Tíminn - 01.10.1964, Qupperneq 13
HÉRAÐSFUNDUR
Framhald af 8. síðu.
grein og bað bænar við altarið.
Fundarmenn báðu sameiginlega
Faðlr vor og sungu að lokum vers
ið „Son guðs ertu með sanni“.
'f>á var haldið heim áð Steinnesi,
|>ar sem fundarmenn neyttu ríku
legs kvöldverðar hjá prófastshjón
Unum.
Fundinn sátu allir prestar pró-
fastsdæmisins og 12 safnaðarfull
trúar. En auk þess tóku ýimsir
fleiri þátt í fundinum, þ. á m.
eiginkonur flestra prestanna.
Síðla kvölds hélt hver ttl síns
heima, að loknum merkilegum
fundi. Voru allir þakklátir pró-
fastinum fyrir þá nýbreytni, að
helga meiri hluta fundarins minn
ingu merks atburðar í sögu eins
kirkjustaðar. Fundurinn varð þann
ig bæði umræðufundur og fræðslu
fundur.
Fundarmaður.
KOSNINGABARÁTTAN
Framhalt aí Dis 3
kannanir segi að Johnson og
Humphrey eigi eftir að vinna
þá Goldwater og Miller, þá
eru landsmenn samt tregir til
að segja hvað þeir haldi sjálfir.
Báðir aðilar eiga enn eftir mörg
ósögð orð og enn liggja þeir á
ýmsum ásökunum og pólitísk-
rnn brögður, sem þeir vona/að
edgi eftir að efla sigur-
möguleikana. Þrátt fyrir
allt, þá er það kjósandinn
sjálfur sem mun skera úr um
það hver vinnur, með sínu litla
X4. —jhm.
GETUR GERT
(Framhaid at 9 síðu \
ekkert koma málinu við á leik-
húsþingi. En eftir á fannst mér
nú bara gaman af að þetta
skyldi hafa komið fyrir — og
eiginlega verst að við skyldum
eÉ3d fá tíma til að virða þessa
yndislegu stúlku betur fyrir
okkur, þetta bar svo brátt að.
Þegar allt kemur til alls, sann
ast það á sögu kventízkunnar,
að kvenfólkið hefur alltaf ver
ið að færa sig í þessa átt —
að fækka fötum. í rauninni
langar þær allar til að fara
úr öllu — en brestur kjark til
þess. En hvað sem því líður,
og þrátt fyrir ýmiss mistök á
þessum listamannaþingum eiga
þau fullan rétt á sér og geta
orðið til gagns. Og það er synd
og skömm til þess að vita, að
John Calder, þessum ágæta og
frjálslynda útgefanda frá Lond
on, skuli vera settur stóllinn
fyrir dyrnar, þega hann ætl
aði að stofna til þriðja þings-
ins, fyrir Ijóðskáldin. Eg vona
að hér veroi haldið ljóðskálda-
þing en er hræddur um, að
siðvæðingaríhaldið hér komi í
veg fyrir að leitað verði til
hæfasta mannsius til að skipu-
leggja það, John Calder, og
megum við Edinhorgarar
skammast okkar fyrir það,“
sagði MacDiarmid, og kveikti
í pípunni sinni og fór að ganga
um gólf fyrir fullum dampi.
