Tíminn - 06.05.1964, Síða 15
HELMINGI MINNA KORN
Framhald af 1. síðu.
til viðbótar voru í fyrra undir
korninu, og virðist kornræktin
vera á miklu undanhaldi hjá
þeim á Stórólfsvelli.
Hjá Klemenzi á Sámsstöðum er
búið að sá í 9 hektara og tveir
eru eftir, en í fyrra var sáð í 16
hektara. — Við komumst ekki
yfir að hafa mjög mikið af korni
vegna allra rannsóknanna, sem
við erum með, en hér eru um
1000 tílraunareitir, sem miðast við
áburðarnotkun, grastegundir og
ýmislegt annað. Sáning er heldur
fyrr á ferðinni nú en í fyrra og
er meiningin að henni verði lok-
ið á Sámsstöðum 9. maí.
Vetrarbygg, sem sáð var til á
Sámsstöðum í júlí í fyrra lifði
af veturinn, og er ætlunin að
gera aðra tilraun í sumar, og
sömuleiðis verður sáð nokkru af
vctrarrúgi úti á sandinum. Vetr-
arbyggið var rúm dagslátta og
var því sáð á sandinum.'
Árni Jónasson á Skógum sagði
í dag, að 7 bændur undir Austur-
Eyjafjöllum hefðu haft með sér
kornræktarfélag síðustu 2 árin,
og yrði nú sáð hjá þeim í um
30 hektara lands, eða álíka mikið
og í fyrra. Akrarnir eru á Skóga-
sandi, Drangshlíð og Eyvindarhól-
um, en á tveim síðast nefndu
stöðunum er moldarjarðvegur, en
auk þess rækta sumir bændanna
nokkuð korn heima fyrir. Aðal-
lega hefur verið sáð byggi, tveim-
ur tegundum, herta og mariv og
svo 2 hekturum af hveiti. Árni
sagði, að kornið hefði orðið betra
úr moldarjarðveginum, það hefði
þroskazt betur í sandinum, en
öxin orðið stutt, og hefði hann
ekki mikla trú á honum.
Á Hornafirði verður sáö í um
50 hektara lands að þessu sinni,
og er sáningu víðast að verða lok-
ið þar. Aðallega er sáð byggi í
sandjörð, og er landflæmið álíka
mikið og í fyrra eða heldur meira.
Búið er að sá í um helming
kornakranna austur 9 Héraði,
samkvæmt upplýsingum frá Páli
Sigurbjörnssyni ráðunaut. Bjóst
hann við að sáð yrði í einhvers
staðar á milli 100 og 150 hektara
lands og er það svipað og í fyrra.
Uppskeran í fyrra varð um helm
ingur þess, sem búast mátti við,
en hann sagði, að veður hefði
verið svo slæmt 131 komræktar
þá, að vel hefði mátt gera sig
ánægðan með þennan árangur, og
því ekki ástæða til svartsýni. Éíin-
göngu er sáð byggi fyrir austan,
en þar skortir nú sem stendur
útsæði, og hefur það nokkuð taf-
ið fyrir sáningunni.
f Reykjadal og Ljósafellshreppi
í Suður-Þingeyjarsýslu var sáð í
um 30 hektara lands í fyrravor,
en nú er útlit fyrir, að þar verði
ekki sáð komi að þessu sinni.
Veðrátta til kornræktar var slæm
í fyrra, og spratt komið ekki, og
það sem af er vorinu, hefur ver-
ið kalt og er almennt álitið, að
ekki verði gerð tilraun á þessum
slóðum til komræktar í ár.
__ Bændur í MiklaholtsheHi í
Árnessýslu ræktuðu kom í 13 ár,
en hættu því svo fyrir tveimur
árum, og snéra sér í þess stað að
kartöfluræktinni. Einar Einarsson
bóndi sagði okkur, að komrækt-
in hefði gengið sæmilega, og kom
ið hefði þroskazt í 12 af 13 ár-
um. Venjulega hefði verið sáð í
2—6 hektara, en nokkuð misjafnt
eftir árum, og landið, sem sáð
var í, var þurrlendur holtamói.
Einar kvað landrými ekki mikið,
og hefðu þeir nú snúið sér að
kartöflurækt og keypt vélar til
hennar, og því væri ekkí líklegt,
að þeir tækju aftur að rækta korn
á næstunni, þótt skemmtilegt væri
að fást við það.
