Tíminn - 16.10.1964, Blaðsíða 2

Tíminn - 16.10.1964, Blaðsíða 2
TÍMINN FOSTUDAGUR 16. október 1964 jstjoff dansar v!ð Gerhardsen og norskar stúlk ur í þjóðbúningum. flokksins í Moskvu og töldu ýmsir það vita á breytingu í stjórninni. Menn vissu að Krústjoff kom til Moskvu í dag, en það þótti undar- legt, að hann sást hvergi í fýlgd með Kúbuforseta, Oswaldo Dorti- cos sem nú er í opinberri heim- sókn í Moskvu. Loks var það haft eftir áreiðanlegum heimildum í Moskvu, að Krústjoff hefði sagt af sér. Frétt þessi verður ekki til- Krústioff segirafsér! REYKJAVÍK, 15. okt. ÞÆR FRÉTTIR bárust í kvöld frá Moskvu, að einvaldur Sovétrfkjanna, Nikita Krústjoff, hafi sagt af r og við tekið Leonid Bresjnev, fyrrverandi forseti. Seint í gærkvöldi voru svo þessar fregnir stað- úar af Tass-fréttastofunni í Moskvu. Krústjoff fór bæði með embætti forsætisráðherra og aðalritara . iðstjórnarflokksins, en venjan er sú í kommúnistalöndunum, þar sem embættunum er tvískipt, að þá or valdamesta embættið að vera aðalritari kommún istaflokksins. Við forsætisráðherraembættiivu, sem rústjoff gegndi einnig, tók Alexei Kosygin, sem var varaforsætisráðherra. Samkvæmt upplýsingum á Moskvu á Krústjoff sjálfur að hafa beðizt lausnar vegna heilsubrests og hins háa aldurs síns. Segir '.nfremur að ákvörðunin um þetta hafi verið tekin á fundi æðstu manna miðstjórnar kommúnista- Kokksins í dag og var Krústjoff viðstaddur. Þessar miklu breytingar í valda- iðstöð sovézka kommúnista- í’okksins hafa komið öllum á ó- ’ r.rt. Engan grunaði hvað um var J vera, fyrr en þrálátur orðrómur ir uppi um breytingarnar í 'oskvu í dag. Stjórnmálamenn á esturlöndum líta svo á, að breyt- iigar þessar hafi verið ákveðnar í skyadingu, og benda á þá stað- • eynd til sannindamerkis, að Tass- l . éttastofan hafi ekki þulið neina 'ofgerðarrollu um störf og ævi- .triði Krústjoffs. Halda sérfræð- ingar að fyrirmenn flokksins hafi ikið Krústjoff frá störfum að 'oknum hörðum deilum. Ýmislegt bendir til, að mannabreytingarnar •tafi af ósamkomulagi um stefnu- skráratriði í utanríkispólitík. Um betta ósamkomulag vitnar einnig að áreiðanlegar heimildir herma, að tengdasonur Krústjoffs, Alezei Adsjubei, segi af sér ritstjórastarfi við Izvestija á morgun. Krustjoff hefur að undanförnu dvalizt á sveitasetri sínu í Káka- sus, en þeirri dvöl hafði hann orð- ,ð að fresta í lengri tíma, vegna heimsókna til Skandinaviu, Pól- lands, Tékkóslóvakíu og Arabiska sambandslýðveldisins. í apríl í fyrra minntist Krústjoff á það sjálfur, að bráðlega mundi hann hætta störfum. Hann sagði þá á fundi, að allir hlytu að gera sér ljóst, að hann gæti ekki um alla eilífð gegnt þeim stöðum, sem| hann nú hefði hjá ríkisstjórninni og flokknum. Snemma í dag voru allar myndir af Krustjoff fjarlægðar af veggj- um opinberra bygginga og skrif- stofa. Lögregluvörður í höfuð- borginni hefur verið aukinn til muna og lögreglumenn á bifhjól- um aka fram og aftur um helztu götur borgarinnar. Vesturlanda- menn í Moskvu tóku eftir því, að Krústjoff óskaði geimförunum ekki