Tíminn - 19.01.1964, Side 7

Tíminn - 19.01.1964, Side 7
ÚtgefEndi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriCi G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Frétta. stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Daviðsson. Ritstjórnarskrifstofur i Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr. 7. Afgr.simi 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 80,00 á mán. innan. iands. f lausasölu kr. 4.00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.f. — Er frjáls verzlun aðeins „frelsi til að stela“? Hér í blaðinu hefur nokkrum siinum verið vikið að þvi, að íslendingar byggju ekki við sama viðskiptafrelsi og frændþjóðir þeirra á Norðurlöndum. Þar hafa flokkar jafnaðarmanna farið með völd og stefna þeirra hefur verið sú að draga úr verðlagshöttum jafnskjótt og þeir hafa talið framboð fullnægja efttrspurn. Skoðun þeirra hefur verið sú, að þegar til lengdar léti, tryggði það neyt- endum bezt kjör að láta verzlunina vera fr jálsa eða m. ö. o. að frjáls samkeppni kaupmanna og kaupfélaga á jafn- réttisgrundvelli tryggði beztu viðskiptakjörin. Óvíða er afkoma almennings betri en í þessum lönd- um og bendir það óneitanlega tiL þess, að frjáls verzl-. un sé ekki óhagstæð neytendum. í blöðum Sjálfstæðisflokksins hefur þessum frásögnum Tímans verið tekið illa. Þau hafa hreytt ónotum að Tím- anum og mælt höftunum bót með ýmsum hætti. Lengst gengur blað Gunnars Thoroddsen, Vísir, í þessum efn- um í forustugrein 1 fyrradag. Þar segir Vísir, að það sem Tíminn vilji fá sé hvorki melra né minna en frelsi til að stela. Skoðun Vísis er sem sagt sú, að þeir, sem ekki vilja halda í verðlagshöft, vifii fá frelsi til að stela Vafasamt er hvort nokkurn ssnn: hafi í íslenzku blaði verið vegið harðara að íslenzkum kaupmönnum og kaupfélögum en með þeim aðdróttunum, sem fel ast f þessum ummælum Vísis. Áreiðanlega hefur ekki heldur verið farið þyngri orðum um frjálsa verzlun en að kalla hana frelsi til að stela. íslenzk saga vitnar öll gegn þessum ummælum Vísis. Það var í skjóli einokunar og hafra áður fyrr, sem mest var stolið af íslendingum. Kjör pjóðarinnar fóru hins vegar batnandi í sama hlutfalli og verzlun varð frjálsari Samkeppni kaupfélaga og íslenzkra kaupmanna tryggðu þjóðinni stöðugt batnandi kjör. eÞssa reynslu á þjóðin ekki að vanmeta. Nú er hins vegar þrengt að frjálsri verriun með verðlagshöftum og siauknum lánsfjárhöft- um. Með því er stefnt í aðra átt en annars staðar á Noro- urlöndum. Þar trúa valdhafarnir á frjá'.sa verzlun og styðja kaupfélög og kaupmenn- til samkeppni á iafnréttisgrund- velli. Hér kallar blað fjármálaráðnerrans frjálsa verzlun frelsi til að stela. Siðleysi í áðurnefndri grein Vísis er reynt að koma þjófnaðar- orði á Framsóknarflokkinn og samvinnuhreyfinguna vegna þess að uppvíst hefur orðio um stórt þjófnaðar- brot manns, sem vann við eitt doiturfyrirtæki samvinnn- félaganna. Þetta er málflutningur sem vori hliðstæður því, að Tíminn reyndi að koma þjófnaðarorði á Sjálfstæðisflokk inn vegna þess, að uppvíst hefu.r orðið um fjárdrátt í sparisjóði, þar sem formaður Sjálfstæðisflokksins er varaformaður í stjórn, enda þótt allir viti, að hann verði ekki neitt áfelldur í þessu samba.urti. í slíku siðleysi, mun Tíminn ekk. taka þátt. Þetta er