Tíminn - 17.09.1964, Blaðsíða 15

Tíminn - 17.09.1964, Blaðsíða 15
KRAFTAVERKIÐ Framhalo ai 16. sfSu. En þriðja leikritið í röðinni á leikskrá verður „Hver er hræddur við Virginíu Woolf?“ eftir frægan, ungan mann í New York, Edward Albee, sem sýnt hefur verið við feikna hrifningu á Broadway og í London af sama leikhópnum síðan í fyrra, en auk þess leik ið í mörgum löndum öðrum. Þýðandi er Jónas Kristjánsson, leikstjóri Baldvin Halldórsson, leiktjaldamálari Þorgrímur Einarsson og aðalleikendur, Helga Valtýsdóttir og Róbert Arnfinnsson. Nálægt jólum verður fluttur söng og látbragðsleikurinn „Stöðvið heiminn" eftir Leslie Bricusse og Anthony Newley, í þýðingu Þorsteins Valdimars- sonar, en lei'kstjóri verður Ivo Cramér, norskur maður, sem starfar í Stokkhólmi og setti leikinn á svið þar og víðar. — Hefur leikurinn vakið feikna hrifningu hvarvetna. f janúar kemur svo hið um- deilda leikrit „Eftir syndafall ið“ eftir Arthur Miller, þýðandi Jónas Kristjánsson og leikstj. Gísli Halldórsson Því næst verður sennilega sett í fyrsta sinn á svið Þjóðleikhússins leik rit eftir Bertold Brecht, hið síð asta sem kom fiá hans hendi, „Arturo Ui“, gerist í Chicago en fjallar um forsprakka naz- ismans. Pólski leikstjórinn Er- win Axer, sem stjórnaði flutn ingi þess á leiklistarþinginu í Varsjá í fyrra við tnikinn orð- stír, kemur hingað væntanlega til að setja leikritið á svið. Þá er áformað að flytja frægt, þýzkt leikrit nýtt, „Staðgengill- inn“ eftir Rolf Hochuth, þýð- andi og leikstjóri, Gísli Al- freðsson. Upp úr næstu mánaðamótum hefjast sýningar í litla leik- salnum f Lindarbæ, húsi verka lýðsfélaganna við Lindargötu, og fyrst sýndir þar „Kröfuhaf- arnir" eftir August Strindberg sem fumsýnt var á Listahátíð- inni í vor á sviði Þjóðleikhúss- ins, Síðan verður sett á svið í Lindarbæ „Sköllótta söngkon- an“ eftir Ionesco. f þessum húsakynnum, sem Þjóðleikhús- ið hefur tekið á leigu til fimm ára, verður Leiklistarskóli Þjóð leikhússins til húsa. Með vorinu verður flutt óper an „Madame Butterfly“ eftir Puccini, og líklega kecnur einn- ig á svið nýr íslenzkur ballett, sem Guðlaugur Rósinkrans hef ur samið söguhandrit að, en Erik Bisted semur danshand- ritið og Jón Sigurðsson tónlist- ina. Þrjár leiksýningar verða tekn ar upp að nýju frá í vor, „Tán- ingaást“, „Sardasfurstinnan“ og „Mjallhvít". EINVIGI Framhald af 1. síðu. lynda samvinnustjórn á sem breið- ustum grundvelli. Hann var for- sætisráðherra í samsteypustjórn með íhaldsmönnum, og stendur íhaldsflokkurinn nær einhuga að baki honum nú. Flokkurinn er grundvallaður á fylgi bænda, en í seinni tíð hafa hin frjálslyndu sjónarmið hans unnið mikið á og þá sérstaklega í borgum og bæjum. Kom þessi þróun ekki hvað sízt fram, er flokkurinn breytti nafni sínu s.l. ár i Vinstri, frjálslyndi flokkur Danmerkur. Hefur í seinni tíð og þá sérstaklega í bæjunum verið lögð meiri áherzla á seinni hluta nafnsins í kosningaáróðri. Nú eiga vinstri flokkurinn og íhaldsflokkurinn 71 mann til sam ans á þingi, en sósíaldemókratar 77 þingmenn. Þingmenn vinstri flokksins eins eru 39. FRYSTING Framhald af 1. síðu. loftþéttar, t.d. nota alummium pappír, frostpappír eða svu kallað cryovac, og einnig væri mikið atriði að hafa lítið í hverjum pakka. svo írystingin gæti orðið fljótari, og setja heldur ekki of mikið í irysti kisturnar til þess að lækka frostið ekki með því.Unnsteinn sagði, að alls konar ávaxta- salöt hefðu reynzt hentug til frystingar, og gætu húsmæð- ur notað sér það, og búið til töluvert magn í einu og fryst svo afganginn. — En un.búð- irnar eru sem sagt þýð ngar miklar, þær