Tíminn - 23.08.1964, Síða 15
ÞÖRF Á DÝRALÆKNUM
Framhald af 16. síðu.
— Jú, það er erfítt, og margir
þeirra eru alveg yfirkeyrðir. Sum
umdæmin eru einnig mjög stór,
t. d. er aðeins einn dýralæknir
fyrir mestan hluta Þingeyjasýslna,
og einn dýralæknir hefur báðar
Múlasýslurnar. Þeir þurfa því að
ferðast mikíð, og oft um ilífærar
leiðir, t. d. að vetrinum.
— Og jeppinn er aðalfarar-
tæki þeirra?
— Já, nú orðið ferðast þeir
mest í jeppunum.
— Sækir kvenfólkið mikið í
dýralækningar?
— Það er nú frekar lítið. Þó
mun ein stúlka nú vera við nám
erlendis.
— Er of erfitt fyrir stúlkur, að
vera dýralækanr úti á landi?
— Ég held, að þær geti alveg
eins valdið því starfi eins og karl
mennirnir. Þær eru að mínu áliti
jafn duglegar hvað ferðalög og
annað, sem dýralæknisstarfínu
fylgir, snertir og karlmennirnir,
í það minnsta miðað við,_ hvemig
karlmenn eru orðnir á fslandi í
dag.
STÖÐUGLEIKI SKIPA
Framhald af 16. síðu.
íku. Þessi lönd eiga fulltrúa í
nefndinni: Danmörk, Sambandslýð
veldið Þýzkaland, Finnland, Frakk
land, ísland, Ítalía, Japan, Hol-
land, Noregur, Pólland, Svíþjóð,
Sovét-Rússland, Bretland og
Bandaríki N.-Ameríku. Auk þessa
sat fund nefndarinnar fulltrúi frá
FAO, Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun SÞ.
Nefndin gerði á fyrsta fund-
inum mjög ýtarlega starfsskrá í 13
átriðum og gekk frá fyrstu leið
beiningum sínum til fiskimanna,
þar sem fjallað er um nokkrar
tillögur varðandi ráðstafanír, sem
til gagns megi verða, og því rétt
að fylgja til að hindra minnkun á
stöðugleika fiskiskipa í notkun.
Mörgum reyndum sjómönnum eru
eftirtalin öryggisatriði eflaust þeg
ar Ijós, en á þau verður að líta
sem leiðbeiningar til bráðabirgða,
sem endurbættar verða síðar.
Jafnframt leggur nefndin til, að
þessara atriða verði getið við
kennslu í skipstjórn og sjó-
mennsku fyrir fiskimenn.
Vegna plássleysis í blaðinu í dag
verða leiðbeiningar til sjómanna
að bíða til þriðjudags.
25 ÁRA DOKTOR
Framhald af 16. síðu.
nám í Marburg í Þýzkalandi og
var þar hálft ár. Fór þá til
Göttingen og las þar stærð-
fræði og eðlisfræði sem auka-
grein í þrjú og hálft ár og lauk
diplom-prófi. Að því loknu fór
hann til Mainz, þar eð prófess
orinn, Klingenberg, er hann
hafði unnið mest með í Gött-
ingen, tók þar við prófessors-
stöðu. Lauk hann svo doktors-
prófi við þann skóla í lok júlí
í sumar, eins og áður segir.
Doktorsritgerð Halldórs, sem
innan tíðar verður gefin út í
þýzku stærfræðitímariti, nefn-
ist á þýzku: Úber die Anzahl
geschlossener geodatischen in
gewissen Riemennschen Man-
nigfaltigkeiten og er um 40
síður í stóru broti. Fjallar- rit-
gerðin um efni, sem eru ofar-
lega á baugi meðal stærðfræð-
inga í heiminum, en spurning-
arnar, sem glímt er við í dokt-
orsritgerðinni, eru þó ekki nýj-
ar af nálinni. Komu þær fram
um síðustu aldamót, en nú
fyrst eru stærðfræðingar að
komast á sporið varðandi lausn
þeirra. Segir Halldór að fræði-
legi grundvöllurinn á þessu
sviði stærðfræðinnar hafi ver-
ið ófullkominn, en sér hafi
tekizt að auka við hann og
leysa ýmis dæmi, sem áður
voru óleyst.
Enda þótt Halldór vilji ekki
gera mikið úr því, höfum við
fregnað, að ritgerð hans sé
mikilvægur grundvöllur fyrir
frekari rannsóknir og má í
því sambandi nefna, að pró-
fessor Klingenberg, sem lét
Halldór fá verkefnið, er dokt-
orsritgerðin fjallar um, dvelur'
nú í Bandaríkjunum til að
halda áfram rannsóknum á
þessu sviði. Segist Halldór
hafa mikinn áhuga á að fara
til Bandaríkjanna til að halda
áfram rannsóknum sínum, en
muni þó dvelja heima þennan
vetur við kennslu. Sem dæmi
um, hve mikils álits Halldór
nýtur nú þegar, má nefna, að
í sumar flutti hann fyrirlestur
um doktorsritgerð sína. á al-
.þjóðlegu stærðfræðingamóti í
Obervvolfach í Þýzkalandi, og
var fyrirlestri hans mjög vel
tekið og mikill áhugi sýndur
á verkefni hans. Var þetta eitt
stærsta stærðfræðiþing, sem
haldið hefur verið í Þýzka-
landi.