að draga íslenzka blaðamennsku aftur niðui á það stig, þar sem hún komst lægst áður. En Dv mun veitt athygli, að það er málgagn fjármálaráðherrans og varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem hér er að verki. Of mikill vöxtur iðnaðarins er mikið vandamál í Sviss Útlendingar eru þriðjungur alls vinnuafis þar FRÁ BERN SVISSNESKA verkalýðs- hreyfingin hefur fyrir skömmu borið fram kröfur um, að öflug ar ráðstafanir verði gerðar til þess að draga úr hinum öra vexti iðnaðarins og fækka störf um til mikilla muna. Sjaldgæft mun að verkalýðs- samtök beri fram slíkar kröfur. En aðstæður eru óneitanl'ega sérstæðar í Sviss, og hefur hinn öri vöxtur iðnaðarins undan- gengin ár valdið því. Fast að þriðjungi virks vinnuafls í Sviss eru útlendingar. Árið 1951 voru aðeins um 100 þúsund útlendingar starf- andi í Sviss. Þeim hefur fjölg- að mjög ört og árið 1959 voru þeir um hálf milljón að tölu. Árið 1961 voru þeir orðnir rúm 600 þúsund, 700 þúsund 1962 og eru nú um 800 þúsund. SVISS er lítið land og íbúa- talan aðeins 5,6 milljónir, eða aðeins litl'u meira en í Dan- mörku. Hin stórkostlega fjölg- un starfandi útlendinga hlýtur því að leiða af sér margvísleg og erfið vandamál. Aðstreymi útlendinganna heldur kaupi niðri og það er einmitt veigamesta vandamálið, sem að verkalýðssamtökunum snýr. Af þeim sökum er það ósk flestra svissneskra laun- þega, að innflutningur verka fólks sé stöðvaður. Aðrir hafa áhyggjur af fram tíð landsins ef ekki tekst að fækka erlendu verkafólki Menn minnast enn tímabilsins milli styrjaldanna, þegar stór- ir hópar Þjóðverja og ítala voru búsettir í Sviss. Þessir hópar báru í brjósti aðrar til finningar en Svisslendingar sjálfir og héldu uppi áköfum áróðri fyrir því, að stórir hlut- ar landsins væru sameinaðir Þýzkalandi og Ítalíu. ÞESSI REYNSLA veldur þvi, að svissnesku fylkin leyfa er- lendum verkamönnum ekki að koma með fjölskyldur sínar, eins og tíðkaðist fyrir heims- styrjöldina. Og reynt er á ýms- an hátt að ganga lengra í tak- mörkunum og strangar reglur settar um dvalarleyfi. Algengt er, að erlendir verka menn fái aðeins tíu mánaða dvalarleyfi í Sviss í senn og verði að dvelja í heimalandi sínu að minnsta kosti tvo mán- uði áður en þeir geta aftur feng ið dvalarleyfi í Sviss. Þó tíðk- ast einnig, að dvalarleyfi séu látin gilda eitt ár í senn. Þetta á þó einkum við um faglærða menn. En þessir menn verða að sæta þeim skilyrðum, að þeir mega ekki skipta um starf eða vinnuveitanda. Vilji til dæmis svo til, að fyrirtækið, sem þeir réðust til, verði gjaldþrota mega þeir ekki leita fyrir séi um vinnu annars staðar Hinir hærra settu starfs menn eru þó undanþegnir þess um ströngu skilyrðum, en þeir eru um 100 þúsund að tölu. Þeir fá dvalarleyfi óhindrað og mega taka fjölskýldu sína til sín, þegar þeir eru búnir að starfa i eitt ár. Að tíu árum liðnum geta þeir orðið sviss- neskir ríkisborgarar. Megin- hluti þessara starfsmanna er þýzkrar ættar og eiga þeir því mun hægara með að samlagast svissnesku þjóðfélagi en hinir. sem flestir eru af ítölsku bergi brotnir. (Þrír fjórðu hlutar sviss- nesku þjóðarinnar tala þýzku. ítölsku talar aðeins óveruleg- ur minnihluti, og hann fer ört smækkandi). AÐBÚÐ flestra hinna er- lendu verkamanna í Sviss er lítið girnileg. Flestir þeirra