Tíminn - 23.07.1964, Side 3
HEIMAOG HEIMAN
_____v\_
SPRINGUR ..GOLDWATER-BLADRAH"
EFTIR ÞfiJAR TIL FJÚRAR VIKUR?
Viðtal það, sem hér fer á eftir átti danskur blaðamað-
ur við þekktan bandarískan verkalýðsforingja, Joe Keen
an, formann bandaríska rafvirkjasambandsins, en hann
er nú staddur í Danmörku. Keenan heldur því fram, að
eftir svo sem þrjár til fjórar vikur, þegar kosningabar-
átta Barry Goldwaters, öldungadeildarþingmans og
Lyndon B. Johnson, núverandi forseta, er byrjuð fyrir
alvöru, muni „Goldwaterblaðran" springa, eins og hann
orðar það. En ekki má vanmeta Goldwater, bætir Keen-
an við. Sams konar kringumstæður eru grundvöllur
velgengni hans og Hitlers, það er alltaf hættulegt, þegar
gervihershöfðingi vill slá sig til riddara í sambandi við
hernaðarmálefni.
ÞaB er rétt að taka það fram
í upphafi, að ummæli Keenans
eru ekki spádómar út í blá-
inn, heldur byggjast þau á mik
illi reynslu og þekkingu á
bandarískum stjórnmálum.
Þessa þekkimgu hefur Keenan
ekki einungis öðlazt vegna
starfs sfns innan verkalýðshreyf
inga heldur í samstarfi við og
baráttu fyrir fjóra forsetafram
bjóðendur demókrataflokksins
í forsetakosningum í Bandaríkj
unum. Lyndon B. Johnson var
fjórði forsetaframbjóðandinn,
sem Keenan vann fyrir við
skipulagningu kosningabarátt-
unnar. T.d. þegar John F. kenn
edy var í framboði ferðaðist
Keenan með honum um þver
og endilöng Bandaríkin í kosn
ingaharáttunni.
Að loknum þessum formála
hefur hinn danski blaðamaður
samtalið:
Þegar imaður situr augliti til
auglitis við svo fróðan og kunn
ugan mann liggur fyrst fyrir .
að bera upp við hann hina
brennandi spurningu, sem er á
vörum flestra hugsandi Evrópu
manna síðustu dagana. Hver
er grundvöllur hins góða árang
urs og frama Goldwaters?
Hvernig gat þetta átt sér
stað? Eru Bandaríkjamenn al-
veg gengnir af vitinu?
— Ekki er það svo, segir
Keenan. En óstöðugleiki og ó-
rói í þjóðfélaginu hefur hjálp-
að Goldwater á sama hátt og
Hitler á sínum tíma. Negraof
só'knirnar í suðurríkjum Banda
ríkjanna hafa orðið til þess,
að þúsundir blökkumanna hafa
flúið til borga í norðurríkjun-
um. Þessar borgir voru hins
vegar ekki viðbúnar slíkri inn-
rás.
Þar skorti bæði húsnæði og
atvinnu handa innflytjendun-
um. f örvæntingu sinni leidd-
ust margir inn á glæpabrautir
og það skapaði andúð á þeim
Ennfremur áttu suðurríkja-
mennirnir erfitt með að laga
sig eftir hinum breyttu aðstæð-
um. Þeir voru fæddir til að
búa þar syðra, og áttu i erfið
leikum með að venjast breyttu
loftslagi og lifnaðarháttum. Eft
ir að borgararéttindalögin
höfðu verið samþykkt, urðu
margir Bandaríkjamenn, burt
séð frá flok'kslégum sjónarmið
um eða þjóðfélagslegucn, ósjálf
rátt hræddir um, að með hinni
nýju löggjöf yrði réttur negr-
anna all.t í einu of mikill.
Þetta hafði í för með sér að
bandarískir borgarar vildu hálf
partinn kippa að sér hendinni
og ný andstaða myndaðist gegn
lögunum og svertingjunum.
Þessa nýju afstöðu notfærði
Goldwater sér í hatursbaráttu
sinni. Eins og Hitler notaði Gyð
inga notar Goldwater nú svert
ingjana.
