Tíminn - 23.08.1964, Page 16
r
r^zrrarasasnsssæa
Sunnudagur 23. ágúst 1964.
190. tbl. 48. árg.
I£2
Rannsakaður verður
stöðugleiki skipa
HF-Reykjavík, 22. ágúst.
Hjálmar R. Bárðarson, skipa-
skoðunarstjóri, hefur verið kjör-
inn formaður sérnefndar innan
IMCO,, Siglingamálastofnunar Sþ,
sem rannsaka á allt í sambandi
við stöðugleika fiskiskipa og finna
mælikvarða til að dæma eftir stöð
ugleika. Fyrsti fundur þessarar
sérfræðinganefndar var haldinn í
London, þar hefur Siglingamála-
stofnunin aðsetur sitt, dagana 13.
—-17. júlí síðastliðinn og mættu
þar fulltrúar 14 landa. Á þess
um fundi skiptu þátttökuþjóðir
með sér verkum í sambandi við
ýmsar rannsóknir, og verður
árangri af þeim skilað á næsta
fundi, sem verður í janúar 1965.
Eins og áður er sagt, var Hjálm
ar R. Bárðarson, skipaskoðunar-
Héraðsmót í
Strandasýslu
Héraðsmót Fram
sóknarmanna í
Stramdasýslu
verður haldið að |
Sævangi, laugar-
daginn 29. ágúst,
og hefst það kl.
20.30. Ræðu flyt-
ur Sigurvin Ein-
arsson, alþingis-
maður. Erlingur
Vigfússon, óperusöngvari, syngur
og leikari skemmtir. Hljómsveit
Jóhanrnesar Péturssonar leikur
fyrir dansi.
stjóri kjörinn formaður nefndar-
innar á fyrsta fundinum, en vara
formaður var kjörinn G. C. Nick-
um, fulltrúi Bandaríkja N.-Amer-
Framh. á 15. síðu
Mynd þessi sýnir sérfræð-
ing athuga endurvarpshnöttinn,
Syncom-3, á Cape Kennedy-
höfða í gær. Hnetti þessum
var skotið á loft í dag með
alveg nýrri eldflaugartegund
og heppnaðist skotið mjög
vel. Hefur hnettinum verið
komið fyrir á braut yfir Kyrra
hafinu og þar á hann að gegna
því hlutverki, að enthirvarpa
sjónvarpsmyndum af Olymp-
íuleikunum í Japan yfir til
Bandaríkjanna.
»ii r-r' -
Sigurvhn
Héraðsmot a8 Bif-
röst í BorgarfirSi
Framsóknarmenn i Mýrasýslu
halda héraðsmót að Bifröst >
Borgarfirði sunnudaginn 30. ágúst
og hefst það kl. 21.30. Fjölbreytt
dagskrá. Nánar auglýst síðar.
á mun íieiri
útlærðum dýralæknum
EJ-Reykjavík, 21. ágúst.
Nokkur dýralæknisumdæmi eru
enn þá laus hér á landi og fást
engir dýralæknar til starfa þar
eins og er. Aftur á móti eru
nokkrir við nám í dýralækningum
erlendis, og munu einhverjir
þeirra hefja störf hér að námi
loknu, að því er Páll A. Páls-
son, yfirdýralæknir, tjáði blað-
inu í dag. Þrátt fyrir vöntun á
dýralæknum, hefur tala þeirra
þrefaldazt á þeim 30 árum, sem
Dýralæknafélag fslands hefur
starfað.
Dýralæknafélagið hélt aðal-
fund sinn dagana 15.—16. ágúst
s. 1. að Bifröst í Borgarfirði, og
var aðalmál fundarins umræður
um gjaldskrá fyrir dýralækna og
spunnust ura þau mál allmiklar
umræður. Önnur mál, sem fund
urinn tók til meðferðar, voru
júgurbólguvandræðin, varnir og
lækningar, sauðfjárveikivarnir og
fleira. Margar skýrslur voru
fluttar og haldið var 30 ára af-
mælíshóf í sambandi við aðal-
fundinn, sem kaus Guðbrand Hlíð
ar sem formann félagsins, Jón
25 ára doktor meS
,magna cum laude'
Halldór Elíasson
BG-Reykjavík, 20. ágúst.