þurfa að vfcra raka cg loftþéttar, það má ekki gleymast, sagði hann að lokum. OFÆRÐ Framhald af 16. síðu. ið og var afspyrnu rok á afréttin um í gær. Veður var þurrt, en stormurinn var svo svartur, að ekki sá út úr augunum. Flóamenn, sem fóru frá Dalsá vestur yfir ör- æfin, áttu fullt í fangi með að rata, þó kunnugir væru. Allir kom ust þeír í náttstað heilu og höldnu á Sultarfit, en þar var köld að- koma og næturgisting ónæðissöm. Engum fjallmanni kom dúr á auga um nóttina og aðeins tvö tjöld voru uppistandandi í gærmorgun, hin höfðu fokið. Magnús Áma- son, bóndi í Flögu, sem hefur ver ið fjallkóngur Flóamanna í 50— 60 ár, telur að slíkt fárviðri hafi hann aldrei áður vitað. RÁDSTífNA IIM ATVINWJ- MÁL SIGlflRDKA 15 ÞUSUND Framhald aí l. síðu. slipp, og á að skila skipinu sjókláru. í því ásigkomulagi munu Grikkirnir greiða 11 þúsund sterlingspund fyrir skipið. Grikkirnir ætla sér að setja dieselvél í skipið, og gera það síðan út á fisk- veiðar við Kanaríeyjar. Samningarnir um sölu á Sólborginni eru aftur á móti ekki komnir eins langt, þar sem staðið hefur á rík- isstjóminni að gefa ákveðið svar. Svarið átti að koma í dag, en í kvöld hafði milli- göngumaðurinn um sölu skipsins enga tilkynningu fengið þar að lútandi. Sólborgin er yngra skip en Ágúst, skrokkurinn í betra ásigkomulagi, og gerir það skipið því að sjálfsögðu verðmeira. Ef af samning- um verður, er ætlunin að gera Sólborgina út á fisk- veiðar. Bjarni riddari, sem seldur var í fyrra mánuði, er enn hér í Reykjavíkurhöfn, og er unnið að því að gera skipið sjóklárt. Ekki er fullvíst til hvers skipið verð- ur notað, en tvennt kemur til greina. Annars vegar að nota skipið í ávaxtaflutn- inga, og hins vegar að setja frystitæki í skipið, gera það út á fiskveiðar, og heil frysta fiskinn um borð. Verkalýðsfálögin í Siglufirði, Þróttur og Brynja, hafa boðað til ráðstefnu um atviiwiumál Siglfirð- inga í samræmi við einróma sam- þykkt almenns borgarafundar á Siglufirði 31. ágúst síðast liðinn. Til ráðstefnunnar er boðið þintg- mönnum úr Norðurlandskjördæmi vestra, fulltrúum þingflokkanma, fulltrúa ríkisstjórnar, formanni milliþinganefndar í atvinnurmál- um, fulltrúum bæjarstjómar Siglu- fjarðar, bæjarstjóra Siglufjarðar; fulltrúa frá Vinnuveitendafélagi Siglufjarðar, fulltrúa frá Sfldar- verksmiðju ríkisins, fulltrúa frá Alþýðusambandi fslands, svo og stjórnum og atvwinumálanefnd verkalýðsfélaganna, sem að ráð- stefnunni standa. Ráðstefnan verður haldin í Siglufirði dagana 19. og 20. þ.m. og hefst klukkan tvö laugardag- inn 19. Dagskrá fundarins verður tvískipt og verður fyrri daginn rætt um atvmnuástand í Siglu- ÞING B.S.R.B. 23. ÞING Bandalags starfs- enanna ríkis og bæja verður hald- ið dagana 17.—20. sept. n. k. í Hagaskóla. — Verður það sett fimmtudaginn 17. september kl. 5 e. h. Kjörbréf hafa borizt fyrir 117 fulltrúa frá 28 bandalagsfélögum er telja um 5.200 meðlimi. Auk þess sitja þingið boðsgestir frá öðrum stéttasamböndum og einn- ig frá samtökum opinberra starfs- manna á Norðurlöndum. firði nú í vetur unuir eftirfarandi dagskrárliðum: 1) Niðurlagningarverksmiðjan. 2) Tunnuverksmiðjan. 3) Útgerð og hraðfrystihús. 4) Vinna við Strákaveg. 5) Önnur úrræði. Síðari daginn verður fyrst og fremst rætt um atvinnuuppbygg- ingu í Siglufirði í framtíðinni- undir eftirfarandi liðum: 1) Aðstaða til þorskútgerðar. Innri höfnin. 2) Skipasmíðastöð og dráttar-; braut. 3) Lýsisherzla. 4) Smáiðnaður. 