Tíminn - 23.08.1964, Blaðsíða 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Flelgason og Indriði
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson Frétta
stjóri: Jónas Krisijánsson Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson
Ritstjórnarskrifstofur I Eddu-húsinu. símar 18300—18305 Skril-
stofur Bankastr 7 Afgr.simi 12323 Augl. simi 19523 Aðrai
skrifstofur, sími 18300 Áskriftargjald kr 90,00 á mán innan-
landk — í lausasölu kr. 5,00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
Fleiri héraðsskóla
Þær fregnir hafa borizt, aS Norður-Þingeyingar hafi
1 hyggju að vinda þegar bug að því á þessu hausti að
hefja starf héraðsskóla í Skúlagarði í Kelduhverfi. Hér er
um myndarlegt átak að ræða, og hafa heimamenn þar
alla forustu, en ríkið, sem tekur æ meira við rekstri
héraðsskólanna á þar lítinn. hlut að enn. Þess er að
vænta, að myndarlega verði tekið á þessu máli af hálfu
Alþingis með heimamönnum.
En því er á þetta drepið hér, að það minnir á, að
brýn þörf er nú á því að byggja nokkra nýja héraðs-
skóla hið bráðasta í skólalausum héruðum. Héraðsskól-
ar þeir, sem fyrir eru, eru allir meira en fullskipaðir, og
unga fólkið bíður eftir skólavist eða verður að sækja
hana í önnur héruð, þó að það vildi helzt njóta skóla-
vistar í heimahéraði. Á síðustu árum hafa engir nýir
héraðsskólar verið reistir, og viðbætur við hina eldri
ekki nægar. Skagfirðingar, Eyfirðingar og Skaftfelling-
ar, svo að einhverjir séu nefndir, bíða eftir sínum
héraðsskólum, og eins mun ástatt um fleiri héruð. Á
næstu árum verður að gera myndarlegt átak í héraðs-
skólamálunum. Framsóknarmenn hafa flutt tillögur am
úrbætur í héraðsskólamálum og byggingu nýrra skóla,
en stjórnarvöld landsins þessi árin vilja fremur að
ðöru hyggja.
Ein syndajátningin enn
Morgunblaðið játar nú skattpíningarsyndir sínar og
stjórnarinnar svo að segja daglega. Ein syndajátningin
í gær hljóðaði á þessa leið: „Almennmgur gerir sér loks
grein fyrir því, að við erum komin oflangt á braut
ríkisafskipta og skatheimtu."
Þetta er feimnislega orðað. Það er langt síðan aimenn
ingur gerði sér grein fyrir þessu, en ríkisstjórnin læt.ur
nú loks undan sígaa fyrir þunga almenningsálitsins
og læzt hafa framið afbrotið óvart. Skattpíning þessarar
ríkisstjórnar er orðin mesta syndafall af því tagi síðan
landið fékk sjálfstæði. Á fimm árum hafa óbeinir skattar
verið þrefaldaðir, og loks var allt kórónað með ranglætis-
breýtingum á lögunum um beina skatta s. 1. vetur, þar
sem skattbyrðum stórgróðamannanna var að verulegu
leyti velt yfir á meðaltekjumenn þjóðrfélagsins Skatt-
svik eru ill, og rétt að koma í veg fyrir þau með hörðu
eftirliti. En gott skattaeftirlit kemur ekki að haldi til
lagfæringar á þeim skattsvikum, sem ranglát íhaids-
stjórn hefur lögverndað eins og gert var s. 1 vetur.
Spurningin er því sú, hvort iðrun íhaldsins sé svo mikil,
að hún dugi til þess að þeim byrðum verði aftur lyft á
herðar stórgróða- og stóreignamanna, sem réttmætt er
að þeir beri. Um það spyr þjóðin.
Hljóður ráðherra
Gunnar fjármálaráðherra var ekki pennalantu.r í vor,
þegar hann var að lýsa hinum „stórkostlegu“ skattalækk-
unum, sem hann væri að koma á með síðustu brevtingum
á skattalögunum. Þá skorti ekki faguryrði í stórletruðum
greinum í Vísi. Nú er „skattalækkunin" komin til fram-
kvæmda, og fjármálaráðherra ætti að geta tekið við sig-
urlaununum. En nú birtist sjaldan mynd af honum í Vísi.
engin grein um stórkostlega skattalækkun. Fjármálaráð
herrann er hljóður þessa dagana og sinnir því engu. bó
að hann sé kallaður fram á sviðið að lokinni þessari ein-
stæðu leiksýningu hans.
| Walfer Lippmann ritar um alþjóðamál!"*®*"""™’"" 1 . “ “
Kynþáttajafnrétti verður ekki
kveðið niður með ofbeldisverkum
Forsetakosningarnar í Bandaríkpnum í hausf munu snúast um kynþátítí
málin “yrst og fremsf.
ENDA þótt kynþáttaátökin
séu einhver hin veigamestu í
væntanlegri kosningabaráttu,
er ekki enn búið að kveða upp
úr um ágreininginn milli fram
bjóðendanna og flokksstjórn
anna. Öllum er auðvitað ljóst,
að republikanarnir að baki
Goldwaters vonast eftir að fá
atkvæði allra þeirra, sem eru
andstæðir jafnréttinu og yfir-
leitt á móti uppsteit negranna
eins og hann leggur sig. Öllum
er einnig ljóst, að demokratar
Johnsons forseta reikna með
atkvæðum negranna og þeirra
hvítu manna, sem aðhyllast
jafnréttið í mismunandi mæli
og mismunandi ört.