VEIÐIFÉLÖG
Frambald af 1 síðu.
um á fót, en þegar öllu væri á
botninn hvolft borguðu félögin sig
fyrir bændurna, sem að þeím
stæðu, cg tekjurnar yrðu líka al-
mennari og meiri hjá þeim sem að
þeim stæðu.
Mikill áhugi hefur verið ríkj.
andi um stofnun veiðifélags á
vatnasvæði Skjálfandafljóts, en
félagið myndi ná til 20 til 30
bænda að sögn Þorsteins Jónsson
ar, senj er formaður nefndar þeirr
ar, sem sér um undirbúninginn að
stofnun félagsins. Bæirnir eru í
þremur hreppum, Ljósavatns-
hreppi, Reykdælahreppi og sBárð
dælahreppi. Ýmsir erfiðleikar eru
á ræktun í Skjálfandafljóti, bæði
er vatnið kallt og mikið um fossa
Gera þyrfti laxastiga fljótinu og
Teikningasamkeppni
Krabbameinsfélag íslands hefir ákveðið að efna
til samkeppni um teikningar, sem nota megi til
auglýsinga gegn sígarettureykingum.
Höfundum er í sjálfsvald sett, hvort þeir nota liti
í teikningarnar eða aðeins svart og hvítt.
Tekið verður á móti teikningunum í skrifstofu fé-
lagsins, Suðurgötu 22, fram til hádegis 30.
maí n.k.
Ætlazt er til að hver teikning verði auðkennd
með sérstöku merki. Jafnframt verði lagt fram
lokað umslag með nafni höfundar í, ásamt auð-
kennismerki.
Gert er ráð fyrir að veitt verði þrenn verðlaun:
Kr.: 10.000,00, kr. 5.000,00 og kr. 2,500.00.
Krabbameinsfélag íslands.
Jörð til sölu
Jörðin Móskógar í Haganeshreppi er til sölu og
laus til ábúðar.
Upplýsingar gefur Samvinnufélag Fljótamanna,
Haganesvík.
auka vatnsmagnfð á einum staB I
svokallaðri Fossselskvfsl áður en
þess mætti vænta að lax færi að
ganga í ánna að nokkru ráði. Allt
þetta yrði kostnaðarsamt og hefur
þriggja manna nefnd með höndum
athuganir á því, hvað hægt verði
að gera í náinni framtíð.
VÍÐAVANGUR —
inn geti fengið kaup sitt, verð-
ur hann áð fá afurðimar greidd
ar. Sú greiðsla þyrfti, ef vel
væri, að geta farið fram um
leið og bóndinn lætur afurð-
imar af hendi eða sem næst
þeim tíma. Það þykiir nú á tím-
um yfirleitt nauðsynlegt, að
fólk fái kaup sitt greitt viku-
lega cða mánaðarlega. Bændur
þurfa þess með eins og aðrir
ef vel á að vera.
Sölufólag bænda hafa ekki
fé til að boirga út að fullu þær
vörur, sem ekki er búið að
selja, nema þau geti fengið það
að láni í peningastofnunum.
Að þvl þarf að vinna, að slík
lán verði veitt eins og með
þarf. Hér er ekki fatrið fram
á það, að allir bændur fái kaup
sitt gieitt vikulega eða mánað
arlega. Margir mnndu ekki fá
það nema tvisvar á ári, þó að
allar afurðir væru gireiddar við
afhendingu. Þar sem svo stend
ur á (þ. e. í sauðfjárbúskapn-
nm), er nauðsynlegt, að eitt-
hvað af afuirðalánunum sé
greitt fyrir fram, t.d. siðari
hluta vetrar eða að vorinu út
á nokkuð af væntanlegum haust
afuirðum, eins og raunar hefur
átt sér stað um nokkurt árabil,
en í of smáum stíl nú i seinni
tíð.
Þessi hluti hefur verið kall-
aður rekstrairlán. Árið 1959
voru þau, samkv. upplýsingum
sem minni hl. hefur aflað sér,
162 millj. kr. Þessum Iánum
er ætlað að gireiða fyrir fram
leiðendum sauðfjárafurða yið
kaup á kjarnfóðri, áburði,
rekstrarvörum til véla o. fl.