Aðspurður um framtíðar-
áform segir Halldór, að að-
staða til stærðfæðilegra rann-
sókna hér á landi sé ekki góð
og því sé ekki hægt að segja
með fullri vissu, hvað hann
geri í framtíðinni, þótt hann
hafi fullan hug á að dvelja hér
heima.
Kjarfan sýnir
Kjartan ö. Bjarnason er nú að
leggja upp í kvikmyndasýningar-
ferðalag um allt land. Mun hann
sýna myndir úr Öræfaferð' með
Guðmundi Jónassyni, m. a.:
heimsókn Philíps prins, feg-
urðarsamkeppninni 1964 og Surts-
ey og vertíð í Eyjum. Fyrstu sýn-
íngar verða á þriðjudaginn kem-
ur á Patreksfirði, en alls mun
Kjartan sýna á 80—90 stöðum á
landinu.
Aðaifundur F.U.F.
Félg ungra Framsóknarmanna í
Strandasýslu heldur aðalfund sinn
laugardaginn 29. ágúst að Sævangi
og hefst hann kl. 6. e.h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf og kosning fulltrúa á 10.
þing Sambands ungra Framsóknar
manna.
JARÐAKAUP
Höfum kaupendur að góð-
um fjárjörðum á Suður- og
Vesturlandi.
SKIPA- OG
VERÐBRÉFA-
SALAN
SKIPA- .
LEIGA
VESTURGÖTU5
Sími 13339.
HUNDA-
KðNSTIR
Morgunblaðið, sem hefur
komizt upp í að birta átta
myndir af Bjarna Benedikts
syni, forsætisráðherra, í
einu og sama eintaki, gefur
ferðamálastofnuninni við
Lækjartorg heldur betur illt
vottorð í fréttaþjónustu af
títt reisandi ráðherrum. Af
gömlum kæk kennir Mbl.
Tímanum um, að litlar
fréttir hafi birzt af heim-
sókn forsætisráðherra til
Washington. Sannleikurinn
er sá, að þær opinberu frétt
ir, sem Tímanum bárust af
þessari vesturför forsætis-
ráðherra, sem alls góðs er
maklegur, hefðu vart getað
verið minni, þótt hann hefði
verið á reisu til Timbúktú.
Tíminn fékk t.d. ekkert að
vita um hundaná fyrr en
í Morgunblaðinu.
WlSELET
Kúaklippur
Eigum oftast fyrirliggjandi
loftknúnar kúaklippur sem
tengdar eru mjaltavéla-
lögninm.
ADNI GESTS SON
Vatnsstig 3 — Sími .11555
Dúnhreínsunin
Stykkishólmi
er fiutt að
Belgsholti, Melasveit.
Þeir, sem vildu láta hreinsa dún nafi samband /ið
Sigurð Jónasson, Stykkishólmi, eða Magnús ól-
afsson, Belgsholti, sími um Akranes.
Elínborg Jónasdóttir.
NÝR SAAB 1965
GBæsileg útlitsbreyting
Aukin hestorka ★ Fullkomnara kælikerfi ★ Hljóð-
minna útblástiu*skerfi ★ Nýir stuðarar ★ Vökva-
kúpling ★ Nýjar afturluktir ★ Minni beygjurad-
ius ★ Nýtt litaval ★ Endurbætt miðstöðvarkerfi
★ Ný gerð eldsneytisdælu ★ auk margra annarra
nýjunga.
Verð kr. 162.050.00.
Kynnið yður SAAB 1965 hjá umboðinu
SVEINN BJÖRNSSON & CO.
Garðastræti 35 — Reykjavík.
Börn
sem dvöldu á vegum Sjómannadagsráðs að Lauga
landi, Holtum, koma til bæjarins að Hrafnistu,
þriðjudaginn 25. ágúst kl. 11.30—12.
Tekið við greiðslu dvalarkostaðar á skrifstofu
ráðsins sama dag kl. 10—12.
Sjómannadagsráð.
Bílaeigendur athugið
Ef orkan minnkar, en eyðslan eykst, eru óþéttir
ventlar númer eitt.
Okkar sérfag eru ventlaslípingar.
Leggjum áherzlu á góða þjónustu.
BIFVÉLAVERKSTÆÐIÐ QDÍl
1 ^■■■■■■■« ... m HL-W
VENIILU
SÍMI 35313 ■
T í MIN Nf, tfíiikudaginn 23. ágúst 1964 —
15