verða ýmist að búa í stórum íbúðaskálum eða ömurlegum leiguherbergjum. Þeir hafa eng an samgang við heimamenn Svisslendingar vilja helzt vera út af fyrir sig og bera fæstir í brjósti hlýjar tilfinningar gagn. vart hinum erlendu verkamönn um. Meginhluti erlendu verka- mannanna sendir laun sín heim. Fé það, sem Ítalíu áskotn ast árlega á þennan hátt, mun samsvara 4—5 milljörðum ís lenzkra króna. Dregið hefur úr flutningi verkamanna frá Ítalíu til Sviss síðustu árin og stafar það eink um af eflingu efnahagslífsins á Norður-Ítalíu, en hún hefur valdið mjög aukinni eftirspurn eftir góðum starfskröftum. Það er því svo komið, að fyrirtæki á Norður-Ítalíu eru farin að auglýsa eftir ítölskum verka mönnum í svissneskum blöð um. Bjóða þau jafnhá laun og verkamennirnir fá í Sviss. Þeg ar svo er komið, kjósa margir ítalir eðlilega að hverfa aftur til síns heimalands, þar sem þeir geta haft fjölskyldu sína hjá sér. Svisslendingar hafa því orð- ið að leita annað en til ítaliu í vaxandi mæli. t marz s. 1. var til dæmis gerður samningur við ríkisstjórn Spánar um flutning spánskra verkamanna til Sviss Þá hefur þeim Grikkjum, sem til Sviss fara í atvinnuleit, fjölg að mjög hin síðari ár. ÁKVARÐANIR Efnahags- bandalags Evrópu um frjálsan flutning vinnuafls hafa valdið aukinni samkeppni Vestur. Þýzkalands við Sviss um vinnu afl. Þjóðverjar bjóða erlend- um mönnum jafnhá laun og svissnesku fyrirtækin, en auk þess fá þeir að hafa fjölskyld- ur sínar með sér til Þýzka- lands. í augum ítala vegur það nokkuð móti þessum kosti, að vinnuveitendurnir í Vestur- Þýzkalandi eru mun lengra frá Ítalíu en þeir svissnesku. En Svisslendingum er að verða ljóst, að við núverandi aðstæður er ekki unnt að una til frambúðar. Vilji Svisslend- ingar halda áfram að njóta hins erlenda vinnuafls verða þeir óhjákvæmilega að leyfa verka- mönnunum að koma með fjöl- skyldur sínar. Ef þeir notfærðu sér almennt þá heimild, hlyti það í framkvæmd að leiða til fjölgunar í Sviss um tvær milljónir manna eða svo. íbúar Sviss eru naumast reiðubúnir að stíga slíkt skref. ENGINN þarf að furða sig á því að þessi mál valdi Sviss- lendingum áhyggjum. Ekki þarf annað en að gera sér í hugarlund, hverju það til dæm- is geti valdið að útvega 700 þúsund fjölskyldum þak yfir höfuðið Það ylli efalaust hús- næðisskorti, sem ekki yrði unnt að bæta úr fyrr en eftir mörg ár. Auk þess yrði það senni- Lega til þess, að fátækrahverfi mynduðust, þar sem fjölmenn- ur erlendur öreigalýður byggi. Þá ber einnig að hafa í huga þá þjóðernislegu árekstra, sem auðveldlegá gæti komið til. Það gæti orðið hinu svissneska þjóðfélagi næstr erfitt menn- ingarlega að innlima svo marga útlendinga allt í einu. Þegar Svisslendingar tóku þátt í umræðum um aðild að Efnahagsbandalagi Evrópu reyndist vandamálið um vinnu- artið náléga eins erfiður ásteyt- ingarsteinn og hlutleysið. Sviss lendingar stóðu á því fastar en fótunum, að þeir gætu ekki með nokkru móti tekið á sig að hlíta ákvörðun Efnahags- bandalagsins um frjálsan flutn ing vinnuafls milli landa. Þetta vandamál er ekki leng- ur ofarlega á baugi, en hitt er aftur á móti ljóst, að eftirlitið með vinnuaflinu er ekki fram Framhald á 13. síðu. TÍMINN, sunnudaginn 19. ianúar 1964 z

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.