Tíminn - 01.10.1964, Blaðsíða 7
Utgetandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN.
Ki- unit>'æmclast.1ón K.rist.ián Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
t>o" ii-'nsson <ábi Andrés Kristjánsson Jón Helgason og Indriði
<; Pnrsteinsson Puiltrúi ritstjórnar Tómas Karlsson Frétta
stióri .Jónas Kristjánsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason.
Hitstjórnarskrifstofur t Eddu-húsinu símar 18300—18305 Skrif-
stofur BankastT 7 Afgr.simi 12323 Augl. sími 19523 Aðrar
skrifstofur. simi 18300 Askriftargjald kr. 90,00 á mán tnnan-
lands — í lausasölu kr. 5,00 eint — Prentsmiðjan EDDA h.f.
Merkileg tilraun
Það er merkilegt framtak, að allmörk íslenzk iðnaðar-
fyrirtæki hafa tekið saman höndum um að opna sölubúð
og söluumboð í New York fyrir margháttaðar íslenzkar
iðnaðarvörur.
Hingað til hefur nær eingöngu verið unnið að þvi að
selja erlendis íslenzkar sjávar- og landbúnaðarafurðir.
Ýmis fyrirtæki eins og Samband íslenzkra samvinnu-
félaga, Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda og Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna hafa unnið merkilegt braut-
ryðjandastarf á því sviði.
Hingað til hefur hins vegar verið lítið gert af því að
reyna að selja íslenzkar iðnaðarvörur erlendis Fyrir
atvmnulíf þjóðarinnar væri það mikilsverður ávinningur,
ef það tækist. Það skiptir miklu máli, að atvinnu-
staiísemi landsmanna geti orðið sem fjölbreyttust. Ýms-
ir s.|á ekki annað en svonefnda stóriðju í því sambandi.
alúminíumverksmiðju, olíuvinnslustöð o. s. frv. Siálf-
sagt er að athuga möguleika á pllu slíku til hlítar. En það
má ekki verða til þess, að menn gleymi alveg hinum
minni iðnfyrirtækjum. Þau veita oft hlutfallslega miklu
meiri atvinnu en stórfyrirtækin. Tekjur þeirra reynast
einmg oft notadrýgri. Þess vegna ber okkur að leggja
kapp á að efla slíkan iðnað eftir því, sem föng eru á. Það
myndi mjög styrkja þennan iðnað, ef hægt yrði að íinna
vörum hans markað erlendis. Þess vegna er það hið
merkasta framtak, að hafizt er handa um að reyna að
ryðja þeim braut á hinum ameríska stórmarkaði.
Það skiptir og miklu máli, að vel hefur tekizt með val
forstöðumanns, þar sem Kristján Friðriksson er, og að
tflraun þessi virðist gerð af myndarskap. Annað dugir
ekki. Það má ekki heldur láta hugfallast, þótt mikill á-
vinningur náist ekki strax. Það kostar bæði tíma og fjár-
muni að ryðja sér braut á þessum vettvangi
Margar hinar minni þjóðir treysta nú afkomu - sína
með því að efla ýmsan iðnað, sem ekki er eins f járfrfck-
ur og stóriðnaðurinn. Danir hafa náð ótrúlega góðum
árangri á því sviði hin síðari ár. íslendingar eiga tvímæla-
laust að reyna að fylgja því fordæmi Rétt spor er tví-
mælalaust stigið í þá átt með umræddri sölustarfsemi
íslenzkra iðnfyrirtækja vestanhafs.
Warren-skýrslan
Um fátt er nú meira rætt en hína svonefndu Warren-
skýrsúi. er fjallar um morðið á Kennedy forseta. Flest rök
hníga að því, að sú niðurstaða skýrslunnar sé rétt, að
Oswald hafi verið einn að verki, en hvorki 'nnlendir né
erlendir aðilar staðið á bak við hann. Vafasamt er þó,
að skýrslan dugi til þess, að þessi niðurstaða verði al-
mennt viðurkennd. Það hefur sýnt sig í sambandi við
svipaða atburði áður, að menn hafa ekki getað sætt sig
við eina skýringu. heldur leitað að nýjum og nýjum.
Því má telja víst. að morðið á Ker.nedy verði áfram á
dagskrá og um það verði ritaðar margar bækur með
rnjög mismunandi niðurstöðum. Það mun líka rétt, sem
James Reston segir í New York Times, að þott Wanæn
skýrslan svari mörgum spurningum og hnekki ýmsum
fyrri fullyrðingum, vekur hún jafnframt ýmsaT nýjar
spurningar, sem nú verður farið að glima við Hið hörmu
lega fráfall Kennedys forseta mun vafalítið verða einn
umræddasti atburður mannkynsögunnar.
