Tíminn - 24.12.1964, Page 2
2
Miðvikudagur, 23. desember
NTB-Austin. Johnson forseti
skýrði frá því í Houston í Tex-
as í gær, að Bandaríkin hefðu í
hyggju að smíða stærstu flutn-
ingaflugvél í heimi, en hún á
að geta flutt alls 700 her-
menn. Var þetta gert opinbert
eftir að forsetinn hafði setið
fund með landvarnarmálaráð-
herranum um fjárframlög til
hervarna. 58 slíkar flugvélar
munu kosta USA einn milljarð
dollara, að sögn forsetans.
NTB-Róm. ítalska þingið gerði
í morgun sína þrettándu til-
raun til að kjósa forseta lands-
ins, en hún mistókst, eins og
þær fyrri. Leone hlaut flest
atkvæðin, en vantar ein 80 at-
kvæði til að ná nægum meiri-
hluta.
NTB-San Diego. í nótt mældist
snarpur jarðskjálftakippur í
um 400 km. fjarlægð frá Pasa-
dena í Californiu. Kom kipp-
urinn fram á jarðskjálftamæli
í Pasadena. Ekki er vitað um
tjón af völdum jarðskjálft-
ans, en hann fannst í mikilli
fjarlægð.
NTB-W ashington. Starfsmaður
bandaríksa utanríkisráðuneyt-
isins hefur skýrt frá því, að
ekki komi til mála, að Banda-
ríkin hætti aðstoð sinni við
Suður-Vietnam. Það kom til
tals, vegna ósamkomulags þess,
sem nú hefur myndast á milli
Khanh hershöfðingja og yfii-
manna Bandaríkjanna í Suður-
Vietnam.
NTB-New York. Sovézki
njósnarinn, Igor Ivanov, sem
dæmdur var í 20 ára fangelsi
í Bandaríkjunum, verður i dag
látinn laus gegn 100.000 doll-
ara tryggingu, sem sovézka
sendiráðið í Washington mun
leggja fram. Jafnframt munu
yfirvöldin taka fyrir áfrýjunar
beiðni Ivanov.
NTB-New York. Síðasti starfs-
dagur allsherjarþings SÞ fyrir
jólaleyfi er í dag. Er vonast
til, að í fríinu náist samkomu-
lag um vandamálin í cambandi
við fjárhag sambandsins, en
þá gæti þingið tekið óhindrað
til starfa að jólaleyfi loknu.
Er þetta eitthvert merkilegasta
allsherjarþing SÞ. sem starfað
hefur, og ef Sovétríkin og USA
komast ekki að einhverju sam-
komulagi má segja, að halli
undan fæti fyrir SÞ.
NTB-Moskva. Sovézka frétta-
stofan, Tass, skýrði frá því í
gærkvöldi, að Sovétríkin hefðu
sent Souvanna Phouma, for-
sætisráðherra, skeyti, þar sem
stungið er upp á því, að hald
in verði ný alþjóðleg ráðstefna
um Laos. Forsætisráðherrann
er einnig beðinn um að stöðva
hernaðaraðgerðir gegn liðsveit
um kommúnista.
NTB-Briissel. Nefnd úr Efna-
hagsbandalagi Evrópu hefur
nú verið falið að rannsaka
ástæðurnar fyrir' því, að Jap-
anir ógna nú evrópskum skipa
smíðaiðnaði. Er nefnuinni fai-
ið, að gera nákvæma greinar-
gerð yfir það tjón. sem hin
japanska framleiðsla vinnur
Evrópulöndunum.
