Tíminn - 28.01.1964, Blaðsíða 15
VILJA RÁ ÍSLENDINGA
Framhald af 16. síðu.
íslenzkra útvegsmanna á gildi þess
arar aðstöðu fyrir íslenzka útvegs-
menn. En enginn þessara aðila
hafði heyrt auglýsinguna n.é kynnt
sér málið og vildu því lítið um
hana segja. Sigurður H. Egilsson,
framkvæmdastjóri L.Í.Ú., sagði,
að í fljótu bragði virtist sér ekki
trúl'egt, að íslenzkir sjómenn yrðu
ginkeyptir fyrir langdvölum á
Grænlandsmiðum, og þó að hægt
yrði að fá hluta áhafnarinnar í
Grænlandi, yrði áreiðanlega erfitt
að fá hinn hluta hennar á íslandi.
Annars kvaðst hann ekki vilja
segja neitt frekar um þetta að óat-
huguðu máli.
SJÖ í SLYSUM
Framhald af 16. si8u.
þeim hætti að ökumaðurinn sem
ók suður Reykjanesbrautina segir
bíl hafa ætlað inn á Reykjanes-
brautina í veg fyrir sig, og hafi
hann þá sveigt til hægri með fyrr-
greindum afleiðingum. Báðir bíl-
arnir stórskemmdust og einnig
skárust ökumenn bílanna í andliti.
Um tólf í dag varð kona fyrir
bíl á mótum Fífuhvammsvegar og
Reykjanesbrautar. Meiðsli hennar
eru ókunn.
Rétt fyrir hálf þrjú varð dreng-
ur sem var að bíða eftir Vísi fyr-
ir utan afgreiðsluna í Ingólfsstræti
fyrir því að úlpa hans kræktist í
bíl sem átti leið þar fram hjá,
og dróst drengurinn með bílnum
stuttan spöl. Hlaut hann nokkur
meiðsli á fæti.
í gær varð sjö ára drengur, Sig
urður Karlsson fyrir bíl á Reykja-
víkurvegi í Hafnarfirði á móts við
Skemmuna. Lenti hann á vinstra
framhorni bílsins og hlaut fót-
brot.
DÓ í BÍLSLYSI
Framhald af 16. síðu.
lenzka landsliðið í knattspyrnu og
lék hann nokkrum sinrrum með-
því, fyrst á Englandi 1961. Árið
áður hafði hann verið varamaður
með landsliðinu í írlandsför, og
einnig var hann valinn til Frakk-
lands og Belgíufarar í sambandi
við heimsmeistarakeppnina 1957,
en gat ekki farið sökum þess, að
hann tók stúdentspróf þá um vor-
ið. Jakob byrjaði að leika með
meistaraflokki árið 1954 aðeins 17
ára að aldri.
Jakolj Jakobsson var fæddur á
Grenivík 1937, sonur hjónanna
Jakobs Gíslasonar, skipasmiðs og
Matthildar Stefánsdóttur, en flutt
ist fljótlega með þeim til Akur-
eyrar, þar sem hann átti heima
síðan. Jakob var næst yngstur
fjögurra bræðra, en tveir elztu
bræður hans, Haukur og Gunnar,
hafa einnig leikið mikið með Akur
eyrarliðinu í knattspyrnu.
I ÆSIAKSTRI
Framhald af 16. síðu.
bremsuhestöfl. Hér á landi kostar
hann um 132 þúsund.
Auk sigursins í Monte Carlo
keppninni núna á Morris Cooper
að baki sigra í mörgum öðrum
aksturskeppnum, og hefur það
aukið mjög á vinsældir bílsins,
auk þess sem hann er sparneytinn,
og hægt að fá með honum margs
konar tæki og aukaútbúnað til
þess að auka í honum kraftinn. T.
D. var bíllinn, sem Sverrir ók í
dag, með snúningshraðamæli.
Skák
Framhald aí 5. síðu
og Johannesen 5% vinning og bið-
skák.
