Tíminn - 24.12.1964, Síða 13

Tíminn - 24.12.1964, Síða 13
mmmm „KOMIN ERU JÓLIN Komin eru jólin, sem Jesús fæddist á. Ég hef heyrt og lesið hann elski börnin smá. Ég skal alltaf reyna að lifa líkt og hann. Lýsa hverri sálu, og hryggja ei nokkurn mann. Þegar jólin koma, finnst mér alltaf þessi jólasöngur bernsku- heimilis míns óma í vitund minni með fallegri hljómmikilli rödd fóstru minnar, sem átti í mín- um eyrum einhvern engilskæran tón. sem ekkert annað í tónlist heimsins mun jafnast á við. En þannig er einnig um jól bernsk- unnar. engin jóladýrð kemst þar nærri, þótt allar götur og háhýsi ljómi af skrautljósum. Það er eitt hvað í ætt við eilífðina eina ein- staklingsbundið og persónulegt í hverju hjarta. sem enn kann að finna til. Komin eru jólin. Eins og dýrð- legur helgidómur með geislum stráðum gluggum eru þau fram undan í skammdegismyrkrum vetr arins. Við stöndum við hliðið þessa síðustu helgi í aðventu. En það er svipað með jólin og muste -ið, helgidóminn í Jerúsa lem forðum. Þau eru þrískipt: fyrst er forgarður, þá hið heilaga og síðast hið allra helgasta. Sum- ir komast aðeins í forgarðinn, þar gerist allur jólaundirbúningurinn Þar hefur verið allt í önnum með ysi og þysi aldarfars og auglýs- inga. Allt er fágað og hreinsað. Jólagjafir eru upphugsaðar, útbún ar og sendar til að vekja undrun og fögnuð. Nú er allt tilbúið. Ljósin glitra. Börnin brosa. Allir eru svo góðir, fallegir og glaðir. En samt erum við aðeins, forgarð- urinn. Höldum áfram inn í hið heilaga. Þar heyrum við jólaguð- spjallið, jólasálmana, jólabæn, það sem skapar mótar og helgar þessa hátíð. Og svo jólagjafir, jólaljós, veizlu borð alsett krásum og skreytt með blómum og ljósum, stofan í öllu sínu skarti, heimilið ilmandi af hreinleika og dýrð, jólaleikir, jóla stemmning, jólaskap. Og svo þurfum við ofurlitla jóla helgi. Kyrrð, frið og hvíld eftir allt amstrið, hlaupin og spennuna. Og eitt sem er enn þá betra jóla- frið. Framhald á 15. síðu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.