Tíminn - 11.09.1964, Page 3

Tíminn - 11.09.1964, Page 3
í SPEGLITÍMANS „VeriS varkár, hún getur sprungi5“! Þannig var kjöror'ð fegurSarsamkeppni einnar sem nýlega var haldin í Wildwood í New Jerscy, í Bandaríkjunum. Og stúlkan á myndinni sigraði í keppninni og hlaut titilinn „Miss Firecracker". Hún heit- fv Sopthia Studen og er 21 árs. BRIGITTE BARDOT á svo sem ekki sjö dagana sæla, og kvartar hún sífellt yfir því, að liún geti hvergi fengið að vera í friði. Hún var t- d. nýlega í sumarfríi í villu sinni í Saint Tropez ásamt nýjasta vini sín- um, Bob Zaguri. Á einn eða annan hátt fann Bob Iiljóðncma í rúmi BB. Hljóðneminn var tengdur við segulband, en fannst áður en nokkuð yrði úr upptökunni. — Bob og BB fóru síðan um borð í Iystibát sinn og héldu á haf út, því að þar geta þau þó verið í friði. ★ ELIZABETH Taylor og Rich ard Burton hafa lýst því yfir, að þau ætli sér að hafa frið í frítíma sínum, þegar þau leika í næstu kvikmynd sinni, „The Sandpiper". Þau munu búa í Big Sur í Norður-Kaliforniu, og ákveðið hefur verið að reisa rafmagnsgirðingu umhverfis húsið, til að bægja óvelkomn- um gestum frá. „Pravda“ hefur nú rofið þögn þá, sem ríkt hefur um meistaranjósnarann Rlchard Sorge og segir þar m.a. að Stalín hafi ekki trúað skýrslu hans um, að Hitler ætlaði að ráðast á Sovétríkin, en ef upplýsingum Sorges hefði verið trúað, þá hefði mátt bjarga milljónum mannslífa. Richard Sorge fæddist í Rúss- landi 1895. Móðir hans var rússnesk en faðirinn þýzkur, og flutti fjölskyldan til þýzka Iands þegar Richard var barn. Richard snéri aftur til Sovét- ríkjanna og gekk í kommúnista flokkinn 1925, en frá árinu 1929 starfaði hann í sovézku leyniþjónustJunni. Þegar Hitler náði völdum 1933, fór Sorge til Japans og þóttist vera þýzk ur fréttaritari. Hann varð mik ill vinur Eugen Ott, sem var ambassador Þjóðverja í Japan, og var honum treyst svo full komlega, að honum var trúað fyrir ýmsum toppleyndarmál- um. Um vorið 1939 tilkynnti Sorge Moskvumönnum, að þjóð verjar myndu ráðast á Pólland 1. sept. og 1. apríl 1941 til’- kynnti hann ráðamönnum í Kreml, að Þjóðverjar væru að undirbúa árás á Sovétríkin. 150 þýzkar herdeildir voru að hans sögn komnar að landa- mærunum og árásin skyldi gerð 22. júní. Stalín sinnti þessum upplýsingum ekki og því kom árásin Sovétmönnum að óvörum og kostaði milljón ir manna lífið. Síðasta stórvirki Sorge var að tilkynna Kreml að Japanir væru að undirbúa skyndiárás á Kyrrahafinu. Hann var siðan tekinn og hengdur af Japönum 7. nóvember 1944, og að sögn „Pravda“ voru síðustu orð hans: — „Lengi lifi kommún- istaflokkurinn, Sovétríkin og rauði herinn“. * Ungi maðurinn til hægri á myndinni hefur náð sér í konu efni, og honum til hróss má segja, að hann fór aðrar og mun rómantískari leiðir en flestir aðrir. Hann er Englendingur, 32 ára, og heitir Brian Cole. Hann tók upp á því að senda sam tals 1282 flöskur á haf út með dramatískum ástarjátningum í, og óskaði hann þar eftir að komast í samband við þá einu sönnu konu, scm Guð hefði skapað honum til handa. Og hann fékk svo sannarlega laun fyrir erfiði silt, því að um 400 skandinavískar stúlkur fundu flöskur frá honum á strönd hcimalands síns og skrifuðu síðan til lians. En sú útvalda var samt ekki í þeim hóp. Hún liafði aftur á móti lesið um þcssa framtaks semi Englcndingsins, og fannst þetta einlivern veginn svo róm- antískt, að hún hafði samband við hann. Hún ei frá Svíþjóð, 21 árs og heitir Inge-Britt Granberg, og nú er Brian Colc kominn til heimabæjar hennar, Vaxholm í því skyni að ganga í það heilaga. ★ Stúlkan á MYNDINNI, Les- ley Gore, er orðin fræg dægur lagasöngkona í hcimalandi sínu Bandaríkjunum. Hún