Tíminn - 10.09.1964, Side 2
Miðvikudagur, 9. &eptember:
NTB-Ajaccio, — Fimm grímu-
klæddir ræningjar, vopnaðir
vélbyssum, ruddust í dag inn í
síðdegisveizlu hjá greifaynj-
unni Janine Bernstein, í höll
hennar í Ajaccio á Korsíku, og
höfðu á brott með sér gull og
gimsteina að verðmæti er svar-
ar 6 milljónum íslenzkra króna.
Ræningjarnir rifu dýrmæta
hálsfesti af greifaynjunni og
ógnðu henni með járnkylfum,
er hún neitaði í fyrstu að af-
henda þeim lykla að peninga-
skápnum.
Gestir og þjónustulið gátu
ekkert að gert og máttu horfa
upp á að ræningjarnir tæmdu
fjárhirzlur frúarinnar. Ræn-
ingjarnir tóku lífinu með ró
og dvöldu um klukkustund á
staðnum, eftir að hafa lokað
alla inn í herbergi. Skáru þeir
í sundur allar símaleiðslur og
fékk lögreglan fyrstu vitneskju
um ráni# frá nokkrum fiski-
mönnum, er höfðu heyrt hróp-
að á hjálp frá setri greifaynj-
unnar.
NTB-Seattle. — Barry Gold-
water, forsetaframbjóðandi re-
publikana flutti í kvöld fyrstu
ræðu sína um utanríkismál, eft-
ir að hann hóf kosningabarátt-
una. Bað hann bandarísku
þjóðina að vísa á bug þeim
mönnum, sem töluðu um frið,
en skorti afl til að varðveita
hann, en styðja þá menn, sem
skildu, að einungis sterk þjóð
getur varðveitt friðinn. Réðist
hann harkalega á utanríkis-
stefnu Johnsons og stjórnar
hans og sagði m.a.: „veikleiki
og staðfestuleysi hefur alltaf
leitt til stríðs“.
NTB-Saigon. — Forsætisráð-
herra S.-Vietnam, Nguyen
Khanh, hershöfðingi, tók í dag
við störfum varnarmálaráð-
herra, aflétti ritskoðun í land-
inu og lét lausa fimm hershöfð-
ingja, sem fangelsaðir voru í
sambandi við stjórnarbylting-
una í janúar.
Með þessum aðgerðum telja
pólitískir fréttamenn, að K-
hanh hafi búið vel í haginn
fyrir sig og verði nú mun létt-
ara fyrir han nað koma reglu á
stjórnmálin í landinu.
NTB-Moirana. — Um 100.000
rúmmetrar af jarðvegi féllu i
dag úr hinni bröttu fjallshlíð
Messingen í Dunderdal um 5
mílur fyrir norðan Mo í Nor-
egi og stanzaði hin mikla
skriða aðeins 100 metra fyrir
ofan járnbrautarlinuna, sem
liggur fyrir neðan fjallið
Steinn, sem er talinn um 1500
rúmmetrar að stærð, stöðvaðist
tæpum hundrað metrum frá
línunni, en annar minni lenti
á henni og skemmdi, svo að
umferð hefur verið stöðvuð um
sinn.
NTB-Berlín. — Frá og með 2.
nóvember n.k. fá Austur-Þjóð
verjar, sem komnir eru á eftir-
launaaldur, leyfi til að heim-
sækja ættingja í Vestur-Þýzka
landi, einu sinni á ári hverju
og mega dvelja þar í allt að
fjórum vikum.
ÞÚSUNDIRFL ÝJA UNDANFELLIB YL
lllllll IIHFIIIIIWIIIWIIIH
NTB—Kennedyliöfða, 9. september.
Fellibylurinn Dora skall á austurströnd Bandaríkjanna í dag með
115 km. vindhraða á klukkustund, og þeytti á undan sér tveggja
metra hárri fióðbylgju. Óttazt er, að síðar í kvöld aukist vlndhraðinn
upp í 200 km. á kl. og allt að þriggja metra flóðbylgja skellí inn
yfir Iandið.