Annars var fundahald á þessu
þingi heldur laust í böndunum
framan af og lá við upplausnj
stundum. Mörg ung Skáld komu í
fram og lásu kvæði sín ýmist
í hefðbundnu formi eða svo-
kölluð atómkvæði. Sumir komu
inn af götunni með kvæðablöð
undir hendinni báðu um orðið
og fengu það Einn las upp
ástalífsljóð svo berort, að ung
ar stúlkur meðal fundargesta
stokkroðnuðu og einni rosk-
inni konu var svo nóg boðið, að
hún strunsaði út í fússi. Eitt
skáldið kvaðst hafa gert til-
raun með að yrkja Ijóð án orða,
en því miður væri hann ekki
ánægður með árangurinn. Samt
flutti hann nokkur ljóð með
aðstoð annars manns, sem hóf
á loft ýmsa hhrti undir lestr-
inum. Ef ljóðið var um póst-
kort, lyfti aðstoðarsveinninn
upp póstkorti til sýnis, og ef
ráuður litur kom fyrir í kvæð
inu, lyfti pilturinn upp spjaldi
sem á stóð skrífað „rautt“ o
s. frv. Eitt kvæðið fjallaði ui
boltaleik á baðströnd, og á me
an skáldið flutti það, fór ai
stoðarmaðurinn að henda rön
óttum baðstrandarbolta u:
fundarsalinn. Þetta fannst mör,
um dáskemmtilegt grín en að’
ir áttu ekki orð yfir slíka fáj
sinnu . Eftir hvern kvæðales]
ur urðu umræður og ekki go
að henda reiður á allt, sem þai
var sagt. Seinast var Georgi
Whiteman, skáldi sem starfa:
við brezka útvarpið, falin fun
arstjórn, sem hann tók að sé
með því skilyrði, að menn færit,
eftir einhverjum fundarsköpunP
og ekki kæmi til mála að ein-
hverjir óskiljanlegir bullukálf
ar færu að taka til máls og
tefja tímann. Fórst honum fund
arstjóm vel úr hendi.
Voru nú teknir til umræðu
þeir erfiðleikar, sem ljóðskáld
í Bretlandi ættu við að stríða
að fá útgefendur að verkum
sínum. Fundarstjórinn upplýsti
að af opinberu fé til styrktar
bókmenntum og listum í Bret-
landi færu 64% handa list-
dansi og óperu, en ein skitin
0.247% til ljóðagerðar í ríkinu.
Þetta þótti mönnum furðuleg
tíðindi. Kona ein meðal fundar
gesta lagði það til málanna,
að nú væri einmitt rétti tíminn
til að gera eitthvað í málinu, úr
því kosningar færu í hönd, ættu
nú skáldin að færa þetta í tal
við hvern einasta frambjóðanda
hver í sínu kjördæmi, og fá
þá til að lofa að ráða bót á
þessu ófremdarástandi. Var
loks gerð þingsályktun um að
skora á hið opinbera að gera
hlut Ijóðagerðar og bókaútgáfu
meiri en hingað til hafði verið.
Hugh MacDiarmid hafði orð
ið að hverfa af þinginu í miðj
um klíðum. Búizt.var_þó -vi3
að hann mundi koma atfur
áður en því lyki, en hann var
löglega forfallaður. Hann hafði
verið boðaður til London, þar
sem Kommúnistaflokkur Bret
lands var að velja frambjóðend
ur fyrir kosningarnar í haust.
Þaðan barst sú tilkynning, þeg j
ar Ijóðskáldin voru að hespa j
af þingið sitt í Edinborg, að !
Dr. Christopher Grieve (Hugh
MacDiarmid) yrði í framboði;
fyrir kommúnistaflokkinn í j
West Perth og Kinross kjör-1
dæmi í Skotlandi — á móti Sir j
Alec Douglas Home forsætis-;
ráðherra. Var haft eftir skáld- j
inu, að aðalástæðan fyrir því!
að hann tæki að sér þetta fram !
boð, væri sú, að Kommúnista
flokki Bretlands væri meinaður
sami kosningaaðgangur að
brezka útvarpinu og sjónvarp- j
inu, sem væri ólöglegt þar sem
aðrir flokkar fengju inni. Ef
forsætisráðherrann mundi nota i
sér þá kosningaaðstöðu að koma
fram í sjónvarpi og yrði kosinn,
mundi skáldið heimta þá kosn-
ingu forsætisráðherrans ógilda,
því hún yrði til komin með ó-
löglegum hætti.
John Calder lét ekki á sér
bera á skáldaþinginu (þótt
hann eigi sæti í stjórn leik-
félagsins sem stóð að því).
Hins vegar var honum boðið
að koma fram í spurningaþætti
á öðrum opinberum vettvangi
í borginni. Hann var hinn ró-
legasti, þegar hann var spurð
ur um skáldaþmgið og beru
stúlkuna í fyrra og sagði m.
a. sitt til si svona:
„Við höfum sliki fengið að
komast inn á siálfa hátíðina
með skáldaþing og það er allt
út af þessari bíessaðri stúlku,
sem enginn sá nógu vel. En
KÁUPFELAG EYFIRÐINGA
HAUSTIÐ ER KOMIÐ
.».aupa þarf haust- og vetrar skófatnað handafjölskyldunní, komið, eða hring-
ið, fyrirspurnum greiðlega svarað og afgreiðslu hraðað.