var upp- götvuð af tilviljun, eins og stundum vill verða þar fyrir vestan. Hún var fyrir hokkru að syngja í afmælisveizlu eins vinar síns, og barst söngur hennar til eyrna „réttra manna“, eins og það kallast. Árangurinn varð samning- ur við hljómplötufyrirtæki og Heitt hefur verið víða á megin landi Evrópu undanfarið. Þessi mynd var tekin i París nýlega, og virðist svo sem stúlkunni hafi fundizt of heitt til þess að aka bílnum sínum, og því fengið sér blund. samningur við ýms sjónvarps- og útvarpsfyrirtæki. Hún hefur tvisvar farið í söngferð til Evr- ópu, og er myndin tekin í Lond on fyrir skömmu, en þar söng Ihún m.a. nýjasta topplagið sitt, „Maybe I Know“. Lesley er 18 ára gömul dóttir vellauð ugs viðskiptamanns í Tenafly, New Jersey. r / J A VI9AVANGI Fjárhagsörðugleikar hafnarsjóða Fjárskortur hafnarsjóða og dráttur, sem af honum stafar,- á nauðsynlegum framkvæmd- um, er mörgum áhyggj.uefni, í sjávarplássum norðanlands Qg víðar. Samkvæmt gildandi lög- um eiga hafnarsjóðir eða hiui- aðeigamdi sveitarfélag yfirleitt að greiða 60% af kostnaði við liafnargerð. En nú er svo kom- ið vegna hinnar miklu dýrtíðar, að svo að segja hver áfangi, sem unninn er á hverjum stað, er milljónafyrirtæki. — Og hver höfn kostar tugi milljóna, svo að slep.pt sé þó nokkrum höfn- um sunnanlands, sem kosta enn meira. Yfirleitt hafa liafn- arsjóðir tekið lán til að greiða sinn hluta og fengið ríkis- ábyrgð. — Þau svcitarfélög eru mörg, sem ekki hafa getað greitt vexti af lánum þessum nema þá að litlu leyti. Ríkis- sjóður hefur þá borgað af lán- unum og viðkomandi hafnar- sjóðir eða sveitarfélag komizt í t’ilsvaraudi skuld við ríkissjóð. Vanskilaskuldirnar Fyrir 2—3 árum var hafizt handa um að semja um og inn- heimta vanskilaskuldir vegna 1* ríkisábyrgða, þar á meðal skuldir sveitarfélaga vegna hafnarframkvæmda. Sumt var gefið eftir, en sveitarfélögin að öðru leyti látin greiða vanskila- skuldirnar með því að skrifa undir skuldabréf. Þetta var lé- leg lausn. Mergurinn málsins er sá, að hálfgerð höfn gefur ekki af sér þær tckjur, að þær nægi til að stánda stráúm af 60% stofnkostnaðar. Þegar höfn er fullgerð og fafiu að hafa áhrif til eflingar atvinnu- Iífi má vænta verulegs tekju- auka, en fyrr ekki. Hægt væri að hugsa sér, að allar liafnir væru landshafnir og gerðar af ríkinu, eins og þjóðvegir. Þann- ig er það í Keflavík og á Rifi á Snæfellsnesi, samkvæmt sér- f. stökum lögum. Önnur þessara hafna hefur haft miklar tekj- ^ ur, en hin engar, svo þar hefur ; ríkið fengið lítið í sinn hlut. Til þessa Iiefur þótt ráðlegt, - að hafnargerð yrði yfirleitt á- fram á vegum svéitarfélaga. Breytinga er þörf Framsóknarmenn fluttu í vet- ur á Alþingi frumvarp um breytingu á hafnalögum. Aðal- efni þcss var, að ríkissjóður greiddi eftirleiðis 65% af kostn aði við nauðsymlegustu og dýr- ustu hafnarmannvirki, hafnar- garða (öldubrjóta), bátakvíar, afgreiðslubryggjur allt að 150 m á hverjum stað, dýpkun á siglingaleiðum í hafnarmynnum og að bryggju hafnarsjóðs, svo og til fyrstu framkvæmda á hverjum stað. unz þær nema 3 milljónum króna. Hluti sveit- arfélaga eða hafnarsjóða myndi þá yfirleitt lækka úr 60% nið- ur í 35% Gert var ráð fyrir, að hér væri um bráðabirgða- breytingu að ræða, unz sett hafa verið ný liafnalög, en und- irbúningur þess var hafinn fyr- ir nokkrum árum og nýtt hafna Iagafrumvarp er búið að liggja hjá ríkisstjóminni síðan á ofan- verðu ári 1961, samið af nefnd, sem ásamt vitamálastjóra vann þetta verk fyrir Alþingi og rík isstjórn. Sennilega yrði hér Framh. á 15. síðu TÍMINN, föstudaginn 11. september 1964 3 | - >

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.