Fólk, sem býr meðfram hinni I í herstöðvum á Florida hafa verið
480 km. löngu strandlengju Flor- landsvæða cg hundruð herskipa
ida og Georgíu, flýði þúsundum færð í öruggar hafnir.
saman í dag inn í landið til hærri I Búizt var við, að fellibylurinn
Viðskiptabanni
aflétt á Kýpur
NTB—Nicosíu og Ankara, 9. sept
Kýpur-stjórn samþykkti í dag
að aflétta viðskiptaþ-/'ngununum
gegn 12.000 tyrkneskumælandi
manna, sem búa í Famagusta og
Larnaca á Kýpur, eftir eindregin
tilmæli frá Sameinuðu þjóðunum.
Samtímis bárust fréttir af því,
að tyrkneska þingið hefði felít
vantrauststillögu á stjórnina, sem
borín var fram af stjórnarand
stöðunni, vegna stefnu stjóinar
innar í Kýpur-málinu.
Viðskiptaþvingununum, sem
komu til framkvæmda síðastlið-
inn laugardag, var aflétt án nokk-
urra skilyrða, að því er hinn sér
legi fulltrúi U Thants, Galo Plaza
sagði í dag. Enn býr tyrkneskt
fólk í þrem héruðum á eynni við
matvælaskömmtun og er fólkinu
| skammtað úr hnefa eftir því, hve
margir fullorðnir eða börn eru á
hverjum stað.
Plaza sagði, að enda þótt ekki
jlægju fyrir beinar sannanir fyrir
því að fólk sylti, hefði tyrknesku
mælandi fólk á þessum landsvæð-
um verið komið í miklar þrenging
ar sökum matarskorts, og sums
staðar hefði verið neyðarástand.
Sagði hann, að aðgerðir Kýpur-
stjórnar í dag hefð,u verið mikil-
vægt skref í rétta átt.
Eins og áður segir stóðst tyrk-
neska stjórnin vantrauststillögu í
dag, sem felld var með 198 at-
kvæðum gegn 169.
Fylgdi vantrauststillagan í kjöl
far mikilla ádeilna stjórnarand
stöðunnar á linkind hennar í Kýp-
urdeilunni.
skylli fyrst á ströndinni frá Kenne I úðaráðstafanir verið gerðai tll
dy-höfða og norðureftir. 1 geim- bjarga hinuhl dýmætu eldflSligiim
vísindastöðinni hafa miklar var I Framh á 15 slðú
Tuomioja lútim
NTB-Helsingfors, 9. sept.
SÁTTASEMJARI Sameinuðu
þjóðanna í Kýpur-deil'unni, Sakari
Tuomioj, fyrrveranrli forsætisráð-
herra Finnlands og sendiherra í
Stokkhólmi, iézt í kvöld í sjúkra-
húsi í Helsingfors. Var hann með-
vitundarlaus síðustu klukkustund-
imar, en líðan hans versnaði
skyndilega eftir heimkomuna frá
Genf í fyrri viku.
Tuomioja vann að sáttastörfum
af fullucn krafti í hinni víðsjálu
Kýpurdeilu, er hann veiktist
skyndilega fyrir nokkrum vi'kum
í Genf, aðeins nokkrum klukku-
stundum, áður en hann ætlaði að
leggja af stað til Aþenu til nýrra
sáttaumleitana.
Lá hann lengi á sjúkrahúsi í
Genf og kom í ljós, að hann var
með blóðtappa í heilanum. í síð-
ustu viku var hann fluttur meðvit-
undarlaus til Helsingfors.
Tuomioja var sendiherra í Stokk
hólmi þangað til U Thant, fram-
kvæmdastjóri SÞ fól honum starf
sáttasecnjara í Kýpurdeilunni í
marz s. 1.