til hamingju þegar þeir lentu í Kasakstan á þriðjudaginn. Að loknum fyrri geimferðum hefur hann samstundis hringt og óskað geimförunum til hamingju. Hátíða- móttöku geimfaranna á Rauða torginu í Moskvu hefur verið frestað um nokkra daga. Snemma í dag barst það út, að líklega mætti vænta þess, að sov- ézka ríkisstjórnin sendi frá sér á ríðandi stjórnmálatilkynningu á næstunni. Það, sem styrkti menn í þessari trú var, að málgagn sov- ézku ríkisstjórnarinnar, síðdegis- blaðið Izvestija, kom ekki út í dag, en tilkynnt var, að blaðið mundi koma út í fyrramálið. Yfirmenn blaðsins vildu ekki segja hverju þetta sætti, en vanalegt er að Iz- veztija sé fyrst með fréttirnar ef um áríðandi tilkynningar er að ræða. Menn tóku einnig eftir því, að mikið var um að vera í bygg- ingu miðstjórnar kommúnista- kynnt opinberlega í Rússlandi fyrr en á morgun. Um leið og fréttir um þetta bárust til Bandaríkjanna, féllu hlutabréf í New York-kaup- höllinni um 10,86 stig, en svo mik- ið hafa þau ekki fallið síðan Kenn- edy var myrtur í Dallas í nóvem- ber í fyrra. Ýmsar heimildir vilja halda því fram, að gert hafi verið úti um þetta í miðstjórninni í gær, en það er ekki víst. Ekki er vitað, hve margir fulltrúar úr miðstjórninni voru á fundinum í dag né heldur hvernig andrúmsloftið var á fund- inum. Fréttamaður vestrænnar fréttastofu í Moskvu sneri sér í dag til eins af ritstjórum Tass- •fréttastofunnar og bað hann um álit hans á fréttinni um það, að Krústjoff hefði sagt af sér störf- um. Ritstjórinn svaraði því til, að hann hefði ekkert um þetta að segja, en ráðlagði fréttamannin- um, að hringja til sín seinn^ í kvöld. Fréttaritarar vestrænna komm- únistablaða fengu í dag ábendingu um það frá Moskvu að halda sig í námunda við útvarpstækin, þar sem von væri á mikilvægri frétta- tilkynningu. Síðustu fregnir herma að von sé á fleiri Lreytingum á rík isstjórninni, í kvöld fór Anastas Mikojan, forseti Sovétríkjanna, með Dorticos, forseta Kúbu í leik- hús, ásamt öðrum meðlimum ■ stjórnarinnar, en Krústjoff var I ekki í för með þeim. Seint í kvöld tilkynnti Tass fréttastofan svo op- í inberlega, að Krústjoff hefði sagt ! af sér störfum sem forsætisráð- I herra og aðalritari miðstjórnar j kommúnistaflokksins. Fréttin frá Moskvu um það, að Krústjoff hefði dregið sig í hlé, 1 vaktí bæði undrun og óróa í ! Washington, en engar opinberar umsagnir um þetta verða í frétt- um fyrr en á morgun. Johnson forseti er nú í kosningaferð um New York ríki og fær jafnóðum fréttir af því sem er að gerast. , Stjórnmálasérfræðingar benda á það, að bandaríska stjórnin hefur . að miklu leyti stuðzt við ósk Krústjoffs um betri sambúð aust- Leonld Bresjnev hlustar á Krústjoff flytja setnlnga rraeðu á fundi miðstjórnar Kommúnistaflokksins. BRESJNEV SEZTUR / STÓL/NN LEONID BRESJNEV, sem nú er aðalritari rússneska kom múnistaflokksins og þá um leið valdamesti maður Sovétríkj- anna, er fæddur 18. desember árið 1906 í Ukrainu. Foreldrar hans voru verkafólk. Fyrir aðra heimsstyrjöldina starfaði hann sem iðnfræðingur í Úralhéruð- unuim. 