Tíminn - 01.10.1964, Qupperneq 8
f
Framsóknarblaðið í Vestmanna eyjum birti 23. september viðtal
við áttræðan merkismann, Einar Sigurfinnsson. Tilefni viðtalsins er
það, að Einar varð nýverið áttræður. Síðastliðin níu ár hefur hann
átt heima í Vestmannaeyjum, hjá syni mínum Guðmundi, deildar-
stjóra í Kaupfélagi Vestmannaeyja. Einar Sigurfinnsson missti
fyrri konu sína árið 1913. Með henni eignaðist hann tvo syni,
biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson og Sigurfinn,
verkstjóra hjá ísfélagi Vestmannaeyja. Seinni kona hans er Ragn-
hildur Guðmundsdóttir. — Viðtalið við Einar fer hér á eftir:
Hefur áhuga fyrír trú-
málum, bindindismálum
og samvinnuhugsjóninni
Einar Sigurfinnsson, Kirkju
vegi 29, hér í bæ, átti nýlega
áttræðisafmæli. Af því tilefni
átti undirritaður stutt viðtal
við afmælisbarnið.
— Þú ert Skaftfellingur að
uppruna, Einar?
— Já, ég er fæddur að Háu-
Kotey í Meðallandi þaan 14.
september 1884. Foreldrar mín
ir voru Eristín Guðmunds
dóttir, heimasæta í Háu-Kotey,
og Sigurfinnur Sigurðsson bú-
stjóri sama stað. Móðir enín
giftist siðar Sigurði Sigurðs-
syni frá Fjósatungu í sömu
sveit. Þau bjuggu fyrst í Háu-
Kotey og þar ólst ég upp hjá
móður minni og fóstra í stór-
um systkinahópi.
— Og skólagangan varð
stutt?
— Það var farkennsla og ég
held, að ég hafi alls verið í
bamaskóla í 15 vikur. Það var
mitt skólanám. Fátæktin sá fyr
ir því að það var ekki lengra.
Séra Gísli Jónsson, prestur i
Langholti fermdi mig. Hann
var afbragðs kennari. Nú flutti
hann skömmu eftir að ég
fermdist út að Mosfelli í
Grímsnesi. Þá vildi hann taka
mig eneð sér þangað og kenna
mér undir skóla, eins og þá
var kallað. En þetta góða boð
var ekki hægt að þiggja, því
heimilið þurfti á minni hjálp
að halda við bústörfin. Mig
langaði að komast í Flens-
borgarskólann.
— En það var.nóg að starfa
— Já, kjörin voru þannig, að
fólkið þurfti á öllu sínu þreki
að halda, og það var annað-
hvort að duga eða drepast.
Meðallandið var erfið sveit og
afskekkt, jarðir litlar og búin
þess vegna smá og mikil fátækt
á flestum bæjum. Þá var ekki
um annað að ræða en hand
verkfæri og hesturinn eina
flutningatækið. Maður er svo
sem alinn upp í gamla tíman-
um.
— Og félagslíf?
— Við stofnuðum ungmenna-
félag 1908, en áður var stúka
starfandi í sveitinni. Skemmti-
kraftar voru ekki sóttir út fyrir
sveitina. Þá var 'talið sjálfsagt
að leggja sig fram við að
byggja upp samkomurnar þann-
ig, að þær hefðu menningar-
legt gildi, enda ekki fjarri að
ungmennafélögin hafi verið
lýðskólar sveitanna.
— Og þú staðfestir ráð þitt.
— Eg gifti mig 1910, Gísl
rúnu Sigurbergsdóttur frá Háu-
Kotey. Okkar samvistir urðu
stuttar, því hún lézt af völd
um bruna 1. janúar 1913. Frá-
sögn af þeim atburði er skráð
annars staðar og missirinn
gleymist mér aldrei. Við bjugg-
um þessi ár á Steinsmýri í
MeðaUandi, en eftir að hún
lézt, flutti ég aftur að Kotey
og bjó þar í félagi við bróður
minn. Við eignuðumst tvo
drengi, Sigurbjörn biskup og
Sigurfinn verkstjóra hjá ísfé-
lagi Vestmannaeyja.
— Þú manst vel eftir Kötlu-
gosinu 1918?
— Já, þá kreppti að hjá okk-
ur Skaftfellingum. Það var
samvinnuskipulagið, sem bjarg-
aði sveitunum fyrir austan
EINAR SIGURFINNSSON
Sand. Bjarni Kjartansson, kaup
félagsstjóri I Vík og Lárus á
Klaustri höfðu þá forystu á
höndum.
— Þú settist að í Reykjavík?
— 1926 flutti ég til Reykja-
víkur og var þar í þrjú ár.
