Tíminn - 17.03.1964, Qupperneq 2
MÁNUDAGUR, 16. marz.
NTB-Heidelberg. Sovétríkin
hafa tilkynnt, að einn af flug-
mönnunum þrem, sem skotnir
voru niður yfir A.-Þýzkalandi
fyrir 6 dögum, sé á sjúkrahúsi
í Magdeburg. Ekkert var sagt
um hina 2.
NTB-Stokkh'óLmi. — Gromy-
ko, utanríkisráðherra Sovétríkj
anna, kemur í fjögurra dagá op-
inbera heimsókn til Svíþjóðar
á morgun-
NTBMexicoborg. — Charles
de Gaulle, forseti Frakklands,
kom í kvöld í opinbera heim-
sókn til Mexico ásamt konn
sinni.
NTB-Lima. — Jarðfræðileið-
angur í frumskógum Peru bað
um hjálp í dag, en leiðangurs-
menn hafa lent í ægilegum
bardögum við Indíána. Auk
þess er hitinn steikjandi.
NTB-Dublin. — Læknarnir á
sjúkrahúsinu í Dublin telj.i
50% líkur á því, að leikrita-
skáldið Brendan Behan lifi, en
hann þjáist bæði af sykursýki
og gulusótt.
NTB-Höfðaborg. — Fjármála
ráðherra Suður-Afríku sagði i
þinginu í dag, að fjárhagur
landsins hafi verulega batnað
síðastliðið ár.
NTB-Bogota. — Stjórnar-
flokkamir tveir í Colombiu, —
sem setið hafa við völd í sex
ár, héldu meiri hlutanum í
þjóðþinginu við kosningarnar
um helgina, en töpuðu 19 þing-
sætum.
NTB-Stokkhólmi. — Fjórir
af átta föngum, sem flúðu úr
LSngholmen-fangelsinu í Stokk
hólmi, því sem Wennerström
er geymdur í, á sunnudags-
kvöldið, eru ennþá ófundnir.
NTB-New York. — Hubert
Humphrey öldungadeildarþing-
maður hefur tilkynnt, að hann
gefi ekki kost á sér sem vara-
forsetaefni demókrata, en hann
var álitinn einn þeirra, sem
helzt kæmu til greina.
NTB-Brussel. — Paul Hemv
Spaak, utanríkisráðherra Belg-
íu, fór í dag til Leopoldville til
þess að ræða við kongóska ráða
menn-
NTB-Casablanca. — Þúsund-
ir manna flúðu heimili sín í
Casablanca í Marokko í gær-
kvöldi vegna kröftugra jarð-
skjálftakippa víðs vegar um
landið.
NTB-Vientiane. — Fulltrúar
deiluaðilanna þriggja í Laos
hafa ákveðið að mætast til við
ræðna á Krukkusléttu í Mið-
Laos.
NTB-Phnompenh. — Prins
Norodom Sihanouk, æðsti mað
ur i Kambodsíu, sagði í dag, að
landið myndi halda áfram hlul-
leysisstefnu sinni þótt það tæki
upp stjórnmálasamband við N
Vietnam.
Víkingaskip, sem átti að sigla til Ameríku er
TÝNT ÚTIÁ HAFI
NTB-Belgrad, 16. marz
Eftirlíking af norsku vík-
ingaskipi, sem notað hefur
verið viS töku víkingakvik-
myndar í Júgóslavíu nýlega
hefur tínzt úti á Adriahafi,
en þaS lagSi á staS fyrir nokkr
um dögum í siglingu yfir til
Ameríku.
Fréttastofan Tanjug tilkynnti í
dag, að skipið, sem er í eigu banda
ríska fornleifafræðingsins Robert
Marks, hafi ekki sézt síðan það
VORSÝNING
HF, Reykjavík, 14. marz.
Sunnudaginn 22. marz heldur
Þjóðdansafélag Reykjavíkur vor-
sýningu í Háskólabíói. Þar mun
sýningarflokkur Þjóðdansafélags-
ins ásamt nemendum sýna þjóð-
dansa frá ýmsum löndum.
