Tíminn - 23.07.1964, Side 8
Velm-egun, góðæri eða hvað
menn vilja nú kalla mikil fjár
ráð, gerir vart við sig með
ýmsu móti. Hins fjármunalega
góðæris gætir jafnvel á þjóð-
vegunum. Enginn taki orð mín
svo, að þeir hafi batnað. Þeir
eru alveg eins í ár og þeir hafa
verið, nema að nú eru kerru-
slóðimar horfnar að mestu á
aðalleiðum, og á stöku stað sér
maður að verið er að gera einn
hlykk í stað fjögurra áður og
kannski verið að smíða brú
af því tilefni. Maður vonar bara
að brúin sé ekki gerð eftir svo
gamalfi teikningu, að hún verði
helmingi mjórri en vegurinn
sem'að henni liggur, eins og
fór fyrir þeim vísu herrum und
ir Hafnarfjalli forðum daga
með þeim árangri að þar hafa
menn á vörubílum oft orðið að
skilja eftir hásingar bíla sinna.
jafnvel þótt þeir væru ekki að
flýta sér. Góðærið á vegunum
er fyrst og fremst fólgið í þeim
fjölda bíla, sem þar eru stöð-
ugt á ferð í einkaerindum. Upp
úr siðasta stríði voru slíkar
ferðir leystar þannig, að fólk
fékk sér leigubíl eða ferðaðist
í rútu. Þurfi mikinn hraða að
hafa á ferðum, fá menn sér ein
faldlega flugvél, eins og dæmi
eru um nú síðustu sumur, er
síldveiðimenn vilja skreppa
heim til sín meðan bræla er á
miðunum. AlLt eru þetta hættir
milljónamæringa, og gott á með
an það helzt.
Undirritaður fór norður nú
fyrir skömmu, og er það ekki
frásagnarvert. En sá sem hefur
löngum farið um þennan veg
á misjafnri tíð, tekur eftir ýms
um skemmtilegum breytingum
í ferðaháttum manna og
kvenna. og öðrum óskemmti-
legum, eins og t. d. þeirri, að
nú virðist vera um fjölda öku-
manna að ræða sem ekki kunna
einföldustu akstursreglur: vita
ekki hvériær þarf að vlkja og
hvernig; þekkja ekki til inn-
skotinna ræsa, eru kanthrædd-
ir fram úr hófi og yfirleitt slík
ar beljur á vegi. að þeir hafa
varla náð betra bílprófi en sá
ágæti nytjagripur mundi ná ef
reynt væri. Það getur orðið
erfitt og reynt á þolinmæðina,
að þurfa alltaf að vera að víkja
fyrir báða, ef bíll kemur á móti.
Og hafi maður útvarpið opið.
meðan stendur á baráttu við
gjörsamlega klumsa ökumann.
dynur á manni í útvarpinu
álíka gáfuleg aðvörun og sú,
að menn verði að stíga varlega
á benzíngjöfina. Nær væri að
auglýsa: lærið að stýra áður
en þið farið i ferðalagið.
Þessi vandkvæði mundu ekki
vera fyrir hendi, ef hér væru
ekki malarvegir með lausum
og gLæfralegum köntum, og svo
þröngir, að óvönum kann að
blöskra, komi bíll á móti þeim.
Sjálfsagt mundu jafnvel stirð-
ustu ökumenn aka án erfið-
leika á tvíbreiðum vegum. En
eitthvað þarf að bíða eftir þeim.
þótt aðalleiðin milli Reykja
víkur og Akureyrar sé nú orðin
svo fjölfarin flesta mánuði árs
ins, að nauðsynlegt er að fara
að hrinda breikkun og slitlags-
gerð í framkvæmd . á þeirri
leið. Það tókst að leggja'mikið; •
af vegum á skömmum tíma.eft'.
ir að jarðýturnar komu til sög
unnar í síðustu heimsstyrjöld.
en auðvitað má ekki stanza við
malarvegina. Þeir voru lagðir
af miklum stórhug á erfiðum
árum fyrir stríð, svo að segja
af mannshöndinni einni, og
hafðar kerrur til aðflutninga.
eins og t. d. á Holtavörðuheiði.
Miðað við það átak, ætti að
vera auðvelt að fara að byrja
á endurbótunum a. m. k. héðan
úr Reykjavík og upp í Borgar-
fjörðinn og héðan og austur að
Selfossi. Góður vegur borgar sig
fljótt í minni eyðileggingu á
bílúm og lengri notkunaraldri
þeirra, fyrir utan mannslif og
meiðsl, sem aldrei verða reikn
uð til verðs, en laust slitlag
malarvegarins verður að skrif-
ast fyrir. En þetta er allt gömul
saga og augljós. Hinu væri gott
að fá úr skorið, hvort ráða-
rnenn vegamála telji að vegar-
lagningu á íslandi sé lokið með
malarvegunum, og t. d. hvort
við eigum að verða aftaníossar
svörtustu Afríku í vegagerð.