Kunni ekki við mfg þar, enda
var mikið atvinnuleysi um þær
mundir í höfuðborginni. Svo
kvæntist ég í annað sinn, er
seinni kona mín Ragnhildur
Guðmundsdóttir frá Syðra-
Langholti í Hreppum. Við hóf-
um búskap að Iðu í Biskups-
tungum vorið 1929 og bjuggum
þar í 26 ár, að við fluttum hing-
að til Vestmannaeyja. Sonur
okkar er Guðmundur, deildar-
stjóri í Kaupfélagi Vestmanna-
eyja. Með Rágnhildi kom í
heimilið drengur, Skúli Helga
son, og ólst hann upp hjá
okkur.
— Og hvernig hefur þú svo
kunnað við þig í Eyjum?
— Mér hefur hvergi liðið
betur.
s;#- Heldur þú að það sé
hætta á, að þjóðin veiklist í
velgengninni.
— Nei, ég hef trú á æsk-
unni, og hún áttar sig og veld-
ur sínu hlutverki, þegar þar
að kemur.
— Og nú lítur þú yfir far
inn veg.
— Það hlýtur maður að
gera. Og mér finnst sárast að
sjá hvað ég hef litlu áorkað
Eg hef áhuga fyrir bindindis-
málum, samvinnuhugsjóninm
og trúmálunum. Þessum hugð-
arefnum hef ég reynt að leggja
lið og hygg, að því meira, sem
vinnst á vettvangi þessara
mála, því betur vegni íslenzku
þjóðinni.
— Hugsar þú mikið um
dauðann?
— Nei, þar læt ég nótt, sem
nemur, og ég hef engar áhyggj
ur, þó hann komi í kvöld. Eg
er þess fullviss, að annað líf
tekur við, og þar verður séð
fyrir öllu. Trú; var mér innrætt
frá blautu barnsbeini, og ég
hef reynt að halda henni við.
Hún er athvarfið í raunum, og
velgengnin verður dýftnætari,
sé litið á hana sem guðsgjöf
Það hefur komið fyrir, að ég
hef fundið eitthvað í náiægð,
sem ekki verður skýrt frá
sjónarmiði efnishyggjunnar, og
mér hefur verið send huggun
í raun og hjálp í nauð, svo ég
efast ekki um, að það er yfir
oss vakað. En bænin má aldrei
bresta þig.
Hér látum við samtalinu lok-
ið, þó mér, sem festi þetta á
blað, sé Ijóst, að flest er óskrif
að, sem í venjulegum afmæl
isgreinum, eins og upptalning
á félagsmálastörfum og veg-
tillur, sem afmælisbarmð hef-
ur hlotið. Hitt verður að minn-
ast á, að afmælisbarnið á ó-
venju marga vini. Um það
vitnar fjöldi heillaskeyta og
afmælisgjafirnar, þar á meðal
er hlaði af bókum, og segist
Einar verða að reyna að lifa
fram eftir vetrinum til að geta
lesið þær allar.
Svo þegar ég er að fara,
réttir gamli maðurinn mér
kvæði, sem hann hefur ort
núna síðustu dagana. Rekur
hann þar þráð liðinna daga af
hógværð og sálarró hins lífs
reynda og trúaða manns. Leyfi
ég mér að lokum að birta síð
asta erindið.
„Nú er bráðum lokið leið
til landsins dýrðar bjarta.
Ljómar bak við dapran deyð
Drottins náðar sólin heið.
Lofi Drottinn hugur, tunga
og hjarta.“
Sigurgeir Kristjánsson.
tu
mæta kirkjumuni. Höfðu þeir ver
ið fjarlægðir úr kirkjunni, sumir
jafnvel seldir til annarra landa. Á
fundinum var kosin nefnd, sem
skal hafa það hlutverk með hönd
um, að grennslast fyrir um, hvar
hinir fjarlægðu rnunir Þing-
eyrarkirkju séu níður komnir og
endurheimta þá, sé það mögulegt
Þá var á fundinum samþykkt
tillaga, þar sem beint er til kirkju
þings og kirkjuráðs að beita sér
fyrir því, að opinbert framlag
til bygginga og endurbóta kirkiu
húsa verði aukið til muna
Fundinum lauk i kirkjunni með
því, að prófasturinn las ritningar
ra I I ■ A.
Sunnudaginn 6. september s.l.
var héraðsfundur Húnavatnspró-
fastsdæmis haldinn i Þingeyrar
kirkju, að aflokinni guðsþjónustu
í kirkjunni. Prófastuiinn, séra Þor
steinn B. Gíslason, Steinnesi, pré
dikaði. Auk hans þjónuðu fyrir alt
ari prestarnir Gísli H. Kolbeins,
Melstað, Pétur Ingja'.dsson, Skaga
4rönd og séra Jón Kr. ísfeld,
Brandsstöðuim. í prédikun sinni
minntist prófastur m.a. Ásgeirs
Einarssonar, bónda og alþm. á
Þingeyrum, sem fyrir réttum 100
árum hafði byrjað byggingu Þing
eyrarkirkju. Orgelleik við guðs-
þjónustuna annaðist prófastsfrú
Ólína Benediktsdóttn. Steinnesi,
og stjórnaði jafnframt kór. sem
söng við guðsþjónustuna.