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 24. desember 1964
Reykholtskirkju
berast gjafír
í t'ilefni af því að á síðastliðnu
áiri voru liðin 70 ár síðan séra
Einar Pálsson, sífDast prestur í
Reykholti, hlaut prestvígslu, hafa
börn hans afhent Reykholtskirkju
að gjöf forkunnarfagra kirkju-
gripi. Eru það altarisklæði úir
rauðu flaueli, gullbaldírað af frú
Ingibjörgu Einarsdóttur Eyfells;
Styrkur til
háskólaliáms
í Noregi
Norsk stjórnarvöld hafa ákveð
ið að veita íslenzkum stúdent styrk
til háskólanáms í Noregi næsta
skólaár, þ. e. tímabilið 1. septemb
er 1965 til 1. júní 1966. Styrkur
inn nemur 700 norskum krónum
á mánuði, og er ætlazt til að sú
fjárhæð nægi fyrir fæði og hús
næði, en auk þes greiðast 400
norskar krónur vegna bókakaupa
o. fl.
Umisækjendur sikulu vera á aldr
inum 20—30 ára oig hafa stundað
nám a. m. k. tvö ár við Hástóla
ísland-s eða annan háskóla utan
Noregs. Þá ganga þeir fyrir um
styrkveitingu, sem ætla að leggja
stund á námsgreinar, er einkum
varða Noreg svo sem norska
tungu, bókmenntir, réttarfar, sögu
Noregs, norska þjóðmenningar- og
þjóðminjafræði, dýra- grasa- og
jarðfræði Noregs, kynna sér
norskt atvinnulíf o. s. fv.
Þeir, sem kynnu að hafa hug
á að hljóta styrk þennan, sendi
menntamálaráðuneytinu uimsókn
fyrir 15. febrúar 1965 ásamt afrit
um prófskírteina og meðmælum.
Umsóknareyðublöð fást í ráðu-
neytinu og hjá sendiráðum ís-
lands erlendis.
Menntamálaráðuneytið, 15. des.
1964.
altarisdúkur úr hör, gerður af
Gýðu Sigurðardóttur, tveir Ijósa-
stjakar úr kopar, mjög vandaðir.
Auk þess tólf altarískerti úr bezta
fáanlega bíflugnavaxi og skinn-
mappa með mynd af kirkjunni
þrykkta í skinnið og inniheldur
ávarp og gjafabréf með skrá yfir
munina.
Er mappan gerð af Ragnhildi
Briem Ólafsdóttur. Vill sóknar-
nefndin færa gefendum innileg-
asta þakklæti fyrir þessar höfð-
inglegu gjafir og ræktarsemi við
sína gömlu sóknarkirkju.
Þá hefur verið stofnaður sjóð-
ur til kaupa á nýju orgeli í kirkj-
una. Er sjóðurinn stofnaður til
heiðurs Bjarna Bjarnasyni á
Skáney á áttræðisafmæli hans 30. i
sept. s.l. Hefur Bjarni verið organ-i
isti við Reykholtskirkju frá byrj-l
un þessarar aldar. Stofnendur I
sjóðsins eru kirkjukór Reykholts-
kirkju, sóknamefnd Reykholts-
sóknar, kvenfélag Reykdæla, íbú-
ar sveitarinnar og aðrir vinir
Bjarna, er vildu votta honum
þakklæti fyrir vel unnin störf í
þágu söngmála sveitarinnar.
Tillögum í sjóðinn veitir mót-
töku síra Einar Guðnason, Reyk-
holti og sóknamefnd Reykholts-
sóknar.
Myndln er af gjöfunum til Reyk holtskirkju.
J0LASYNING 6 LISTA-
GB-Reykjaví!k, 23. desemeber.
Málverkasýning með myndum
eftir sex listamenn, búsetta í
Kópavogi verður haldin i salar-
kynnum Bókasafns Kópavogs um
. jólin, en listamennirnir eru Barb-
ara Árnason, Magnús Á. Ámason,
Benedikt Gunnarsson, Hafsteinn
Austmann Hrólfur Sigurðsson og
Sigurður Sigurðsson.
Tildrög þessarar sýningar eru þau
að ritstjórn bókasafns Kópavogs
bauð aldursforseta myndlistar-
manna í kaupstaðnum að halda
jólasýningu í safninu. Tók hann
boðinu og valdi með sér ofan-
nefnda listamenn, og verða nú
sýnd sex verk eftir hvern þeirra.