Sendum gegn póstkröfu.
SkódeOd K.E.A.
sími 1700 Akureyri.
ég held það sé bara til að
hreinsa blóðið og vekjandi fyr-
ir flesta að listahátíð geti boðið
upp á eitthvert sjokk, það er
ágæt tilbreyting að ganga fram
af fólki, held meira að segja,
að margt fólk oækist eftir því
þótt fæstir vilji viðurkenna
það. Sjokk getur verið nauð-
synlegt í þessu tilliti ,ekki sið
ur en í læknisfræðinni, til að
vekja fólk og hjálpa því til
að sjá hlutina i nýju ljósi.“
ERLENT YFIRLIT
Framhald af 7 síðu.
því frjálslyndari stefnu með
tilliti til þess.
Af hálfu Sósíaldemókrata og
Radikala mun vafalítið verða
reynt að ala á óánægju vinstri
armsins í Vinstri flokknum,
T.d. heldur Politiken, sem'ver-
ið hefur málgagn Radikala,
Westerby nú mjög fram.
f HINNI nýju stjórn Krag
eiga sex menn sæti, sem ekki
hafa verið í stjórn áður. Fimm
þeirra koma í sfað ráðherra
Radikalaflokksins, en einn
;vegna Bomholts menningar-
! ! málaráðherra, sem verðúr for-
seti þingsins. Hann er nú elzti'
maður þingsins, 68 ára gamall.
Af hinum nýju ráðherrum, er
tveimur þeirra veitt einna
mest athygli. Annar þeirra er
K. B. Andersen kennslumáia-
ráðherra, sem hefur verið mál-
svari Sósíaldemókrata á þingi
undanfarið. Hann er fimmtug-
ur að aldri og var kunnur út-
varps- og skólamaður áður en
hann varð þingmaður. Hann er
dugnaðarmaður, harðskeyttur
ræðumaður og því heldur illa
látinn af andstæðingunum.
Hinn er Hans Sölvhöj menning-
armálaráðherra. Hann er 45
ára gamall. Hann varð útvarps
stj. rétt fertugur og nýtur sér-
staks álits sem mikill athafna-
maður. Hann hefur ekki haft
afskipti af stjómmálum áður.
Per Hækkrup er áfram utan
ríkisráðherra, en Hans bróðir
hans, sem áður var dómsmála
ráðherra, er nú innanríkismála-
ráðherra. Vald Hækkerupanna
þykir ekki hafa minnkað við
það, að kona Per Hækkerups var
nú kosin á þing. Hins vegar fór
mun verr fyrir konu Poul Möll-
ers, annars aðalleiðtoga íhalds-
flokksins. Hún bauð sig fram í
öruggu kjördæroi en meðmæl-
endalisti hennar reyndist gall-
aður, svo að framboð hennar
var dæmt ógilt. Þ.Þ.
TÍÐI
heimilisblað allrar fjölskvidurinar er fjölbreytt
fróSlecjt, skemmtileaf os flytin m a.:
★ Fvndnar skonsögur
★ Kvennaþættir
★ Stjörnuspár
•* Getraunii-
★ Spennandisögur
★ Skák oa bridaebastti
★ Greinar um menn
og málefni o m fl.
PREMT
K
Ingólfsstræti 9
Sími 19443.
10 blöð á ári fyrir aðeins 95 kr
NÝIR KAUPENDUR FÁ 3 ÁRGANGA FYRIR 150 kr
Póstsendið i dag eftirfarandi nöntun
Eg undirrit óska að eerast áskrifandi að
SAMTÍÐINNl og sendt Hér með I5Ö kr t'yrir ár
gangana 1962. 1963 og 1964
(Vinsamlegast sendið þetta i ábyrgðarbréfi eða
póstávísun).
Nafn: .............................................
Heimili: ..........................................
Utanáskrift okkar er SAMTÍÐIN — Pósthólf 472 RvU
■BH
T I M I N N , fimmfudaginn 1. október 1964 —
13