5) Önnur mál. Borun eftir vatni í Vestmannaeyjum hætt FB-Reykjavík, 16. september. Nú hefur verið hætt við frekari leit að vatni í Vestmannaeyjum í bfli, eti þar hefur verið borað með hinum svokallaða Norður- landsbor frá því í marz í vctur. Holan er orðin 1565 metra djúp, en lítið vatn hefur komið upp úr holunni. fsleifur Jónsson verkfræðingur tjáði okkur, að frá upphafi hafi verið rætt um að bora ekki niður fyrir 1500 metra, og væri því marki nú náð, og því hefði verið hætt borun. Hins vegar væri eftir að prófa árangurinn að þess- ari borun, og mætti búast við nið- urstöðum athugananna eftir nokkr ar vikur, en að rannsóknunum stáífa auk ísleifs, Jón Jðnsson og Guðmundur Pálmason. Borholan kostar nú um 4 millj. kr., og munu Vestmannaeyingar NIU YFIR 25 ÞOSUND EJ-Reykjavík, 16. sept. NÍU skip eru nú komin með 25.000 mál og tunnur eða meira á síldarvertíðinni og er Jörundur III ennþá hæstur með 36.278 mál og tunnur, en Jón Kjartapsson er alveg á hælum hans með 35.483. Einn bátur til, Snæfell, hefur feng ið yfir 30.000 mál og tunnur. Samkvæmt síldarskýrslu Lands- sambands ísl. útvegsmanna höfðu eftirtalin skip fengið yfir 25.000 Dómur í máli brezka | skipstjórans j GS-ísafirði, 16. sept. KVEÐINN hefur verið upp dóm- ur í máli skipstjórans Henry Bricks á Dragon FD60, sem tekinn var að veiðum 0,9 sjóm. innan fiskveiðitakmarkanna út af Barða. Skipstjórinn hlaut 260 þús. króna sekt og afli og veiðarfæri voru gerð upptæk. Skipstjórinn hefur áfrýjað dómnum til hæstaréttar. Þess má geta, að Dragon var með lítinn afla, aðeins um 260 kit. i Sýnikennsla um meðferð kjöts LG-Selfossi, 16. sept. ÐAGANA 22. til 25. sept. heldur Samband sunnlenzkra kvenna sýni kennslu í meðferð og geymslu á kjöti. Kennslan fer fram í sam- komusal KÁ á Selfossi 22. sept., í félagsheimilinu að Flúðum 23. sept., og á Strönd á Rangárvöllum 4. sept., en síðasta námskeiðið verður í Seljalandsskóla, Vestur- Eyjafjöllum 5. sept. Kennari verð- ur frá Adda Geirsdóttir, Laugar- vatni. Sýnikennsla þessi ætti að koma í góðar þarfir. þar eð kon- ur eru nú sem óðast að útbúa vetr arformann. Formaður Sambands sunnlenzkra kvenna er Ragna Sig- urðardóttir, Þórustöðum, Ölfusi. mál og tunnur á miðnætti s. 1. laugardag: Jörundur III 36.278, Jón Kjartansson 35.483, Snæfell 32.640, Sigurpáll 29.982, Sigurður Bjarnason 28.125, Bjarmi II 27.158, Helga Guðmundsdóttir 26.587, Höfrungur III 26.285, Árni Magn- ússon 25.151. Alls hafa 30 skip fengið 20.000 mál og tunnur eða meiri afla á síldveiðunum fyrir norðan og aust an, við Vestmannaeyjar og í Faxa- flóa. greiða helming kostnaðarins. — Nokkurt vatn kom fram í holunni þegar hún var um 900 metra djúp, og verður nú athugað nákvæmlega hve mikið það magn var, og hvort um nokkra aukningu hefur verið , að ræða, eftir að helan dýpkaði. PÚSSNINGAR- SANDUR Heimkeyrður pússningar- sandur og vikursandur sigtaður eða ósigtaður við húsdyrnar eða kominn upp á hvaða hæð sem er eftir óskum kaupenda. Sandsalan við Elliðavog s.f. Sími 41920 Við seljum Opel Kad. station 64. Opel Kad. station 63. Wolksv 15, 63. Wolksv. 15. 63 N.S.U. Prinz 63 og 62. Opel karav. 83 og 59. Simca st. 63 og 62. Simca 1000 63 \RAUOARÁ' SKÚLAGATA 55 — SiMt I58B' ÞAKKARÁVÖRP Innlegar þakkir færi ég ykkur öllum, sem heimsóttuð mig, senduð mér kveðju og færðuð mér höfðinglegar gjafir á fimmtugsafmæli mínu þann 6. sept. s.I. Gæfa og gengi fylgi ykkur. Ásgeir Bjarnason, Ásgarði. JarSarför Ásgeirs Eiríkssonar, sveitarstióra Stokkseyrarhrepps fer fram frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 19. þ. m. kl. 14.30. Þelm, sem vlldu minnast hins látna er bent á Stokkseyrarkirkju. Vandamenn R N, fimmtudaginn 17. september 1964 — 15

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.