Þjóðdansafélagið er sívaxandi
félag og síðasta sumar tók það
í fyrsta skipti þátt í norrænu
þjóðdansamóti í Noregi. Þar
voru mættir fulltrúar fyrir allar
hinar norrænu þjóðir og vöktu
íslendingar mikla athygli.
Joan Krogsæter, einn helzti
framámaður norska þjóðdansafé-
lagsins, hefur nýlega skrifað grein
þar sem hann fer lofsamlegum
orðum um frammistöðu íslend-
inga á þjóðdansamótinu, síðasta
sumar. Hann segir að gaman hafi
verið að komast að raun um það,
að íslendingar ættu líka merki-
legan arf á þessu sviði sem öðrum,
og væri hann meiri en margir
hefðu haldið. Jafnframt segir
Krogsæter, að þáttur íslands í
mótinu hafi verið albezta atriðið.
lagði frá landi 10. marz s.l. í því
skyni að sanna enn einu sinni, að
hægt væri að sigla yfir Atlants-
hafið á slíku skipi. Samkvæmt á-
ætluninni átti skipið, sem hefur
vél, en engin nútíma siglingar-
tæki um borð, að koma við á
eyjunni Visi í Adriahafi á leið
sinni til Gibraltar. Þegar það
hvarf var þegar í stað farið að
leita að skipinu. Herflugvél með
blaðamönnum um borð hefur í
tvo sólarhringa leitað að bátnum,
en árangurslaust. Mikill vindur og
háar öldur hafa verið á Adria-
hafinu síðustu dagana.
Samkvæmt Belgrad-blaðinu Poli
tika Express voru sex menn um
borð í skipinu, þegar það lagði frá
landi, en fjórir aðrir áttu að koma
um borð í Lisabon. Af þessum
sex voru tveir frá Noregi, einn
Breti, tveir Júgóslavar og Banda-
ríkjamaðurinn Robert Marks, eig-
andi skipsins. Þeir eru allir á
aldrinum 20—30 ára.
Víkingaskipið, sem er 24 metrar
að lengd, átti fyrst að fara til
Lisabon, en þaðan yfir Atlants-
hafið til New York. Síðan var ætl-
unin að sigla til baka með við-
komu á Grænlandi, íslandi og
Noregi. Áhöfnin átti að lifa að
mestu leyti á sama hátt og vík-
ingarnir gerðu forðum daga.
Varð alelda á augabragði
KJ-Reykjavík, 16. marz.
UM hádegisbilið í gær kom upp
eldur í húsinu að Laufásvegi 2A,
en þar bjó Jón Heiðberg heild-
sali ásamt fjölskyldu sinni. Hús
þetta er tvílyft steinhús með tré-
gólfuin, og breiddist cld'urinn því
út með miklum hraða um allt hús-
iíl
Slökkviliðið kom á vettvang með
VERKFRÆDINCAR SENDA
ALÞINCISMÖNNUM BRÉF
JK-Reykjavík, 16. marz |
í dag sendu Verkfræðingafélag \
íslands og Stéttarfélag verkfræð-
inga þingmönnum Efri deiidar Al-1
þingis bréf, þar sem skorað er á
þá að samþykkja ekki frumvarpið
um lausn kjaradeilu verkfræðinga,
sem nú liggur fyrir Alþingi.
Bréf Verkf>-æðingafélagsins fjall
ar almennt um þau atriði í frumv.,
sem verkfræðingar hafa út á
að setja, en bréf Stéttarfélagsins
fjallar um þau atriði í frumvarp-
inu, sem snúa að verkfræðingum
í launuðum, föstum stöðum .
Félögin gagnrýna, að frumvarp-
ið rugli saman, eins og gert var í
bráðabirgðalögunum á sínum tíma
gjaldskrá verkfræðinga, sem reka
sjálfstæðar verkfræði- og teikni-
stofur, og launakjörum verkfræð-
inga í föstum störfum. Gjaldskrá
ákveður þóknun fyrir selda þjón-
ustu atvinnurekenda í faginu, en
launaskrá ákveður laun verk-
fræðinga, sem eru launþegar.