Biðskákir voru tefldar í gær-
kvöldi og skýrt frá úrslitum á öðr-
um stað í blaðinu. Þar sem Friðrik
Ólafsson átti tvær biðskákir — og
aðra þeirra mjög erfiða gegn
Gligoric — hafði hann ekki tíma
til þess að skrifa yfirlitsgrein um
þessar umferðir, en í blaðinu á
morgun skrifar Friðrik um þær
ásamt biðskákunum.
MANNI BJARGAÐ
Framhala at 16. síðu.
áfram eftir að komið var í sjúkra-
húsið. Með hjálp súrefnisgjafa
tókst að vekja Jón aftur til meðvit-
undar. Voru þá um tveir tímar
liðnir frá því að hann féll í sjó-
inn. Hann er nú við beztu heilsu.
INDVERJI HÉR
bæði sál og líkama. Þeir, sem
hafa þolinmæði til að stunda
þessar æfingar rétt, verða síð-
ur sjúkdómum að bráð, og einn
ig getur yoga í mörgum tilfell-
um læknað sjúkdóma, sem ekki
hefur tekizt með öðru móti. —
Þegar ég heimsótti ísrael, kom
á daginn, að hinn gamli virðu-
legi stjórnmálamaður David
Ben Gurion hafði fengið mikla
heilsubót af að stunda yoga-æf-
ingar, sem fiðluleikarinn frægi,
Yehudi Menuhin, hafði kennt
honum“.
Swami Pranavananda gekk
ungur í háskóla í heimalandi
sínu og lærði læknisfræði, lauk
þvi námi og starfaði sem skurð-
læknir í nokkur ár. Þá hneigð-
ist hugur hans æ meir að yoga
og hélt hann síðan upp til Hima
lava og setist við fótskör cneist
aranna, fullnumaðist í fræðun-
un' og fékk nafnbótina Swami,
sem þýðir meistari. Til Vestur-
heims fór hann fyrir níu árum
os kom þar á fót yoga-stofnun
eðg félögum, sem hafa aðal-
skrifstofur í fjórum borgum
Amerfku, New York, Mexico-
borg, Caracas og Buenos Aires.
En félagsdeildir eru í fjölda
borga annarra og enn fleiri
löndum. Fjóra-fimm mánuði
ársins ferðast hann um allar
álfur og heldur fyrirlestra, en
starfar hina mánuðina sem ráð-
gjafi og stjórnar æfingum
vestra, heldur fyrirlestra í há-
skólum og ótal stofnunum, m.
a. Sameinuðu þjóðunúm, hefur
heiinsoftýg^raðgazt~við margá
þjÁðhöfðíngja o'g foríistúmenh
mennta og vísinda, víða um
heim. Hér hefur hann heimsótt
bæði stjórnarráðið og háskól-
ann.
ÞEIR SEGJA UPP
Framhald af 1. sí8u.
ári frá 30 til 90%, en laun sjó-
manna skulu standa í stað, og allt
vöruverð í l'andinu hefur hækkað
gífurlega. Fundurinn mótmælir
þeirri aðferð verðlagsnefndar að
leggja eingöngu til grundvallar
rekstur á frystihúsum, þar sem
sum éru starj^ækt 2—3 mánuði
úr árinu og standa svo hinn tím-
ann lítið eða ekkert notuð. Þessari
framkomu í launamálum mótmælir
fundurinn harðlega og álítur það
•beina árás á sjómannastéttina og
telur, að úrskurður á fiskverði,
sem gerður var, standist ekki laga-
lega og sé því markleysa ein. Fund
urinn skorar því á sjómenn að
segja upp þegar í stað og leggja
niður vinnu sem einn maður 4.
febrúar 1964 Fundurinn skorar á
stjórn Sjómannasambands íslands
og stjórn Alþýðusambands íslands
að bregða hart við og aðstoða sjó-
menn til að ná rétti sínum og fá
lagfæringu launa sinna".