1938 sneri hann aftur til Ukrainu og gerðist þar full- trúi fyrir kommúnistaflokkinn. Settist hann þá að í Dnjepropet rovsk. f heimsstyrjöldinni varð Bresjnev pólitískur foringi í hernum. Hann var á fjórðu úkraínsku vígstöðvunum og var gerður að hershöfðingja. Eftir stríðið var hann gerður að aðalritara kommúnistaflokks ins í Moldá-héruðunum, síðar stjórnmálaforingi í sovéthern- um og aðalritari kommúnista- flokksins í Kazakstan. Á 19. flokksþinginu í Moskvu árið 1952 var hann kjörinn varamað ur í framkvæimdastjórn flokks ins og ritari miðstjómarinnar. Á 20. flokksþinginu 1956 var Bresjnev endurkjörinn í þess- ar stöður. Þegar Krústjoff lagði til atlögu við Molotoff og stuðn ingsmenn hans í júní 1957 var harin kjörinn fullgildur meðlim ur í framkvæmdastjórn flokks- ins. Bresjnev var kosinn forseti Sovétríkjanna 7 maí 1960, eft- ir að Vorosjiloff lét af því em- bætti. Eftir að hann hafði lent í erfiðleikum með að samræma störf sín í flokki og ríkisstjórn dró hann sig í hlé frá ritara- störfum í miðst.iórninni. í marz, 1963, var hann aftur kjörinn ritari í miðstjórn flokksins og varð smámsaman greinilega að deila völdum sín um sem forseti með öðrum. Að flestra áliti hefur Bresj- nev nú um nokkurt skeið ver- ið álitinn líklegasti eftirmað- ur Krústjoffs og kemur val hans því engurm á óvart. Eftir að Frol Kozlov, sem af ýmsum var talinn líklegasti „krónprins inn“, veiktist í maí, 1963, styrkt ist aðstaða hans enn. Síðan þá hefur Bresjnev einnig í æ rík- ari mæli tekið þátt í tilraun- um til að minnka spennuna milli austurs og vesturs. í apríl, þetta ár, tilkynnti hann persónulega pólitískum leiðtogum í Kazakstan og Úzbe- kistan þá ákvörðun miðstjórnar innar að fordæma sundrungar- stefnu Kínverja. Hinn fimmtánda júlí síðastlið inn tók Anastas Mikoyan, fyrr- verandi varaforsætisráðherra við forsetaembættinu, og um leið fékk Bresjnev tækifæri til þess að einbeita sér frekar að flokksstörfunum. í ágúst fylgdi hann með í flugvélinni, sem flutti lík ítalska kommúnista- leiðtogans Palmiro Togliatti til Rómar, þar sem hann var fulltrúi Sovétríkjanna við út- förina. í október var Bresjnev for- ingi sovézku sendinefndarinnar við hátíðahöldin í Austur-Þýzka landi í sambandi við 20 ára af- mæli Austur-Þýzkalands. Engum tekst eins vel að gera afhendingu heiðursmerkja á- hrifaimikla og Bresjnev. — Við slík tækifæri grípur hann til rússneskrar sveitamannafram- komu á svo innilegan og sann- færandi hátt, að hún hlýtur að virðast honum samgróin. Bróð- urlegur koss Bresjnev við af- hendingu minnis- eða heiðurs- merkja er ávallt eitt vinsæl- asta efni í sjónvarpinu í Moskvu. Margir telja að þessi nýja gerð kommúnistaleiðtoga — menntuð, þjálfuð, gædd góð- um hæfileikum, háttvís og næm á viðeigandi framkomu — virð ist hafa mjög rnikla möguleika í framtíðinni. Það er höfuðstyrkur Bresjnev hve vel honum tekst að sam- ræma hinn þrautþálfaða huga sinn hæfileikanum til þess að Framhald a 15 dðu Sjúklingurinn drekkur mjólk.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.