Félögin segja einnig, að tilefnis-
laust sé, að Alþingi setji lög um
gjaldskrá verkfræðinga. í fyrsta
lagi hafi gerðardómur, sem skip-
aður var samkvæmt bráðabirgða-
lögunum í ágúst í haust, lögfest
hina nýju gjaldskrá Verkfræðinga
félags íslands að mestu leyti ó-
breytta. í öðru lagi sé einsdæmi,
ef Alþingi lögbjóði gjaldskrár, og
mundi það svipta verkfræðinga-
stéttina, eina allra stétta, rétt til
setningar gjaldskrár og það um ó-
tiltekinn tíma.
Hvað snertir launakjör verk-
fræðinga, segja félögin, að frum-
varpið, sem er samhljóða bráða-
birgðalögunum frá í ágúst, séu
áníðslulög, þar sem verið sé að
svipta verkfræðinga, eina allra
stétta, samningsrétti um launa-
kjör sín, og það um óákveðinn
tíma. Einnig segja þeir, að fjar-
stæða sé, að gera láunakerfi rík-
isins að fordæmi fyrir kjörum fé-
lagsmanna Stéttarfélags verkfræð-
inga, og gera þar með kjör þeirra,
einna allra landsmanna, að afleið-
ingu af kjörum opinberra starfs-
manna.
Ýmislegt fleira hafa félögin út
á frumvarpið að setja og enda þau
bréf sín til þingmannanna með á-
skorun um, að það verði ekki sam-
þykkt.
mikinn útbúnað og liðsafla, og var
ráðizt til atlögu við eldinn á mörg
um stöðum. Mikinn reyk lagði frá
húsinu og urðu slökkviliðsmenn
að nota reykgrímur við slökkvi-
starfið. Þakið var rofið á tveim-
ui stöðum til þess að komast að
eldinum, en alls tók slökkvistarf-
ið um þrjá tíma. Eigandi hússins,
Jón Heiðberg, var í kirkju, er elds-
ins varð vart, en í húsinu voru
Eyþór, Eyþór yngri, Þórey, Sigríð-
ur, Jósep, og Valborg Heiðberg á-
samt þrem bömum Jóseps og Val-
borgar.
Fyrstar urðu eldsins varar þær
Sigríður og Þórey. Voru þær í
eldhúsinu, og opnuðu dyr inn í
stofuna. Var stofan þá alelda, en
þær freistuðu þess að komast fram
í forstofuna og í herbergi, sem
haldið var að börn væru í. Síðar
kom í ljós að svo var ekki.
Orsakir eldsvoðans eru ókunn-
ar, en húsið er mjög mikið
skemmt eftir brunann, ef ekki ó-
nýtt. Húsið var tryggt, svo sem
lög mæla fyrir, og einnig mun
innbúið hafa verið vátryggt.
Metaðsókn
GB-Reykjavík, 16- marz-
HÁLFT þriðja þúsund gesta
sótti leiksýningar Þjóðleikhússins
s 1. laugardag og sunnudag, og
mun það vera metaðsókn að sýn-
ingum leikhússins um eina helgi.
Þrjú leikrit eru sýnd þar um
þessar mundir, Gísl, Hamlet og
Mjallhvít. Síðdegissýning á Mjall
hvít var á laugardag og sunnudag
og seldust aðgöngumiðar á þær
sýningar á tæpum klukkutíma. —
Gísl var sýnt í 40. sinn á laugar-
dagskvöld fyrir fullu húsi, en að-
sókn hefur verið ágæt síðan þetta
leikrit var frumsýnt í haust. Fer
sýningum á því senn að ljúka. Og
á 26. sýningu hússins á Hamlet var
hvert sæti skipað. Æfingar standa
sem hæst á Táningaást, og verður
sá leikur frumsýndur um næstu
mánaðamót.
Á meðfylgjandi mynd sést hluti
ai biðröðinni utan við miðasöluna
s 1. laugardag.
2
T I M I N N, þrlðjudaginn 17. marz 1964.