Má því búast við, að á mánudag-
inn kemur leggi um 100 hafnfirzk-
ir sjómenn á 15—16 bátum, bæði
landlegu- og útilegubátum, niður
vinnu, og stöðvást þá allur hafn-
firzki lífiuveiðiflotinn. Fundir
munu hafa verið hal'dnir í fleiri
verstöðvum í gær og má búast við
svipuðum mótmælaaðgerðum víðar
en í Hafnarfirði.
HAFÍSINN REKUR
Framnaid af 1 siðu.
fer það nokkuð eftir straumum og
vindátt. ísinn er mjög óstöðugur
og mikið á reki, og oft hefur það
komið fyrir að þótt bátarnir leggi
lóðir sínar og hvergi sjái í ís, þá
er hann kominn yfir lóðirnar eftir
3—4 tíma.
Biðskákir voru tefldar á skák-
mótinu í gærkvöldi. Gligoric vann
Friðrik í 52 leikjum, en Friðrik
vann hins vegar biðskák sína við
Jón. Þegar blaðið fór í prentiin
var enn ólokið skák Inga og
Trausta.
Tal er nú efstur með 8!í> vinn-
ing. Gligoric annar með 8 vinninga
og í þriðja sæti er Friðrik með
7!4 vinning.
Báturinn
náðist upp
HJ-Eyrarbakka, 27. janúar.
Nú er búið að ná vélbátnum
Kristjáni Guðmundssyni upp úr
f jörunni í nánd við Eyrarbakka, en
hann rak á land fyrir nokkru, eins
og menn rekur minni til. Er nú
talið öruggt, að sjór fái ekki grand
að honum.
Björgun h.f. úr Reykjavík sér
um björgun bátsins. Á föstudag-
inn hafði hann náðst upp úr fjör-
unni og var þá reynt að setja hann
upp á vagn, en vagninn. brotnaði
-UM0Rjlá.tjumi,A9kJIfilJ3Uaga hans,
og $r nú óvíst hvernig hann yerð-
úr fluttur í slipp á Eyrarbákká én
þangað er alllangur spölur.
Rætt hefur verið um að láta bát-
inn bíða um sinn, þar sem hann er
kominn, en endanleg ákvörðun hef
ur ekki verið tekin enn þá.
AKRANESSTÖÐIN
(Framhald aí 2. síðuj.
fjörð. Þá er að sjálfsögðu beint
samband við allar hinar sjálfvirku
stöðvarnar á Suðvesturlandi. —
Stöðin, sem er af nýjustu ogifull-
komnustu gerð, er framleidd í Sví
þjóð, kostar uppsett 14 milljónir
króna, en þar af er % hluti að-
flutningsgjöld er símamálastjóri
kvað hvergi tíðkast nema hér á
landi. Að lokum bauð síínamála-
stjóri öllum gestum til kaffi-
drykkju á Hótel Akranesi. Ræður
fluttu, auk sícnamálastjóra, Björg-
vin Sæmundsson, bæjarstjóri, Þór-
hallur Sæmundsson, bæjarfógeti,
og símstöðvarstjórinn Karl Helga-
son. Allir létu ræðumenn í Ijós
mikla ánægju með þessa merku
nýjung og þökkuðu símamálastj.
mikilsverða forgöngu í því mikla
hagsmunamáli Akurnesinga svo og
öðrum þeim er veitt höfðu þessari
framför brautargengi.
VILJA EKKI MISSA
Framhald af 1. sí8u.
livar borað verður í Vestmannaeyj
um, en ákveðið er að gera úrslita-
tilraun til að ná upp neyzluvatni,
áður en farið verður að hugsa
alvarlega um að leiða vatn úr
landi til Eyja. Sagði Gunnar, að
ekki væri fræðilega útilokað að
ná vatni, sennilega volgu, undan
berginu neðan sjávar. Verða bor-
aðir um 50 metrar með litlum bor,
en síðan á Norðurlandsborinn að
bora 10—1200 metra. Verður bor-
inn hlutaður sundur næstu daga
pg fluttur frá Húsavík með skipi
til Eyja. Þegar hann hefur lokið
hlutverki sínu í Eyjum, fer hann
sennilega til leitar í Eyjafirði.