Sýningin verður opnuð á annan
í jólum og lýkur á nýársdag. Hún
verður opin daglega kl. 2—10 síi
degis, nema á gamlársdag kl. I
—6. Bókasafnið er í Félagshein
ilinu, gengið inn um dymar sum
an við bíódyrnar.
Jólagleði og barna-
skemmtun stódenta 2.
STOFNA TONUSTARFE-
LAG í SKAGAFIRÐI
í september s. 1. var stofnað
Tónlistarfélag Skagafjarðar. For
göngumenn að stofnun þess voru
ýmsir áhugamenn um tónlistar-
mál, bæði af Sauðárkróki og úr
Skagafjarðasýslu.
Markmið félagsins er fyrst og
fremst að stofna og reka tón-
listarskóla og vinna að því að
glæða áhuga fyrir tónmennt í hér
aðinu. Unnið er að því að safna
^latrésfagnaður
Framsóknarfélag
^nna í Pf>v!< iavík
Framsóknarfélögin i Reykja-
vík halda jólatrésfagnað sinn í
Glaumbæ 3. janúar n. k. Að-
göngumiða má panta i sima 1-55-
64 eða i Tjarnargötu 26, þar sem
þeir eru einnig til sölu.
félögum og virðist áhugi vera
almennur. Ákveðið hefur verið að
þeir sem ganga í Tónlistarfélagið
fyrir n. k. árarnót sikuli teljast
stofnendur.
Tónlistarskóli á vegum félags
ins telour til starfa á Sauðárkróki
upp úr áramótunum og eru þeg
ar skráðir allmargir nemendur.
Skólastjóri verður Eyþór Stefáns
son, tónskáld en aðalkennari við
skólann, frú Eva Snæbjörndóttir
Kvenfélag Sauðárkróks hefur
fært hinu nýstofnaða Tónlistarfé-
lagi að gjöf 10 þús. krónur og
heitið stuðningi sínum á næstu
árum. Jafnframt hefur Skaga-
fjarðasýsla styrkt skólastofnunina
með 20 þús. kr framlagi, og gert
er ráð fyrir að Sauðárkróksbær
leggi fram hliðstæða upphæð í
sama augnamiði.
Stjórn Tónlistarfélagsins er
skipuð þessum mönnum:
Ólafur Stefánsson, Eyþór Stef-
ánsson og Jón Karlsson, Sauðár-
króki, Magnús Gíslason, Frosta-
stöðum og Jón Björnsson. Haf-
steinsstöðuim.
Gjafabók
AB
Gjafabók AB, sem venju-
lega kemur út fyrir jól,
kemst ekki til félaga
AB að þessu sinni á tilætl-
uðum tíma vegna ófyrirsjá
anlegra tafa í bókbandi.
Hins vegar verður séð um,
að bókinni verði dreift fyrir
áramót.
í jólum
Um þessar mundir eru stúdent
ar að hefja fjársöfnun í þeim til
gangi að standa straum af kostn
aði við fyrirhuigað stúdentaheim
ili, sem rísa mun við Gamla-Garð.
Set hefur verið á laggirnar
nefnt til þess að afla fjár til heirn
ilisins, og mun nefndin efna til
dansleiks í Sigtúni annan í jólum.
Þá mun Stúdentaráð efna til
barnaskemimtunar að Gamla-Garði
annan í jólum. Skemmtunin verð
ur milli kl. 3 og 5 og munu þá hin
ir frægu jólasveinar Giljagaur og
Gáttaþefur koma í heimsókn og
ganga í kring um jólatréð með
börnunum.
Aðalfundur
^manns
Aðalfudnur Glímufélagsins Ár-
mann verður haldinn 28. desember
n. k. í Félagsheimilinu við Sig-
tún. Fundurinn hefst kl. 21.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf.
Stjórnin.