Þau hafa staðið óbreytt að
krónutölu síðan 1959, en verð-
mæti sauðfjárframleiðslunnar
hefur á sama tíma meir en tvö
faldazt.
Erfiðleikar bænda
Nú er svo komið, að bændur
eiga mjög erfitt með að fá fé
til áburðarkaupa á þessu vori.
Rekstrarvörarnar vaxa bæði að
magnj og verðmæti með hverju
ári, og t. d. sýna áburðarpant-
anir bænda það nú, að veirð-
mæti áburðarins muni að lík-
indum aukast um 30% á þessu
ári. Þess vegna er nauðsynlegt
að hækka rekstrarfánin veiru-
lega.
Búnaðarþing og stjórn Stétt-
arsambands bænda hafa farið
fram á, að rekstrarlánin verði
aukin í 320 millj. kr. á þessu
ári tii samræmis við aukið
magn og verðmæti afurðanna.
Fyrir nokkirum árum var það
venja að Seðlabankinn veitti
afurðalán að haustinu út á bús-
afurðir, % af verðj þeirra. Nú
lánar hann aðeins rúman helm
ing verðs, og engar reglur eru
um viðbótarlán í viðskipta
bönkum, eins og á sér stað
sambandi við sjávarafurðir
og má þó ekki minna vera. Hér
hefur því miðað aftur á bak
i seinni tíð, i stað þess að af-
urðalánin hefðu fremur þuirft
að aukast frá því, sem áður
var. Er hér um að ræða eina
af þeim breytingum, sem gerð
ar voru á viðhorfi hins opin-
bera til landbúnaðarins svo að
segja samtímis og orðið hafa
til þess að veikja fjárhagsgrund
völl hans og bændastéttarinnar
Úr þessu þarf að bæta og halda
síðan áfranr i framfaraátt, þar
sem fyrr var frá horfið.“
Frá Alþingf
Framhald af 6. síðu.
nefndir voru lagðar niður, átti
það að áliti fjármálaráðherra að
vera sparnaður fyrir ríkissjóð.
Hefur sá spamaður orðið í reynd
eða hefur hið nýja fyrirkomulag
jafnvel leitt tn svo mikils kostn-
aðar, að nauðsynlegt þykj að velta
eMtverju af honum yfir á sveitar
félögin?
Allt fram undir 1960 var sveitar
stjómum í sjálfsvald sett, hverj-
ar reglur þær notuðu við niður-
jöfnun útsvara. Kjami laga nr.
66 frá 1945 var sá, að „útsvar skal
íleggja á eftir efnum og ástæðum“
^Yfirleitt gáfust þessar reglur Vfel,
og enn þá virðist erfitt að ganga
fram hjá þeim undirstöðuatriðum,
sem í þeim felast.
THOR OG KRISTMANN
Framhald af 16. siðu.
hvort nemendur hefðu kvartað
undan stefnanda, en svöruðu þvi
neitandi og sögðu, að nemendur
væru ekki vanir að kvarta — jafn-
j vel þótt þeim ekki líki, sagði Jón
i Sigurðsson.
i f upphafi réttarhaldsins lagði
stefndi fram vottorð frá Óskari
Magnússyni .skólastjóra frá Tungu
nesi. Vottorðið var ekki lesið upp,
en mótmælt af hálfu stefnanda.
Þá gerðist það í réttinum, að lög-
fræðingur stefnanda lét orð falla
á þá leið, að dómarinn tæki leið-
beiningarskyldu sína gagnvart
stefnda of alvarlega. Einnig að
dómarinn þaggað oftar niður í sér
j og stefnanda heldur en þeim
j stefnda. Stefndi mótmælti þessu.
Afrit af fundarsamþykkt skóla-
; stjórann gegn bókmenntakynn-
! ingu stefnanda, hefur enn ekki
j verið lagt fram, en eins og tekið
• var fram í frétt um réttarhaldið á
i mánudaginn, eru það skólastjór-
j arnir, sem standa gegn því að
: þeirra eigip fundars^mþykkt verði
; ’ögð fram í réttinum!
j Næst verður þingað í máiinu
j n.k. mánudag
! ^ESTAMIÐSTÖÐ
í Framhald af 16 síðu.
j Aftur á móti eru íbúðarhús frem
ur léleg og þurfa lagíæringar með.
