Tíminn - 25.01.1964, Page 15

Tíminn - 25.01.1964, Page 15
FARSKIPUM FJÖLGAR Framhald af 1. sí3u. ingana frá hraðfrystihúsunum, — enda öll útbúin með kælitækjum í lestum. Brúarfoss, Selfoss og Dettifoss hafa verið í siglingum á Ameríku og til meginlandsins, enda eru þau öll með kælitæki í lestum. Goða- foss og Lagarfoss eru einnig með kælitæki í lestum, en samtals er lestarrými skipa Eimskipafélags- ins 1,729.000 cub. fet og af. því eru 507 þús. cub. fet kælilestir. Á árinu 1963 flutti Eimskip 155 þús. tonn til landsins og 126 þús. tonn frá landinu, en 1962 námu þessir flutningar til landsins hjá Eimskip 154 þús. tonnum og frá landinu 111 þús. tonnum. Frá Alþinsi eftirlit með henni. Við verðum að beina fjármagninu til að auka framleiðnina og þjóðartekjurnar, lækka vextina, vinna að skipuleg- um og auknum hagvexti og bæta kjör launþega og bænda í áföng- um. Það er vottur að vísi í rétta átt í þessu frumvarpi varðandi sér- bæturnar og framleiðnistyrkinn, en að meginefni er það því miður áframhald á dýrtíðarstefnunni. — ,,Viðreisnin“ var í því fólgin að leita átti jafnvægis eftir neikvæðu leiðinni, auka dýrtíðina, gera fjár imagn dýrt, draga fjánmagn úr umferð og halda niðri kaupgetu almennings. Ef svona stefna á að ,.heppnast“ þá þarf „hæfilegt" at- vinnuleysi til að geta haldið kaup gjaldinu niðri. Þetta var auðvitað tneiningin með ,,viðreisninni“ en síldarhroturnar og fleira komu í veg fyrir að þetta heppnaðist á- samt því, að íslendingar sætta sig alls ekki við atvinnuleysi og því ei svona stefna alls ekki fram- kvæmanleg hér á landi. Fleira kem ur einnig til, að ekki er unnt að nota þetta kerfi hér á landi eins og það er skýrt í kennslubókun- um. ísland er um svo rnargt sér- stætt og þótt það sé unnt í öðrum löndum þá er alls óhugsandi að nota bankakerfið til að hafa stjórn á fjárfestingunni. Hér er fámenn- ið og kunningsskapurinn svo mik- ill og fjármálaviðskiptin eiga sér stað utan við bankakerfið ef þrengja á að þannig. Þetta sannar reynslan, því hér ætti ekki að vera ofþensla nú, eftri aðgerðirnar í jjeningamálunutn, skv. kennslubók unum með fullri virðingu fyrir þeim þó. Hvernig sem reynt verður að Jappa upp á þetta mun það sýna sig, að þetta kerfi er búið að ganga sér til húðar hér og stjórnin reynd ar með — og því lengur sem höfð- inu er barið við steininn og dregið er að draga af þessu réttar ályktan ir því hættulegra verður ástandið og málefnin verri viðureignar. Það sem umfram allt verður að íorðast nú eru nýjar álögur, því að þær auka á dýrtíðareldinn og stríð inu við launþegasamtökin verður haldið áfram. Það verður að taka upp sarnvinnu við almennu sam- tökin um lausn þessara mála, en fyrir það var vinstri stjórnin mest hædd. Og það verður að taka allt efnahagskerfið til endurskoð- unar á breiðum grundvelli í sam- vinnu við þau. RÓSTURSAMT Framhald af 1 siðu. menn í bænum Jinja í Uganda gerðu uppreisn og hertóku Felix Onama innanríkisráðherra lands- ins, þegar hann kom til þess að ræða kröfur hermannanna um hærri laun. Milton Obote, forsæt- isráðherra Uganda, bað Breta þeg ar í stað um að senda herlið til landsins, og kom það þangað sam- dægurs frá Kenya. Hermennirnir höfðu Onama ráð herra í haldi, þar til hann í dag lofaði að fjórfalda laun hermann- anna. Allt var með kyrrum kjör- um í Uganda í dag, en margir telja líklegt, að