-
vagn Jackys og Guietta er sem
stendur í Nice í Frakklandi.
ur í smærri flokka, spurði
einkaritarinn Adenauer í hvaða
flokk hún ætti að setja þessi.
Svarið var á þá leið, að þau
gætu farið í möppuna, þar sem
tilboð um friðsaml'ega sáttmála
væru geymd.
—o-O-o—
Geimferðarvísindamenn í
Bandaríkjunum hafa nú aftur
verið sendir á s'kóla í Cape
Canaveral og það til þess að
l'æra að skrifa einfalda ensku.
Ástæðan er sú, að mállýzka eld
flaugastarfsmanna þykir hafa
náð hámarki í hátiðleika sín-
um. Einn verkfræðinganna,
sem var að gefa skýrslu skrif-
aði eitthvað á þessa leið: „Man
machine requirements in this
system environment impose
severe visual acuity problems“.
Við ætlum ekki að þýða þetta,
en það kom á daginn, að mað-
urinn meinti: „The pilot can’t
see the instrument panel“, eða
flugmaðurinn getur ekki séð
mælaborðið.
—o-o-o—
Opinber starfsmaður í Wash-
ington þurfti fyrir skömmu að
hringja í aðstoðarmann forset-
ans, Jack Valenti, og var þetta
seint að kvöldi til. Símastúlk-
an í Hvíta húsinu sagðist
mundu gefa honum samband
við forsetann. Eg ætlaði nú
ekki að ónáða hann, sagði mað
urinn, en honum var svarað af
forsetanum, sem sagði: „Þetta
er allt í lagi. Jack er farinn
og ég tek símtölin fyrir hann.
Hvað get ég gert fyrir þig?“
—o-O-o—
XgH | Ílí» >J J '• >J• ijrfp
Catherine Spaak, bróðurdótt
ir belgíska utanríkisráðherrans,
er framkvæmdasöm stúlka. Við
höfum áður getið þess, að hún
hefur valdið fjölskyldu sinni
miklum heilabrotum með því
að gerast kvikmyndaleikkona,
aðeins 19 ára að aldri, og sýna
sig oftar en einu sinni alls
nakta á kvikmyndatjaldinu,
svona í auglýsingaskyni. Ekki
bætti það svo úr skák, að
Catherine tók upp á því að gift
ast ungum ítölskum auðnuleys
ingja og eiga með honum barn.
Þá varð föður hennar ofboðið
og rak hana enn einu sinni að
heiman og það í alvöru. Cathe-
rine fluttist þá til Ítalíu ásamt
eiginmanninum og hélt áfram
að gera ýmsar brellur í aug-
lýsingaskyni. Þegar leið að
barnsburðinum sljákkaði dálít-
ið í fjölskyldunni og foreldrar
Catherine komu til Ítalíu og
gáfu hjónakornunum meðal
annars hús til að búa í. Síðan
fæddist bamið og allt er með
kyrrum kjörum í fjölskyldunni,
þangað til Catherine yfirgaf
eiginmann sinn skyndilega með
barnið, en hann sendir á eftir
henni lögregluna, sem flytur
móður og dóttur aftur heim til
sín. Hvað veldur veit enginn
enn þá. Ástin hefur kannske
ekki verið eins haldgóð og
Catherine hélt hana vera, en
hvað um það, þessi mynd ei
tekin af henni, þegar hún sást
í fyrsta skipti utan dyra eftir
fl'ótann. Hún var í gönguferð
í Róm og þegar hún gekk
fram hjá blaðsöluturnum
blöstu við henni forsíðumynd
ir af henni sjálfri, allt út af
flóttanum!
Þetta er nýjasta myndin, sem
tekin hefur verið af Jacqueline
Kennedy, en hún er tekin við
það tækifæri, er Jaqueline
býður eiginkonu ítalska forset-
ans, Antonio Segni, velkomna
til Washington. Frú Kennedy
er svartklædd enn þá, en virðist
ananrs bera sig vel, þrátt fyrir
sorgina.
Það er mikið haldið upp á
gamlar siðvenjur í Stóra-Bret-
landi. Lítið þið t. d. á þessar
konunglegu barnfóstrur. Þær
eru í sams konar einkennisbún
ingum og notaðir voru fyrir
30 árum og aka kóngabörn-
unum um garða konungshallar
innar. Þær nema staðar og
ræða sín á mill'i um viðburði
dagsins og lífið innan konungs
fjölskyldunnar, en ekki er laust
við að þær megi fara varlega
með ýmis mál og gæta tungu
sinnar, því að Lord Linley t. d.
sonur Margrétar og Tony er
orðinn tveggja ára gamall og
tveggja ára gömul börn skynja
meira en nokkurn grunar. Það
er annars furðulegur siður, að
aka tveggja ára gömlum börn-
um um í barnavagni.
TÍMINN. sunnudaainn 19, janúar 1964 —
3