í rauninni er mikil kúnst að
aka á fjölförnum malarvegi,
sem oftast er allur í holum. Séð
úr lofti getur þetta verið falleg
asti. yegur og breiður, en þeg-
ar' á að fára áð aka hann kem-
. ur tihsögtlririar sú mikla list að
þræða. Þræðingin er slíkt ná
kvæmnisverk. að ökumenn geta
ekki haft augun af veginum
andartak. Þeim sem ekki er
gefið að þræða verða að gjöra
svo vel og hossast liðlangan
daginn, nema í þeim tilfellum.
þegar þeir slysast fram hjá
holu.
YfirLeitt er ástand veganna
þannig. að þeir sem á annað
borð vilja verja bílinn áföll-
um með því að þræða, hafa að
iafnaði svæði til umráða undir
hjólin, sem svarar því að þeir
ækju á smurstöðvarlyftum og
stundum ekki öðru en mjóum
plönkum. Og stundutn er ekk
ert að þræða, aðeins tómar hol
ur að fara, og þannig er það
víða á leiðinni norður, einkum
á ræsum, þar sem þrætt hefur
verið út á yztu brúnir og engin
rönd er eftir.
Fólkið á þjóðveginum er eins
mismunandi og holurnar eru
margar, sem það ekur yfir.
Víða eru heilar fjölskyldur á
ferðinni og þegar kvöldar er
t.ialdað við veginn, gjarnan þar
sem stutt er til lækjar. Það hef
ur verið venja mannsins frá
ómuna tíð að velja sér bólstað
hjá læk. og þessi regla er svo
náttúruleg. að maðurinn af as
faltinu er kciminn í náttstað
þega hann sér læk að kvöldi
Það sést einnig á þjóðveginum
að nú eru sumarsíldveiðar fyr
ir norðan. Á veginum er mikið
af ungum konum, sem aka ein
ar í bílum sínum og staðnæm
ast ekki fyrr en í einhverri síJd
arstöðinni nyrðra eða á Aust
urlandi Þær eru á leið til að
hitta menn sína er hafa langa
útivist i síldinni og eru ekki á
því að taka flugvélar á leigu
Fyrir tuttugu árum þóttu tíð
indi ef sást til konu akandi í
langreisu. en nú finnst engum
neitt til um það þótt síldar-
Kappreiðar og góðhestakeppni Stíganéa
GÓ-Sauðárkróki. Stíganda, Skagafirði (þær 20. frá Keppt var i eftirfarandi hlaupum:
HINAR árlegu Jkappreiðar og góð-1 byrjun) voru háðar á Vallarbökk j Folahlaup 250 m.
hestakeppni Hestamannafélagsins I um sunnudaginn 19. júlí s. 1. — Fyrstur varð Faxi. Eig. Stefán
SVEINN GUÐMUNDSSON á Flugu.
Hrólfsson, Keldulandi á 20,9 sek.
Annar varð Höttur. Eig. Þorkell
Sigurðsson, 21,0 sek. Þriðji varð
Faxi. Eig. Ásdís Sigurjónsdóttir.
Skörðugili 21,1 sek.
300 m. hlaup:
Fyrstur varð Bliki, Kristjáns
Gunnarssonar, Varmalæk á 24,3
sek. Annar varð Svarti-Skjóni.
Stefáns Hrólfssonar. Keldulandi á
24,8 sek.
350 m. hlaup:
Þar varð fyrstur Léttfeti Eig.
Jón Gíslason. Sauðárkróki á 28,5
sek. Annar varð Hörður. Eig. Bene
dikt Pétursson. Vatnsskarði á 28,5
sek. — Sjónarmunur á hestunum
‘ði verðlaunum.
í 300 m. og 350 m. hlaupunum
náði enginn hestur tilskildum tíma
Ji! fyrstu verðlauna
A skeiði kepptu 6 hestar, að-
eins einn þeirra, Ófeigur, Péturs
Sigfússonar, Álftagerði lá á skeið-
inu allan sprettinn. en náði ekki
j tilskildum tíma til verðlauna
T góðhestakeppnina mættu 12
hross til leiks. Beztan dóm og
fyrstu verðlaun af alhliða góðhross
um hlaut Fluga Sveins Guðmunds
sonar, Sauðárkróki verðlaun silf-
urskeifa sem vinnst til eignar og
bikar, sem er farandgripur.
f Nr. 2 í góðhrossakeppninni
varð Hrönn. Brodda Björnssonar,
Framnesi en nr. 3 varð Gustur
Páls Ólafssonar, Starrastöðum.
Af klárhestum með tölti varð nr.
1 Snarfari Jósafats Felixsonar,
Húsey. Verðlaun voru silfurbúið
drykkjarhorn. farandgripur. annar
varð SiJfurtoppur Halldór= Sig-
urðssonar, Stokkhólma, þriðji
Sleipnir Friðriks Stefánssonar.
Veður var hið fegursta þen.nan
dag og mikill mannfjöldi sótti
samkomuna sem fór hið bezta
fram.
T í M I N N, flmmtudsgur 23. )úK 1264. —
h