brezku liðsforingjarnir við herfylkið í Jinja geti ekki dvalið í landinu til langframa. Á þessu sama tímabili bárust stöðugar fregnir af ægilegum fjöldamorðum i Ruanda, og telja óstaðfestar fregnir að tala dauðra nálgist 12.000. Evrópskir sjónar- vottar segja, að dauðir menn, kon ur og börn fljóti í hrönnum í ám landsins. IJér er,um að_ræða ættóöka- stríð á milli Watutsímanna og Hutumanna. Hutumenn, spm eru um 80% af íbúum landsins, náðu stjórnartaumunum í Ruanda árið 1962, en fram að þeim tíma höfðu Watutsímenn kúgað Hutuættbálk- inn mjög. í fyrrahaust hófu Wat- utsímenn, sem flúið höfðu til ná- grannarjkisins Burundi, ránsferð ir inn í landamærahéruðin í Ru- anda. Eftir nokkrar slíkar árásir tóku Hutumenn til sinna ráða, og segja sjónarvottar, að þeir hafi brytjað niður hvern þann af Wat- utsíættbálknum, sem þeir náðu í — menn, konur og börn. Er nú talið að öll þessi manndráp geti orsakað farsóttir, og hefur ríkis- stjórnin beðið um hjálp belgískra fallhlífahermanna, og Rauði Kross inn mun líklega senda eftirlits- nefnd til landsins. Fyrstu kosningarnar í Norður- Rhodesíu, sem voru á þriðjudag- inn var, voru fremur rólegar, þótt lögreglan þyrfti nokkrum sinnum að handtaka æsta fylgismenn þjóð ernisflokkanna tveggja. Sameinaði Sjálfstæðisflokkurinn, UNIP, hlaut glæsilegan sigur í kosning- unum, 45 þingsæti af 75, og hef- ur formaður hans, Kenneth Ku- anda, nú myndað stjórn, sem í eru 13 afríkumenn. Síðustu fregnir frá Austur- Afríku herma, að forsætisráð- herra Kenya, Jomo Kenyatta, hafi beðið Breta um að senda herlið til landsins, og cru 700 brezkir hermenn nú á leið til Nairobi, höf- uðborgar Kenya. Kenyatta sagði í kvöld, að hann ætlaði að skipa nefnd til þess að ræða kröfur her- mannanna um hærri laun og betri aðbúnað, og að hann muni gera allt til þess að forðast svipaða atburði og áttu sér stað í Tanga- nyika og Uganda. ERFIÐ UPPSKIPUN Framhald af 16. síðu. brotnaði stýrið í trillunni. Varð hún þá að sleppa bátnum, sem hún var að slefa, en trillan komst sjálf fram að Skjaldbreið. Trillan var tekin um borð í -Skjaldbreið, sem létti akkerum og sigldi burt með bát og menn til Ingólfsfjarðar, sem er næsta höfn En uppskipunarbáturinn stýrði undan sjó og vindi í land þar sem bát og mönnum var fljótlega bjargað. Tveir menn voru á hvor- um bát fyrir sig, og komu trillu- meimirnú^ landyeg M._ Ifigólfs- firði, • en. skildu farkost sínn þar eftir þar til síðar. ÞAKKARÁVÖRP Öllum þeim, sem minntust mín vinsamlega er ég varð sjötugur, sendi ég alúðar þakkir og beztu óskir um gæfu og gengi á komandi árum. Eggert Eggertsson, Meðalfelli Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eigin- manns og föður, Magnúsar Lýðssonar Hólmavik. Elín Jónsdóttir og börn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför mannsins míns Jósefs Björnssonar Svarfhóli. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda. Jóhanna Magnúsdóttir Jörð á Snæfellsnesi óskast til kaups eða leigu frá næstu fardögum eða síð- ar- Uppl. sendist afgreiðslu blaðsins merkt: „Jörð á Snæfellsnesi" fyrir 15. febrúar 1964. Spónlagning Spónlagning og veggklæðning Húsgögn og innréttinqar Ármúla 20 Sími 32400 SIMINN Framhald af 1. síðu. númer, en þá verður Selás- stöðin tekin í notkun. Hún átti raunar að vera tilbúin fyrr, en verkföllin gerðu strik í reikninginn. Er nú verið