Kringumstæður Goldwaters
eru og á margan hátt jafn hag
stæðar og þær voru Hitler. f
Bandaríkjunum hefur ríkt al-
varlegt atvinnuleysi og liggur
nærri, að þar séu nú um 5
milljónir atvinnuleysingja, eða
5.5% þjóðarinnar. Ef til vill
er þessi tala þó of há. Myndin
breytist, þegar litið er til þess,
að einungis 2.9% kvæntra
manna eru atvinnulausir, en
hins vegar 14% meðal hinna
yngri, sem að sjálfsögðu eru
áhrifagjarnari og auðveldari
bráð pólitískum áróðri.
Og enn má halda áfram lík-
ingu ástandsins nú í Bandaríkj
unum og í þriðja ríkinu, og
nefna fátæktina. í Bandaríkj-
unum eru um 15—20 milljónir
vanmegandi manna, en í landi
bifreiðanna er með því átt við
menn, sem ekki hafa á eigin
spýtur ráð á að 'kaupa sér bif-
reið. í rauninni er velmegunin
mjög mismunandi í Bandaríkj-
unum.
— En hver er orsök atvinnu
leysisins?
— Meðal annars sú, að ekki
er tekið tillit til mannlegra sjón
armiða í atvinnuskipulagning-
unni. Stórt fyrirtæki stöðvar
kannski starfsemi sína í hálfan
mánuð til að koma fyrir sjálf-
virkum vélum. Þegar svo verka
mennirnir mæta að nýju á
vinnustað er ef til vill ekki at-
vinna handa nema 2—3%
þeirra. Á þennan hátt leggjast
niður stöður um einnar millj
ón manna. f hverri viku er
þess 'krafizt af okkur að við
finnucn nýtt starf handa 8000
manns. T. d. misstu yfir 50.
000 kyndarar atvinnu sína, þeg
ar rafmagnsjárnbrautirnar
voru teknar í notkun.
— Goldwater heldur því
fram, að atvinnuleysi sé refs
ing Guðs yfir þeim Iötu, er
ekki svo?
— Eg er þeirrar skoðunar,
að ef við gætum bætt kjör
hinna 15—20 milljón vanmeg-
andi manna, sem ég hef nefnt
svo, þannig að þeir hefðu ráð
á að kaupa sér bíl, sjónvarp,
ísskáp, byggja hús o. s. frv., þ.
e. a. s. ef hægt væri að gera
þá að venjulegum neytanda í
þjóðfélaginu, myndi það auka
framleiðsluna svo mikið, að
hægt yrði að draga úr atvinnu
leysinu.
Þess vegna eru aðalkröfur
okkar hærri laun.
í væntanlegum samningavið
ræðum krefjumst við þess, að
lágmarkslaun verði hækkuð í
2 dollara fyrir klukkustundina,
að meðalvinnuvika verði 35
klukkustundir og öll yfirvinna
verði greidd með tvöföldu
kaupi. Auk þess krefjumst við
þess, að tillit verði tekið til
fleiri atriða en nú er við end
urskipulagningu atvinnuveg-
anna og skiptingu þjóðartekna.
Gagnvart þessum kröfum stend
ur Goldwater, sem óskar þess,
að verkalýðsfélögin verði
svipt öllu valdi og áhrifum.
— Hverja teljið þér mögu-
leika Goldwaters á að verða
forseti?
— Eg tel, að þeir séu ekki
miklir. Hins vegar verða menn
að vara sig á að vanmeta hann
ekki. Allir vanmátu hann í
upphafi og Gailup-kannanir
töldu hann vonlausan
Þetta hefur e. t. v. orðið til
þess, að hann einbeitti sér
fyrst og fremst að fulltrúunum
á flokksþinginu þar sem hann
vai kjörinn. Andstæðingar
hans eru samt sem áður að
sækja í sig veðrið Þrjú stór
verkalýðssambönd, gleriðnaðar
manna, trésmiða og verzlunar-
og skrifstofufólks hafa lýst því
yfir, að þau muni styðja John
son. Kröfur um þjóðfélagsleg
ar umbætur, sem tryggja eiga
framfarir, 'koma einmitt fram
innan verkalýðsfélaganna og
eru framkvæmdar þar. Þess
vegna verðum við að standa
saman bæði vegna sjálfra okk-
ar og alls heimsins.
— Myndi Goldwater virki-
lega fara í stríð, ef hann
ynni kosningarnar?
— Eg trúi ekki, að hann
muni beinlínis lýsa yfir stríði,
en hann mun fara eins tæpt
og hægt er. Öfl innan flokks
ins mundu væntanlega leggja
nokkurt haft á hann. Hvorki
Eisenhower né Rockefeller eru
hlynntir styrjöld Stríð kost
ar aukin hernaðarútgjöld og
fjárveitingarvaldið hefur þar
síðasta orðið. Hervaldinu hef-
ur aldrei tekizt að ríkja í
bandarískum stjórnmálum. jafn
vel ekki á tímum Eisenhowers.