ENN EIN MILLJÚN
STJÓRN Kvenfélagsins Hrings-
ins hefur á sextíu ára afmæli sínu
hinn 26. þ. m. afhent dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu eina millj-
ón króna, sem framlag til nýbygg-
ingar Landspítalans vegna barna-
deildarinnar. (Barnaspítala Hrings
ins).
Ráðuneytið hefur flutt stjórn
HVlTANES
ER KOMD
IH-Seyðisfirði, 27. janúar.
Hið nýja skip Kauphkip h.f.
Hvítanes, kom til Seyðisfjarðar í
gærkvöldi kl. 10. Hingað kom skip
ið beint frá Haugasundi í Noregi
og var farmurinn 24. þús. sfldar-
tunnur og 300 tonn af salti. Hér
losaði Hvítanes 9000 tunnur, en
fer í nótt til Reyðarfjarðar og los-
ar þar það sem eftir er af túnn-
unum. Saltið fer aftur á móti til
Keflavíkur, þar sem heimahöfn
skipsins verður. Skipstjóri og frair
kvæmdastjóri buðu bæjarstjórn
Seyðisfjarðar og fleirum gestum
um borð í skipið, sem allt er hið
glæsilegasta, og vel búið að öll-
um tækjum.
Hringsins þakkir fyrir hinn mikils
verða stuðning við þetta málefni
íyrr og síðar, en Hringurinn hefur
nú lagt fram alls átta milljónir
króna til framkvæmdanna.
Róið úr Rifi
AJ-Rifi, 27. jan.
Á SÍÐUSTU helgi hafði Skarðs-
víkin, sem gerð er út héðan á úti-
legu, lagt 6 lagnir og fengið sam-
tals 38 lestir af slægðum fiski. —
Tveir bátar róa héðan daglega. —
Hamar hefur fengið 35 lestir I
11 róðrum og Sæborg 33 lestir í 8
róðrum.
Tveir heimabátar, Tjaldur og
Arnkell eru að búa sig á netaveiði,
en hefja væntanlega ekki veiðina
fyrr en upp úr mánaðamótunum.
SKIPAUIGCRÐ RÍKISINS
Ms. Esja
fer vestur um land í hringferð
30. þ.m. Vörumóttaka í dag til
Patreksfjarðar, Sveinseyrar,
Bíldudals, Þingeyrar, Flateyr-
ar, Suðureyrar, ísafjarðar,
Siglufjarðar, Akureyrar, Húsa-
víkur og Raufarhafnar. Far-
seðlar seldir á miðvikudag.
Herjólfur
fer til Vestmannaeyja og Horna
fjarðar 29. þ.m. Vörumóttaka í
dag til Hornafjarðar.
Loftpressa
á Iraktor, til leigu.
Tökum að okkur smærri
og stærri verk.
Upplýsingar í símum
35740 og 32143
LAUGAVE6I QO-92
Stærsfa úrval bifreiða
á einum stað
Salars er örugg hjá
okkur
Innilegar þakkir faerum vlð öllum þeim, sem vottuðu okkur samúS
vi8 fráfall og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa
Eggerts Stefánssonar
frá Kleifum,
og heiðruðu minningu hans. — Guð blessi ykkur öll.
Margrét Ólafsdóttir.
Anna Eggertsdóttir. Bergsveinn Jóhannsson.
"uðrún Eggertsdóttir. Edwin Kaaber.
Stefán Eggertsson.
Sigvaldi Eggertsson.
Ragna Valgerður Eggertsdóttir
og barnabörn.
Móðir mín,
Sigríður Jónsdóttir
andaðist 22. jan. Jarðsett verður frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
30. janúar kl. 1,30.
Lilja Hjartardóttir.
Útför móður okkar,
Emilíu Kofoed-Hansen
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 29. þ. m. kl. 14,00. __
Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum.
Sigríður Eggertsdóttir.v Agnar Kofoed-Hansen.
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
Magndís Benediktsdóttir
Spitalastig 8,
andaðist í Landakotsspítala 27. þ. m.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
T í MI N N, þriðjudagur 28. janúar 1964 —
15