Hinn 28. júlí s.l. Iauk ung-
ur, íslenzkur námsmaður, Hall-
dór Elíasson, doktorsprófi í
stærðfræði við háskólann í
Mainz í Þýzkalandi með glæsi-
legum árangri. Hlaut hann
vitnisburðiuin Magna cum
laude fyrir ritgerð sína, og er
það hæsta einkunn, sem gefin
er. Halldór mun kenna stærð-
fræði og eðlisfræði við Memita
skólann í Reykjavík í vetur, en
fer að öllum líkindum þar-
næsta velur vestur um haf til
Bauidaríkjanna til framhalds-
rannsókna í stærðfræði.
Af tilefni af þessum glæsi-
lega námsárangri og ekki síður
vegna fyrri námsferils hans,
átti Tíminn stutt viðtal við
hann í dag. Halldór er aðeins
25 ára að aldri og lauk því
doktorsprófi á fimm árum.
Hann er sonur hjónanna Guð-
nýjar Jónasdóttur og Elíasar
Ingimarssonar, sem búsett eru
í Reykjavík. Varð stúdent úr
stærðfræðideild M.A. árið 1959
og má geta þess, að þar fékk
hann 10 bæði í stærðfræði og
eðlisfræði. Hann hlaut 5 ára
styrk Menntamálaráðs og hóf
Framh. á 15. síðu
Guðbrandsson, ritara, og Ásgeir
Einarsson, gjaldkera.
Blaðið hringdi dag Pál A.
Pálsson, yfirdýralæknir, og sagði
hann, að nokkur dýralæknisum-
dæmi úti á landi væru laus:
— Meðal þeírra umdæma, sem
laus eru, má nefna Snæfellsnes-
söslu, Barðastrandasýslu, ísa-
fjarðarsýslu og báðar Skaftafells-
sýslurnar. Við höfum því miður
ekki fengið neina dýralækna til
þess að starfa í þessum umdæm-
um enn sem komiö er.
— En eru margir við dýralækn
inganám um þessar mundir?
— Já, það munu vera 7—8 nem
endur við nám erlendis núna, að-
allega Noregi, Danmörku og
Þýzkalandi. En það tekur jú sínn
tíma, því að námstíminn er sex ár.
Við vonum að sjálfsögðu, að eitt
hvað af þessum verðandi dýralækn
um komi hingað til starfa að námi
loknu.
— Er ekki erfitt starf að vera
dýralæknir úti á landsbyggðinni?
Framhald ó 15 síðu
NEITAR STÖÐUGT
KJ-Reykjavík 22. ágúst.
Maðurinn sem kærður var fyr-
ir nauðgun í fyrrakvöld, neitar
stöðugt að hér hafi verið um
nauðgun að ræða, heldur hafi allt
átt sér stað með eðlilegum hætti.
Lögreglurannsókn er lokið í
máli þessu, og hefur það verið
sent til afgreiðslu. Stúlkan sem
hér um ræðir er 18 ára gömul en
maðurinn 35 ára. Höfðu þau verið
ásamt fleira fólki í viðkomandi
húsi, og orðið að lokum tvö ein
eftir.
Þjóhrinn
játar á
sig fieiri
þjéfnaði
KJ-Reykjavík 22. ágúst.
Stöðugar yfirheyrslur voru í
gær yfir þjófnum sem handlek-
inn var á Grettisgötunni í fyrra-
dag. Hefur hann nú játað á sig
fleiri þjófnaði í viðbót við þá
fjóra, sem hann viðurkenndi strax
við • fyrstu yfirlieyrslur.
í vetur, og raunar allt fram á
þennan dag hefur mikið borið á
þjófnuðum úr ólæstum íbúðum
um allan bæinn, og í sumum til-
fellunum hefur heimilisfólkið ver
ið heima þegar þjófnaðurinn var
framinn. Eru slíkír þjófnaðir orðn
ir allt að fimmtíu í allt, og hef-
ur nú tekizt að upplýsa nokkra
þeirra. í öll skiptin var farið inn
í ólæstar ibúðir, og jgripið það
sem hendi var næst, sér-
lega þó handtöskur og veski í von
um peninga. Þessi einhleypi mað-
ur um fertugt sem handtekinn var
í fyrradag, situr nú í gæzluvarð-
haldi, og er ekki að vita nema
hann hafi fleiri þjófnaði á sam-
vizkunni.