Að guðsþjónustunni lokinni
flutti séra Guðmundur Þorsteins-
son, Hvanneyri, erindi um Þing-
eyrar. Rakti hann sögu staðarins
allt frá því að þar var stofnað
munkaklaustur á árinu 1133. Rakti
fyrirlesarinn í stórum dráttum það
gagnmerka bókmenntastarf, sem
unnið var á Þingeyrum meðan
klaustur var þar, en það var lagt
niður sem klaustur á árinu 1551.
Síðan rakti hann að nokkru sögu
staðarins frá siðaskiptum og fram
á vora daga. Var erindið mótað
af inngangs- og lokaorðum þess:
Minnstu þess, að staðurinn, sem þú
stendur á er heilög jörð.
Að erindi loknu var öllum kirkju
gestum boðið til rausnarlegra kaffi
veitinga að Þingeyrum Var það
sóknarnefndin, sem bauð, en kven
félag sóknarinnar annaðist þær og
húsráðendur.
Eftir að hafa notið góðgerðanna.
j var aftur gengið til kirkju. Þar
I hófst fundur með því, að prófast
I urinn flutti yfirlitsskýrslu sína.
I Ræddi hann fyrst um kirkjulegt
starf á árinu aknennt, en sneri sér
svo að því, sem gerzt hefði í
kirkjumálum prófastdæmisins. M.
a bauð hann velkominn og kynnti
fyrir fundarmönnum séra H. Mart
in frá Glasgow, sem mættur var á
fundinum. En séra Martin gegnir
um þriggja mánaða skeið prest-
störfum fyrir séra Robert Jack,
Tjörn á Vatnsnesi, sem þann tíima
dvelur í Glasgow.
Þegar prófastur hafði lokið
skýrslu sinni, flutti Jón S. Pálma-
son, Þingeyrum, erindi um Þing-
eyrarkirkju. Rakti hann sögu kirkj
unnar og gat ýmissa viðgerða og
endurbóta, sem söfnuðurinn hafði
gert m.a. iátið eirþak á kirkjuna.
Ræðumaður lýsti síðan munum
kirljjunnar, sem margir hverjir
eru mjög dýrmætir, og sagði sögu
þeirra, eftir því semn bezt verður
vitað. Kirkjan átti, allt fram
undir síðustu aldamót, fleiri verð
Maðurinn, sem skrifar þáttinn:
Útvarp — Reykjavík í Morgun-
blaðið s.l. fimentudag, kemst nokk-
uð kynduglega að orði í loka-
setningu greinarkorns þar sem
getið er um útvarpserindi mitt,
er ég flutti 10. þ.m. og segi frá
dvöl minni á „Vár GSrd“ i Sví-
þjóð á s.l. vori, en í því hafði ég
leyft mér að segja að Sviar væru
friðelsk þjóð og nokkur fleiri vin-
samlega orð lét ég fafla . garð
þeirrar þjóðar En þegar þessi
maður er búinn að brengla frá-
sögn •nína eftir eigin geðþótta,
eins og er hann segir að ég hafi!
talað um „lagni“ Svíg að ..sitja
hjá“ í síðustu heimsstyrjöld (gæsa
lappir hefði nann getað sparað;
sér í þesusm tilbúningi sinum),í
þá klykkir hann út með þessari
setningu. eftir nokkrar fleiri
vangaveltur. orðrétt svona ,.Hitl-
er var nefnilega friðarsinm. svo
lengi sem hann fékk óskir sínar
uppfylltar átakalaust."
Þessa kenningu um Hitler hafði
ég aldrei heyrt fyrr, og ætlaði
ekki að trúa mínum eigin augum.
en það stóð þarna svart á hvítu
í sjálfu Morgunblaðinu að Hitler
hefði verið friðarsinni!
Hingað tii hefur ekki mátt
nefna orðið ,.friður“ eða neitt
annað það orð gegn stríði. að ekki
hafi það æst upp reiði í sálum
nazistanna hér og þeirra fylgis
manna En hvað mun þeim ímnast
nú þegar farið er að snúa Faðir
vorinu upp á fjandann og kalla
Hitler „friðarsinna"? Þetta ætlar
að verða meiri háttar kúvending
sem eins vel getur endað með því
að Hitler verði tekinn i dýrlinga
tölu En hvað segja þéir þá i
neðra?
Sigríður Einars
frá Munaðarnesi
8
T í M I N N , fimmtudaglnn 1. október 1964 —