Hafði hann áður leyst af hendi
mörg mikilvæg verkefni fyrir SÞ.
Tuomioja var
Finnlandsbanka
seinna fjármálaráðherra, aðeins 32
ára gamall.
Hann var forsætisráðherra í sex
mánuði árin -1953—1954, og síðan
sendiherra Finnlands í Svíþjóð og
stjórnarformaður j Bretlandi. Hann var 52 ára að
árið 1943 og ári aldri er hann lézt.
HarðardeilurumÞýzkalandsförKrústjoffs
NTB Miinchen, 9. sept. ,
1 Þýzkalandi eru nú strax hafn,
ar miklar deilur vegna væntan-1
iegrar heimsóknar Krústjoffs for-
sætisráðherra Sovétríkjanua.
Kristilegir demókratar í Bayern
réðust í dag harkalega á Ludwig
Erhard, kanslara fyrir ákvörðun-
ina um að hitta Krústjoff og seg
ir blaðið Bayern Kurier, að Sovét
íkin og einnig mörg vestantjalds
lönd muni notfæra sér heimsókn
ina sjálfum sér í hag>
Blaði þessu er stjórnað af iyrr
verandi varnarmálaráðherra.
Franz Jósef Strauss, sem í seínni
tíð hefur gagnrýnt mjög ctiórn
málastefnu Erhards.
Segir blaðið, að Bandaríkin
muni nota heimsóknina til réttlæt
ingar á áframhaldandi sambandi
milli Sovétríkjanna og Bandaríkj
anna, sem til var stofnað é valda
dögum Kennedys, forseta. Segir
blaðið, að þetta samband hafi vald
ið Adenauer miklum áhyggjum og
ótta síðustu mánuðina, sem bann
var kanskari. Þá mundu Bretland
og ftalía færa sér heimsóknina
í nyt, og nota hana, sem afsökun
fyrir auknum efnahagslegum sam-
böndum við Sovétríkin og veits
þeim efnahagslegar tryggingar, þó
ekki væri til annars en að vera
á undan vestur-þýzkum viðskipta
aðilum. Segist blaðið einnig leggj
ast gegn heimsókn Krústioffs
vegna hins stjórnmálalega öryggis
leysis, sem nú ríki í V-Þýzkalnndi
Heldur blaðið því fram, að afsak
anlegt hefði verið að bjóða Krúst-
joff í heimsókn, ef Atað væri,
að stórveldi Evrópu stæðu ein-
huga að baki slíkri ákvörðun, en
eins og málin horfa nú sé ekkert
vit í slíku.
Nefnd hefur nú verið skipuð til
að skipuleggja dagskrá heimsókn
ar Krústjoffs, en ekki hefur verið
ákveðið, hvaða dag hann kemur.
Frádráttur var veittur
Húsavík, 31. ágúst 1964.
VEGNA greinar G.H. í Alþýðu-
manninum 27. ágúst s. 1., þar sem
sagt er frá útsvarsniðurjöfnun á
Húsavík, óskar framtalsnefnd Húsa
víkur þess, að þér birtið eftirfar-
andi í biaði yðar:
í nefndri grein er sagt orðrétt:
„Hér var lagt á bætur almanna-
trygginga, og sjómannafrádráttur
ekki veittur, og auk þes voru gam-
almennum engar ívilnanir gefnar“.
í reglum sem prentaðar eru með
Selur rífur gildrur
Pétur Hoffmann Salómonsson
hefur komið að máli við blaðið og
sagt sínar farir ekki sléttar. Hann
hefur verið að leita sjávaráls í
Urriðaá. Þá lenti hann í því, að
selur reif í tvígang tvær álagildr-
ur fyrir honum. Pétur sagðist hafa
gengið úr skugga um, að hvorki
væri til að dreifa mönnum né
minkum, en selurinn hafði rifið
gildrurnar í hengla og sótt sér ál
í þær. Annars hefur Pétur fengið
fyrstu sjávaráiana i þessum slóð-
um í þessari veiðiferð, Pétur
sagði að lokum. að hann stæði
ráðþrota gegn rándýri þessu,
— selnum.
