Tíminn - 23.08.1964, Side 3
í SPEGLITÍMANS
Ursula Andress leikur um
þessar mundir í kvikmynd, ,£em
Hammersimth Seven Arts
er
að láta taka í London, og kall-
ast kvikmyndin „Hún“. Á
MYNDINNI sjáum við Ursulu
ásamt meðleikara henaiar í
kvikmyndinni, áður óþekktum
leikara, sem John Ricliardson
heitir.
*
Minni hinnar öldnu kvík-
myndasljörnu Bette Davis er
augsýnilega ekki í sem beztu
lagi. í minningum sínum „Ein
mana líf“, segir hún m. a. frá
sjálfsmorði einnar vinkonu
sinnar, Claudía Dells. Og nú
hefur frú Dells, sem ennþá lifir
góðu lífi, höfðað mál á hend
ur kvikmyndastjörnunni.
★
Einn hinna vinsælu „bobb-
ya“, þ. e. lögreglumanna, í
London, P. C. Heáth, hefur
fengið viðurnefnið „Salomon
konungur".
Hánn fékk þetta nafn á
Leicester Square nýlega, en
það vakti athygli hversu fljótt
og auðveldlega honum tókst að
ráða þar harða deilu.
Tveir bílstjórar komu hver
á móti öðrum og ætluðu báðir
að leggja bíl sínum í sama bíla
stæðið, sem jafnframt var
hið eina, sem laust var. Hvorug
ur vildi víkja, og öll umferð
stöðvaðist. Heath kom þarna
að, og hvað átti hann nú að
gera? — Hann var ekki lengi
að finna lausnina. Hann gekk
til bílstjóranna tveggja og
sagði: — „Við köstum upp um
þetta, drengir. Fram með pen
inginn!“ Þeir sættust þegar á
þetta, sigurvegarinn fékk bíla
stæðið, en sá, sem tapaði, ók
ánægður á braut og veifaði til
lögreglumannsins um leið. —
„Hann er betri en Salomon
konungur" — sagði einn bíl-
stjórinn, og þar með hafði
Heath fengið nýtt nafn.
Ferðalög vestrænna manna
til austantjaldslandanna eru
alltaf að aukast. Samkvæmt
upplýsingum þeim, sem Janos
Kadgr, forsætisráðherra Ung-
verjalands, gefur í blaðinu
„Figyeloe" í Búdapest, er búizt
við að erlendir ferðamenn gefi
landínu um 300 milljónir í er-
lendum gjaldeyri þetta árið. Og
búizt er við mikilli aukningu
næstu árin. M. a. á að reisa 19
ný hótel með 10.000 rúmum í
Búdapest og við Balaton-vatnið.
★
Ný alda gengur yfir Banda-
ríkin þessa dagana. Ungar
stúlkur gera nú hvað þær geta
til þess að setja ný met í að
svippa! Sem stenchir segjast
þrjár stúlkur í Oxnard í Kali-
forníu eiga metið, því að þær
hafa saman svippað stanzlaust
í 11 klukkustundir og 30 mín-
útur.
Dóttir danska dómsmálaráð-
herrans, Hans Hækkerups, trú-
lofaðist nýlega bandarískum
froskmanni, Ross Smith að
nafni, og fékk samstundis mik-
inn áhuga á froskmennsku. Þau
dvelja um þessar mundir í
Eilat í ísrael, og á MYNDINNI
t.v. sjást þau saman fyrir fram-
am hótelið, en t.v. sést Eva
Hækkerup í fullum herklæðum
á leið í hafið.
Hátíðanefnd brezkra námu-
verkamanna reið á vaðið í Bret
landi síðast liðinn sunnudag
og hélt fyrstu fegurðarsam-
keppni kvenna í topplausum
klæðnaði! Fegurðardísirnar
gengu út á 50 feta langan pall
við Langold Lake rétt hjá
Worksop og 14.000 námu-
verkamenn frá Notthingham og
Yorkshire komu ásamt konum
sínum og börnum til þess að
horfa á dýrðina. Hátíðarnefnd
in átti í miklum erfiðleikum
með að finna dómara, því að
enginn karlmaður vildi gefa
kost á sér, svo að nefndin varð
að lokum að fá konu í dómara
embættið. Sigurvegarinn hlaut
síðan titilinn: Drottning hinna
topplausu!
Amor hefur ekkí verið iðju-
laus í menntaskólanum í Wey
mouth, Dorset í Englandi, held
ur ráðizt af hörku mikilli á
kennaralið skólans. Landa
fræðikennarinn, Jack Morgan,
kvæntist leikfimikennaran
um, Edith Snell. Trúarbragða
kennarinn, John Clark kvænt-
ist stærðfræðikennaranum
Anne Knight. Og síðan skelltu
sögukennarinn Ralph Painter,
og vísindakennarinn, Diane
Champniss, sér í það heilaga.
Geri aðrir skólar betur!
★
Þrír þekktustu blaðamenn
Lundúna, Monica Furlong,
Olga Franklin og Bernard Lev-
in, hafa myndað með sér sam
tök, sem hafa það takmark að
útrýma The Beatles. Félags-
skapur þessi kallast FFL, eftir
fyrsta bókstafnum í ættarnöfn
um þeirra þremenninganna.
Þau segja hafa liðið nógu
lengi undir þessari landplágu,
og nú sé kominn tími til þess
að kveða ,,drauginn“ niður.
En það verður ekki létt
verk. Bítlarnir eru ekki að-
eins óhemju vinsælir, heldur
hafa þeir einnig sterka formæl-
endur meðal ráðamanna í Bret
landi. Brezka blaðið „Time“ er
á þeirra bandi, konungsfjöl-
skyldan einnig, með Philip
prins fremstan í fylkingu, og
margir háttsettir menn innan
kirkjunnar eru þeim eínnig
hlýnntir, því að þeir segja, að
æskan gæti fengið langtum
verri hetjur til að tilbiðja, en
Bítlana. En blaðamennirn-
ir hafa einnig fengið marga
stuðningsmenn, m. a. hinn
fræga Noel Coward.
Á mánudaginn hefst flokks- strönd rétt fyrir neðan- fundar- og er 22 ára gamall nemandi í
þing bandaríska demókrata- húsið. Stúlkan, sem heldur á University of Indiana. Hún
flokksins í Atlantic City. áróðursspjaldi fyrir Johnson ætlar bæði að vera viðstödd
MYNDIN er tekin á sa«id- forseta, heitir Sacha Ordway flokksþingið og njóta sólar
Bandaríska söngkonau Con-
nie Franeis, 26 ára, hetur gift
sig í fyrsta sinn og sÉst hún
hér á MYNDINNI ás-anU brúð-
.....
arkökucmi og hinum hamingju
sama, Richard Kanellis. Hann
er 33 ára gamall, og er þetta
annað hjónaband hans.
J
'TÍMINN, sunnudaginn 23. ágúst 1964 —