að setja upp vélarnar þar. Selás hefur svæðisnúm- erið 91, eins og Reykjavík, Kópavogur og Hafnarfjörð- ur. Næsta svæði, sem komast á í sjálfvirkt símasamband, er númer 96, það er Norð- austurland á milli Skaga- fjarðar og Vopnafjarðar. — Verður fljótlega farið að setja upp vélar á Akureyri og breyta stöðihni þar, og er áætlað að Akureyri komizt í sjálfvirkt samband fyrir sumarið. Síðan verður hald ið áfram, og er vonast til, að hægt verði að koma öll- um stærri stöðvum á þessu svæði, eins og Húsavík, Dal- vík, Ólafsfirði, Siglufirði og Raufarhöfn, í sjálfvirkt sam band á þessu ári. AKRANES FRAMSÓKNARFÉLAG Akra- ress heldur skemmtisainkomu í félagsheimili sínu að Sunnubraut 21 n. k. sunnudag kl. 8,30. Spiluð verður framsóknarvist og sýndar kvikmyndir. Öllum er heimill að- ganffur. „SUNNUDAGUR" Framhald af 16. siðu. Guðrún Ásmundsdóttir, Gísli Hall- dórsson, Brynjólfur Jóhannesson, Margrét Ólafsdóttir, Erlingur Gislason og Sævar Helgason- — Leikstjórinn er Helgi Skúlason, leiktjöld gerði Steinþór Sigurðs- son, og þýðandi er Loftur Guð- mundsson. Sveinn Einarsson leikhússtjóri, sagði á fundi með blaðamönnum, að nokkuð langt væri síðan Leik- félagið hefði sýnt gamanleik, og væri nú orðið tímabært að taka fyrir léttan og skemmtilegan gam anleik, sem Sunnudagur í New York væri vissulega Þegar sýningar hefjast á þriðju daginn verður Leikfélagið með 3 stykki í gangi í einu og það 4. í æfingu. Hart í bak verður sýnt í 165. sinn á laugardag og Fanigarn- ir í Altona í 10. sinn á sunnudag. Þá eru að hefjast æfingar á Rom- eo og Júlíu, og er írski leikstjór- inn Mac Anna kominn til lands- ins, en hann mun stjórna leikn- um. Þetta mun vera í fyrsta sinn, sem Leikfélagið sýnir svona mörg leikrit í einu, en aðstaða félags- ins batnaði nokkuð við breytingar, sem gerðar voru á húsinu í vet- ur. Þá var inngangi breytt að nokkru, og einnig var lagfærð leik tjaldageymsla hússins, sem hefur verið mjög takmörkuð til þessa. P*, ?/#} m m Hjóibarðavíðgerðír Fljótt og örugg Þjónusta. Hjólbarðinn til- búinn innan 30 mínútna. SérstÖk tæki fyrir slöngulausa hjólbarða. Felgur í flestar teg- undir. Reynið viðskiptin- MILLAN Opið frá kl. 8 árd. fil 11 s.d. alla daga vikunnar. Þverholti 6 (Á horni Stórholts og Þverholts) m 'zoML ÚTBOD Tilboð óskast í smíði eftirtalinna skólahúsgagna: 1. SkólaborS og stólar úr stáli og tré. 2. Kennaraborð úr stáli og tré- 3. Kennaraborð úr tré. Otboðsgögn eru afþent í skrifstofu vorri, Vonar- stræti 8, gegn 500 króna skilatryggingu. Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar Höfum flutt skrifstofur vorar i Hafnarhúsið (vesturálmu), inngangur frá Tryggvagötu. Nýtt símanúmer: 2-11-60 (3 línur). Hafskip h.f. Bróðir minn, Magnús Jakobsson sem lézt af slysförum 18. þ.m. verður ’arðsunginn frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 27. þ. m. kl. 10,30. Þuríður Jakobsdóttir. Móðir mfn, Emelía Kofoed-Hansen iézt 24. þ. m. — Fyrlr hönd aðstandenda. Agnar Kofoed-Hansen. ÞORRABLOT Framsóknarffélaganna í Kópavogi ver8ur ha|dið ■ Féiagsheimiii Kópavogs laugardaginn 1. febrúar og hefsf kl. 7síðdegis. Aðgangseyrir verður kr. 160.00 — Skemmfiatriði auglýsf síðar Miðapantanir og upplýsingar í símum 40656, 41712 og 41804. Skemmtinefndin TÍMINN, laugardaginn 25. janúar 1964 15

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.