Eigendumir ætla sér að breyta
fjósinu ! hesthús, og þar ættu að
komast fyrir milli 60—100 hestar
yfir veturinn, en að sumarlagi
verður oeitiland fvrir 100 hesta.
Víða erlendis eru klúbbar reknir
í sambandi við hestamiðstöðvar
j sem þessa, en ekki hefur verið
ákveðið enn, hvort svo verði í
þessu r.ilfelli, en mikið þyrfti að
lagfæra áður en úr því gæti orð-
ið. Gunnar Fjelsted, sem fyrir
hlutafélaginu stendur er mikill
hestamaður og á sjálfur milli 10
—20 hesta, og mun veita miðstöð
inni forstöðu.
STÖRSLYS
Framhald af 16. siðu.
um sex, en hingað kom togarinn
upp úr hádeginu. Sjómaðurinn
var fluttur í Landakot, en skipið
hélt út aftur, eftir að hafa tekið
hér vatn.
FELLT \
Framhald af bls. 6.
1960 670 milljónir, 1961 814 millj-
ónir, 1962 914 tnilljónir, 1963 1190
milljónir og 1964 áætlaðir 1337
milljónir. Þetta eru tölur um
„tollalækkanir" ráðherrans á
undanförnum árum. Tollamir hafa
verið tvöfaldaðir. Þar við bætist
að bráðabirgðasöluskatturinn, sem
lofað var að fella niður var lög-
festur til frambúðar og sameinað-
ur verðtolli, en hann mun vera
áætlaður 550 milljónir í ár.
Heildargjaldheimta ríkisins er nú
komin á 4 þúsund milljónir en
var um 800 milljónir fyrir rúmum
4 árum. Þetta era óhrekjanlegar
staðreyndir. — Það sæti illa á ráð
herranum að vera tala um yfirboð
og undirboð Framsóknarmanna í
þessu sambandi. Eins og húsnæðis
málunum er nú komið undir stjóm
þessarar ríkisstjórnar er ekki hægt
að kalla það undirboð að leggja
til að eftirgefnir verði tollar á
byggingarefni sem svarar 35 þús.
krónum á meðalíbúð. Hér er um
algert réttlætismál að ræða, lítið
spor, sem sjálfsagt er að stíga til
að reyna að draga örlítið úr hinum
óhóflega byggingarkostnaði. —
Þá taldi Einar ástæðulaust að láta
jafn knýjandi mál og lækkun véla
tolla til frameiðsuatviijnuveganna
dragast lengur úr hönilu, þegar
verði væri að breyta og lagfæra
tollskrána.
Atkvæðagreiðsla um breytíngar
tiilögur Einars og Skúla fór eins
og fyrr er greint og frumvarptð
samþykkt samhljóða til 3. umræðu.
ovn WfÍDK
Grsnsásveg 18, sími RySverium bílana r Tectyl 1 19945 neS •
Skoðum og stillum fc fliótt og vel / dlana
DILnOlxUUUN Skúlagötu 32. Slmi 13-100
Auglýsið TÍMANUA # 1 /1
Á ÞINGPALLI
ist Ágúst einnig andvígur því að útlánin yrðu vísitölutryggð. í
bæjunum væru húsnæðismálastjórnarlánin, B-lánin, að vísn vísi-
tölutryggð, en það fjármagn væri ekki af skylduspamaðinum og
aðeins lítill hluti Iánanna. Með samþykkt tillögunnar væri Iands-
byggðinni því mismunað. Tillaga ráðherrans var samþ. gegn at-
kvæðum Framsóknarmanna.
Hjartanlega þökkum vlS auSsýnda samúS og hlýhug vlS andlát og
útför elgrnkonu minnar, móSur okkar, tengdamóSur og ömmu,
Önnu Ágústu Halldórsdóttur
Þórsgötu 6.
Einnig þökkum viS af alhug öilum þelm, er velttu henni góSa hfúkrun.
Sigurjón Gíslason,
Hanna Sigurjónsdóttir,
Halldór Sigurjónsson, Haltdóra Eliasdóttir,
Ólafur Sigurjónsson, Kristfn Magnúsdóttir,
Gísll Sigurjónsson, Wennle Schubert
Gunnar Sigurjónsson, Hildigunnur Gunnarsdóttir,
og börn.
T í MI N N, miövikudaginn 6. maf 1964
15