En sá, sem les samþykktir
fundar Republikana í San
Francisco eða ræður frambjóð
andanna, getur hvergi fundið
nein ákveðin andmæli gegn
jafnréttinu. Það er satt að
segja kenning Goldwaters öld-
ungadeildarþingmanns, að
hann sé sjálfur fy.lgjandi jafn-
réttinu, en hann álíti ekki, að
samríkisstjórnin eigi að fást
við að koma því á, heldur
fylkisstjórnirnar
ORÐIN, sem sögð eru, segja
ekki allan sannleikann. Að
baki orðanna um stjórnar-
skrána, rétt fylkjanna og
íhaldssemina, liggur hinn sögu-
legi ágreiningur manna um.
hvernig eigi að fást við undir-
okaðan og andmælandi minni-
hluta, hvort bæla eigi and-
mælin niður eða ráða bót á
ágreiningsefnunum.
Þarna liggur hinn raunveru-
legi ágreiningur milli Gold
waters öldungadeildarþing-
manns og Johnsons forseta,
burtséð frá því, sem látið er í
veðri vaka. í raun og veru er
það afstaða öldungadeildar-
þingmannsins að þjóðin eigi
ekki að grípa fram fyrir hend-
urnar á stjórnendum fylkja á
borð við Wallace ríkisstjóra,
þegar þeir bæla niður mótmæli
negra. Það er enn fremur af-
staða öldungadeildarþing-
mannsins, að þjóðin megi ekki
og eigi ekki að reyna að ráða
bót á vandkvæðum negranna.
AFSTAÐA Johnsons er sú,
að ekki sé unnt að bæla mót-
mælin niður nema ráðin sé
bót á umkvörtunarefnúnum
Það sé'mannlega ómögulegt að
koma öðru fram án hins, að
þagga niður i negrunum án
þess að gera eitthvað til þess
að hjálpa þeim. Þetta er ekki
veikleiki eða friðkaup. Þetta
er mannvit og stjórnvizka
Þetta er hin fornfræga afstaða
íhaldsmanna á borð við Ed-
mund Burke, sem reyndi að
hafa hemil á bandarísku upp-
reisnarmönnunum með þvi að
sættast við þá
Það er að vísu alveg satt,
og liggur raunar í augum uppi
að kynþáttavandamálið verður
ekki og getur ekki orðið leyst
með samríkislögum einum. En
ÍJ það er einnig satt, að úr kyn-
Goldv/ater
Faubus
— einn af þeim ríkisstjórum
demókrata í Suðurríkjunum, sem
neita að sækja flokksþing Demó
krataflokksins vegna andstöðu
vlð mannréttindalöggjöfina.
þáttaágreiningnum verður ekki
dregið svo að viðhlítandi sé,
með því að eftirláta fylkis-
stjórnunum lausn hans og vona,
að allt mannkynið breyti
skyndilega um hjartalag Með-
an Goldwater öldungadeildar
þingmaður hefir þá afstöðu að
andmæla afskiptum samríkis-
stjórnarinnar af lausn deil
unnar, er hann að þjóna þeim,
sem ætla í raun og veru að
brjóta mótmæli negranna á
bak aftur með valdbeitingu
ANNARS staðar og á öðr-
um tímum hafa andmælandi
minnihlutar verið knúðir til
hlýðni, hversu réttmætur, sem
málstaður þeirra var. Stundum
hefir þetta aðeins tekizt um
stundarsakir, stundum svo
kynslóðum skipti, eins og til
dæmis með Pólverja eftir
skipti ríkisins, Og stundum
hefir þetta tekizt fyrir fullt og
allt, eins og með „villutrúar-
menn“ á miðöldum
Hvítir Suður-Afríkubúar við-
halda í dag sínum lögum og
sínum yfirráðum yfir kraum-
andi mergð svartra Afríkubúa.
En þegar um er að ræða
Bandaríkin á síðari helmingi
tuttugustu aldar, getum við
ekki látið okkur dreyma um
að sívaxandi andmæli banda-
rískra negra verði þögguð nið-
ur eða brotin á bak aftur með H
valdi.
Fyrst er á það að líta, að
minnihluti negranna er of
stór til þess að unnt sé að
bæla hann niður. í öðru lagi
eru umkvörtunarefni negranna
of sönn og málstaður þeirra of
réttmætur til þess að hinn
mikli meirihluti láti sér lynda
þær ógnir og þá grimmd, sem
þyrfti til þess að þagga niður
í þeim.
EF VIÐ viðhöfum hin lítil-
mótlegustu hugtök og snið-
göngum allar hugleiðingar um
rétt eða rangt, heiðarleika og
manngæzku, þá er bandaríska
þjóðin of mönnuð — eða of
viðkvæm og lingeðja, ef menn
vilja heldur aðhyllast það
orðalag, — til þess að leyfa
andstæðingum jafnréttisins að
brjóta hinn óánægða minni-
hluta á bak aftur með harðri
hendi. Allur þorri bandarísku
þjóðarinnar, er mótfallinn lög
regluhundum, rafmögnuðum
pískum, leyniskyttum, sprengju
varpi á börn í sunnudagaskól-
um og íkveikjum kirkna
Það er mikill og voldugur
sannleikur að Bandaríkja-
menn eru andhverfir beitingu
ógna til þess að kveða rétt-
lætið niður Á þeirri stað-
reynd getum við byggt þá sann
færingu okkar að við munum
aldrei grundvalla ríkisstjórn
á hatri og aftökum eins og
nazistarnir gerðu
ÞETTA ræður úrslitum um
það, að bandaríska þjóðin er
af innsta eðli knúin til hinnar
sáttfúsu íhaldssemi Burkes
Samt sem áður hlýtur hver og
Framnald á síðu 13 B
------
HMINN, sunnudaginn 23. ágúst 1964 —
1