útsvarsskrá gerir Framtalsnefnd
m. a. grein fyrir álagningunni á
þessa leið: „Undanþegnar útsvars-
álagningu voru þessar bætur: elli-
og örorkulífeyrir, sjúkrabætur,
mæðralaun og sjúkrapeningar. —
Auk þess voru útsvör. elli- og ör-
orkulífeyrisþega lækkuð verulega.
Hjá einstaka gjaldendum var
tekið tillit til sjúkrakostnaðar,
skertrar greiðslugetu vegna dauðs
falla og slysa, og vegna menntun-
arkostnaðar barna eldri en 16 ára“.
Ennfremur segir: „Vikið var frá
ákvæðum skattalaga um aukafrá-
drátt sjómanna“.
Samkvæmt framansögðu var t.d.
dreginn frá tekjum þeirra 30 elli-
lífeyrisþega, sem útsvör voru lögð
á, allur ellilífeyrir þeirra að upp-
hæð samtals kr. 684.500,00, sem
svarar til þess að útsvör þeirra
hafa verið lækkuð um kr. 185.00.
—190.000.
Auk þess voru útsvör þeirra
NTB-Lundúnum. — Moskvu-
útvarpið fullýrti í dag, að Kína
óski eftir kjarnorkuvopnum til
þess að geta framkvæmt hinar
miklu útþenslufyrirætlanir sín-
ar. ,mti „ -**« ij»j>
lækkuð um kr. 52.00.00. Þessar
tölur eiga eins og fram kemur, að-
eins við þá ellilífeyrisþega, sem
greiða útsvör, en stór hópur þeirra
verður útsvarslaus við þessar að-
stæður. Sjómannafrádráttur, ann-
ar en aukafrádráttur er leyfður til
frádráttar að fullu, en þar er
fæðisfrádráttur sjómanna og hlífð-
arfatafrádráttur.
Af 143 gjaldendum njóta t. d. 49
alls þess sjómannafrádráttar, sem
heimilaður er samkvæmt skattalög
unum.
Héraösmót
á Blönduósi
FRAMSÓKNARMENN i Austur-
og Vestur-Húnavatnssýslu halda
sameiginlegt héraðsmót að Blöndu
ósi laugardaginn 12. september
n.k. og hefst það kl. 8,30 síðdegis.
Ræður flytja Ólafur Jóhannes-
son, varaformaður Framsóknar-
flokksins og Steingrímur Her-
mannsson, framkvæmdastjóri.
Smárakvartettinn á Akureyri
syngur og Jón Gunnlaugsson, gam
anleikari skemmtir.
Polo og Erla frá Akureyri leika
og syngja.
Aðalíundur Framsóknarfélags
Borgfirðinga
Aðalfundur Framsóknarfélags
Borgfirðinga verður haldinn í
Fannhlíð sunoudaginn 13. sept. og
hefst kl. 3 síðdegis.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf og
kosn'ing fulltrúa á kjördæmis-
þing.
2. Umræður um Iandsmál og hér-
aðsmál:
A.: Rafmagnsmál Borgarfjarð-
ar. Framsögumaður Daníel
Ágústínusson.
B. : Verðlagsmál b»u>iá og
aðstaða. Framsögumaður
Gunnar Guðbjartsson, for-
maður Stéttarsambands
bænda.
C. : Stjómmálin í dag. Fram-
sögumaður Halldór E. Sig-
urðsson, alþingism.
Stuðningsfólk Fyamsóknar-
flokksins í Borgarfjarðarhéraði er
hvatt til þess að fjölmer.na á fund-
inum.
2
TÍMINN, flmmtudaglnn 10. september 1964