Tíminn - 10.05.1964, Síða 16
■■
Framsóknarfólk í verkalýðshreyfingunni:
Ráistefnaum verka-
lýðsmál á Akureyrí
Sunnudagur 10. maíl964
104. tbl.
48. árg.
Vorkalýðsmálancfnd Framsókn-
j arflokksins gengst fyrir ráðstefnu
40 BÆI
SG-Borgarnesi, 9. maí.
Um síðustu helgi var tekin í
notkun merkileg bifireið á vegum
mjólkursamlagsins. Er liér um að
ræða bíi með þrcmur geymum,
sem sækir mjólk á um 40 bæi.
Sjálfvirkur útbúnaðuir mælir
mjólkurmagnið og tekur sýnishorn
tii geria og fiturannsókna á hverj-
um stað, og er þetta fyirsti bíll
sinnar tegundar hér á landi, en
blaðið skýrði frá bílnum í haust,'
cr leið.
Fréttamaður blaðsins í Borgar-I
nesi sneri sér til Konráðs Andrés-
sonar stöðvarstjóra bifreiðastöðv-
ar K.B , en hann skipuleggur og
sér um mjólkur- og vöruflutninga
á svæðinu og spurði tíðinda af
bílnum, og fékk um leið leyfi til
þess að fara með bílnum og kynn-
ast starfi hans.
Hér er um að ræða 2ja ára Bed-
fordbíl, sem verið hefur í förum
með mjólk milli Borgarness og
Reykjavíkur, og er hann útbúinn
:? geymum, sem taka um 4800
lítra. sækir hann nú mjólk á 40
bæi í nærsveitum Borgarness, og
befur verið gerður að innvigtun-
' arbíl. Keypt hefur verið kraft-
mikil mjólkurdæla ásamt sjálf-
virkum útbúnaði, sem mælir
mjólkurmagnið og tekur prufur,
1 og eru bessi tæki fengin frá Silki-
j borg í Danmörku. Afköst dæl-
unnar eru allt að 200 1 á mínútu.
I Sagði Konráð að bifreiðin væri
stórkostleg nýjung og þarfaþing
H'ramhaio a 15 síöu
um verkalýðsmál. Verður ráðstcfn
an haldin á Hótel KEA á Akur-
eyri Iaugairdaginn 30. maí og
sunnudaginn 31. maí. Á ráðstefnu
þessari verða flutt nokkur erindi
og síðan verða fyrirspurniir og al-
mennar umræður um verkalýðs-
máiin. Ðagskráin verðuir nánar
auglýst síðar.
Gert er ráð fyrir, að leggja af
stað úr Reykjavík fyrir hádegi á
föstudag með langferðabíium, og
verður fargjaldi mjög stil'lt í hóf.
Þess er vænzt, að menn mæti sem
víðast að af landinu á ráðstefn-
unni. Allar upplýsingar er hægt
að fá á flokksskrifstofunum í
Reykjavík og á Akureyri.
Þetfa eru Lárus bílstjóri og Reynir Guðmundsson í Nýja Bæ í Bæjarsvelt fyrir aftan nýja mjólkurbílinn.
(Tímamynd-SG).
LÝÐVELDISPLATA GEFIN ÚT17. JÚNÍ
HF-Reykjavfk, 9. maí
Á 20 ára afmæli lýðveldisins,
17. júní n.k. hefur Fálkinn h.f. í
3. ára
barn
fyrir
bifreið
KJ-Reykjavík, 9. apríl.
LAUST fyrlr tólf í dag varð
þriggja ára drengur fyrir bíl
á móts viS Leifsgötu 15. —
Drengurinn, Einar Sverrir
ÞórSarson hljóp út á götuna
og í veg fyrir Mercedes Benr
bil, sem var á leið upp Leifs
götuna. Ökumaður bifreiSar-
innar náði aS snarhemla, og
koma I veg fyrir alvarlegt slys,
en eitthvaS mun Einar lltli
hafa samt meiSst. — ÞaS er
orðið daglegt brauð hér á
landi, að börn verSi fyrir bil-
um.
hyggju að gefa út Lýðveldisplötu.
Þetta verður hæggeng 33. snún-
inga plata og öðrum megin á
henni verða ræður frá Lýðveldis-
hátíðinni, en hinum megin ræður
frá Alþingishátiðinni árið 1930.
Vilhjálmur Þ. Gíslason, útvarps-
stjóri, mun kynna atriði plötunnar
og flytja formála, og Þórhallur
Vilmundarson, prófessor mun
skrifa ýtarlega greinargerð um
plötuna á umslagið, en á því verð-
ur auðvitað mynd af Þingvöllum.