— Eru öfl á bak við Gold-
water, sem óska eftir styrjöld,
sem eins konar fjárfestingu?
— Eg veit, að margir líta
svona á stórkapítalið í Banda
ríkjunum, en ég hefi ekki heyrt
um það. Mikill hluti fjármagns
ins er dreifður um allan heim
og ég er hræddur um, að ein-
angrunarstefna Goldwaters í
þessum efnum eigi fáa formæl
endur. Ameríka getur ekki lif
að út af fyrir sig í heimi nú-
tímans. Ef Goldwater tækist að
koma Bandaríkjunum út úr
Sameinuðu þjóðunum stæði
landið opið og einsamalt. Síð
asta Gallup-könnun sýndi, að
25% fylgdu Goldwater. Sú
tala má hækka í 35%, án þess
að menn þurfi að óttast að
Framhalo á 13 slðu
Á VÍÐAVANGi
íslendingsdagur
í Mogga og Vísi
Segja mótti, að jólin bæri
upip á páskana fyrir íslendingi,
blaði íhaldsin-s á Akureyri i
gær, og heldur en ekki hafi
hækkað hagur Strympu, þegar
YFIRBLÖÐIN bæði, Moggi og
Vísir, prentuðu sama daginn
sömu skammiirnar um Fram-
sóknarflokkimn upp úr íslend-
ingi og smjöttuðu á, og höfðu
lítið annað um stjórnmál að
segja þann- daginn. Má því með
sanni segja, að íslendingur
hafi verið aðalmálgagin stjórn-
arinnar í gær. Að vísu eru
skammi.r jslendings nákvæ**.
lega sama tóbakið, og Vísir og
Moggi hafa borið á borð í sí-
byiju síðustu vikur, en fslend-
ingur má vel við una forystu-
hlutverki'ð fyrir því
Ritstjórar Vísis og Mogga
mættu minnast gamals heil-
ræðis, sem aldinn ritstjóri
Mogga gaf nýjum ritstjóra fyr-
ir löngu, en það var á þessa
leið: „En fyrst og síðast ætla
ég að minna þi.g á það, að gæta
þess, þegar þú ferð að tína upp
úir Vísi á mánudagsmorgnum,t'il
þess að endurprenta í Mogga,
að ganga þá fram hjá því, sem
Vísir hefur tekið úr Mbl. á
laugardaginn". Þrátt fyirir
þessa sígildu áininningu virðist
slysið hafa skeð — og nú á fs-
Iendingur næst leikinn að
prenta gömlu skammirnar um
Framsókn upp úr Vísi og
Mogga — og svo þeir aftur.
Hringrásin er örugg og auð-
veldasti málflutningurinn.
Mogginn gerir sér
mat úr því
Um þessar mundir eru all-
margar barnafjölskyldur að
flytja úr bröggum og öðru ó-
hæfu húsnæði í nýjar íbúðir
sem Reykjavíkurbær hefur
byggt. Er gott til þess að hugsa
og vel þess vert, að eftir því
sé tekið. En heldur eir óviður-
kvæmilegt, hvernig Morgun-
blaðið reynir að gera sér póli-
tískan mat úr þessu. Hann hef-
ur dögum saman sent blaða-
menn og ljósmyndara á vett-
vang til þess að afla vitnís-
burða fólksins uir. þessar dá-
semdir, og er óspart gefið í
skyn og jafnvel hampað, að
þetta sé aðeins dásemdar-
verk og björgunarstarf Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavfk.
Þessu er sjálfsagt að fagna, en
eigi að síður rétt að minua
íhaldið á, að svo löng og ljót
er úrræðaleysissaga íhaldsins
við útrýmingu braggaíbúð-
anna orðin, a'ð ekki fer vel á
því að ofmetnast af aðgerðun-
um núna. Að þessum málum
hefði þurft að vinna fyrr og
miklu betur.
"-TflBIIMMWTT-"
2—3 herbergja íbúð óskast
til leigu, helzt nálægt Land-
spítalanum. Þarf ekki að
vera laus fyrr en 1. okt. —
Upplýsingar í sima 11895
T í M I N N, fimmtudagur 23. fúlí 1964.
3