Nýja ríkisstjórnin í Danmörku
Svo getur farlð, að hún reynist alltraust í sessi
ÞÓTT kosningarnar í Dan-
mörku leiddu til stjórnarskipta,
leiddu þær ekki til langvarandi
stjórnarkreppu, enda var það
nokkum veginn ráðið fyrir
fram, hvað verða myndi, ef
Sósíaldemókratar og Radikalir
næðu ekki meirihluta saman
eða Vinstri flokkurinn og í-
haldsflokkurinn fengu ekki sam
anlagt fleiri þingsæti en Sósíal-
demókratar. Undir þeim kring-
umstæðum þótti ekki annar
möguleiki fyrir hendi en minni-
hlutastjóm Sósíaldemókrata.
Menn vissu því strax um
nóttina, þegar atkvæði höfðu
verið talin, að næsta stjórn
Danmerkur yrði minnihluta-
stjórn Sósíaldemókrata. Þær
viðræður, sem síðar fóru fram
milli flokkanna, voru ekki ann
að en formsatriði og miðaðar
við vígstöðu þeirra í framtíð-
inni. Allir vissu, að þetta
myndi enda með minnihluta-
stjórn Sósíaldemókrata undir
forustu J. O. Krags, eins og
líka varð.
Viðræður þessar eink'ennd
ust mjög af þrátefli milli Radi-
kala-flokksins og Vinstri flokks
ins vegna glímu þessara flokka
um vissan hluta kjósenda. Radi-
kalir lögðu áherzlu á að leiða
í ljós, að Vinstri tiokkurinn
vildi ekki mynda stjóra nema
með íhaldsflokknum. Vinstri
flokkurinn lagði hins vegar á
herzlu á að leiða i ljós, að
Radikaiir vildu ekki raunveru
lega styðja aðra en Sósíaldemó
krata. Til að sanna mál sitt,
buðust Radikalir til að styðja
stjórn Sósíaldemókrata og
Vinstri flokksins, og létu Erik-
sen, formann Vinstri flokks-
ins, neita því. Vinstri flokkur-
inn reyndi hins vegar að sanna
mál sitt með því að bjóða Radi
kölum að styðja stjórn borgara-
legu flokkanna. Því neituðu
Radikalir. Eftir að þessir mögu-
leikar voru úr sögunni, var
ekki um annað að ræða en
minnihlutastj. Sósíaldemókrata,
þar sem bæði Sósíaldemókratar
og Vinstri flokkurinn höfðu
strax í upphafi hafnað þjóð-
stjórn gömlu flokkanna fjög-
urra, þ.e. Sósíaldemókrata,
Vinstri flokksins, íhaldsflokks-
ins og Radikala.
ÞÓTT hin nýja stjórn sé
minnihlutastjóra, er ekki víst,
að hún reynist svo veik í sessi.
Hún mun sennilega ekki brjóta
J. O. Krag,
foringi Sósíaldemókrata
en reyna að leysa þau efna-
hagslegu vandamái, sem upp
koma, í samvinnu við stjórnar-
andstæðinga. Ef þeir hafna hóf
sömum tillögum stjórnarinnar
í þessum efnum, hefur hún það
vopn að efna til kosninga. Ekki
er sennilegt, að stjóraarand-
staðan knýi þannig fram kosn-
ingar, nema hún geri sér von
um vinning, a.m.k. ekki fyrst
um sinn. Ólíklegt er, að Krag
leysi nokkur meiriháttarmál
með radikölum og flokki Aks-
els Larsens, þar sem hann lýsti
yfir því fyrir kosningarnar, að
Sósíaldemókratar myndu ekki
láta framgang neinna stjórn-
mála velta á atkvæðum Aksels
Larsens og fylgismanna hans.
Af stjórnarandstöðuflokkun-
um mun reyna mest á Vinstri
flokkinn. Kjósendahópur hans
er þannig, að hann á mest á
hættu, einkum síðan hann efldi
fylgi sitt í bæjunum. Hinir
Erik Eriksen,
form. Vinstri flokksins
Karl Skytte,
form. Radikala
tveir nýju þingmenn, sem hair.i
fékk kosna í Kaupmannahöfn,
tilheyra báðir vinstri armi
flokksins, sem kýs heldur sam-
starf við Sósíaldemókrata en
íhaldsflokkinn. Annar þeirra,
Niels Westerby, var um skeið
mikill fylgismaður Thorkil
Kristensen, fyrrv. fjármálaráð-
herra, en hann var mjög ósam
þykkur þeirri stefnu Eriksens
að hafa náið samstarf við
íhaldsflokkinn. Westerby hefur
síðan látið talsvert til sín taka
og þykir ekki ósenmlegt, að
hann geti reynzt Eriksen örð-
ugur, a.m.k. gera Radikalir sér
von um það. Eriksen mun því
þurfa að sýna mikla lægni, ef
hann á að halda áfram sam-
vinnu við íhaldsflokkinn og
hafa samt hinn vaxandi vinstri
arm flokksins ánægðan. Mikið
mun velta á, að íhaldsflokk-
urinn skilji þetta og marki sér
HVamhalo 6 síðu li)
T f M I N N , fim«tudagmn 1. október 1964 ■—
%