Ræðumar frá Lýðveldishátíð-
inni eru allar til á segulbandi og
mun suð og annað þess háttar
verða hreinsað af þeim í RíMs-
útvarpinu. Sú hlið plötunnar hefst
með því, að Bjöm Þórðarson, þá-
verandi forsætisráðherra setur
hátíðina, Gísli Sveinsson, forseti
sameinaðs aliþingis, heldur ræðu
og lýsir yfir stofnun lýðveldisins,
Sveinn Bjömsson, ríkisstjóri, síð-
ar forseti, heldur ræðu, Brynjólf-
ur Jóhannesson, leikari les upp
fjögur erindi eftir Huldu Bjark-
lind og Jóhannes úr Kötlum les
upp ljóð eftir sig. Bæði skáldin
ortu þessi verk sín í tilefni há-
tíðarinnar.
Hinn helmingur plötunnar hefst
með því, að Tryggvi Þórhallsson,
þáverandi forsætisráðherra, setur
Alþingishátíðina, en þar sem ræða
hans var ekki til á segulbandi, les
Þórhallur Tryggvason, sonur hans,
ræðuna inn á plötuna. Síðan- held
ur Ásgeir Ásgeirsson, þáverandi
forseti sameinaðs alþingis og nú-
verandi forseti, ræðu.
Platan verður tekin upp hérna,
en gerð hjá His Master’s Voice í
London. Um svipað leyti kemur út
á vegum Fálkans önnur hæggeng
33. snúninga plata, þar sem Hall-
dór Laxness les upp úr Brekku-
kotsannál öðram megin, en Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi les upp
úr verkum sínum hinum megin á
plötuna.
Myrimanna-
skóla slitið
HF-Reykjavík, 9. maí.
KLUKKAN 9 í morgun var
Stýrimannaskólanum slitiS viö
hátíðlega athöfn. Athöfnin
hófst meS því, aS Jónas Sig-
urðsson, skólastjóri flutti
ræSu, og er Tímamynd GE hér
aS ofan tekin viS það tæki-
færi. Samtals 132 nemendur
brautskráðust úr Stýrimanna-
skólanum, 13 þeirra luku far-
mannaprófi og 74 fiskimana-
prófi, en aldrei áSur hafa jafn-
rhargir fiskimenn lokið prófi
við skólann. 9 luku minna
Framhald a 15. siðu.
Annir á Húsavík í sumar
KJ-Reykjavík, 9. maí
Á Húsavík verður töluvert um
framkvæmdir á vegum bæjarins í
sumar. Er þar heizt að nefna á-
framhaldandi borun eftir heitu
vatni, byggingu spítala, félags-
heimilis, margra íbúðarhúsa og
verbúða. Þá verður cinnig unnið
að dýpkun hafnarinnar. Blaðið
ræddi í gær við Áskel Einarsson
bæjarstjóra á Húsavík og bað
liann að segja frá helztu fram-
kvæmdum á vegum bæjarins í
sumar.
— Nú innan skamms á að fara
að bora eftir heitu vatni hér inni
í bænum, og væntum við okkur
mikils af þeim borunum, þótt
aldrei sé hægt að segja fyrirfram
hvað kemur upp úr holunum.
Frammi á hafnarstéttinni verða
i sumar reistar verbúðir fyrir 14
báta. í þeim verður aðstaða til
beitingar, geymslur fyrir útgerð-
ina og annað sem tilheyrir slík-
um verbúðum. Verbúðirnar era
steyptar í hólf og gólf á tveim
hæðum.
Unnið verður við cíýpkun hafn
arinnar hérna, og kemur dýpkun-
arskipið Grettir hingað í sumar
og verður í hálfan mánuð.
Þá verður unnið að byggingu
félagsheimilis fyrir eina milljón
króna. Tengiálma þess er þegar
fokheld, en næst er að grafa fyrir
aðalsamkomusalnum og steypa
kjallara undir hann. Félagsheim-
ilasjóður hefur ekki lagt fram
sinn hluta í byggingarkostnaðinn
enn þá, og tefur það framkvæmd-
ir við bygginguna.
Fyrir nokkru var byrjað á nýj-
um spítala, og verður unnið að
byggingu hans í sumar eftir föng-
um.
Búið er að úthluta lóðum íyrir
20 hús, og verður væntanlega byrj
að á byggingu þeirra allra í sum
ar, en það eru einstaklingar sem
byggja húsin, en bærinn sér fyr-
ir öllum nauðsynlegum leiðslum
o. þ. h. í götum.
Mikil atvinna hefur verið hér í
vetur þrátt fyrir aflaleysið, og
þar er að þakka þeim miklu fram
kvæmdum sem hér eru á döfinni.
Hafnarframkvæmdir verða hér
vonandi nokkrar á næsta ári, og
þá í beinu sambandi við kísilgúr-
verksmiðjuna sem reist verður
væntanlega við Mývatn. Verksmiðj
an mun skapa nokkra vinnu hér
á Húsavík, og horfa menn vongóð-
ir fram til þess tíma.
TANKBÍLL SÆKIR MJÚLK Á